Morgunblaðið - 28.03.1969, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. MARZ I’96®
Mœta þá Reykjavíkurúrvali
en Hafnfirðingum á sunnudag
1»ÝZKU meisptararnir í hand-
knattleik, liðsmenn Gummers-
baeh "voru væntanleg'ir til lands-
ins í nótt á leið sinni vestur
um haf, þar sem þeir keppa við
Bandaríkjamenn og Kanada-
menn. Liðið áir hér og leikur
hér tvo leiki, hinn fyrri á rnorg-
un kl. 3.30 og Ihinn síðari á
sunnudagskvöldið kl. 8.30 í
LaugardalshöII. f fyrri leiknum
mætir úrvatslið Reykjavikur
Þjóðverjunum en í hinum síðari
úrvalslið Hafnarfjarðar.
í>að er gífurlegur fengur að
þessari heimsókn því þett® lið
mun sýna okkur það bezta sem
evrópsk félagslið geta sýnt i
handknatt’leik. Þýzka liðið er
nýbakaður Þýzkalandismeistari
innanhúss og hefur oft áður
unnið þann titil og einnig unnið
Evrópubikar félagsliða, svo hér
eru gestir ekki af lakara taginu.
Sem Þýzka.landsmeistari kem-
ur Gummers'baeh í Evrópu-
keppni félagsliða næsta vetur
ásamt FH og ekki er loku fyrir
það skotið að liðin lendi þá hvort
gegn öðru.
Raunar ihefði verið meira í
það varið að mótherjar hér
hefðu t. d. verið okkar bezta
lið í dag, FH og síðan hefði
landsliðið fengið reynsluleik,
Fram sigraöi KR örugglega
Karl Jóhannsson sýndi frábœran leik
í FYRRAKVÖLD bar Fram sig-
urorð af KR I leik liðanna í 1.
deild Islandsmótsins í hand-
knattleik. Lokastaðan varð 25:19,
en jafntefli 11:11 var í hálfleik.
Var leikurinn mun jafnari en
únslitatölur |gefa til kynna, en
hörð og ákveðin vörn Framara
í siðarj hálfleik, ásamt ágætri
frammistöðu Þorsteins í marki
þeirra skapaði þeim svo stóran
sigur.
Leikurinn hófst með mikilli
markasúpu, því þegar 3 mínút-
ur voru liðnar höfðu 5 mörk
verið skoruð. Fram hafði yfir-
leitt frumkvæðið í háifleiknum,
mest 4 mörk, en undir lok hans
tókst KR að jafna, er Karl Jó-
hannsson gerði hvert markið af
fætur öðru. Skoraði hann 9 af
11 mörkum KR í hálfleiknum.
í síðari hálfledk sýndi Fram
þá varnaraðferð sem verið hef-
ur þeim árangursrík í vetur m.a.
í leikjum þeirra við ÍR. Voru
KR-ingar sem nfllguðust varnar-
vegg þeirra jafnan teknir ómjúk
um tökum. Hefðu dómararnir
með réttu mátt taka þyngra á
brotum þeirra. Tók Fram for-
ystu þegar í upphafi hálfleiks-
ins og hélt hennd leikinn út.
Langbezti maðurinn á leik-
vellinum var Karl Jóhannsson,
en í fyrri hálfleik var hann |
sannarlega í essinu sínu. Hilm-
ar Björnsson sýndi einnig ágæt-
an leik og spilaði Karl upp. 1
li«i Fram átti Þorsteinn Björns-
son beztan leik og er þetta
sennilega hans beztd leikur í ís-
landsimótinu. Ingóilfur stóð sig
einnig vel, en KR-ingaT gáfu
honum oft mjög ákjósanlegt
svigrúm til að skjóta. Nefna ber
einnig Sigurð Einarss’on. sem
sjaldan á slæma leiki.
Dómarar voru Björn Kristjáns
son og Gastur Sigurgeirsson og
sem fyrr segir hefðu þeir mátt
vera ákveðnari.
Mörkiin skoruðu.
Fram: Ingólfur 9, Guðjón 4,
Sigurður 4, Arnar 4, Gylfi 2,
Sigurbergur 1, Rúnar 1.
KR: Kard 14, Hilimar 2, Stein-
ar 1, Haraldur 1, Geir 1.
Gretar Steindórsson gerir æfingar á tvísla.
í fimleikum
KR tii
því ekki vei’tir því af sam-
æfingunni fyrir átökin siðar
á árinu. En hand’knattleiks
ráðin í Reykjavík og Hafnar-
firði sem að móttöku þýzka
liðsins standa ákváðu að ’hafa
fyrirkomulagið eem raun er
á.
Það eitt er víst að það verður
Framhald á bls. 31
íslandsmót
v eroiaun
Verðlaunagripi til keppninnar
hafa gefið: Samvinnutryggingar
bikar í fiokkakeppni karla, Sjó-
vá gefur bikar í flokkakeppni
kvenna, Jón Jóhannesson (ís-
landsmeistari 1937) gefur styttu
til íslandsmeistara í fimleikum
karla og Hannes Þorsteinsson
.ítyttu til íslandsmeistara í fim-
leikum kvenna.
★ Danskir yfirdómarar
Til aðstoðar við framkvæmd
mótsins hafa verið fengnir tveir
danskir fimleikameistarar, hjón-
in Else og Kurt Trangbæk. Þau
munu setja dómara og keppend-
ur inn í alþjóðlegar keppnisregl-
ur, auk þess sem þau verða yfir-
dómarar á mótinu, hvort í sínum
flokki.
Unglingoliðið
leikur tvo leiki
íyrir norðnn
um nœstu helgi
„LANDSLIÐIГ í knattspyrnu
leikur næsta æfingaleik sinn á
sunnudaginn og verða mótherj-
arnir þá liðsmenn Akraness. Leik
urinn verður á Háskólavellinum
kil 2.
Unglingalandsliðið heldur til
Húsavíkur og leikur kl. 2 á laug
ardaginn gegn liði Völsunga, en
’heldur síðan landveg til Akur-
eyrar og keppir við Akureyringa
kl. 2 á sunnudaginn.
Staðan í Englandi
Staðan í 1. o«r 2. deild:
1. deild Derby County 35 19 11 5 47:30 49
Leeds Utd. 33 23 8 2 59:24 54 Middlesbro 36 19 8 9 55:41 46
Liverpool 32 21 6 5 52:19 48 Crystal Palace 34 18 8 8 59:41 44
Arsenal 32 19 8 5 45:18 46 Cardiff City 37 19 6 12 64:47 44
Everton 31 17 10 4 64:27 44 Charlton 35 15 12 8 50:46 42
Chelsea 35 16 8 11 62:45 40 Millwall 36 17 7 12 55:42 41
West Ham 33 13 13 7 62:41 39 Carlisle 36 14 10 12 41:40 38
Southampton 36 13 11 12 45:43 37 Sheffield Utd. 36 14 9 13 55:46 37
Tottenham 33 10 15 8 49:42 35 Huddersfield 34 14 8 12 45:45 36
Burnley 35 13 8 14 45:67 34 Blackpool 35 11 13 11 44:36 35
Ipswich 35 12 9 14 51:51 33 Birmingham 35 14 6 15 63:55 34
Sheffield Wed. 32 10 11 11 34:39 31 HuII City 35 10 14 11 49:47 34
Wolverhampton 34 9 13 12 35:45 31 Blackburn 32 12 9 11 39:39 33
Manchester Utd. 34 10 11 13 45:45 31 Aston Villa 36 10 13 13 34:44 33
West Bromwich 33 11 8 14 44:56 30 Portsmouth 36 9 14 13 43:45 32
Manchester City 32 10 9 13 54:44 29 Norwich 33 12 7 14 42:42 31
Newcastle 31 9 11 11 40:43 29 Bristol City 35 9 13 13 40:44 31
Nottingham For. 34 8 12 14 40:47 28 Bolton 35 9 12 14 47:55 30
Stoke City 34 8 12 14 38:48 28 Preston 35 9 12 14 32:42 30
Sunderland 35 9 10 16 38:62 28 Oxford 35 8 8 19 28:50 24
Coventry 34 8 8 18 41:54 24 Bury 34 8 7 19 40:66 23
Leicester 31 6 10 15 28:53 22 Fulham 35 7 9 19 36:67 23
Q.P.R. 37 3 9 25 33:87 15
endurvakið eftir 30 ára hlé
Mótið haldið í íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi á sunnudag
NÆSTKOMANDI sunnudag Góð þátttaka
gengst nýstofnað Fimleikasam-
band íslands fyrir íslandsmeist-
aramóti í fimleikum í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi. Er þetta
fyrsta íslandsmeistaramótið í
fimleikum í rúm 30 ár. Mótið
hefst kl. 2 og er keppt bæði í
meistaraflokki karla og kvenna.
í karlaflokki er keppt í 5
greinum: Á svifrá, á tvíslá, í
hringjum, stökkum á hesti og
gólfæfingum. í kvennaflokki er
keppt í fjórum greinum: Gólf-
æfingum, á slá, kistustökkum og
á dýnum.
íslandsmeistari getur sá einn
orðið, sem hlýtur flest saman-
lögð stig úr öllum greinunum,
en sigurvegari í hverri grein
fær meistaratitil.
Keppendur í karlaflokki verða
18—20 talsins, en 13 í kvenna-
flokki. Keppendur eru frá KR,
Ármanni og íþróttabandalagi
Sigulfjarðar. Keppni fer sam-
tímis íram í báðum flokkum.
Auk einstaklingskeppninnar
verður flokkakeppni, þar sem
fjórir stigahæstu menn frá
hverju félagi mynda flokk.
Veiða þe:r að hafa keppt í öll-
um greinum.
Cy/o
ANNAR leikurinn í meistara-
keppni KSÍ og KRR fer fram í
Vestmannaeyjum á sunnudaginn.
Eins og kunnugt er eiga þátttöku
rétt í þessari keppni þau lið er
árið á undan sigra í íslandsmót-
inu og í bikarkeppni KSI — þ.e.
liðin sem öðlast rétt til þátttöku
í keppninni um Evrópubikarinn.
Einum leik er lokið í keppn-
inni. Fór hann einnig fram í Eyj
um en hér er Melavöllurinn enn
ekki tilbúinn til kappleikja, en
inn á þessa leiki er seldur að-
gangur. Fyrsta leiknum lauk
með jafntefli. Síðustu tveir leik-
ir keppninnar verða svo í Reykja
vík.