Morgunblaðið - 26.04.1969, Page 8

Morgunblaðið - 26.04.1969, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1960 :;:’x ’ • ••» LEIÐIR þaff af sjálfu sér, að sá, sem stelur fæti verffi hepp inn í ástum? Kannski ekki beint af sjálfu sér — en á sviðinu í Iðnó fer það nú svo. Reyndar er atburðarásin sótt suður til ítalíu — í smiðju þess ffóða manns Dario Fo, sem áður hefur kitlað hlátur- Helga Bachmann tekur a sig gervi frú Dafne. taugar fslendinga með ein- þáttungum sínu „Þjófar, lik og falar kcnur". Ég kom niður í Iðnó eitt kvöld í vikun-ni og fékk að fylgjast me'ð æfingu á „Sá sem stelur faeti er heppinn í ástuan“, sem Leikfélagið frum sýnir í kvöld. — Ha, ha, ha, —■ þetta er dásamlegt stykki, segir Eme- lía Jónasdóttir við mig í hlé- iruu. Svo föruim við niður í kjallara. — Á, varst þú frammi í sal, vinkona? segir Brynjólfur Jó- hannesson, þegar hainn sér Emeiiu. — Ójá, þykistu ekki hafa heyrt í mér? svarar Emelía. — Ja, ég fann þig svona einhvern veginn á mér, segir Brynjólfur og svo hlæja þau. — Haldið þið, að þessir skór dugi? kallar nú Steindór Hjörleifsson um leið og hann sveiflar fæti í dyragættinni á búningskiefa sánum. — Já. En þú verður að bursta þá, kallar Jón Sigur- björnsson á móti. — Auðvitað, segir Brynjólf ur. ítalir ganga alltaf á stíf- burstuðum skóm — engir nema Islendingar váða um á skítugum skónum! — Á ég að vera með þetta skegg?, kallar nú Guðmund- ur Pálsison. Það rennur bara burtu! — Auðvitað verður þú með skeggið, segir Steindór. Ég strýk þér bara laust um vang ana. Þá heldur skeggið sér. — Er þes®i kyrtiil ekki of þröngur? spyr þá Belgi Skúlason Brynjólf. — Tja. Fjamdakomið, ég held hann passi alveg, svarar Brynjólfur og dillar sér í mjöðmunum. Og svo er þetta helvíti verklegur spegill, heldur hann áfram. — Já, segir Helgi. Þú ert alveg eins og ekta læknir. „Við þurfum að fá meiri lyftingu í þetta atriði". — Helgi Skúlason, leikstjóri, (t.h.) ræðir við Borgar Garðarson. (Mynd imar tók K. Ben). Skopið í þessu leikriti er al- veg makalaust; svo allt öðru vísi en skopið í ensku eða amerísku gamanleikjunum; miklu ferskara. — Og plottið í því flóknara, segir Jón. Eiginlega er-u þetta mörg plott — þegar eitt er fallið, tekur bara annað við. — Einstaklega uppfinninga- samur náungi þessi Dario Fo. — og kaldur, botnar Stein- dór. „Þú ert við hestaheilsu", — Brynjófur Jóhannesson reynir læknistólin á Jóni Sigurbjörnssyni. „Þú skalt verða eins og „glamour-girl“ eftir þetta". — Stein- dór Hjörleifsson „flikkar upp á“ Guðmund Pálsson. — Furðulegt, segir Brynjóli ur, og ég sem á að leika lækni! — Þetta var bara gotrt, seg- ir nú Helgi við leikarana, sem safnazt hafa sa-man við kaffi borði’ð. En handjárnin! Af hverju voru þau lokuð? Þau áttu að vera opin! Ef þetta kemur fyrir aftur, verður ein/hver hengdiur! Það slær þögn á hópinn við þessa skorinorðu yfirlýs- ingu leikstjórans. Svo segir Brynjólfur hugsi: -— Það er mikið og gott skop í þessu leikriti. Ósköp er nú annars lítið um skop í heiminum -— nú eru bara stúdentaóeirðir og hrafna- krókafangbrögð! Það voru önnur ár, þegar við vorutn að leika Arnold og Back og þeirra kumpána. — Heyr, kallar Steindór, sem burstar skóna í gríð og erg milli þess sem hann sýp- ur úr kaffibollanum. — Þetta er rétt hjá Brynj- ólfi, segir svo Gu'ðmundur. — Ég er að spekúlera í því, hvort hann hafi nokkuð fyrir sér í þessum manneskjusam- tenginum, segir Brynjólfur. Það er eins og mig minni, að Jónas Sveinsson hafi eitthvað grú kað í svona löguðu — sennilega er þetta bara hægt. „Takið eftir, takið eftir“, heyrist nú í hátalaranum. „Tvær mínútur til æfinga". — Leikararnir ljúka úr boll- unum, kíkja í spegilinn tiil að afhuga, hvort förðunin sé ekki í lagi — svo er haldið upp á sviðið. „Skrýtið þetta með ástaiíf ítalanna", segir Steindór á leiðinni. „Það, sem annars staðar, er þríhyrningur er ferhyrningur hjá þeim! — Jón, þú hefur verið á Ítalíu“. — Rétt, -svarar Jón. Og ég ætla ekkert að segja þér af því, góði minn! Svo er tjaldiinu svipt frá og við Emelía byrju'm aftur að hlæja. - «• wwm IIIIIII WIIIIIMIIMBMIIll lllll ■llHIWlirílinni MA-STÚDENTAR 1959 Munið lokaæfinguna fyrir afmælishátíðina í vor, að Báru- götu 11 i kvöld kl. 8.30. M a. gerðar ferða- og gistiáætlanir. Áríðandi að allir mæti. AFMÆLISNEFNDIN. ATVINNA Vanur matsveinn, sem unmð hefur bæði hrlendis og erlendis óskar eftir starfi strax. Má vera úti á landi. Einnig kæmi til greina starf erlendis. Tilb. sendist afgreiðslu blaðsins, sem allra fyrst, merkt: „Ahugasamur 2753". Hádegisverðarfundur STEFNIR F.U.S. í Hafnarfirði heldur hádegisverðarfund í Sjálfstæðishúsinu, Hafnarfirði, laugardaginn 26. apríl kl. 12,30. Gestur fundarins verður EINAR INGI- MUNDARSON bæjarfógeti. Fundarefni: Unga fólkið og sljómmnlin Sjálfstæðismenn eru hvattir til þess að mæta. Stefnir F.U.S. Aðalfundur Samvinnubankans: Innlánsfé yfir 500 millj. kr. AÐALFUNDUR barvkans var haldirjn laugardaginn 19. apríl sil. Fundarstjóri var kjörinn Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri, en fundarritari Gunnar Gríms- son, fulltrúi. Erlendur Einarsson, formaður bankaráðs, flutti skýrslu um starf semi bankans, hag hains og af- komu á sl. ári og kom þar fram að þrátt fyrir óhagstætt árferði varð nokkur vöxtur í allri starf- semi hans. Kristleifur Jónsson, bankastjóri lagði fram endurskoðaða reikn- inga bankans fyrir árið 1968 og skýrðí þá Heildarinnlán í Samvinmubanik anum námu í árslok kr. 501.1 millj. króna og höfðu aiukizt um 35.3 millj. kr á árinu. Mest varð aukningiii í sparisjóðsdeild ba.nk ans, en þar varð aukningin 33.3 miilj. kr. eða 8 9%. Hlutafé bankans er kr. 15.904. 000.00 og í varasjóði voru í árs- lok kr. 4.867.084.13. Árið 1968 var fyrsta heila ár- ið sem bankinn hafði tölvu af fulikomnustu gerð í þjónustu sinni, og hefir þetta stóraukið hraðs og öryggi við færslu neikn inga auk þeas sem öl'l bóbhalds- gögn og reikningar verða snyrti legri og aðgengilegri en áður var. Þetta hefur einnig gert bank anum kleift að fækka starfs- fól'ki verulega. Sú verkaskipting hefur verið tekin upp milli bankastjóra Sam vinmubanbaps, að etftirleiðis stjórnar Kristleifur Jónsson, út- lánum bankans og sér um allan dagiegan rekstur. Einar Ágústs- son sér um útibúin, arvnast lög- fræðileg málefni bankans og út- breiðslustarfsemi. Bankinn i ekur nú 8 útibú á eftirtöldum stöðum: Akranesi, Grundarfirði, Patreksfirði, Sauð- árkróki, Húsavik, Kópaskeri, Keflavík og Hafnarfirði, og auJc Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.