Morgunblaðið - 01.05.1969, Síða 10

Morgunblaðið - 01.05.1969, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 19©9 — ÞIÐ ættuð að koma hingað í brimi, sagði ung- ur skipstjóri við okkur þegar við komum niður á bryggjuna í Grindavík í fyrrakvöld. Það var norð- anátt og dálítill næðing- ur. Þó risu myndarlegar öldur við nesið utan við hina frægu rennu, en svo er innsiglingin til Grinda víkur oft nefnd. Þessi ungi skipstjóri heit- ir Dagbjartur Einarsson og hann var að koma niður að skipi föður siíns, vélbátnium Ólafi, farsaeiuim báti, sem nokikuð er tekinn að reskj - ast. Bátur þessi er skýrður eftir Ólafi heitnuim Thors, sem svo lengi var þingmaður þeirra Su’ðumesjaimanna. Dagbjartur kallaði tiil föð- ur síns, sem stóð uppi á vöru- bílspallinum og tók á móti fiiskikössiunum og taemdi: — Þið voruð að fá'ann? — Minnstu ebki á það ógrátandi, 5 eða 6 tonn, svar- aði faðir hans, en það var svo sem enginn klokkva- eða barlómsihreimur í röddinni. Meðan Einar er önnum kaf- in uppi á bílpallinum tökum við Dagbjart tali. — Já, það er ebki haegt að kvarta yfir vertiðinni hérna í vetur. Þetta hefir verfð ágætt. Að vísu er miklu aif aiflanum hérna ekið í burtu, naer allur Pétur og Bjami horfa yfir Grindarvíkurhöfn. — Ljósm. Sv. Þ. ■ ■ fcogbátafisikurinn fer til KefHa- víkur, Njarðvíkur, Haifnar- fjiarðar og Reykjavikur og nokkuð af netafiskinum líka. Héðan hafa róið 50—60 bátar og höfnin hefir aft verið full af bátum í vetur. Þeir hafa bomið frá Vesttfjörðum og Auistfjörðum og öllum stöðum þar á milli. Al'lir stærri bát- arnir eru á netum. Einar stekkur niður af bíln um, þrekivaxinn, veðurbarinn, brosleitur og hlýlegur en hresisilegur og rómsterkur, dæmiigerður sjómáður. Þegar við spurðum hann að heiti svaraði hann: — Ég er skýrður Einar Jónsson en er Daigbjartsson. — Og aldiurinn? — Er módel 1917. — Grinidvíkinigur? — Já, og stundað hér sjó- inn frá 9 ára aldri. Samtalið verður siitrótt vegna anna sjómannanna, en við bomuimst að því að Ólafur er keyptur frá Þorláksihöfn og hafði verið þar hið farsaelasta"* skip, er 36 tonm og ailtaf gerð ur út á troll frá því hann kom til Grindavíkiur, upphaflega dansikbygig’ðUr. Þeir eru fjórir á Ólafi, yfirleitt eru þeir þetta 4 til 5 á trollinu. — Ég man bara ekki eftir annarri eins fiskigenigd hér á Grindavíkurmiðum, frá því ég fór að stunda sjó, einis og hef- ir verið á þessari vertíð, síð- an Grænlarwisfiskurinn kom hérna 1929, seigir Einar. — Ég geri ráð fyrir að þetta geri kuldinn í sjónum. Fiskurinn hefir verið Mtið vi’ð Snæfells- nesið eða á Breiðafirðinum, eins og hann hrekisf hingað suður undan kuildamum til að hrygma. Og hanm er ek’ki all- ur gotinn enn. Lítill hnokki kemur að bát- um og vilil fá að fara um borð. Einn sjómannanna tekur hann niður í bátinn og þar stendur stUibburinn og horfir á aðfarirniar, alis óhræddur við slorið, þótt varla sé meira en þriggja-fjögurra ára. Þeg- ar hnokkinn er farinn af sitað á ný, sé ég að Einar horfir á eftir honum. — Er þetta kanske sonar- sonur þinn? — Já. — Sjómannsefni? — Hann ætti að geta orðið það, Grímseyingur i móður- ættina! Þar með sjáu.n við bát nál'g ast utan vi'ð inasigiingana og við vendiuim fram á bryggju. Þegar við eruim að legigja af stað snarar Einar sér að okk- ur og segir formálslauist: — Þið verðið að fá í soðið, piltar. ELgið þið ekki konu og krakka og éta þau ekki fisk? Og áður en varir er ljúf- fengt nýmetið komið í skott- i'ð á bílnum. Ég hef teikið eftir því að það er eins og sumir sjómenn gieti ekki kvatt mann við bátshlið án þess að bjóða manni í soðið. Úti á bryggjusporði sjáum við bvar Hrafn Sveinbjarniar- son sigllir inn rennuna, fer þeesar köppu setubeygjur og „veltir súðavöngum", þeigar fyrst er la.gt hart í bak o>g síðain hart í stjór. Þeir kunna Hrafn Sveinbjamarson Björgvin 10 kg. ysa i vinstn hendi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.