Morgunblaðið - 06.03.1970, Blaðsíða 24
24
MORGUaSTBiLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1970
til heilsunnar og byggist ekki
við að liía vikuna út. Dirk fór
því til Georgetown og sat hjá
að hann var skýr gamall mað-
urinn var þessu mjög feginn.
Hann gat ekki tautað nema
eina og eina setningu á stangli,
en. hvert orð var greinilegt, því
að hann var skýr gamall, mað-
ur — negri, sem hafði bæði
greind og heiðarleika til að
bera. Hefði hann fengið tæki-
færi til þess, hefði rann getað
komizt langt í heiminum ... Sir
Jason Clark...
Dirk var eini hvíti maðurinn
við jarðarförina.
— Svart blóð, Rósa. Svart
blóð. Ég hefði getað orðið rík-
ari í andanum, hefði ég kennt
sjálfum mér að fyrirlita það
ekki. Já, já. Þú brosir, elskan
mín. Ég veit það. Þú fyrirleizt
það sjálf í laumi, var það ekki,
Rósa? Þú hagaðir þér aldrei
eins og þú hefðir það í þér.
Margt kvöldið stóð hann
lengi þegjandi og starði út um
gluggann til austurs, og braut
heilann um bæði fortíðina og
nútíðina, og minntist gömlu Ný
merkur og svo Nýmerkur eins
og hún var í dag, Á hverjum
mánudegi fékk hann vagninn
og fór þangað. Það var eins
konar opinber hátíðarheimsókn.
Og meðan beðið var eftir vagn-
inum fór ekillinn yfir í vistar-
verur vinnufólksins, sem nú
var íbúð ráðsmannsins — en
Dirk gekk götuna, sem lá nið-
ur að skurðinum. Ráðsmaðurinn
og fólk hans var búið að læra
að bjóða honum ekki farartæki
NATHAN & OLSEN HF.
er ómissandi í hverju samkvæmi,
við sjónvarpið —
eða hvar sem er í glöðum hópi
SNACK fæst í sex ljúffengum tegundum
Whistles leiifriÆS TQW$
Newf _ *.
DalsVs nzzaSps
eða koma neitt nærri honum.
Fólkið þekkti orðið á duttlunga
hans, og það varð að lofa
honum að vera í næði og reika
þangað sem hann vildi sjálfur,
til þess að hugsa sínar eigin
hugsanir og tauta við sjálfan
sig.
Hann sagði alltaf við
alla: — Myrkrið er að ná í mig.
En myrkrið fór sér bara hægt,
því að hann lifði áfram, þreifst
á ósigrunum, tók vonbrigðunum
með karlmennsku, og nærðist á
sorglegum hugleiðingum, en
varð þó aldrei saddur, skerpti
lystina á meiru, nærðist á því,
sem hefði getað orðið, og hugg-
aðist við ímyndanir og tálmynd
ir. Suma dagana talaði hann við
Rósu og aðra við Maríu. Hann
hafði látið hengja myndina af
Maríu upp í herberginu sínu
hjá myndinni af Rósu.
— Ég er viss um, að ég er
glaðari ef þú ert hjá mér, bless
að barn. Þér var aldrei ætlað
að verða hefðbundin eiginkona
og móðir. Og Adrian átti heldux
ekki að verða bóndi. Fiðlu-
snillingurinn okkar. Jakob
gamli hélt, að hann gæti plat-
að mig, María — en ég vissi
betur. Það var Adrian, var
það ekki? Adrian og Jasmine?
Ég gat upp á því, telpa mín.
Og þú með róðrarferðirnar þín
ar upp eftir gilinu, til Don
154
Diego. Ó, þessi viðbjóðslegi,
gamli fantur! Kannski hefur
andi þinn horft á hann, þeg-
ar hann skaut sig í hausinn
tveim dögum eftir að líkið þitt
fannst? Eg skil ekki, hvers
vegna hann tók upp á því.
Sveikstu hann kannski þennan
dag, þegar þú fórst til hans
kiukkan þrjú? Kannski vitum
við það aldrei. Leyndarmálið
þitt, ha? Leyndarmál konu ...
Mér þætti gaman að vita, hvað
orðið hefur af Francis. Hvarf
bara eins og reykur í trjátopp-
unum. Og svo Janet og þessi
ráðsmannskurf ur ... enn eitt
leyndarmálið, sem verður aldrei
opinberað...
Honum leiddist aldrei. Hann
var með annan fótinn heima hjá
PétTi — alltaf á ferð og flugi.
Eina vikuna var hann í Flag-
staff aðra í Kaywanahúsinu, og
svo aftur í Nýju Amsterdam.
Einu sinni bauð Sybil honum
að koma til Trinidad til að hitta
hana og krakkana, en hann af-
þakkaði. — Ég hef enga löng-
un til að yfirgefa heimahagana,
skrifaði hann sem svar. *— Kom
ið þið og heimsækið mig — því
skyldi ég hafa ánægju af. í
Barbados var Amelia orðin
þreytt á að bjóða honum heim,
og allt í einu birtust þau Ron-
ald ásamt börnunum, og húsið
tók að líkjast því að þar byggi
eitthvert fólk. Þennan mánuð,
sem þau stóðu við var rétt eins
og gömlu dagarnir í Nýmörk
væru komnir aftur, með Élfridu
og hennar börn og hans eigin
á ferð og flugi, upp og niður
stigana.
tannduftið
sem gerir
gular
tennur
HVfTAR
Er þér á móti skapi að ég reyki?
Hvort sem myrkrið var á hött
unum eftir honum eða ekki, varð
margt til að vekja áhuga á líf-
inu. Honum leiddist aldrei. Og
nú orðið var engum áhyggjum
fyrir að fara. Nóg að gera. Syk-
urinn í háu verði. Auðveldara
að ferðast. Járnbrautin var kom
in alla leið til Mahaica og nálg-
aðist óðum Berbice-ána. Allt
var í uppgangi. Nokkrum árum
áður — 1870 — hafði safn Bún-
aðar- og Kaupmannafélagsins
verið opnað almenningi í
Georgetown Stræti borgarinn-
ar höfðu verið skreytt trjám,
fram með grasröndunum. Á
kvöldin skinu fölblá gasljós.
Lúðraflokkur frá hernum lék í
skemmtigörðunum og það var
hægt að horfa á cricket-kapp-
leiki á heræfingasvæðinu, eða
sækja fundi í D’Urban-skemmti
garðinum.
Van Groenwegelættin var í
hnignun, en nýlendan Brezka
Guiana blómgaðist og efldist
með hverju árinu, sem leið — og
hann gat huggað sig við það, að
ætt hans hafði lagt sitt til
þessarar blómgunar og framfara.
Sem bændur höfum við verið í
sífelldri framför. Enginn getur
neitað því. Jafnvel þegar verst
gekk, héldum við fánanum okk
ar hátt á loft.
Einn mánudagsmorgun í marz-
mánuði 1875, þegar hann var
nýkominn úr heimsókn til Ný-
merkur, heyrði hann vagn stað-
næmast við hliðið. Þetta var Pét
ur. Og hann var með skilaboð.
— Hr. Parrott var rétt að
koma frá Georgetown, pabbi.
Það er hann Graham frændi.
Hann dó síðdegis í gær.
Hann hefði orðið áttatíu og
fimm ára í nóvember. Hann
hafði beðið um að verða jarð-
aður í grafhvelfingunni í Ný-
mörk.
Hver bóndi og kaupmaður,
sem nokkuð kvað að, hafði fullt
hús af gestum, sem komu til
jarðarfararinnar og þurfti að
hýsa, það voru meira en hundr-
að vagnar í líkfylgdinni, sem
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Reyndu að ná betra sambandi við viðskiptavini þina. Reyndu að
einbeita þér að skapandi störfum, eða framgangi þelrra.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Taktu einhvern með þér á gerðum þínum í dag, þó ekki sé ncma
í huganum. Þú færð ágæt tækifæri. Reyndu að skemmta þér eitt-
hvað.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Fréttir, sem þú færð á morgun gefa þér tilefni til að hugleiða
málin. Biðstu afsökunar ef þú mátt til, og reyndu að byggja upp
sterkarl sambönd.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þér mislikar, að unga fólkið skuli hugsa öðru vísi en þú, og lika
fara sinu fram. Vinir þinir vita ýmislcgt, sem er forvitnilegt en setja
það ekki í samband við þig.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þú heyrir eitt og annað, og sumt krefst mikils af þér sjálfum.
Reyndu að endurskoða heilsuna og venjur þínar.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú græðir á því að búa í haginn fyrir þig dálitið fram i tímann.
Ef það cr auðséð, að þú ert í góðu skapi, færðu samvinnu af beztu
tegund.
Vogin, 23. september — 22. október.
Eðlisávísun þín í fjármálum ætti að leiða framkvæmdir af sér.
Unga fólkið gerir gagn, ef þú hleypir því að. Þér gengur vel að
ræða við fólk, sem þú vinnur með.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Það borgar sig að ræða tæknimál við sérfræöinga. Ef leitað er
svara við gömlum vanda núna, geturðu fengið ágætan árangur, sem
hagnýta ætti strax.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þér gengur vei i fjármálum í dag. Taktu mjög afmarkaða afstöðu,
þar sem þú ert viss í þinni sök.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Gerðu ráð fyrir einhverjum útgjöldum, sem þig munar talsvert
um. Farðu ekki að kaupa inn, þótt þig langi til þess, þar sem þetta
eru ekki eins góð kaup og þér virðist. Framlengdu ferðalag þitt og
njóttu ferðarinnar eins og þú frekast mátt.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Bréfaskipti færa þér athyglisverðar fréttir og nýstárlegar hug-
myndir. Einkamálin taka þig frá daglegum störfum en það kcmur ekki
beint að sök. Geymdu viðskiptaákvarðanir til bctri tíma.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Eitthvað, sem þú skipulagðir fyrir löngu kann að vera mjög nærri
vcruleikanum Gættu að þvi, hvað þú getur gert til að koma þessu
í verk. Reyndu að koma jafnvægi á allar tilraunir þínar á öilum tímum.