Morgunblaðið - 22.10.1969, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.10.1969, Blaðsíða 18
18 MORjGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1968 - FJÁRLAGARÆÐA Framhald af bls. 17 lagsbreytingum og nýjungum í inmlendum iðnaði, ef ísland ger- ist aðili að Fríverzlunarbanda- laginu. Gert er ráð fyrir, að sjóður þessi muni nema rúmum 1200 millj. ísl. kr. og er hlutur íslands aðeins um 45 millj. kr., en framlög til sjóðsins mundu greiðast á fjórum árum. Er hér að sjálfsögðu um mjög sérstæða velvild að ræða af hálfu Norður landaþjóðanna í okkar garð, en færa má þó þau rök fram af okk ar hálfu, að viðskiptajöfnuður íslands og hinna Norðurland anna hefur á síðustu árum ver- ið fslendingum mjög óhagstæður Reiknað var með 2000 millj. kr. útflutningsverðmœti síldar Tekjuáætlun fjárlagafrum- varpsins er að sjálfsögðu svo sem oft áður, háð mikilli óvissu, og ganga verður út frá ýmsum forsendum, sem ómögulegt er að vita hvort standast í reynd. Má þó á það benda, að tekjuáætl- un fjárlaga yfirstandandi árs sýnist ætla að standast ótrúlega vel, þótt ýmislegt hafi farið á annan veg en ætlað var, en hins vegar verður að hafa í huga, að hinir óhagstæðari þættir þróun- arinnar í ár munu meir koma fram í viðskiptalífinu og þar af leiðandi stöðu ríkissjóðs á næsta ári. Gert var til dæmis ráð fyr- ir því í þjóðhagsspánni fyrir yf- irstandandi ár, að síldveiðamar myndu gefa um 2000 milljónir í útflutningsverðmæti. Tekjumar verða væntanlega aðeins lítið brot af þeirri fjárhæð. Að vísu koma þar á .móti nokkuð betri útkoma á öðrum veiðum, s.s. loðnuveiðum, en gert hafði verið ráð fyrir, og batnandi verðlag, en það megnar þó engan veg- inn að jafna þetta tekjutap frá áætlun. Efnahagsstofnunin hefur eins og undanfarin ár gengið frá tekjuáætlun fjárlagafrumvarps- ins og er áætlunin byggð á þjóð hagsspá stofnunarinnar, eins og hún var endurskoðuð eftir kjara samningana í maí s.l. og með síð ustu vitneskju um kauplags- og verðlagsbreytingar. Er þar gert ráð fyrir, að atvinnuástand verði ekki lakara en það mun að jafn aði verða í ár, en það erbyggt á þeirri forsendu, að síldveiðarn ar bnegðist ekki gjörsamlega í haust, heldur verði síldarafli árs ins ekki minni en 1968, eða ann- ar afli komi þá í hans stað. Heildartekjur áœtl- aðar um 8 milljarðar Heildartekjur á rekstrarreikn- ingi fjárlagafrumvarpsins em áætlaðar 8.082,1 millj. kr., sem er 985,6 millj. kr. hækkun frá tfjárflöguim yfiinsitamdandi árs. Af þessari fjárhæð era fyrirfram ráðstafaðir tekjustofnar 229.7 millj.r þannig að tekjuauki sá, sem til ráðstöfunar verður í sam bandi við fjárlagaafgreiðslu nem ur 755,9 millj. kr., eða 13,4prs hækkun frá fjárlögum yfirstand andi árs. Tekjuáætlunin er sund urgreind svo rækilega í greinar gerð með fjárlagafrumvarpinu, að ég vil ekki eyða tíma í að ræða einstaka liði hennar, en aðeins nefna helztu breytingar. Þrátt fyrir erfiðleika á yfirstand andi ári er gert ráð fyrir því, að tekjuskattar hækki um 89 millj. kr. Er þá fyrst og fremst miðað við tekjuauka vegna launa hækkana á þessu ári og fjölgun ar skattgreiðenda, en jafnframt áætlað fyrir nokkurri hækkun skattvísitölu, er leiði til hækk- unar persónufrádráttar. Megin- hækkun teknanna er þó af inn flutnángi, en áætlað er, að að- flutningsgjöld hækki um 305.2 millj. kr. Er þá miðað við, að al- mennur vörainnflutningur auk ist um 6,2% frá spá 1068, em í þeirri spá var gerð ráð fyrir um 08 prs. minnikun innftafnings, sem sýnist ætla að verða raunhæft. Þá er jafnframt gert ráð fyrir þvi, að meðaltoltar verði 27 prs. sem er nokkur hækkun frá því, sem meðaltollur sýnist ætla að verða í ár, en í ár hefur sam- dráttur í innflutningi hinna hærri tollflokka verið sérstaklega mik ill. Miðað við reynslu yfirstand andi árs eir hims vegar gert ráð fyrir verulegum samdrætti tekjum af leyfisgjaldi af bifneið um, þannig að sá tekjustofn lækki um 52,4 millj. miðað við fjárlög yfirstandandi árs. Áætl- að er, að söluskatbur til ríkis- sjóðs hækki um 201,6 millj. kr, og er þá gert ráð fyrir 8 prs. arukinmi sötaskattsveltu. Þá er loks gert ráð fyrir, að hagnað- ur Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins vaxi enn um 133 millj. kr. Vegna stórvaxandi umferðar um Keflavíkuxflu'gvöll er talið auðið að áætla 18,6 millj. kr. hækkun tekna af fiugvellinum. Meginsjónarmið fjár- lagafrumvarpsins Svo sem tekið er fram í inn- gangsorðum greinargerðar fjár lagaframvarpsins var það megin sjónarmið haft í huga við áskvörð un ríkisútgjalda samkvæmt fram varpinu, að auðið yrði að af- greiða greiðstahallalaus fjárlög, án þess að þyrfti að grípa til nýrrar skat'theimtu á almenning. Verður það sjónarmið að teljast sjálfsagt og eðlilegt við af- greiðslu fjárlaga á þeirn tímum, þegar almenningur verður að búa við kjaraskerðin.gu vegna versnandi viðskiptastöðu, sem all ir vita nú og viðurkenma að er óumflýjanlegt, og allir sann- gjairnir menn munu raunar viður kemna, að ótrúlega vel hafi tek- izt að fleyta þjóðinni yfir erfið- leikatíma síðustu ára án meiri kjaraskerðingar miðað við þau stórkostlegu fjárihagsáföll, sem þjóðin hefur orðið fyrir, sem eru algjörlega einstæð meðal þjóða, sem standa á svipuðú lífskjara- stigi og við íslendingar. Vegna þeirrar mikta nauðsynjar að forð ast nýjar Skattaálögur reynist óumflýjanlegt að synja um mairg víslegar fjárveitingar, semvissu lega hefði verið æskilegt að geta sinrnt til margháttaðra umbóta- mála. Ég hefi hér að framan greint frá helztu orsökum út- gjaldaihækkana rí'kissjóðs og tel mig geta fullyrt með góðri sam- vizku, að þar hafi verið ræki- lega spyrnt fótum gegn allri þeirri útþenslu í ríkiskerfinu, sem hægt var að komast hjá, að undantekinni þeirri au’kningu á ■sviði menntamála og heilbrigðis- mála, sem ég geri nanmast ráð fyrir, að menn gagnrýnd, nema þá fremur á þann hátt, að of skammt sé gengið, en þessir tveir útgjaldaliðir, að viðbættum launa hækkunum til opinberra starfs- manna, sem einnig eru óumflýj- anleg útgjöld, nema meginhluta allrar útgjaldahækkunar ríkis- sjóðs á næsta ári. Auðvitað hefði verið æskile'gt, bæði vegna brýnnar þarfar, og einnig vegna atvinnuástands, að verja meira fé til opinberra fr amkvæmda, en vert er þó á það að benda, að í fjárlagaframvarpinu eru hækk- anir til verklegra framkvæmda ríkissjóðs um 90 millj. kr. Að auki má svo á það benda, að fyr irhuguð er lánsfjáröflun tilnokk urra mikilvægra framkvæmda á þessu ári til að afla verulegs fjármagns bæði til ríkisfram- kvæmda og til aðstoðar við at- vinnulífið í landinu almennt, og unnið er nú að athugun á fjár- þörf stofnsjóða atvinnuveganna á næsta ári og munu ráðstafan- ir verða geaiðar tál öfiuinar fjár- magns til brýnustu framkvæmda á sviði atvinnulífsins. Auk þess sem á þessu ári hefur verið hald ið uppi verklegum framkvæmd- um í samræmi við fjárveitingar fjárlaiga, hefur verið hafizt ha.nda um byggingu heyrnleys- ingjasikóla, sem var mjög brýnt viðfangsefni. Áfr.am hefur ver- ið baldið framkvæmdum við byggingu Hamraihlíðarskóla, sem gert htaði verið ráð fyrir að fresta á þessu ári. Saimþykkt hef ur verið að veita stúdentum nægi lega fjárfaagsaðstoð af ríkisins hálfu til þess, að hafizt hefur ver ið handa um byggingu félags- h-eLmilis stúdenta. Haldið hefur verið áfram byggin'gu tollstöðv- arhússins í Reykjaivik, með við- bótarfjárveitingum. Hraðað hef- ur verið mikilvægum hafnar- framkvæmdum á ýmsurn stöðum á landinu með fyrirgreiðsta rfk- isins um lánsfjáröflun. Gerðar hafa verið ráðstafanir til fjár- öflunar fyrir Vegasjóð til þess að geta nú í haust og vetur hald ið áfram vinnu við Austurveg og Vesturlandsveg. í gangi er helm ings stækkun kisiligúrverksmiðj- unnar við Mývatn, og gert er í framkvæmdaáætlun fyrir 1970 ráð fyrir fjáröflun til þess að á næsta ári sé hægt að hefjast handa um stækkun Laxárvirkj unar og byggingu Áburðarverk- smiðjunnar. Áður hefi ég nefnt byrjunarfjárveitingar á næsta ári til byggingar fyrir Veður- stofuna og nýbyggingar Fæðing ardeildar Landspítalans. Gert er ráð fyrir verulegri aukningu vegagerðar á næsta ári og fjár mun verða aflað til þess að efla skipasmíðaiðnaðinn, auk þess sem nýlega hefur verið skýrt frá mik ilvægri aðstoð Seðlabankans í því skyni að hraða lánveiting- um til íbúðabygginga víðs vegar um landið og stuðla þannig að veralegri atvinnuaukningu í byggingariðnaðinum. Atvinnumálanefndir hafa ráðstafað 340 millj. króna Á vegum atvinnumálanefndar rikisins hefir á þessu ári verið ráðstafað um 340 millj. kr. til margvislegra framkvæmda, sem stórbætt hafa víða atvinnuiástand. Lánveitingar eru þegar hafnar af lánsfé þvi, sem afLað var á þessu ári til Norðúrlandsáætlun ar, en einmitt í þeim landshtata hefir atvinnuástand htatfallslega verið lakast og Seðlabankinn hef ir nú veitt um 150 millj. kr. í nýjum afurðalánum til iðnaðar- ins auk þess sem Seðlabankinn fyrr á árinu veitti m'ikilvæga aðstoð til þess að korna útgerð og frystiiðnaði í fúllan gang. sem skilað hefir mifctam árangri í þróttmikilli framleiðslustarf semi það sem af er árinu. Síð- ast en ekki sízt má benda á hið mikilvæga samkomulag um, iaið hiraið'a sivo stæklkiuin állhræðsil- uinniair og næsltú sfóirviirfcjúin í því sambandi, að framfaaldsfram- kvæmdir hefj.ist þegar á næsta ári. Ég held því, að þegar allt þetta er haft í huga, sé ekki mieð nokfcru móti hæ.gt að halda því fram með neinni sanngirni, að ríkisvaldið hafi ekki auigun opin fyrir þeirri höfuðnauðsyn að forða frá böli atvinnuleysis og reyna að aufca svo verkleg- ar framkvsemdiir hins opimbera sem frekast er kostur, án þess annað hvort að leggja nýjar auknar byrðar á þjóðfélagsborg arana eða taka upp stefnu í pen ingamálum, sem á skömmum tíma myndi gera að en.gu vonir okkar um viðreism efnalhagsfcerfis þjóð arinnar. Framkvœmda- áœtlun 1970 Með fjárlagafrumvarpinu fylg jia miú eiins og í fynna dlrög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnar innar fyrir árið 1970. Ég legg áherzlu á, að hér er aðeins um drög að ræða og vitamlega verð- ur síðar á þinginu leitað heim- ilda fyrir lántökum í siamibandi við framkvæmdaáætluniima, svo sem gert var í fyrra, og þá end- amlegar tillögur gerðar um þær framfcvæmidiir, aem aluðilð reynist að afla fjár til. Hins vegar er með þessum drögum að fram- kvæmidiaáæitflluin neymlt a® dlraiga upp mynd annans vegar af hin- um brýnustu viðfangsefnium, sem þarf að afla fjár til, og hins veg ar af mögulei'kum til lánsifjáröfl unar. Um lánsfjároftan er það að segja, að þar eru sömu leiðir hugsaðar og undanfarin ár, ann ars vegar PL-480 vönukaupalán og hins vegar útgáfa spariskír- teima, en ættandn er, svo sem áð ur, að afla fjár til framkvæmda- sjóða atvinnuveganna fyrst og fremst með samningum við við- skiptabankana. Ég sé ekki ástæðu til að skýra einstaka liði framkvæmdaáættanarinnar en aðeins víkja að nokkrum atrið- um. Rannsóknir orkustofnunar Nýlega hefur Orkustofnunin gengið frá mjög rækilegum áætl umum um heildarrannsóknir á vatnsorku landisins annars veg ar og hins vegar hitaorku. Eru þessar áætlanir hvort tveggja hinar fróðlegustu og gagnleg- ustu til þess að geta gert sér grein fyrir þessum miklu við- fangsefnum, en hér er um okkar mikilvægustu náttúruauðlindir að ræða. Samkvæmt áættanum þessum er gert ráð fyrir að verja á næstu 5 árum mjög miklu fé til heildarrannisókna, en þótt þær rannsókn.ir séu hinar nyt- sömustu, þá orkar auðvitað tví- mælis, hversu mikinn hraða eigi að hafa á rannsóknunum, Dæði vegna fjárhagsgetu ofckar og eins af þeirri ástæðú, að mörg þessi rannsóknarverfcefni hafa því aðeins raunhæfa þýðimgu nú alveg á næstu árum, að við höf- um möguleika á að koma upp iðjuverum, er hagnýti orbuna. Þessar viðamikta áætlanir þunfa því nánari atfaugunar við, enda eru áættanargerðimar það nýj- ar, að ekki hefur unnizt tóm til að taka þær til ræfcil'egrar íit- hugunar í ríkisstjóminni, en hins vegar geta vafalaust allir verdð sammála um, að orkurann- sóknium þarf að sinna í vaxandi mæli á næstu árurn. í þetta sinn er áætlað að verja í fram- kvæmdaáætlun 15 millj. kr. til orkurannsókna, til viðbótar því fé, sem Orkusjóður kann að geta varið til þeirtra mála. Þessi tala er fyrst og fremst sett á blað til þess að gera ljóst, að menn hafa augun opin fyrir mikilvægi þess'a máls, en á þessu stigi byggist hún ekki á neinni sérstakri áætl un um framhald orkurannsókna, eða hvemig á þeim skuli tekið. Laxárvirkjun — Áburðarverksmiðjan Inn á framkvæmdaáætlun koma nú tvö ný, stór viðfangs- efni, annars vegar Laxárvirkj- un, sem áætlað er að afla þurfi af ríkisins hálfu 50 millj. kr. láns fjár til á næsta ári, en gert er ráð fyrir, að við stækkun Laxár virkjunar verði eign ríkissjóðs í virkjuninni aukin úr 35prs. í 50prs. Þá hefur verið ákveðið að hefjast handa um stækkun Áburð arverksmiðjunnair, sem nú er orð in algjört ríkisfyrirtæki. í fjár- lagafrumvarpinu sjálfu er veitt fé til þess að leysa inn hluta- bréf annarra hluthafa í Áburð- arverksmiðjunni, en um það varð samkomulag, að þau yirðu greidd á 5 áram, en í framkvæmdaáætl- un er gert ráð fyrir að afla 70 millj. kr. til byggingarinnar sjálflnar, en áætlað er, að þessi stækkun Áburðarverksmiðjunn- ar kosti samtals um 220 m. kr., en fyrsti áfangi Laxárvirkjunar kosti 287 m. kr. 30 millj. króna til Háskólabygginga Þá er í þriðja lagi nýtt í fram- kvæmdaáætlun næsta árs, að gert er ráð fyrir 30 millj. kr. fjáröflun vegna bygginga fyrir Háskóla íslands. Hvort nauðsyn legt reynist, að þetta fé verði handbært á næsta ári til fram- kvæmda, er ekki sennilegt, em fjáröflunin er miðuð við þá fram kvæmdaþörf, sem háskólanefnd in tetar að rnuni verða í bygg- ingaimátaim Háskólans miðað við næsta 10 ára tímabil. Hef égfyrr í ræðu minni vikið að þessu mikla viðfangsefnL Fasteignamat í samrœmi við raun- gildi fasfeigna Ég hefi fyrr í ræðu minni minmzt lítillega á fasteignamatið, sem mörgum, og þar á meðal einnig mér sjálfum, þykir hafa tekið óhóflega langan tíma að ganga frá. f byrjun næsta árs lagði ég á það höfuðáherzlu, að fasteignamatið yrði tilbúið um mitt þetta ár, þannig að það geti tekið gildi um næstu áramót, og væri ég reiðubúinn til þess að veita umflram fé, svo að það gæti staðizt. Því miður eru samt ekki alltof miklar horfur á, að þetta g)eti orðið að raunveruleika og skal ég taka það skýrt fram, að drátturinn á fasteignamatinu og ef það getur ekki tekið gildi um næstu áramót, er ekki að kenma stjórnendum fasteignamatsins, heldur því, að fasteignamatið er nú unnið með allt öðrum hætti en áður hefur tíðkazt og er (niktam mun fullkomnara, og jatfn framt hefur komið í ljós, sem menn gerðu sér ekki grein fyrir í upphafi, að ótrúleg vanræksla hefur átt sér stað um skráningu fasteigna og réttinda yfir fast- eignum víða hér um land um langt árabil. Er því hér í raun- inni verið að vinna brautryðj- endaverk, sem ég hygg, að reyn ist ómetanlegt. Nefna má, að til dæmis eru til heil byggðarlög, þar sem engar lóðaskrár eru til, og starfsmenn fasteignamatsins hafa neyðzt til þeiss að taka að sér margs konair verkefni á þessu sviði, sem raunverulega er skylda sveitarstjórna lögum sam kvæmt að sjá um. Allt þetta mun verða nánar skýrt, þegar fast- eignamatið sér dagsins ljós, en taka þarf ákvörðun nú í vetur um framtíð fasteignamatsins, og hvernig að því skuli unnið fram vegis, því að þær aðferðir, sem fylgt hefur verið til þessa við fasteignamat era algjörlega óvið unandi, enda núverandi fast- eignamat fyrir langalöngu kom- ið úr öllu sambandi við raun- veralegt verðgildi fasteigna. Tryggja þarf hins vegar, að fast eignamat sé á hverjum tíma í sem nánustu samræmi við raun- gildi fasteignanna, og er nú unn ið að undirbúningi löggjafarum þetta efni, er gildi til frambúð- ar. Löggildinig fasteignamatsins hefur hins vegar mjög víðtækar réttar verkanir og eigi það ekki að leiða til stórfelldrar röskun- ar, þar sem ótalmargt er mið- að við fasteignamat, verða sam- tíimiis gildistökú þess að fara fram margvíslegar lagabreyting ar. í gildandi lögum um hið nýja flasteignamat er svo fyrir mælt, að gjaldviðmiðanir allar við fast eignamat skuli breytast á þann veg, að gjöldin hækki ekki. Við- horf manna í þessu sambandi hafa breytzt töluvert, frá því lögin vora sett, m.a. hefur mat fasteigna til eignaskatts og eignaútsvars verið nífaldað og þarf því að taka allt þetta mál til heildarathugunar. Hefur þeg ar verið hafin vinna á þessu sviði, annars vegar í fjármála- ráðuneytinu í sambandi við skatta til ríkissjóðs er miðastvið fasteignamat, og hins vegar fé- lagsmálaráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenzkra sveitair- félaga varðandi þau gjöld sveit arfélaga, sem miðast við fast- eignamat. Verður þeim athuguni- um haldið áfram með fulluim krafti og undirbúningi fasteágna matsins í heild, þótt ég efist um, að gildistakan geti orðið um næstu áramót, svo sem ég hafði vonað, m.a. vegna þess, að eftir að endanlega hefuir verið frá mat inu gengið, þá eru gildandi all- langir kærafrestir og verðuir síð an að úrskurða þær kærur, áð- ur en matið geti tekið gildi. Unnið að starfsmati opinberra starfsmanna Merkilegar og mikilvægair at- huganir og viðræður fara nú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.