Morgunblaðið - 22.03.1970, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.03.1970, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1970 Jóhann Vilberg Árnason — Minning Fæddur 6. janúar 1942. Dáinn 14. marz 1970. Þó að vegurinn framundan virðist bæði beinn og breiður, erum' við mannanna böm svo harla oft minnt á þau sannindi, að fótmál eitt sé milli lífs og dauða. Laugardaginn 14. marz varð banaslys á Keflavíkurvegi, er bifreið fór útaf og valt. Þar lézt frændi minn og vinur, um aldur fram — innan við þrítugt. í minningu um hann eru þær fátæklegu línur, sem hér fara á eftir, en útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun — mánudag. Jóhann Viiberg fæddist í Reykjavík 6. febrúar 1942, frum burður ungra hjóna, þeirra Jó- hönnu Halldórsdóttur frá Pat- reksfirði og Árna Vilbergs vél- stjóra og síðar bifreiðarstjóra hér í borg. En viku seinna syrti að, er móðirin unga var burtu hrifin frá eiginmanni og syni, sem skírður var við líkbörur hennar þann dag, er hún var lögð til hinztu hvíldar. í eitt hús var þá góðu heilli t Útför föður míns Kjartans Sigurðssonar frá Stað í Grindavík, ferr fram í Fos&vogsik i rk j u þriðjudaginn 24. marz kl. 1,30 ' e.h. Fyrir hönd a'ðstanderuda. Ingjaldur Kjartansson. t Útför móður mínmar, Helgu Ingibjargar Helgadóttur, Langagerði 20, fer fram frá Foasvogskirkju þriðjudaginn 24. marz kl. 10,30 f.h. Btám vinsaimlegaM afþökikuð, en þeim, sem vildu minmasit hinnar látnu, er bent á líkmjarstofnainir. Guðmundur E. Erlendsson. t Útför eiginimanns míins, föður og sonar, Jóhanns Vilbergs Árnasonar prentsmiðjustjóra, Faxabraut 25, Keflavík, fer fram frá Fossvogskirkju mánudagimn 23. marz kl. 13,30. Elísa Þorsteinsdóttir Jódís Jóhannsdóttir Ami Vilberg. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Andrew, verður jarðsungirun frá Dóm- kirkjumni þriðjudaginn 24. marz kl. 2 e.h. Lilja Gunnarsdóttir Kjartan Gunnarsson Kári Gunnarsson Jósep Gunnarsson Bolli Gunnarsson tengdabörn og barnaböra. að venda með lítinn svein — til Jódísar Árnadóttur, fóðurmóður hans og ömmu, er þá bjó að Þverholti 18 með dóttur sinni, Vallý. Ekki var þar veraldarauði fyr ir að fara, en þeim mun ríkari manngæzkan og kærleiksþelið í þeirra garð, sem þurftu umönn unar við. Hörðum höndum var þá unnið sér og sínum til lífs- framfæris. En samt gafst oft tóm til vöku- og gleðistunda með okkur frændfólki og vinum. Og Hanni litli óx og dafnaði við ömmu kné, augasteinninn á heimilinu — augasteinninn hans pabba, sem atvinnu sinnar vegna var svo oft fjarri. Námið sóttist Jóhanni vel, oft af kappi, en líka af meðfæddri forsjá. Og veganestið að heiman dugði honum til brautargengis og undirbúnings þeirra starfs- og atorkuára, er í hönd fóru. Hann lauk prentnámi í Alþýðu- prentsmiðjunni um tvítugt. Og hafði þá verið formaður Prent nemafélagsins og í ritnefnd Prentnemans. Gerðist að loknu námi blaðaljósmyndari hjá Al- þýðublaðinu og síðar hjá Fálk- anum. Um skeið hafði hann með hönd um útgáfu smárita í samvinnu við aðra og aflaði sér á því sviði sem öðrum reynslu og þekking- ar. Árið 1965 kvæntist Jóhann eft irlifandi eiginkonu sinni, Elísu dóttur Þorsteins Kr. Þórðar- sonar kennara og konu hans, Stellu Eyvindsdóttur frá Vest- mannaeyjum. Eignuðust þau eina dóttur barna, Jódísi, sem nýlega er orðin fjögurra ára. Á öðru hjúskaparári þeirra hjóna fluttust þau suður til Keflavík- t Útför eiiginmiamnis míns Hermanns Hjartarsonar kennara, Egilsgötu 20, fer fram frá Fossvogiskirkju þriðjudaigimn 24. rnarz kl. 3 e.h. Blóm vinsiamlegast af- þökkuð. Þeir, sem vildu mimn ast hams er bent á líkarstofn- anir. Ingeborg Hjartarson. t Útför mdóur akkar, tengda- m óður ag ömmu Jakobínu Björnsdóttur Bergvík, Kjalaraesi, fer fram frá Braurtarholts- kirkju þriðjudag 24. marz kl. 2 e.h. Bílferð frá Umferðar- miðstöðinni kl. 1.15 e.h. Börn, tengdaböm og bamabörn. t Móðir okkar og systir mín Þóranna Lilja Guðjónsdóttir, Skeggjagötu 19, sem lézt hinn 17. þ. m. verð- ur jarðísungiin frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 23. marz kl. 3 e. h. Eiður Guðnason Ingigerður Guðnadóttir Guðmundur Guðnason Svanhildur Ó. Guðjónsdóttir. ur, þar sem Jóhann hóf undir- búning að rekstri alvöruprent- smiðju í félagi og samstarfi við vandaðan og traustan meðeig- anda, Runólf Elentínusson. Um árabil höfðu svo sem ver- ið uppi tilburðir með prent smiðjurekstur í Keflavík. En olt ið á ýmsu. Væri tannhjólið ekki í lamasessi í dag, mátti fullvíst telja, að það yrði hjólreimin á morgun. Og afköstin eftir því. En þeir starfsbræður Runólf- ur og Jóhann, virtust þekkja til hlítar bæði hjól og reim. Og vita, hvað þeir vildu og ætluðu sér að gera. Sjón er sögu ríkari í dag, þar sem er fyrirtæki þeirra, Grágás við Hafnargötuna Fullkomin nýtízku prentsmiðja og bókbandsstofa. Ennfremur bókaútgáfa, sem þegar er orðin allmikil að vöxtum, Þá hófu þeir útgáfu viku- blaðs, Suðumesjatíðinda, fyrir meira en ári síðan, en núver- andi ritstjóri þess er Baldur Hólmgeirsson. Jóhann var einn af stofnendum og í stjórn Jr. Ghamber of Commerce. Svo sem rakið hefur verið að nokkru, er eigi alllítil saga dugnaðar og áræðis að baki hins unga manns. Og framtíðarvonirnar þar af leiðandi bjartar, þegar honum er gert — með sviplegum hagtti áð hverfa af sjónarsviði bak við tjaldið mikla. Margar voru ferðir ykkar El- ísu að sunnan, Hanni minn, með Jódísi litlu til að heimsækja og gleðja aldurhnigna ömmu þína og Vallý að Austurbrún 6 — og pabba þinn og stjúpmóður, Jón ínu Magnúsdóttur og hálfsystk- inin, Svandísi og Gylfa, að Rauðalæk 32. Og þá glaðst sem fyrr á góðu dægri í ástvina- hópi og fagnað áföngum á leið- inni fram. Nú ríkir söknuður sár í ranni. t Þakkuim innilega auðsýnda samúð við fráfall ag jarðar- för föður aktoar Júlíusar Jakobs Jóhannessonar innheimtumanns, Oddeyrargötu 24. Alúðarþakkir færuim við læikinjuim ag hjúkrunarliði Fjórðungssjúkrahúsisiins, svo ag srfcarfsfólki Rafmagnsveitu Atoureyrar. Börn hins látna. En sem þú hefur, söknuður, til fulls mér sorgarklæði skorið, þá ljómar inn í lokrekkju til min af ljósi í dökkvann borið: við sáluhliðið syngur lítill fugl um sólskinið og vorið. Megi minningaljós góðvildar þinnar og hjartahlýju berast í þann dökkva, sem yfir grúfir ástvinum þínum öllum og venzla fólki. Og veita döprum hjörtum huggun og frið. Þess bið ég þeim með djúpri samúðarkveðju. Og þér, hjartkæri frændi, bið ég alls góðs „á vængjum morg unroðans meira að starfa guðs um geim.“ Kristinn Reyr. Kæri vinur. Ég varð harmi sleginn, er mér barzt sú fregn, að þú hefðir ver- ið kallaður burtu svo skyndilega úr okkar hópi. Þegar ég réðst til þín, fyrir tveim árum, kom ég hingað til Keflavíkur með hálfum huga, ó- kunnugur með öllu. En ég hafði þó ekki unnið lengi í fyrirtæki þínu, er ég fann, að undir þinni stjóm var gott að vinna. Þú vairsit margt í senn: Ötull framkvæmdamaður, sem — á- samt meðeiganda þínum — með óbilandi trú og kjarki tókst að koma litlum atvinnurekstri upp í stórt og myndarlegt fyrirtæki, en varst kallaður burtu, einmitt þegar það þurfti sem mest á kröftum þínum að halda. Snyrti- menni varstu og nákvæmur, og reyndist óþreytandi að miðla okkur af þekkingu þinni og benda okkur á það, sem betur hefði mátt fara. Þú varst dreng- ur góður, trygglyndur og greið- vikinn, og ávallt reiðubúinn að leysa vandann, ef einhver var, — og uppskarst að launum vin- sældir meðal félaga þinna, starfs fólks svo og margra annarra. Ég sendi Elízu, Jódísi litlu, og öðrum aðstandendum þínum mín ar innilegustu samúðarkveðjur. Vertu sæll, og hafðu þökk fyr ir allt og allt. Steingrímur Lilliendahl. JÓHAN.N VILBERG ÁRNASON átitfi miömgium gfcörfluim óilloikið þeg- air hiamm 1/ézt 'aif alystfömuim Tiaiuig- aird aginm 14. marz aLðiaíntlliiðiinin, og þau 3fcörf verður erfifct fyriir ainiman rraanm. að Heysa jafin vel .aif hemidi. Ég kyninlbi stairfsgleði hainis^ diuigmiaði ag miákvæimmii mjög veil á þeiim tveitm áruim sem við unmiuim saman við Al- þýðuibliaðið, og að viminiudegi Jokn'uim átitiuim við hjónöin mangair áinægjiuistuinidir með homuim og Eliíziu koniu hamis. Leiðir olkkair lágu ektoi aflt samam eftir að hamm filuittisit tiill Kefl.avítouir oig seifctti uipp siifct eigið fyriiirtæki þar, en þá sj'aldan við bibfcumnisit var auigljóist að vin- áttuibönid við Jóa rafniuðu efkki þófct langt væiri á miflH’i fiumida. Það var gafct að vera rraeð han- u/m. þótt 'h anin væmi nokkiuð Skap- bráðiur á stiumdiuim, því hamm vair aíl'llfcaf jatfrnfijóifcuir að sættiaisit og að meiðaist og hamm vair helffll, hvort sem hanin var gnaimuir eða í góðlu sltoapi. Það er eigimilega erfifct fyr- dir m'i.g að ákrritfa mimmiimigar- greim uim Jóa, þar sem ég vissi ektoi miikið m'eiina uim hamm en að hamm hét Jóhann Vilberg Ánnasan ag að hanm var viinur mriinn. Annað stoipti eigánilega t Útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa okkar, ÞORVALDAR V. JACOBSEN, skipstjóra. Ránargötu 26, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. marz kl. 10.30. Dagmar Jacobsen, Sigríður og Sverrir Bergmann, Katrín og Egill Jacobsen og bamabörnin. efkfci iraáM fammi3t ofcíkiuir. Vfilð hjónin sendum Elízu og föður hams akkair inniilegiuisbu aamúðar- kveðjur. Vtenbu sælil, gaimnii vtauir. Óli Tynes. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. Laugardagurinn 14. marz var fagur dagur hér suður með sjó. Gróska vorsins var í lofti ásaont hækkandi sól, en um það leyti, er sól hneig til viðar, barst sú harmafregn, að Jóhann Vilberg Ámason, framkvæmdastjóri Grá gásar, hefði látizt af slysförum. Það var ei>ns og vorgróskan hefði skyndilega stöðvazt, og syrt fyr ir sól. Jóhann Vilberg Árnason var fæddur í Reykjavík, 6. febrúar 1942. Hann lærði prentverk í A1 þýðuprentsmiðjunni 1957—‘61, en hætt þá prentverki og fór til Fálkans sem ljósmyndari, en síð an til Alþýðublaðsins. Haustið 1966 stofnsetti hann fyrirtækið Grágás í Keflavík, ásamt Runólfi Elentínuasyni, sem með samhentu átaki varð að stórfyrirtæki á ör- skömmum tíma. Allt virtist skorta til, nema áræði, dugnað, kjark, snyrtimennsku og verk- hyggni, sem Jóhann átti í svo rík um mæli. En honum tókst að sanna að trúin flytur fjöll, og að vorgróska hins íslenzka þjóðlífs bjóði hverjum ungum manni tæki færi, en til þess að hagnýta þau, þurfi frekar andlega auðlegð, — þó hin veraldlega verði ekki snið gengin. Mér er sú stund ákaflega minn isstæð, er ég hitti Jóhann fyrst, og reyndar allar okkar samveru stundir, því hin einarðlega og hreinskilnislega framkoma, sem honum var meðfædd, ásamt sterkri skapgerð, var svo áber- andi í öllu fasi hans, að öllum hlaut að verða strax ljóst, að þar fór enginn meðalmaður. Það kom líka fljótt í ljós, er hann hóf um svif hér syðra, að þar fór vaskur drengur er var reiðubúinn til að fara ótroðnar slóðir, og skapa sér sinn eigin sess í þjóðfélag- inu. Eins og að framan er rakið, kom hann upp fullkominni prent smiðju, og nú síðast bókbands- vinnustofu, ásamt bóka- og blaða útgáfu. Er hann ákvað að hefja útgáfu Suðurnesjatíðinda, réði þar fyrst og fremst, að þar fyrst og fremst, að það var frekar hug sjónamál hans en fjárhagsatriði, því honum fannst að skapa þyrfti fjölmiðlara, sem hreyfiafl um mál efni Suðurnesja, sem hann hafði fest ástfóstri við. Þannig ein- kenndi þessi hugsjónaandi öll hans vinnubrögð. Ég held að það sé hægt að orða lífsviðhorf hans í einni setningu: Þeir sem geta gert hlutina, gera þá, hinir tala um þá. Er nokkrir ungir menn í at- hafnalífi Suðurnesja stofnuðu klúbb, sem tengdur er við al- þjóðahreyfinguna Junior Chamb er of Commerce, gerðist Jóhann Vilberg strax í upphafi félagi þar. Þar sem annars staðar gerð ist hann mjög virkur félagi, og átti nú síðast sæti í stjórn J. C. Suðumes. Við félagarnir þökk- um honum fyrir allar ánægju- legu samverustundirnar, og finn um nú, hve mikið skarð er fyrir skildi, og hve sárt hans er sakn að. Eiginkonu, Elízu Þorsteins- dóttur, og dóttur þeirra, Jódísi, vottum við sérstakar og innileg- ar samúðarkveðjur. svo og öðr- Framhald á bl«. 31 Ég þakka inmilega börraum míiniuim ag fjölsfcyldum þeirra, einnig frændiuim og vinum, góðar ágkir og dýrmæfcar gjaf- ir í tilefni 80 ára afmœlis míns 17. marz sl. Guð blessi ykfcur öll. Guðmundur L. Hermannsson Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.