Morgunblaðið - 14.03.1969, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.03.1969, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1969 Nýjung ! Nýjung ! Fiskpylsur Reynið hinar ljúffengu hraðfrystu fisk- pylsur. — Fást í flestum kjörbúðum Reykjavíkur og nágrennis. SJÓFANG H/F. Sími 20380. — Það er þýðingarlaust. Ég hef ekkert við þig að tala, Blake, tók hún fram í fyrir honum. Röddin hálfbilaði á síðasta orð- inu og hún lagði símann. Hún var varla búin að því þegar bjallan glumdi aftur. Hún leyfði henni að hringja. Eftir nokkrar mínútur þagnaði hún en byrjaði svo aftur. Hún fleygði kodda yfir símann, lokaði sig inni í baðherberginu og hlust- aði í staðinn á hjartsláttinn í sjálfri sér. Eftir stundarkorn þagnaði bjallan. Hún tók sér a;- pirínskammt og fór í rúmið í afleitu skapi. En nú var hún' orðin and- vaka og neyddi sjálfa sig til að hugsa um kofann, um Símon og um Suki — en kom fyrir ekki. Um það bil klukkustund seinna hringdi dyrabjallan. Hún hringdi aftur og aftur og síðan var bar- ið á hurðina. Hver sem þetta kynni að vera — og það þóttist 55 hún vita — þá skyldi hún aldrei fara á fætur. Lofum honum að hringja alla nóttina. Hún hlust aði lengi og hélt niðri í sér and- anum, og reyndi að greina hvert einstakt hljóð. En svo heyrði hún allt í einu fótatakið fjar- lægjast dyrnar. Klukkan um þrjú, féll hún loks í óværan svefn og dreymdi að hún var á gangi um eyði- mörk, en skriðdreki elti hana og var að reyna að skjóta á hana. Hún hljóp í krákustíg, datt nið ur af þreytu en reif sig upp aftur og hljóp áfram. Hún vakn- aði klukkan sex og gekk var- lega út að glugganum og leit út. Magur svartur hundur labbaði hægt yfir steinbrúna áleiðis að röð af ruslafötum. Lokið hafði dottið af einni þeirra og eitt- hvað af rusli lá á jörðinni. Hún heyrði í vörubílum utan af aðal- veginum. Nýr dagur var að hefj ast. Hárlakkið sem þolir regn og fyrsta flokks blöndunartæki a baðkerið JÚPITER — blöndunartæki fyrir baðker með föstum stúti og handsturtu. Handsturtuna má tengja við veggslá og fæst þá steypibað. Handföngin eru hitaeinangruð með ACRYL. STJORNU BLONDUNARTÆKI MAM1¥Ó PÉTIJIISSOIV HEILDVERZLUN - HAFNARSTRÆTI 8 - SIMI 17121 heldur hárinu stöðugu Í KAUPFÉLACINU Á CAMLA VERDINU 16. kafli Þegar hún kom út úr lestinni, j var hún helzt að hugsa um að j fara gangandi til kofans, en skilja eina töskuna sína eftir á stöðinni. Hún klifraði upp I mjóa stíginn, sem lá upp að i brautinni. Það var hægt að ganga I stuttan spöl, eftir brautinni og fara svo yfir brú, sem lá að veginum upp að bakhlið kofans. Þarna hafði sýnilega enginn maður «gengið mánuðum saman, því að stígurinn var vaxinn alls konar lynggróðri og þistlum. En fyrir neðan var jörðin alþakin blómum. Smáblettir af marglitum blómgróðri. Allstaðar var svo grænt, að það hálfblindaði augun. Það er næstum komið sumar aftur, hugs aði Lísa og það að hún hafði varla nokkurntíma tekið eftir vorinu í London, vakti hjá henni einskonar söknuð. Hún hratt upp hliðinu og tróð sig gegn um mjóan ganginn. Garðurinn var allur í órækt, en þó ekki svo, að ekki mætti úr því bæta, og þegar hún fann lykilinn undir þröskuldinum að forskálanum, brosti hún um leið og hún opnaði dyrnar. Allt var þarna óbreytt. Tómu bókahillur- nar voru dálítið rykugar, og þarna var dálítið húsaskúm og allt var heldur draslaralegra en áður, en húsgögnin voru öll hvert á sínum stað. Hún settist niður á langa set bekkinn við dyrnar og setti tösk una sína á gólfið. Hún fann mik inn kryddkenndan blómailm í loftirru. Bjórkrukkurnar héngu niður úr bitunum og lágu arin stólarnir með rykfóðrinu á voru hálf-ræfilslegir, en það höfðu þeir nú reyndar álltaf verið. Á arinhillunni sátu postulínshund arnir með fyrirlitningarbrosið sitt á vör. Klukkan hafði stanzað kortéri fyrir tvö. Tréfatan við STÚLKUR Nokkrar vanar pökkunarstúlkur vantar í frystihús úti á landi strax. — Upplýsingar hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, eftirlitsdeild, sími 22280. eitthvað í málinu. Reyndu að llrúturinn, 21. marz — 19. apríl Vinnan fer að ganga betur og greiðist úr flækjunni, og kvöldið verður prýðilegt. Gættu eigna þinna og lausafjár í kvöld. Nautið, 20. apríl — 20. maí Einhver vinur veldur þér óþægindum. Það lagast af sjálfu sér, þótt það tefji aðeins fyrir þér. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní AHir vilja hjálpa þér. Gerðu því það, sem þig langar mest, og kepptu að því marki, sem þér er mikilvægast. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí Seldu í dag, ef þú ætlar að gera líta á málin frá annarri hlið. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst Þú skalt ekki gera áætlanir of langt fram í tímann. Það þarf að vinza mjög margt úr áður en hafizt er handa. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Allt virðist skýrt frá þinni hálfu. Náunginn getur orðið þér skeinu- hættur f dag. Gerðu ráð fyrir misfellum. Vogin, 23. sept. — 22. okt. Þér kemur margt á óvart í dag. Þú getur þurft að hliðra tii. Svona breytingar eru skammvinnar, en það fellur í þinn hlut að skeyta saman. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Gefðu öllum kost á að létta á hjarta sínu. Þú verður margs vísari. Bogamaðurinn, 22. nóv. — 21. des. Snúðu þér frá opinberum málum og gefðu þig meira að félags- málum í minni mæli. Farðu ekki í ferðalag. Steingeitin, 22. des. — 19. jan. Fjarlægðin gerir fjöllin blá, og þannig er með fjarræn málefni; þau eru breytingum háð í meðförum. Hugsaðu um eigin hagsmuni. Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Þér hættir til að gefa of mikið fyrir þægindin. Fjarlæg takmörk hafa töfraljóma og virðast ómælanleg. Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz Hættu ekki á neitt. Hafðu augun hjá þér. Rifrildi getur orðið út af engu, ef peningar eru annars vegar. Hugsaðu um að auka fjár- magn þitt i framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.