Morgunblaðið - 28.03.1969, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. MARZ 1909
Frá aðalfundi Kaupmannasamtaka íslands:
Skjótar breytingar á skipan verðlagsmála
— er sameiginlegt hagsmunamál
neytenda, verzlunar og
launþega í verzlunarstétt
— Um 700 verzlanir í samtökunum
Framhaldsaðalfundur Kaup-
mannasamtaka Islands var halð-
inn 12. marz s.l. Fundurinn hófst
með ]>ví að dr. Gylfi Þ. Gisla-
son viðskiptamálaráðherra svar
aði ýmsum fyrirspurnum, sem
höfðu borizt á fyrri fundi sam-
takanna, en ráðberrann skorti
þá bæði tíma og nægar upplýs-
ingar til að ffeta svarað. Þar
var um að ræða ýmis atriði er
lúta að söiu og dreifingu á mjólk
urvörum, ennfremur upplvsingar
um starfsemi og starfshætti Inn-
kaupastofnunar Ríkisins, rekst-
urskostnað við Áfengis- osr tób-
aksverzlun Ríkisins og kom fram
i þeim upplýsingum meðal ann-
ars, að sölulaun þau er Áfeng-
is- og tóbaksverzlun rikisins
vörum í heildsölu eru þau isömu
og smásöluverzlun er ætlað að
dreifa hinum sömu vörum í smá-
sölu.
Á framhaldsfundinum var sið
an beint tii ráðherrans ýmsum
viðbótarfyrirspumum þar á
meðal hver væri kostnaður við
starfrækslu núverandi verðlags-
eftirlits í landinu, hver væri af
stað alþýðuflokksins til þjóð-
nýtingar á verzlun, hverjar mættu
ætla að væru framtíðarhorfur á
skipan viðskiptamála í landinu,
hverjir væru möguleikar á auknu
stofnlána- og rekstrarfé tii verzl
unarfyrirtækja og margt fleira.
Síðan spunnust ýtarlegar um-
ræður og viðbótar fyrirspumir
komu fram, eftir þvi sem að
svör ráðherrans gáfu tilefni tli.
Þorvaldur Guðmundsson full-
trúi Kaupmannasamtakanna í
bankaráði Verzlunarbanka ís
lands h.f. gaf upplýsingar um
störf og starfsemi bankans á sið
ast liðnu ári.
Hjörtur Jónsson fulltrúi
Kaupmannasamtakanna í lífeyr-
issjóði Verzlunarmanna greindi
frá störfum og afkomu lifeyris
sjóðsins á siðast liðnu ári.
Eftirfarandi ályktanir og til-
lögur, sem fyrir fundinum lágu,
voru samþykktar:
1. I.ÖG TJM
VrRZLUNARATVÍNNTJ
Með tilvíaun til laga nr. 41
1968 um verzlunaratvinnu vill
Aðalfundur Kaupmannasamtak-
anna, haldinn 27. febr. 1969 vekja
athygli á, að allverulegir ann-
markar hafa komið fram við
framkvæmd laganna.
Telur fundurinn því nauðsyn-
legt, að sett verði sérstök reglu
gerð um framkvæmd laganna, er
kveði nánar á um túlkun þeirra,
svo sem heimilað er í 15 gr.
nefndra laga, þannig að ekki
verði sniðgengnar þær forsend-
ur er upphaflega voru settiar
fram fyrir því, að lögin um verzl
unaratviiunu voru sett.
Jafnframt telur fundurinn það
eðlilegt og til þess fallið að
skapa meiri festu og aðhald í
stofnun og starfræsklu verzlun-
arfyrirtækja, að við útgáfu nýrra
verzlunarleyfa sé leitað umsagn
ar hlutaðeigandi samtaka kaup-
sýslumanna í smásölu og stór-
sölu.
2. MJÓLKURSÖLCMÁL
í tilefni umræðna, sem nú fara
fram á opinberum vettvangi um
fyrirkomulag á sölu og dreif-
ingu mjólkurvara, viö Aðal-
fundiur Kaupmannasamtakanna,
haldinn 27. febr. 1969, ítreka
fyrri áskoranir samtakanna, um
að dreifingarkerfi á mjóíkur-
vörum verði endurskoðað og því
breytt á þann veg, að sérhver
roatvöruverzlun, er þess óskar og
uppfyllir kröfur um hreinlæti
og aðra aðstöðu, fái heimíld til
mjólkursölu.
Jafnframt mótmælir fundur-
inn harðlega þeirri mismunun,
er sums sfaðar á sér stað á land
inu, og er fólgin í því, að ein-
stök mjólkursamlög neita að af-
greiða mjólk til verzlana í eigu
enistaltlinga, en einskorða söl-
una við sölubúðir kaupfélaga.
Telur fundurinn ekki annað
samræmast nútima verzlunarhátt
um en að allir aðilar njóti jafn-
réttis og sömu aðstöðu í þessum
efnum, hvort heldur um er að
ræða verzlanir í eigu einstakl-
inga eða félaga.
■3. STOFNLÁNASJÓÐIR
SÉRGREINA RFÉLAGA
INNAN K.l.
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands, haldinn 27. febr.
1969, lýsir ánægju sinni með þær
aðgerðir einstakra sérgreinafé-
laga jnnan samtakanna að mynda
stofniánasjóði meðal eigin félags
manna. Telur fundurinn, að gagn
semi slikra stofnlánasjóða hafi
þegar sýnt sig svo ekki verði
umdeilt. Jafnframt þakkar
fimdurinn góðan skiining og við
urkenningu hæstvirtrar ríkis-
stjórnar og Framkvæmdasjóðs
ríkisins á hlutverki slíkra stofn
lánasjóða.
Það er skoðun fundarins, að
starfsemi stofnlánasjóða á veg-
um sérgreinafélaganna og sam-
starf við Verziunarbankann i
rekstri sjóðanna, sé hið mikiivæg
asta spor til efflingar verzlunar-
stéttinni og hlutverki hennar.
4. VERZLUNARBANKI
ISLANDS II.F.
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands, haldinn 27. febr.
1969, ítrekar fyrri áskoranir sín
ar til hæstvirtrar Rikisstjórnar
og Seðlabanka íslands, um að
Verzlunarbanka fslands h.f. verði
veitt heimild til gjaldeyrisvið-
skipta
Jafnframt skorar fundurinn á
Ríkisstjórnina og Seðlabankann
að beina fjárframlögum af fé
Framkvæmdasjóðs til Stofnlána
deildar verzlunarfyrirtækja við
Verz'lunarbankann til jafns við
Stofnlánadeildir annarra atvinnu
greina, enda er fjárskortur til
uppbyggingar og hagræðingar
eitt af brýnustu vandamálum
verzlunarf y rirtæk j a.
5. LOKCNARTÍMI SÖLCBÚÐA
Vegna þess öngþveitis, sem
rikjandi er varðandi lokunar-
tíma sölubúða, samþykkir Aðal-
fundur Kaupmannasamtakanna,
haldinn 27. febr. 1969, að fela
stjórn Kaupmannasamtakanna að
beita sér fyrir setningu sam-
ræmdrar löggjafar um þetta efni,
er giildi fyrir landið allt.
Aðalfundurinn telur að þróun
in í þessum málum sé hin háska-
legasta, er leiða muni til óhag-
kvæmni og aukins kostnaðar í
verzlunarrekstri, sem að lokum
leiði til hærra vöruverðs en
þyrfti að vera. Fundurinn telur
að enda þótt auka megi þjón-
ustu og innkaupamöguieika al-
mennings frá þvi sem almennast
gerist, megi gera það á heilbrigð
ari og viðráðanlegri hátt en nú
á sér stað.
Til að svo geti orðið, þurfi þó
sýnilega að koma til samræmd
löggjöf, þar sem annars vegar
verði leitast við innan vissra
marka, að veita almeíiningi full-
nægjandi innkaupaaðstöðu og
hins vegar að tryggja þeim, sem
við verzlunarstöf fást, það fé-
lagslega öryggi, sem talið er sjálf
sagt og eðlilegt að löggjafinn
láti þegnunum í té í nútímaþjóð-
félagi.
6. VERðLAGSMÁL
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands, haldinn 27. febr.
1969 fordæmir harðlega núver-
andi fyrirkomulag á skipan
verðlagsmála. Minnir fundurinn
á, að þegar í árslok 1967 hafi
/verið gefnar um það yfirlýsing-
ar af hálfu opinberra aðila, sem
hafi úrslitaáhrif í þessum efn-
um, að verðlagsákvæði þau, sem
þá voru sett, ættu aðeins að vera
bráðabirgðaráðstöfun. Reyndin
hefði ekki aðeins orðið sú, að
fyrirhuguð bráðabirgðaráðstöf-
un væri enn í gildi, heldur hafi
tvívegis til viðbótar frá því að
umræddar yfirlýsingar voru
gefnar, verið vegið í sama kné-
runn og hlutur verzlunarinnar
með valdboði skertur svo stór-
lega, að ófyrirsjáanlegt tjón hafi
hlotizt af hjá verzlunarfyrrtækj
um.
Aðalfundurinn vill vekja at-
hygli alls almennings á þeirri
staðreynd, að skjótrar breytingar
á núverandi skipan verðlagsmála
er sameiginlegt hagssmunamál
neytenda, verzlunarfyrirtækja
og launþega í verzjunarstétt. Því
til áréttingar bendir fundurinn
á eftirfarandi:
1. Núverandi verðlagsákvæði
eru nú þegar orðin þess vald-
andi, að beinn vöruskortur gerir
víða vart við sig og verð margra
vörutegunda er hærra, beinlinis
vegna verðlagsákvæðanna.
2. Verðíagsákvæðin verka lam
andi á allan verzlunarrekstur og
gera fyrirtækjum ókJeift áð veita
almenningi þá þjónustu og fyrir
greiðslu, sem hann telur sig eiga
að fá.
3. Verðlagsákvæðin gera rekstr
argrundvöll verzlunarfyrirtækja
það veikan, að að óbreyttu verð
ur ekki hægt að greiða laun-
þegum í verzlunarstétt laun, sem
teljast yrðu sambærileg við laun
annarra þegna þjóðfélagsins.
Með skírskotun til framanrit-
aðs skorar Aðalfundur Kaup-
mannasamtakanna á hæstvirta
ríkisstjórn og fulltrúa launþega
samtakanna í Verðlagsnefnd að
gera sér þess fiuíla grein, í hvaða
óefni stefnir á sviði verðlags-
mála og að taka höndum saman
við fulltrúa verzlunarinnar um
raunhæfar og sanngjarnar útbæt
ur.
7. LOKUN VERZLANA
í EINN DAG
Samþ. var á Aðalfundinum til-
laga þess efnis, að Kaupmanna-
samtökin beiti sér fyrir almennri
lokun allra verzlana í einn dag
til að mótmæla þeim rangindum
Og órökstudda fyrirkomulagi, sem
verzlunin á við að búa í verð-
lagsmálum.
Samhliða slíkum lokunardegi
var stjórn samtakanna falið að
undirbúa almenna upplýsinga-
•starfsemi til bii;tingiar í fjöl-
miðlunartækum, þar sem gerð
yrði grein fyrir, í hvaða óefni
stefndj i viðskiptamálum með
því að viðhalda núverandi fyrir-
komulagi á skipan verðlagsmála.
Stjórn Kaupmannasamtakanna
skipa nú:
Pétur Sigurðsson, formaður
Torfi Torfason,
Sveinn Björnsson,
Stefán Sigurðsson,'
Þorvaldur Guðmundsson,
Samtökin gefa út sérstakt blað,
Verzlunartíðindi, er koma út
annan hvern mánuð, og er því
dreift endurgjaldslaust meðal fé
lagsmanna og ýmissa annara að-
ila.
Framkvæmdastjóri Kaupmanna
samtakanna er Sigurður Magnús
son, en í samtökunum eru nú
um 700 verzlanir víðsvegar um
landið.
Breiðfirðingaheimilið hf.
Aðalfundur Breiðfirðingahelmilisins h.f., verður hajdinn i Breið-
firðingabúð mánudaginn 28. april 1969 kl. 8.30 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum
Reikningar félagsins liggja frammi hluthöfum til athugunar
10 dögum fyrir fundinn á skrifstofu félagsins í Breiðfirðingabúð.
STJÓRNIIM
Ódýrt
niðursoðið
grœnmeti
MMMimmnmm.i,
iiniiiiiimniLiiuiiiiHr.
... llWlttlMW,
IIIIMIHIHIff,
Ú tvarpsvirkjar
ARSHATIÐ félagsins verður haldin í Félagsheimili Kópavogs
laugardaginn 29. þessa mánaðar.
SKEMMTINEFNDIN.
Óskast til leigu
3ja herb. íbúð með húsgögnum í Hafnarfirði/Reykjavík fyrir
útlend hjón frá 8. april til 1. september 1969.
Skrifleg tilboð sendist til Hr. Maag. Pósthólf 244, Hafnarfirði.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
Skemmtið ykkur vel vinir, ég kem
aftur eftir nokkrar klukkustundir til að
kveðja. Vertu ekki að flýta þér neitt. 2.
mynd) Hann er bróðir yðar ungfrú Athos.
Haldið þér að hann fleygi okkur i raun
og veru fyrir hákarlana? Ég er viss um
að hann gerir það herra Troy. 3. mynd)
Angelo lét skipslækoinn gefa mér sterkt
deyfilyf svo að ég gæti skipt mér af
gerðum hans. Hann er gersamlega geð-
veikur.