Morgunblaðið - 22.10.1969, Blaðsíða 5
MOBGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 19«9 5
ÞESAR FÚLKID TOK VÖLOIN
Átjándi Landsfundur Sjálf-
stæðisfloKksins mun verða
mimnisstæður öllum þedon er
hamn sóttu. Sérstaödega á það
við um sunniudagsfiundinn, þeg
ar tuigiuim tilnefninga um menn
í miðstjórn rigndi yfiir fiundar-
stjórann, Sigurð Bjannason frá
Vigur, eftir að þingmenm flokks
ins höfðu með eftirminndlegum
hætti veri® settir á einm bás.
Þessd atriði vekja mesta at-
hygli við átjánda Landsfund-
inn:
• Skorinorð áminning Lands-
ifiundarfulltrúa til þingmanna
Sjálfstæðisflokksins um, að
fleiri geti gegnt trúnaðar-
störfium á vegum flökksins
en þeir.
• Ræða Bjarna Benediktsison-
ar á sunnudagsmorgun, þeg-
ar hann í raun gerði út af
við „þingmannabandalagið“
svonefnda og hvatti þingfull
trúa til þess að fella í kosn-
ingum þá trúnaðarmenn
filoktosins, sem þeim sýndist.
• Hin óvenjulega traustsyfir-
lýsing, sem Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, hlaut á
Landsfumdinum. Það traust
mun au’ka veg borgarstjóra
innan forustu Sjálfstæðis-
ffloktosdns og verða honum
mikill styrtour i borgarstjórn
arkosniingunum í vor.
• Umtalsverður árangur ungra
Sjálfstæðismamna við að koma
stefnumálum sínum fram,
þótt mistök annarra ættu
meiri þátt í því en jákvæð
barátta þedrra sjálfra.
Síðustu tvo daga Landsfund
arins smerust umræður fyrst og
firemst um skipulagsmál Sjálf-
stæðisflotoksins og tillögur uim
breytingar á þeim. Fram til
þessa Landsfundar var mið-
stjórnin kjörin með þeim hætti
að formaður og varaformaður
voru sjálfkjörnir í miðstjórn
svo og formenn landssamtak-
anna þriggja. Landsfundurinn
ejálfur kaus hins vegar 7 full-
trúa úr sínum hópi.
Nú lá fyrir Landsfundinum
tillaga frá miðstjóm flokksints,
sem studd var af rmeirihluta
skipulagsnefndar Landsfundar-
ins þess efnis, að fjölgað skyldi
í miðstjórn um 3, þannig að
fundurin.n kysi 10 fulltrúa í
miðstjórn. Minn ihlúti skipu-
lagsnefndar tók hins vegar
upp tillögu, sem samþytokt var
á þinigi Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna í septembermán-
uði sl. þess efnis, að þingflokk
urinn kysi beint 5 fulltrúa úr
sínum hópi í miðstjórn en
Landsfundurinn kysi 8 fulltrúa
úr hópi annarra en þimgmanna.
Þesisari tillögu var augsýnilega
beint gegn ofurvaldi þing-
manna í miðstjórn.
Eftir miklar og harðar umræð
ur var tillaga minnilhluta
skipulagsnefndar samþykkt eft
ir hádegi á sunnudag með 239
atkvæðum gegn 207. Þessi úr-
slit vöktu mikla athygli enda
hygg ég, að fæstir hafi gert
ráð fyrir því í uppthafi Lands-
fundar, að hún mundi ná sam-
þyktoi og kannstoi allra sízt að-
standendur tillögunnar sjálfir.
En hvað gerðiist? Rétt er að
skýra það noklkrum orðum.
Þegar á Landsfúndinn var
komið, munu flestir hafa gert
ráð fyrir því, að tililaga mið-
stjórnar um 3ja mannia fjölg-
un í miðstjórn yrði samþykkt.
í raun þýddi þetta, að ef geng-
ið var út frá því, að allir frá-
faramöi miðstjórnarmenn yrðu
endur'kjörnir mundu fjórir nýir
fuliltrúar kosnir í miðstjórn,
þar sean einn miðstjórnarmamna
Pétur Ottesen, hafði andast á
kjörtirnalbilinu.
Það kom fljófflega fram, að
þaiu kjördæomi, utan Reykjavík
ur, sem ektoi höfðu átt fulltrúa
í miðstjórn, höfðu nú fullan
hug á því að tryggja aðstöðu
sína þar. Þetta voru Norður-
landskjördæmi vestra, Austur-
landskjördæmi og Vesturlands
kjördæmi, sem hafði misst sinn
fulltrúa við lát Péturs Ottesens.
Jafnframt kom í ljós, að laun-
þegar höfðu fullan hug á, að
koma helzta forustumanni sín-
um innan Sjálfistæðisflokksins,
Pétri Sigurðssyni, í miðstjórn.
Þá lá ljóst fyrir, að ungir
Sjálfstæðismenn mundu gera til
raun tiil þess að fá umgan
mann kjörinn í miðstjórn svo
og Sjálfstæðiskonur.
Það kvisaðist fljótlega á
Landsfundinum, að í uppsigl-
ingu væri bandalag á milli kjör
dæmanna um að tryggja sínuim
mönnum kosningu í miðistjórn.
Norðurlandskjördæmi vestra
hafði ákveðið að bjóða fram
varaþingmann sinn, Eyjólfur
Konráð Jónsson. Austurlands-
kjördæmi hafði einnig í huga
að bjóða fram sinn varaþing-
mann, Sverri Hermannsson.
Hiras vegar var lítið vitað um
fyrirætlanir Vesturlands'kjör-
dæmis annað en það, að orð-
rómur var uppi um, að Kal-
man Stefámsson, bóndi í Kal-
mannstungu, yrði boðinn fram
af hálfu þess kjördæmis. Á
fundum fulltrúa kjördæmanna
sil. lauigardag var hins vegar
ákveðið í Vesturlandsikjördæmi
að freista þess að koma Jóni
Árnasyni, alþingisman.ni í mið-
stjórn. Þar með var komið á al
gjört þingmannabandalag, þing
manna og varaþingmanna og
fyrirsjáanlegt að ef hin ein-
stötou kjördæmi semdiu sín á
milli mundu hin fjögur „lausu“
sæti verða fyllt af þingmönn-
um og varaþingmönnum.
Meðan um var að ræða kjör
dæmabamdalag til þess að
koma að tveiimur varaþing-
mönnum, ungum og glæsileg-
um bónda og einum helzta for
svarsmanni sjómanna, sem að
visu er einnig þingmaður, var
það viðunandi. Þess er einnig
að gæta, að allir þessir fjórir
menn eru verðugir fulltrúar
„lýðveldiskyTnslóða<rinna'r“,
sem svo hefur verið nefnd,
eða lýðveldisbörn eins og
Matthías Jóh’annessen hefur
kallað þá og þess vegna mun
það ekki í upphafi verið full-
trúum á móti skapi að kjósa
þá. En eftir að hópurinn var
orðinn tveir þingmenn og tveir
varaþingmenn va.r víst öllum
ljóst, og þax á meðal fjórmenn-
ingunum sjálfum, að slík sam-
setning var vonlaus. En erifið-
ara er að leysa slík bandalög
upp en itooma þeim á, en þar
kom formaður flokksins til
hjálpar, eins og síðar grednir.
Þegar á sunnudags-
morgun mátti merkja það, að
andrúmsloftið á Landsfundin-
um hafði snúizt mjög gegn
þinigmannabandala’ginu og til
stuðnings við tillöguna um, að
þi n gfilokkurinn kysi 5 fulltrúa
úr sínum hópi en þimgmenn
yrðu etoki kjörnir á Lands-
fundinum. Á morgunfiundinum
toom í ljós, að tillaga ungu
mannanna hlaut talsverðan
stuðning úr röðuim eldri manna.
Á þessum fundi hélt Bjarni
Bemediktsson einnig ræðu, þar
sem hann raunveruiega réðöt
harkalega á þmgmannabanda-
lagið og afneitaðd því með öllu.
Flokksformaðurinn hvatti
Lamdsfundarfúlltrúa til þess að
láta öll bandalög sem vind um
eyru þjóta en fylgja sannfær-
ingu sinni við va.l manna í mið-
stjórn og engu öðru. Hann
sagði að ekki væri mikið
spunnið í þá trúnaðarmenn
floktosinis, sem ekki gætu tekið
þvi að falla í kosningum, og
sagði hreimt út við fulltrúa, að
þeir ættu ekki að óttast að
fella einstaka trúnaðarmenn
flokksins í toosningum, ef þeim
sýndiist svo.
Þessi ræða Bjarna Benedikts
sonar sem öðrum þræði var
einnig vörn fyrir þinigflokkinn
og stöðu hans hafði að mínum
dómi mjög djúpstæð áhrif á
þingfulltrúa. Andinn mieðal
landsfundarfulltrúa kom eink-
ar skýrt fram þegar þrír ung-
ir menn,- Hörður Einarsson,
formaður Fulltrúaráðsins í
Reykjavík, Jón E. Ragnarsson
og Sigfinnur Sigurðsson lögðu
til að öilum tillögum um skipu
lagsbreytingar yrði vísað til
miðstjórnar. Sú tillaga var von
lausasta till. þessa Landsfund-
ar. Hún var kolfelld. Þegar
miðstjórnarkjörið hófst skap-
aðist algjör ringulreið á
þessum fjölmenna fundi.
Tugir manna og kvenna voru
tilnefndir í miðstjórn og at-
kvæði dreifðuist á mjög stóra
hóp. Úrslitin hafa þegar verið
birt í Mbl. ásamt atlcvæðatöl-
um og er því ekki ástæða til að
endurtaka þau. En atkvæðatöl
urnar sýna í fyrsta lagi mjög
mikinn styrkleika Geirs Hall-
grímssonar borgarstjóra. Hann
er sá einstaklingur, sem fékk
næstflest atkvæði við kosning-
ar á Landsfundinum eftir
Bjarna Benediktssyni. í öðru
lagi eru únslitin vísbending um,
að Ragnhildiur Helgadóttir,
fyrrium alþingismaður, nýtur
jafnimilkilla Vinsælda og áður.
Eftir þá útreið, sem þing-
mannabandalagið fétok mega
þeiir Eyjólfiur Konráð Jóns-
son og Sverrir Hermannsson
þakka fyrir að hafa náð kjöri
og sýnir það toannski meiri
styrkleika þeirra en atkvæða-
tölur gefa til kynna.
Ástæða er til að gera
þátt ungra Sjálfistæðiismanna í
miðstjórn arkj örinu sénstaklega
að umtalsefni. Framibjóðandi
þeirra, Friðrik Sophusson, náði
kjöri með ágætum árangri,
enda hafði þróun mála á sunnu
dag aukið mjög þann meðbyr,
sem yngri menn höfðu á þing-
inu. Friðr.ik Sophusson er ung
ur laganemi, sem hefur látið
miikið að sér kveða í starfi á
vegum ungra Sjáifstæðismanna
á undanförnum árum.
Etoki voru allir á einu máli
um hver frambjóðandi ungra
manna ætti að vera og töldu
margir, að Ólafur B. Thors
væri mun sterkari framfojóð-
andi, sem hefði meiri mögu-
leika á að ná kosningu til mið-
stjórnar. Þá var að vísu geng-
ið út frá þeirri forsendu, að til
laga miðistjórnar um fjölgun
mundi ná fram að ganga eða
einhver svipuð tillaga. Eftir þá
skipulagsbreytingu, sem gerð
var, lá hins vegar ljóst fyrir,
að frambjóðandi ungra manna
hlyti að ná kjöri, hver svo sem
hann væri.
í sambandi við þær umræð-
ur, sem fram fóru meðal Lands-
fundarfúlltrúa "um framfojóð-
endur ungra manna kom glögg
lega í Ijós, að Ólafur B. Thors
á miklu fylgi að fagna meðal
Sjálfstæðismanna og þori ég ó-
hikað að fullyrða, að hann er
einn hæfileikamesti maður, sem
fram hefur komið í röðum
ungra Sjálfstæðismanna á und
anförnum árum og líklegur til
verúltegra áhrifa í íslenzkum
stjórnmálum í framtíðinni.
Sérstök ástæða er til að
fagna kjöri annars ungs Sjálf
stæðismanns í miðistjórn að
þessu sinni en það er hinn
ungi og glæisilegi bóndi frá
Kalmannstungu, Kalman Stef
ánsison, sem hefur átt góðan
þátt í S'tarfi uragra Sjálfistæð-
ismanna á undanförraum áruim.
Tillagan, sem samþykkt var
um miðstjórnarkjörið var glögg
vísbendinig um þann andá s>em
ríkti á Landsfundinum en samt
sem áður er hún stórgölluð.
Eðlilegt er, að þingmennirnir
verði einnig kjörnir í miðstjórn
af Landsfundarflulltrúum, þann .
ig að í ljós komi hver styrtour
þeirra er. Þá breytiragu þarf að
gera á næsta Landsfundi.
Það væri vissulega rangt að
gefa mönnum þá hugmynd áf
framansögðu, að Landsfundur
Sjálfstæðisfloktosins hafi ekki
snúizt um annað en persónur
og skipulag. Á föstudeginum
fluttu fjórir ungir vísindamenn
ræður um vísinda- og rann-
sóknarmál og vöktu þær ræð-
ur mikla athygli. Þann dag
voru einnig fluttar ræðuir um
atvinnumál og settu þessir
tveir málaflokkar mestan svip
á fyrri hluta Landsfundarins
svo og á stjórnmálayfirlýsingu
hans.
Engu að síður er það stað*
reynd, að átjándi Landsfund-
ur Sjálfstæðisflokksins „sprakk
út“ og blómstraði í kosningun-
um á sunnudeginum. Þá fengu
fulltrúar útrás fyrir hvera
kyns óánægju og undiröld-
ur með svo eftirminnilegum
hætti, að menn muna ekki ann-
að eins. Sjálfstæðisflokkurinn
kemur frá þessum fundi marg-
fallt sterkari en áður. Það sem
gerðist á Landsfundinum hefur
gerbreytt öllu andrúmslofti
innan Sjálfstæðisflokksins, það
hefur verið loftað út. Trú mín
er sú að Sjálfstæðismenn
þurfi engu að kvíða í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor, ef
sá andi, sem skapaðist á þess-
um Landsfundi verður látinn
ráða ferðinni og móta störf
Sjálfstæðisflokksins í framtíð-
inni. Samhugur flokksmanna kom
glögglega fram þegar mynda-
styttan af Ólafi Thors var af-
hjúpuð og Jóhann Hafstein,
varaformaður flotoksins, af sín*
um altounna skörungsskap, bað
menn hylla minningu Ólafs
Thors svo og þegar Jón á
Reynistað var hylltur í
fundarlok. Síðast en ekki
sízt kom þessi samlhugur
glögglega fram þegar úrslitum
formannskjörsins var lýst og
fundarmenn risu úr sætum til
að fagna Bjarna Benediktssyni.
Þá kom skýrt fram hversu
traust og sterk bönd eru milli
þessa mikilhæfa stjórnmála
manns og fólksins sem hefur
falið honum forustu sína.
Styrmir Gunnarsson.
Skrifstofustúlka
Rösk og nákvæm stúlka getur fengið vinnu við almenn skrif-
stofustörf hjá stóru verzlunarfyrirtæki í Reykjavík, strax eða
síðar Kunnátta í ensku og vélritun nauðsynleg.
Eiginhandarumsókn sem tilgreinir aldur, menntun og fyrri störf,
sendist á afgreiðslu Mbl. fyrir 30/10 n.k., merkt: „Traust
— 8829". — Fullri þaðmælsku heitið.