Morgunblaðið - 17.05.1969, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 17.05.1969, Qupperneq 17
MORGUNiBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1969 17 íslenzkur iðnaður a' vegamotum Úrdrátíur úr rœðu Jóhanns Hafstein, iðnaðarmálaráðherra við setningu ársþings Félags íslenzkra iðnrekenda Ráðherrann vék að því í upphafi málsins, að þegar hann hefði verið að hugleiða með hverju hann helzt skyldi ávarpa fundarmenn að þessu sinni, hefðu sér komið í hug orðin: „íslenzkur iðnaður á vegamótum". Taldi ráðherrann að margt benti til þess, að svo væri og vildi hann því tak- marka sig á þeim vettvangi. 0 Tækifæri til útflutn- ingsiðnaðar Fyrst vék ráðherrann að möguleikum íslendinga til út- flutningsiðnaðar. Hann viður- kenndi að hann hefði heyrt ýmsa vantrúaða á, að á því sviði lægju miklir möguleikar. Síðan gat ráðherra þess, að í nóvembermánuði hefði Iðnþró unarráð skipað samstarfsnefnd til þess að kanna hugsanlega möguleika á þessu sviði, og gera tillögur til Iðnþróunfir- ráðs þar um. Niðurstöður nefndarinnar væru, að tæki- færi væru fyrir hendi til mjög aukins útflutnings iðnaðar- vara, jafnvel við núverandi aðstæður. Við hugsanlega inn- göngu í Fríverzlunarband,alag ið myndi aðstaðan batna veru lega. Væri þá yfir færri og lægri tollmúra að klifra. Þátt- taka í sölusýningum og sölu- kynning erlendis væri nauð- synleg og hefðu íslendingar þegar hafið byrjunprstörf á þessu sviði, sem lofuðu góðu. N-efndin hefði m.a. talið nauð- syn á, að íslendingar eignuð- ust verzlunarfulltrúa út um heim, er eingöngu ynnu að markaðsmálum og nytu diplo- matiskra réttinda. Við yrðum einnig að leggja mikla áherzlu á hönnun í samræmi við þarf- ir neytendanna og kröfur og vöruþróun. Ennfremur gæða- eftirlit og stöðlun. 0 Einfalt endurgreiðslu kerfi tolla Þá lagði ráðherrann mikla áherzlu á, að nauðsyn bæri tii þess, undandráttarlaust og án tafar, að skapa einfalt tolla- endurgr.eiðlukerfi. Menn þyrftu að geta gengið út frá því nokkuð sem vísu í upp- ! hafi þegar flutt væri inn hrá- efni með háum tollum hve mörg prósent af útflutnings- andvirði tiltekinnar vöru feng just endurgreidd. Við hefðum búið við alltof flókið og sein- virkt kerfi í þessu efni fram til þessa. 0 Fjáröflun til út- flutningsstarfsemi Varðandi útflutningsiðnað- inn vék ráðherrann í öðru lagi að nauðsyn fjáröflunar til aukinnar útflutningsstarf- semi og skipulagsmála á því sviði. Taldi ráðherrann, að nauð- synlegt væri í upphafi að verja allverulegu opinberu fé til þessara mála, en j.afnframt gera ráð fyrir útflutnings- gjaldi á iðnaðarvarning, og ef vel til tækist í framtíðinni, gætu hlutföllin breytzt, út- flutningsgjöldin borið megin þungann, en það opinbera hrint málunum af stað í rík- ara mæli í upphafi. Ríkisstjórnin hefði viður- k-ennt þessar staðreyndir með því að verða við beiðni um framlög úr ríkissjóði á síðast liðnu ári um 300.000,00 kr., og nú á þessu ári um 1 millj. króna, þrátt fyrir það, þótt ekki hefði verið gert ráð fyrir slíkum framlögum á fjáriögum. En þetta fé hefði gengið tii útflutningsskrifstofu Félags ísl. iðnrekenda, sem stofnuð hefði verið á síðari hluta ársins 1968. Ennfremur hefði ríkisstjórnin samþykkt að veita 400.000,00 kr. til iðnkynningarinnar á sl. ári. Það hefði verið mistök að athuga ekki fjárframlög í þessu skyni á fjárlögum 1969, en í sambandi við samningu fjár- laga fyrir árið 1970, þyrfti að athuga nánar samsetningu f jár laga og fjáraflan.a, annars veg ar tii iðnaðar og hins vegar til annara atvinnugreina og þeirrar starfsemi, sem ríkið legði fé til. 0 Framtíðarskipulag Ráðherrann gat þess, að um leið og li.ann hefði tilkynnt þús. tonn, og myndi því marki verða náð árið 1972 í stað 1975. Taldi ráðherrann þetta vera mjög hentugt fyrir okk- ur, bæði vegna vinnuafls- aukningar og auk þess meiri hagkvæmni fyrir Búrfellsvirkj un, sem teldi sig geta ráðið við þessa hraðari uppbygg- ingu. Ennfremur væri nú af- ráðið að stækka verksmiðjuna um 9—11 þús. tonn og væri það einnig byggt á áliti Lands virkjunar um það, að hér væri um mikla hagkvæmni fyrir hana að ræða, þar sem stækkuninni yrði skot- ið inn, þannig að hún myndi koma til framkvæmda 1. júlí 1970, og yrði þá raf- magnsnotkun meiri en ella hefði verið ráðgert á því tíma- Frá ársþingi iðnrekenda. Félagi ísl. iðnrekenda um ákvörðun ríkisstjórnarinnar að veita 1 millj. kr. fé til út- flutningsskrifstofunnar á þessu ári, þá taldi hann nauðsyn- legt að vinna að framtíðar- skipulagningu þessara mála. Kæmi þá til álita, hvort við ættum að stofna til útflutn- ingsráðs eða útflutnings- og hönnunarmiðstöðvar, og hefði ráðherrann mælzt til þess, að .FÍ.I. tilnefndi menn eða full- trúa til þess að eiga samráð um framtíðarskipul,ag þessara mála við Iðnaðarmálaráðuneyt ið. 0 Samstarfsnefndir án tafar Loks sagði ráðherrann varð andi útflutningsiðnaðinn, að hefði samstarfsnefnd Iðnþró- unarráðs komizt að þeirri nið urstöðu, að án tafar þyrfti að gera tv-ennt, og bíða ekki eftir framtíðaráformum: í fyrsta lagi, varðandi útflutn ing neyzluvöruvamings úr ís- lenzkum hráefnum með íslenzk um sérkennum, þyrfti að skipa nijög fljótlega samstarfsnefnd hlutaðeigandi aðila. í öðru lagi þyrfti að skipa samstarfs nefnd varðandi markaðsöfiun fyrir margs konar vélar og rekstrarvörur, sem notaðar eru í sjávarútvegi íslendinga. 0 Stóriðja, efnaiðnaður og nýiðjumöguleikar Þessu næst vék Iðnaðarmála ráðherra að öðrum þætti mál- anna, þ.e. stóriðju, efnaiðju og nýiðjumöguleikum. Minntist h.ann þá fyrst á ál bræðsluna í Straumsvík, en nú væri ráðið, bæði að auka hrað- ann við uppbyggingu verk- smiðjunnar í þau afköst, sem um hefði verið samið 60—66 bili, sem Landsvirkjun gæti af þessu rafmagni séð og yrði þannig rekstrarafkoma virkj- unarinnar betri, auk þess sem með því móti þyrfti ekki að afla nema lítils aukins láns- fjár til þeirrar fjárfestingar- aukningar, sem af þessu leiddi Þá vék ráðherrann að at- hugun á álvinnslumöguleikum það er að vinna úr hrááli ýmsa hluti hér, eins og í sambandi við byggingariðnaðinn, bæði þiljur, glugga, umgerðir og hurðir og annað slíkt, en um þetta hafði verið rætt við Al- usui á s.l. hausti og svissn- eska fyrirtækið nú látið í té fyrstu greinargerð um slíka möguleika. Bæri að athuga þá nánar af iðnrekendum og öðr um, sem hefðu áhuga á slíku máli. 0 Samstarfsnefnd í orkumálum Þá minntist ráðherrann á samstarfsnefnd í orkumálum varðandi þörf orkufreks iðn að,ar, sem sett hefði verið á laggirnar að tillögu hans, á síðast liðnum vetri. Taldi ráð- herrann að þann stutta tíma, sem fengizt hefði reynsla af starfsemi þessarar nefndar, þá lofaði hún góðu. Taldi ráð- h-errann nauðsynlegt að gera sér sem gleggsta grein fyrir orkuspá fram í tímann, ef svo mætti segja, það er að segja, hvað líklegt væri að við hefð- um aflögu af raforku, vatns- aflsorku og varmaorku, og við hvaða verði þegar annars vegar væri verið að reyna að stuðla að aukinni stóriðju i landinu, auknum efnaiðnaði og nýjum iðnaðarmöguleikum. Ráðherra minntist á undir- búningsrannsóknir að sjóefna vinnsSu og einnig athuganir á tengdum efnaiðnaði og taldi að þeim málum miðaði vel áfram. 0 Viðræður um olíu- hreinsunarstöð Þá gerði ráðherrann stutt- lega grein fyrir því, að á þess um vetri hefðu farið fram framhaldsviðræður um mögu- leika á. að koma upp eða hyggja olíuhreinsunarstöð á íslandi. Margir aðilar hefðu áhuga á þessu máli. Ekki væri hægt að spá um framvindu en þó fyndist sér líkur benda til, að vel mætti undirbúa þetta mál þannig, að það gæti ver- ið komið á visst framkvæmda- stig á næsta ári. I sambandi við olíuhreinsunarstöðvarmál ið, gat ráðherrann þess, að nú væri unnið að því að setja reglur um heimildir til þess að kanna landgrunnið sam- kvæmt landgrunnslögunum, sem Alþingi hefði nýlega af- grcitt. Hefði komið fram í því sambandi áhugi frá aðilum um heimild til þess að mega at- huga, hvort líklegt væri að borun eftir olíu á landgrunn- inu myndi skila nokkrum ár- angri. Þessu næst gerði ráðherr- ann grein fyrir stækkun Kíl- iliðjunnar, sem rædd hefir ver ið í blöðum að undanförnu. 'Ennfremur tjáði hann að loka rannsóknir varðandi perlu steinsvinnslu í Loðmundarfirði myndu fara fram í sumar, en ríkisstjómin hefði gert ráð fyrir 3ja millj. kr. framlagi til þeirra hluta. 0 Skipaby ggingar innanlands Loks minntist ráðherrann sérstaklega á stálskipasmíði og aðra skipasmíði, sem í fæl- ust miklir nýiðjumöguleikar hér á landi. Hefði ríkisstjórn in átt hlut að máli að byggja þessa atvinnugrein upp með áætlunargerð, fjáröflun í sam bandi við fjárfestingu og á annan hátt. Nýlega hefði At vinnumálanefnd ríkisins ákveð ið að verja allt að 50 millj. kr. á þessu ári, til þess að stuðla að stöðugri verkefna- sköpun S skipasmíðastöðvun um. Hér væri að sínum dómi um mikið framtíðarmál að ræða sem miklu myndi varða í sam bandi við iðnþróun og efna- hagsþróun landsins. Það hefði lengi verið skoðun sín, sagði ráðherrann, að við ættum að vera sjálfum okkir nógir í sam bandi við endurnýjun fiski- skipastólsins og reyndar ætt- um við að stefna að því að smíða fiskiskip fyrir aðrar þjóðir, enda kunn fiskiveiða þjóð, í nyrztu höfum, þar sem allra veðra væri von. Sama ætti reyndar einnig að gilda um veiðarfæraiðnað okkar fs- lending.a. íslenzkt vörumerki á slíkri framleiðslu ætti að vera nægilega góð meðmæli á heims markaðinum. 0 Fleiri járn í eldinum Ráðherrann sagðist aðeins hafa getið nokkurra atriða, fleiri járn væru að sjálfsögðu í eldinum og önnur, sem sér væri ekki kunnugt um, en áhugasamir framtaksmenn ynnu að. Minna mætti á, að lokið væri ullarrannsóknum Norðmanna og íslendinga, sem hefði við það miðazt að kanna mögul-eika á að greina sundur þel og tog, til þess ,að fá verð- mætara hráefni. Sumir töluðu um að setja hér upp korn- myllu, aðrir stóra hveitimyllu á umskipunarhöfn, frá ein- hverju af hinum stóru hveiti- framleiðslulöndum, sem flytti afurðir sínar síðan á heims- markaðinn til milljónaþjóð- anna. Nú væri í ráði að hefja málmleit á ísfandi á þessu sumri, með aðstoð erlendra sér fræðinga, og hefðu reyndar einnig fyrirsvarsmenn Alusuis látið í ljós áhuga þegar þeir voru hér síðast um að vera aðilar að slíkri málmleit á fs- landi. Einnig væri nú talað um möguleika á að koma hér upp stálbræðslu, pappírsvinnslu, þaravinnslu o.fl. 0 Aukin lánsfjárþörf og hagkvæmari skattareglur Þessu næst vék ráðh-err- ann að fjármálum iðnaðar ins. Hann sagðist áður hafa vikið að fjáröflunarþörf út- flutningsiðnaðarins og skyldi ekki tefja tímann með að bæta þar við. Ljóst væri, að almenn rekstrarf járþörf væri mikil og hefði að tilstuðlan bæði ríkisstjórnar og Seðla- banka, verið unnið að þvi að bæta úr henni. Mikil stofn- lánaaukning þyrfti einnig að eiga sér stað, þó að segja mætti, að hún h-efði verið all- ör á undanförnum árum og Iðnlánasjóður væri nú orð inn mynd.arlegur stofnlána- sjóður iðnaðarins. Hinsvegar myndi fjárþörfin við inn- göngu í EFTA stórlega auk- ast og hefði ríkisstjórnin haft til athugunar með hverj- um hætti slíkt gæti orðið. Það væri ekki tímabært fyrir sig að spá um framvindu þess máls, en þó treysti hann sér til að segja, að jákvæðar horf ur væru á úrlausn málsins með sérstökum hætti, sem síð ar yrði gerð grein fyrir, Þá minntist ráðherra á nefndar- skipun fjármálaráðherra með samþykki ríkisstjórnarinnar, til athugunar á sambærilegri aðstöðu varð.andi skattamál og eigið fé fyrirtækja, sem nauðsynlegt væri að kæmist i kring í sambandi við aukna samkeppni við inngöngu í Fríverzlunarbandalagið og reyndar einnig í aukinni sam keppni við innfluttan iðnað. Minntist hann einnig á tillög- ur Matthíasar Mathiesen al- þingismanns, sem stuðla ættu að því, að fyrirtækjunum yrði gert mögulegt að eignast meira -eigið fé, bæði í sam- bandi við skattfrelsi hluta- f jár og arðs af hlutafé. 0 Fjárfestingarfélag Islands Þá vék ráðherrann að frum varpi til laga um Fjárfesting arfélag islands h.f., sem ný- lega hefði verið lagt fram á Alþingi frumvarp um. Hefðu Verzlunarráð og Félag ísl. iðnrekenda wnnið að þessu máli. Taldi ráðherrann þetta mál vera hið mikilvægasta. Reyndar væri ekki hægt að búast við að það næði fram að ganga á þessu þingi, svo seint, sem það væri fram kom ið, en hann taldi efalaust, að það myndi ná samþykki þings ins, þegar það kæmi aftur saman á næsta hausti. Höfuð tilgangur slíks fjárfestingar- félags væri að stuðla að stofn un nýrrjt félaga, bæði með lánum og hlutafjárkaupum, og væru slík félög viðs veg- ar annars staðar þekkt fyrir- brigði og hefðu góða reynslu að baki. 0 Orkumál og iðnaður samtengd 1 lok ræðu sinnar minntist ráðherrann örfáum orðum á iðnþróunarmöguleika og fram tíðarviðhorf. Taldi hann, að við gætum lært mikið af öðr um, og hefðum þegar gert. Til gagns væru gagnkvæmar heimsóknir í þessu sambandi. Minnti hann á gagnkvæmar heimsóknir iðnaðarmálaráð- herra Noregs og lians sjálfs árið 1967 og ’68 og aöstöðu fulltrúa Iðnaðarmálaráðuneyt Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.