Morgunblaðið - 22.10.1969, Síða 4
555
• - x4444
wmuoir
BILALEIGÁ
HVERFISGÖTU 103
VW SendifgrgaWrgtJ-VW 5 marnia -VW svefnragrr
VW 9maona-Landrover 7m3nna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Símí 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
MAGIXÚSAR
4KlPH3Ul2l »MAR2U90
ettir tolcun »lmt 40381
Sknldobréf
Miðstöð verðbréfaviðskipta er
hjá okkur. Látið skrá ykkur
hvort sem þið eru seljendur
eða kaupendur.
Fyrirgreiðsluskrifstofan
Þorleífur Guðmundsson
Fasteignt- og verðbréfasala
Austurstræti 14, símí 16223.
heima 1246S.
BiLAKAUP^m.
i Vel með fornir bílar til sölu |
og sýnis í bílageymslu okkar
I að Laugavegi 105. Tækifæri
til að gera góð bílakaup.. -
] Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipfi koma til greina.
'66 Moskwitch, 105 þús.
'68 Moskwitoh, 150 þús.
’63 Taunus 17 M st. 115 þ.
'67 Jeepster 295 þús.
'67 WiMy's, btæju 185 þús.
'62 Landrover, 120 þús.
'63 Taumus 12 M 85 þús.
'67 Taunus 12 M 190 þús.
’68 Tawnuis 12 M 235 þús.
'67 Sioger Vogiue 240 þús.
'66 Taunus 17 M st. 235 þ.
'68 TaurKis 17 M 295 þús.
'66 Taurtus 17 M 235 þús.
'67 Rússi (nýtt hús) 215 þ.
'67 Votkswagen 1500, 235 þ.
'66 Ford Custom, 320 þús.
'65 Cortiua, 120 þús.
'62 Zephyr, 90 þús.
'67 Scout, 250 þús.
'66 Plym. Belv., 260 þús.
'66 Landrover, 180 þús.
'66 Bronco, 250 þús.
’67 Cortina, 185 þús.
Tökum góða bíla í umboðssölul
Höfum rúmgott sýningarsvæði
innanhúss. j
UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON H.F.
LAUGAVEG 105 5ÍMI 22466
MORG-UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1960
0 Bilanir
á Skálafellsstöð
Dalakarl skrifar:
„Velvakandi góður!
Mig hefur oft langað til að
sefjast niður og taka mér penna
í hönd, vegna hinna mörgu bil-
ana, sem verða á endurvarps-
stöð sjónvarpsins á Skálafelli.
Hvernig er það, eru engin tak-
mörk fyrir því, sem hægt er að
bjóða fólkinu úti á landsbyggð-
inni, er forráða-mönnum sjón-
varpsins nóg, að Reykjavíkur-
svæðið hafi góða þjónustu,
en þeir, sem úti á landinu búa
og borga sama gjald fyrir sjón-
varpsafnot, megi búa við það að
tapa af dagskránni hvað eftir
annað bótalaust? Það er ekki
einu sinni beðið afsökunar á bil-
ununum, að maður nú ekki tali
um, að þau atriði, sem niður
falla, séu endursýnd sáðar.
En hvað gerist svo, ef Vatns-
endastöðin bilar. Jú, þá er dag-
skráin endurtekin, vegna þess að
Reykvíkingar misstu af henni!
Það hlýtur að vera skýlaus krafa
þeirra, sem sama afnotagjald
greiða, að allir fái sömu þjón-
ustu, hvar sem þeir búa á Iand-
inu. Væri til of mikils mælzt við
forráðamenn sjónvarpsins, að
þeir tækju til greina eftirfarandi:
1. Að viðgerðarmaður sé hafð-
ur á verði á Skálafelli þann
tíma sem útsending stendur yfir.
2. Að það sjónvarpsefni, sem
fellur niður vegna bilana á Skála
fellsstöðinni, sé endursýnt.
Það væri gaman að fá svör við
þessum spurningum.
Einnig væri fróðlegt að vita,
hvort það eru ekki fleiri en ég,
sem eru óánægðir yfir svona þjón
ustu.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Ritað í sveitinni, 12.10 1969;
meðan Skálafellsstöðin er biluð.
Dalakarl”.
0 Eldsvoðar og reykingar
„Einn óháður” skrifar:
„Velvakandi!
Nú, þegar sityrr stendur um við
vörunaráletranir á vindlinga-
pökkum, er ekki úr vegi að
minna örlítið á skaðsemi reyk-
inga að öðru leyti og ber þá
fyrst að nefna eldhættuna.
Telja má víst að stóran hluta
af öllum eldsvoðum megi rekja
til reykingamanna og þar af hafa
iðulega orðið dauðaslys. Nægir að
benda á, að nýlega fórst maður
í eldi i herbergi sínu af þeim
orsökum.
Mörg önnur hörmuleg slys
Vefnaðarvöruverzlun
í fullum gangi
mjög vel staðsett í borginni til sölu nú þegar.
Þeir sem óska upplýsinga leggi nöfn sín á afgreiðslu blaðsins
merkt: „Vefnaðarvörubúð til sölu — 8521" fyrir 25. þ.m.
Nokkur gölluð baðkör verða seld næstu daga.
od. 'JóAaimssojn. & SmltA
Simí 24244 (3 Hwu\)
KAU PMAN N ASAMTÖK
ÍSLANDS
Kaupmenn
r Hafnarfirði og Suðurnesjum
Þeir kaupmenn, er fengið hafa bréf vegna stofnunar trygg-
íngafélags, eru minntir á fundinn að veitingahúsinu Skiphól,
Hafnarfirði, annað kvöld, fímmtudaginn 23. þ.m. kl. 21.00.
Félagsmenn fjölmennið.
Kaupmannafélag Hafnarfjarðar,
Kaupmannafélag Keflavikur.
mætti nefna sem allar lfkur bentu
til að orðið hefðu af völdum reyk
ingamanna.
0 Fjársóun og reykingar
í öðru lagi er það peningahlið-
in og er það ekki litið atriði,
sérstaklega fyrir ungt fólk, sem
er að byrja lífið. Eða ætli nokk-
ur unglingur setjist niður og
reikni út, áður en hann byrjar á
ósómanum, hve mikið fé hann
þurfi árlega til þess að reykja
pakka á dag?
Og reikni nú hver sem vill.
0 Óþrifnaður
og reykingar
Þá er það ótalið að oft verður
hinn mesti óþrifnaður af tóbaki,
bæði í húsum og utan, til skap-
raunar þeim sem ekki reykja.
Einnig verður andrúmsloft í dans
húsum víða slíkt af tóbaksreyk,
þegar líða tekur á samkomur, að
tæpast þola þar aðrir við en kóf-
drukknir reykingamenn, og
mættu vissir aðilar taka það til
athugunar.
0 Heimska
Af öllu þessu og því til við-
bótar að engum mun finnast
fyrstu áhrif tóbaks góð, heldur
þurfa menn að venja sig á eitrið,
þá er það lítt skiljanlegt að sæmi
lega gefið fólk skuli fremja slík
heimskupör og ánetjast þannig
í flestum tilvikum ævilangri
plágu. En kannski það hafi við
rök að styðjast sem kaupmaður
einn sagði, að þeim heimskari
væri jafnan hættara við að byrja
að reykja? Og gætu menn þá haft
það til marks.
Einn óháður”.
0 Símaþjónusta
fyrir taugaveiklaða
„Velvakandi,
Morgunblaðinu.
Bréf „taugaveiklaðrar” í föstu
dagspistli þínum gefur mér til-
efni til að koma eftirfarandi á
framfærl
Vilji einhver kynna sér nánar
framkvæmd þeirrar simaþjón-
ustu sem hún saknar svo mjög,
væri ekki úr vegi að snúa sér tfl
hinnar brezku „The Samaritan”
hreyfingar, sem er mjög vakandi
í þessum málum. Skrifa má t.d.
til Miss Barbara McPhail, 134
Holland Street, Glasgow, C2,
Scotland. Þjón.usta þessi er veitt
og notuð í ört vaxandi mæli á
Bretlandseyjum. Hlutverk henn-
ar er að aðstoða fólk, sem af ein
hverjum. ástæðum gefur sig ör-
væntingunni á vald og veit ekki
hvað til bragðs skal taka, þvl
sjálfsmorðið verður oft tiltækast
í huga þess. Vandamálin eru þó
mörg og misjöfn og ólíkt hvert
öðru.
0 Reynslan frá Glasgow
Konan í pistlinum þínum tel-
ur einmanakenndina t.d. ásækja
sig að næturlagi, en í Glasgow
er reyndin sú, að þjónustunnar
er leitað nokkuð jafnt allan sól-
arhringinn. Glasgow-sVæðið sinnti
td. um tveim þúsundum einstakl
inga s.l. ár, en fleiri leituðu þó
aðstoðar á tímabilinu frá kl. 1
til 5 eh. heldur en frá kl. 11 að
kvöldi til kl. 9 að morgni. Októ-
ber og febrúar virðast vera erf-
iðari en aðrir mánuðir. Ókvæntir
karlar virðast frekar vera hjálp-
ar þuirfi en ógiftar konur, en gift
ar konur leita þessarar aðstoðar
aftur á móti miklu frekar en
karlarnir. Ekkjur virðast verr á
vegi staddar en fráskildar og
þeiir karlmenn, sem misst hafa
konuna í fang annarra eru greini
lega ráðvilltari en aUir hinir.
Flest er þetta fólk á aldrinum
frá 25 og fram undir sextugt og
virðist enginn aldursflokkur vera
öðrum fjölmennari. Til undan-
tekninga heyrir þó, ef fólk sem
komið er yfir sextugt leitar sér
aðstoðar á þennan hátt.
Starf Samverjans er fyrst og
fremst fólgið í því, að gefa fólki,
sem í augnabliks örvilnan veit
ekki hvað til bragðs skal taka
eða fólki, sem með neikvæðum
hugsunum hefir grafið sig svo
inn í sjálft sig, að það ratar ekki
út adrtur, — gefa þessu fólki tæki-
færi til að hrópa á hjálp, því um
leið og slíkt er gert er eins og
rofni skarð í þennan herfilega,
yfirþyrmandi múr, sem það oft
af einberum misskilningi hefir
umlukt sig. Aðalatriðið virðist
þvi vera, að hrópandinn fái út-
rás frekar en inngjöf.
Ef einhver vill einhvern tímann
kynnast þjón.ustu Samverjans
nánar skal ekki standa á mér
með það litla er ég veit.
Með beztu kveðjum,
Steinar Guðmundsson,
Bólstaðarhlíð 32,
Reykjavík”.
Spónaplötur
4x8 V2’, 4x9’, 4x10’, 6x9’, allar þykktir.
Húsasmidjan
_________ Súðavogi 3 — Sími 34195.
H júkrunarkonur
Stöður hjúkrunarkvenna við Geðdeild Borgarspítalans, Hvíta-
bandinu eru lausar til umsóknar.
Upplýsingar veitir forstöðukona Borgarspitalans í síma 81200.
Reykjavík, 20. 10. 1969.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavikur.
3ja herb. íbúð úsamt bílshúr
Til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð í tvíbýlishúsi við Skólagerði,
Kópavogi. Bílskúr fylgir.
SKIP OG FASTEIGNIR,
Skúlagötu 63, sími 21735,
eftir lokun 36329.
1