Morgunblaðið - 26.04.1969, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL 196®
- SKIPULAG...
Framhald af bls. 15.
því, að nauðsynlegt var talið að
hraða umbótum á uppskipunar-
aðstöðu svo sem verða mætti,
ekki hvað sízt vegna ástandsins
Við Torfunef. Hinsvegar fylgdi
ákvörðun þessari þung kvöð, þ.e.
um endurkaup vöruskemmunn-
ar, en hún mun kosta um 10
milljónir króna.
SKIPULAGNING
HAFNARSVÆÐISINS
Þessu næst kom mál þetta til
meðferðar hafnarmálastjóra og
skipulagsstjóra ríkisins. Töldu
þessir erríbættismenn rikisins
mun hagkvæmara að byggja
þessa vöruskemmu á framtíðar-
hafnarsvæði samkvæmt væntan
legu skipulagi. Bentu þeir jafn-
framt á, að undirbúningur skipu
lags Akureyrarhafnar væri svo
langt kominn, að unnt væri að
ljúka því það fljótt að fram-
kvæmdir við framtíðarhöfn gætu
þess vegna hafizt á komandi
vori. Hafnarmálastjóri taldi og
eðlilegt og nauðsynlegt, að í
hinni fyrstu fjögurra ára áætlun
um hafnargerðir í landinu, sem
taka ætti gildi um næstu ára-
mót, yrði gert ráð fyrir gerð
fyrsta áfanga framtíðarvöruhafn
ar á Akureyri. Og þegar ljóst
var orðið, að ríkisstjórnin mundi
beita sér fyrir verulegri fjáröfl-
un til útrýmingar atvinnuleysi
á þessu ári, og meðal þeirra að-
gerða sem í athugun væru, væru
möguleikar á að flýta ýmsum
opinberum framkvæmdum, sem
ella hefðu verið unnar á næsta
ári, virðist opnast leið til fjár-
öflunar til hafnargerðar á Akur:
eyri þegar á næsta sumri.
Af þessum ástæðum var
ákveðið að hraða frágangi aðal-
skipiflags Akureyrarhafnar, og
hefur það nú verið samþykkt og
verður staðfest þegar lög leyfa.
í skipulagi þessu er gert ráð fyr-
ir viðlegukanti við Torfunef fyr
ir skip, sem ekki þarfnast vöru-
afgreiðslu (skemmtiskip, varð-
skip o.fl.). Sunnan Strandgötu,
austan Hjalteyrargötu, er gert
ráð fyrir 350 m löngum viðlegu-
kanti fyrir vöruflutningaskip
og verði rúm fyrir fjórar vöru-
skemmur á hafnarbakka. Skap-
ast þarna fyrsta flokks aðstaða fyT
ir hraða og ódýra afgreiðslu
skipa. Austan á Oddeyrartanga
er gert ráð fyrir 260 m viðlegu-
kanti, þar sem aðstaða verði fyr-
irir uppkipun á lausu korni og
Pönlnnoiiclag N.L.F.R.
Aðalfundi félagsins er frestað til laugardagsins 3. maí
ki. 2 e.h.
STJÓRNIN.
VOLVO N88
Mjög góður VOLVO N 88 árg. 1966 með nýjum 20 tonna aftanívagni frá DAF verksmiðjunum til sölu. Vagninn er með sturtum og er tilvalinn í efnisflutninga.
ÞUNGAFLUTNINGAR H/F.
Símar 84320 og 34635.
STULKA
óskast til almennra skrifstofustarfa. Vélritunar- og enskukunnátta
nauðsynleg. Þýzkukunnátta æskileg. Ráðning sem fyrst eða eftir
samkomulagi. Umsóknir sendist í pósthólf 244, Hafnarfirði.
Umsóknareyðublöð fást í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Reykja
vík og Bókabúð Olivers Steins, Ha úiarfirði.
íslenzka Álfélagið h.f.
Mosfellssveit — Mosfellssveit
Þjóömálaverkefni
næstu ára
- Samgöngumál
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30 að Hlégarði,
Mosfellssveit.
1. Avarp: Flemming Jessen form. F.U.S. í Kjósarsýslu.
2. Frummælandi: Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra.
3. Fundarstjóri: Jón Atli Kristjánsson form. Týs F.U.S.
Sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi og Reykjavík eru hvattir
til þess að fjölmenna.
F.U.S. í Kjósarsýslu — Heimir F.U.S. Keflavík — Stefnir F.US
Hafnarfirði — Týr F.U.S. Kópavogi — Samband ungra
Sjálfstæðismanna.
sementi. Auk þess er þessi kant-
ur ætlaður til afgreiðslu al-
mennra vöruflutningaskipa ef
kanturinn sunnan Strandgötu
yrði ónothæfur vegna veðurs
eða þéttsetinn skipum. Á því
svæði sem Togairabryggjan er
nú, er gert ráð fyrir að verði
fiskihöfn, fyrir togara, vél’báta
og smábáta. Verði gerður hafnar
garður norðan Togarabryggjunn
ar, sem myndi skipakví, sem
komi í stað skipakvíarinnar við
Torfunef. Nyrzti hiuti hafnar-
svæði þessa er svæði skipavið-
gerða og skipasmíða. Auk þessa
er nú unnið að skipulagningu
olíiuhafnar í Krossanesi.
Hafnarstjórn samþykkti þann
10. marz sl. að leggja til að eftir
talin hafnarmannvirki verði tek
in inn á fjögurra ára fram-
kvæmdaáætlun um hafnargerð í
landinu, sem taka skal gildi um
næstu áramót, eftir því sem fjár
öflun Leyfir.
í því sambandi fól hafnar-
stjórn hafnarstjóra að gera
rekstraráætlun fyrir Akureyrar-
höfn fyir árin 1970—1973.
Framkvæmdirnar eru taldar í
forgangsröð:
1. Viðlegukantur á svæði hinnar
almennu vörulhafnar 100—200
m.
2. Lokaframkvæmdir við drátt-
arbraut og tilheyrandi hafnar-
mannvirki.
3. Hafnargarður til norðurs frá
Togarabryggju.
4. Lenging viðlegukants við
Torfunef og lokun bátakvíar
þar.
5. Framhaldsframkvæmdir við
aimenna vörulhöfn eftir því,
sem ástæða verður til.
6. Lenging viðlegukants austan
frystihúss til suðurs.
Ennfremur samþykkti hafnar-
stjóm að leitað verði eftir láns-
fé svo unnt verði að flýta fram-
kvæmd fyrsta liðar þessarar
framkvæmdaáætiunar til þessa
árs. í því felt að á næsta sumri
verði gerður 120 m kantur, sem
er sú lengd sem talin er nauð-
synleg svo unnt sé að byggja
skemmu Eimkipafélagsins á end
anlegum stað á næsta sumrL
Jarðvegsrannsóknir á hafnar-
svæðinu standa nú yfir. Þær nið
urstöður, sem þegar eru fengnar,
eru mjög hagstæðar.
ÞÝBING HAFNARFRAM-
KVÆMDA FYRIR ATVINNU-
LÍFIÐ
Eins og bent vair á í upphafi
þessarar greinargerðar hafa
hafnarbætur á Akureyri mikla
þýðingu fyrir framtíðarþróun
bæjarins. Annað veigamikið
atriði þessa máls eru áhrif fram
kvæmda þeirra, sem óskað er
eftir að fá að hefja í vor (120 m
viðlegukantuir) á atvinnuástand-
ið á Akureyri. Ýmis tæknileg
atriði mæla með því að þessi
viðlegukantur verði gerður úr
strengjasteyptum staurum. Með
því móti fæst betri viðlega fyrir
skip og komið er þá í veg fyrir
sjórok yfir bryggjur, hús og vör-
uir í hvassri sunnanátt. Auk þess
er talið sennilegt, að þessi gerð
verði ódýrari, því hér er um inn
lenda framleiðslu að ræða, sem
hefur hækkað mun minna í verði
en erlent stálþiL
Hér er um mjög stórt verk-
efni að ræða fyrir strengj asteyp-
una á Akureyri, sem mun gjör-
breyta rekstrarhorfum hennar
og gera henni kleift að fjölga
verulega fólki. Þar sem horfur í
byggingariðnaði bæjarins eru
mjög bágar er þetta mjög þýð-
ingarmikið atriði.
Bygging vörugeymslu Eim-
skipafélagsins er í beinu sam-
bandi við þessar hafnarfram-
kvæmdir. Kostnaðarverð hennar
verður um 10 millj. kr. Því er
hér samtals u.þ.b. 25 millj. kr.
fjárfesting í bænum, sem að
mjög verulegu leyti verður
greidd út í vinnulaunum innan-
bæjar.
Samtímis þessu vinnur at-
vinnumálanefnd Akureyrar nú
að sameiningu þeirra tveggja
steypustöðva, sem hér eru rekn-
ar, í eitt fyrirtæki. í því sam-
bandi er nú unnið að kaupum á
mjög fullkominni steypublöndun
arstöð frá Straumsvík og þá
munu einnig skapast aðstæður
til að stónbæta aðstöðu til fram-
leiðslu á muldu steinefni. Hafn-
arframkvæmdirnar munu bein-
línis stuðla að því, að unnt verði
að byggja hér upp öflugt þjón-
ustufyrirtæki, sem á að geta
aukið gæði bygginga á Akur-
eyri og nágrenni og lækkað
byggingarkotnað og einnig orðið
bænum sjálfum til mikils hag-
ræðis við sínar framkvæmdir.
NIÐURSTÖÐUR
Bætt hafnaraðstaða er mjög
þýðingarmikil fyrir framtíðar-
þróun og vöxt Akureyrar. Betri
höfn og aukin uppkipun á Akur-
eyri hefur einig mikla þýðingu
fyrir þróun Norðurlands alls.
Innan tveggja til þriggja ára
verður nauðsynlegt að skerða
mjög hafnaraðstöðuna við Torfu
nef. Væri þá enginn viðlegu-
kantur til í Akureyrarhöfn sem
vöruflutningaskip hafa forgang
að, ef ekki hafa verið gerð ný
hafnarmannvirki fyriir þann
tíma. Eimskipafélag íslands hef-
ur óskað mjög eindregið eftir að
fá bætta aðstöðu til uppkipunar
og vöruafgreiðslu á Akureyri.
Það er framúrskarandi æskilegt
að sú aðstaða verði í framtíð-
arvöruhöfn bæjarins, enda fæst
aðeins með því móti hagkvæm
vöruhöfn. Framkvæmdir þessar
verða að langmestu unnar innan
bæjar og hafa því mikla atvinnu
aukningu í för með sér og efla
þýðingarmikið byggingariðnaðar
fyrirtæki, sem átt hefur í mikl-
um rekstrarerfiðleikum að und-
anförnu.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að grafa grunn og skurð, alls um 3500 rúmm.
Útboðsgögn verða afhent á teiknistofunni óðinstorgi s/f.,
Óðinsgötu 7, 3. hæð, þriðjudaginn 29. apríl.
Keffavíkurbœr
óskar eftir 3 verkamönnum til starfa við hreinsun á holræsa-
kerfi bæjarins.
Nánari uppl. hjá bæjarverkstjórunum í áhaldahúsi Keflavíkur-
bæjar við Vesturbraut nk. mánudag og þriðjudag kl. 10—12.
Gorðleigjendiir í Kópnvogi
Vinsamlegast greiðið gjöldin fyrir 10. maí.
GARÐYRKJURAÐUNAUTUR.