Morgunblaðið - 26.09.1969, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPT. 1969
KULDASKÓR
KVEN- KARLMANNA- BARNA.
FJÖLBREYTT ÚRVAL. — GOTT VERÐ.
SKÓVERZLUN PÉTURS ANDRÉSSONAR
Laugavegi 17 og 96 — Framnesvegi 2.
Hinir þekktu loftkældu Briggs & Stratton
mótorar fást nú í eftirtöldum stærðum:
hö.
hö.
hö.
hö.
Einnig höfum við tilheyrandi vatnsdælur
með Briggs & Stratton vélum.
*
yiinnai cSq&gehóóon h.f.
Suðurlandsbraut 16 - Reykjayik - Simnefni: »Volver* - Sími 35200
- VAXANDI FYLGI
Framhald af hls. 11
ur Kristilega demókrataflokks-
ins, flokks Kiesingers, eru ekki
á einu máli um verðleika kanzl
arans, en 83prs þeirra vildu
þó hafa hann áfram í júlí, en
stuðningurinn við hann hafði
vaxið í 88prs, þegar komið var
fram í ágústlok. Innan flokks
Frjálsra demókrata naut hann
65prs stuðnings í júlí, en stuðn
ingur við hann hafði hækkað í
66prs í ágústlok, og af kjósend-
um, sem voru ekki búnir að
gera upp við sig, hvaða flokk
þeir ætluðu að styðja, vildu 67
prs. forystu Kiesingers í júlí, en
í ágústlok hafði stuðningur þess
ara manna hækkað í 73 prs.
Einnig var leitazt við að kom
ast að því, hver væri hugur
hinna ungu kjósenda, sem ganga
í fyrsta sinn að kjörborðinu,
og kom þá í ljós, að þeir voru
einnig að meiri hluta fylgismenn
Kiesingers sem kanzlara, 57prs
í júlí og 51 prs í ágústlok. Er
afstaða þeirra þess vegna ólík
afstöðu annarra kjósenda, þar
sem þeir hafa verið að snúa
baki við kanzlaranum. Jafn-
framt hefir Brandt átt vaxandi
fylgi að fagna meðal þessara
kjósenda, því að hlutfallstala
hans hefir hækkað úr 28prs í
júlí í 37prs í ágústlok.
ÁKVEÐNIR VERÐA AFTUR
ÓÁKVEÐNIR
Um sitthvað fleira hefur ver-
ið spurt undanfarna mánuði í
sambandi við kosningarnar á
sunnudaginin, og m.a. hefir kom
ið fram síðustu vikur, að marg
ir, sem voru fyrir löngu búnir
að taka ákvörðun um að fylgja
tilteknum flokki, urðu síðar
reikulir í skoðunum og munu
jafnvel veita öðrum stuðning en
upphaflega var ætlað.
Af stuðningsmönnum sósíal-
demókrata ætluðu 84prs ekki að
breyta afstöðu sinni, en á hinn
bóginn höfðu 8 prs snúizt alveg
til fylgis við Kristilega demó-
krata, og eitt prósent ætlaði að
veita Frjálsum demókrötum
stuðning. Sjö af hundraði að
auki voru orðnir fráhverfir
flokki sósíaldemókrata, en voru
Loksins...
þétt blekhylki
ipennann
>1 ATltWHjn
Platignum
Fátt erauðveldara í notkun en
blekhylkin frá Platignum
—bér stingið aðeins nýju
hylki í pennan begar blekið
brýtur. Hverjum penna
fylgja 4ókeypis blekhylki.
Platignumsjálfblekungar
og kúlupennar fást í bóka—
og ritfangaverzlunum um
land allt í fjölbreyttu úrvali.
Athugið sérstaklega
hagstætt verð.
Auðveldir, bægilegir,
endingargóöir... Þér burfið hvorki
að öttast lekan penna né blekbletti
áfingrunum. Platignum
blekhylkin eru bétt.
Full ábyrgö
Allar Platignum vörur eru
tryggðar gegn gölluðu efni og
vinnu. Gölluð vara er bætt meö
nýrri og ógallaðri.
Einkaumboð: Andvari Hf. Smiðjustíg4, Sími 20433.
HÚSCACNAVIKAN
A miðvikudagskvöld var dregið út númerið 6474, og er hand-
hafi beðinn að vitja vinningsins, sem er stóll frá DÚNU, hjá
Húsgagnavikunni — sími, 81496.
I KVÖLD VERÐUR DRECIÐ ÚR
NÚMERUM SELDRA AÐCÖNCUMIÐA
HANDHAFI ÞESS MIÐA SEM ÚT
VERÐUR DREGINN HREPPIR
SVEFNBEKK frá
A. Guðmundsson h/f. og MODEL Húsgögn s.f.
þó ekki vissir um, hvern þeir
ætluðu að styðja.
Af fylgismönnum Kristilegra
demókrata ætluðu 79prs — í
ágústlok — að halda við fyrri
ákvarðanir um stuðning, en 11
af hundraði ætluðu heldur að
veita sósíaldemókrötum brautar
gengi, en enginn ætlaði að fylla
flokk Frjálsra demókrata. Loks
ætluðu 22prs fylgismanna
Frjálsra demókrata að snúa við
blaðintu og kjósa sósíaldemó-
krata, en 17prs ætluðu að kjósa
flokk Kiesingers.
Allir flokkarnir biðla vitan
lega til hins stóra hóps kjós-
enda, sem eru óákveðnir, og
þess vegna hefir verið reynt að
grafast fyrir um, hverjum slíkir
kjósendur úr hópi hinna yngri
þyki vænlegast að fylgja. Er
skiptingin sú, að 32prs kváð-
ust einkum hneigjast til Kristi-
legra demókrata, en 27 prs voru
einna hlynntastir flokki Brandts
sósíaldemókrötum, og 4prs töldu
Frjálsa demókrata helzt stuðn
ings verða. Þarna er um að
ræða 63prs þeirra, sem spurð-
ir voru, og var því enn allstór
hópur, sem hafði enga ákvörð-
un tekið í lok ágúst en gæti
þó haft nokkur áhrif, þegar á
kjörstaðinn kemur — ef ákvörð
un verður þá fyrir hendi. En
síðustu vikur hefir hinum ó-
ákveðnu jafnt og þétt farið
fækkandi, eins og ljóst er af
framansögðu.
NÝTT KOSNINGABANDALAG
Við þessar kosningar býður
nýtt flokka- og kosningabanda
lag fram menn í fyrsta sinn, og
kallast sú samsteypa „Aktion
demokratischer Fortschritt",
sem þýða mætti lauslega sem
„Lýðræðislega framfarabanda-
lagið“ ,en innan vébanda
þess eru kommúnistar, Þýzka
bandalagið (Bund der Deuts-
chen) og Þýzka friðarsamband
ið (Deutsche Friedensunion).
Bíða menn þess með nokkurri
eftirvæntingu, hvernig banda-
laginu vegnar, því að gengi
þess er talinn nokkur mæli-
kvarði á, hvort kommúnistar
hafa náð að afla sér nokkurs
fylgis, þrátt fyrir hörmulega
reynslu milljóna Þjóðverja af
stjórnarstefnu þeirra.
HVERNIG FER FYRIR
NÝNAZISTUM?
Þá er það og spurning, sem
margir velta fyrir sér, hvernig
hinum nýja Þjóðernislýðræðis-
flokki (Nationaldemokratische
Partei) von Thaddens reiðir af
í þessum kosningum. Flokkur-
inn hefir haft nokkuð hátt um
sig undanfarið og átt gengi að
fagna í héraðskosningum, svo
að menn óttast, að hann geti
sópað að sér nokkru atkvæða-
magni þeirra, sem eru óánægð-
ir með kjör sín og aðalflokk-
ana, svo og ýmissa, sem hafa
heyrt um gamla, þýzka stór-
veldisdrauma en átta sig ekki
á þeim hörmungum, sem slíkir
draumar hafa tvívegis leitt yfir
Þjóðverja og aðra á rúmlega
hálfri öld.
ÁKVÆÐI
STJÓRNARSKRÁRINNAR
í stjórnarskrá sambandslýð-
veldisins er fjallað um kosn-
ingar í landinu og segir svo í
38. grein, að þingmenn skuli
kjörnir í „almennum, beinum,
frjálsum, jöfnum og leynilegum
kosningum". Eru þingmenn alls
518, og þar af eru 22 kjömár
í Vestur-Berlín, en þeir hafa
ekki atkvæðisrétt á þinginu.
Kjördæmi eru alls 248 og kýs
hvert tvo þingmenn, en hver
kjósandi hefir tvö atkvæði, því
að bæði getur hann kjörið þann
frambjóðanda, sem honum fell-
ur bezt, en auk þess getur
hann kosið landslista, og gildir
einu hvaða landslista hann greið
ir atkvæði.
Þegar skipt er þingsætum
samkvæmt landslistaatkvæðum,
koma þeir flokkar einir til
greina, sem fengið haf eigi færri
en 5prs. gildra atkvæða í kjör-
dæmi eða fengið mann kjörinn
í a.m.k. þrem kjördæmum.