Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1070 13 Lárus Jónsson framkvæmdastj. Fjórðungssambands Norðlendinga: Ný togskip fyrir Reykvíkinga og aðra landsmenn - Uppi eru nú mikil áform um a3 byggja nýtízku togskip e8a togara fyrir landsmenn. Skoð- anir eru skiptar um hagkvæma stærð slíkra skipa, en þeim skip um sem fyrirhugað er að byggja er sammerkt, að gert er ráð fyrir hallarekstri á þeim miðað við þekkt fiskverð og þann útgerðhr- og fjármagns- kostnað skipanna, sem talinn er óhjákvæmilegur. Rætt hefur verið um að hið opinbera greiði þennan halla fyrirfram af al- mannafé og eru röksemdirnar þær, að nýta megi fiskiðjuver betur en ella með þessum hætti og veita meiri atvinnu en ann- ars væri unnt. Miklar umræð- ur hafa orðið í blöðum út af áformum Reykvíkinga um smíði 1000 lesta skuttogara. Aftur á móti hefur almenningur síður átt þess kost að kynnast sjónar miðum ýmissa annarra aðila út um land, sem hafa minni skip í huga. Ætlunin með þessari grein er sú, að bæta úr þessu npplýsingamisræmi og draga úr hættu á misskilningi, sem ým- is blaðaummæli í máli þessu gætu valdið. VÖRUMST MISSKII.NING Eftirfarandi ummæli eru við höfð eftir formanni Atvinnu- málanefndar Reykjavíkur, Birgi ísl. Gunnarssyni, í Morgunblað inu 6. marz sl., þegar sagt er þar frá umræðum um togara- mál í borgarstjórn: „Sjónarmið þeirra, sem hyggja ekki á út- gerð stærri togara eru andstæð hagsmunum Rvíkur. Þessi mis- munandi sjónarmið hafa skapað vanda fyrir ríkisstjórnina og við þetta vandamál þarf Al- þingi að glíma á næstunni.“ Fólk, sem er ókunnugt mála- vöxtum gæti hæglega misskil- ið þetta þann veg, að óþekkir sérvitringar og kröfugerðar- menn út um land störfuðu að því að leggja stein í götu Reykvíkinga í togaramálum. Slíkt væri lirapallegur misskiln ingur, þar sem almennar rök- semdir beggja fyrir sérstökum aðgerðum ríkisvaldsins á þessu siviði eru hinar sömu, þótt nið- urstöður þessara aðila séu ólíkar um stærð skipanna, eins og nú horfir. Kjarni þessa máls er í rauninni sóraeinfaldur: Reykvíkingar vilja byggja 1000 tonna togara, sem þeir telja sig þurfa og vilja fá rekstrarhalla þeirra greiddan fyrirfram af al mannafé, a.m.k. að hluta. Ýmsir aðilar út um land vilja byggja minni skuttogara, sem þeir telja að tapi minna, en tapi þó. 'Eng- an þarf að undra þótt fólk úti á landsbyggðinni sé ófúst á að borga bara tap stóru Reykja- víkurtogaranna í formi skatta til ríkisins, ef þeirra áformuðu skip sitja ekki við sama borð og fái hlutfallslega jafna fyrir greiðslu af hálfu ríkisvaldsins. HVERS VEGNA 500 LESTA SKIP? Nokkrir norðlenzkix og einn Lárus Jónsson. austfirzkur aðili hafa í hyggju að byggja 450—500 lesta skut- skip. Hin stærri nálgast stærð núverandi skipa Útgerðarfélags Akureyringa, en áðumefnd brúttólesta (500) er miðuð við nýjar mælingareglur. Sókn aröryggi þessara skipa er því hliðstætt og núverandi skipa Ú.A. Við ákvörðun á stærðinni var höfð hiiðsjón af umfangs- mikilli könnun Fiskifélags ís- lands, sem það gerði á vegum Norðurlandsáætlunar, og beind ist að því hver væri hagkvæm stærð nýrra togskipa fyrir Norðlendinga. Við þessa könn- un voru notaðar ' nákvæmar skýrslur um veiðar núverandi togaraflota landsmanna síðustu árin og nýjasta tækni hagnýtt við úrvinnslu á þeim. Hliðsjón var að sjálfsögðu höfð af nýrri veiðitækni og mörgu fleira. >ótt niðurstöður þessara at- hugana séu síður en svo óskeik Arstíðasveifla atvinnuieysis 1969» Skráðir atv*lausir £ $ áf f j.öldá. atvinnufólks. Mí sm 10* 19* iH 17* 1** 19* 1** 13* 12* 11* 10* a* 7* 6* 3* 1* 3* 1* 1* ular, ekki sízt á því stigi sem þessi vinnuaðferð er hér á landi, benda þær þó ótvírætt á þá átt að sú skipstærð, sem hefði hagkvæmasta rekstrar- útkomu — miðað við veiðar á íslandsmiðum — væri jafnvel talsvert minni en áformuð 500 lesta skip. Niðurstaða þeirra aðila, sem mestan áhuga hefðu fyrir útgerð slíkra skipa frá Noröurlandi og fylgdust með at hugunum Fiskifélagsins urðu samt sem áður þær, að með sér- stöku tilliti til stærðar á þilfari, sem þörf sé á til þess að unnt sé að hagnýta til fulls nýjustu togveiði — tækni (flotvörpur), þyrftu skipin að vera 52 m á lengd og um 500 brúttólestir að stærð. Mat þeirra, sem unn ið hafa að töku þessarar ákvörð unar er, að hér sé um hag- kvæmustu stærð nýtízku þorsk veiðiskipa að ræða miðað við útgerðaraðstæður á viðkomandi stöðum, sóknarsvið umhverfis land á heimamiðum og sem jafnframt fullnægðu kröfum um sjóhæfni, öryggi og gætu hagnýtt nýjustu veiðitækni, sem völ er á. Þrátt fyrir að staðið hefur verið að undirbúningi ákvörð- unar um þessi skip með svo ábyrgum hætti, sem hér hefur verið rakið að því er varðar rekstrarafkomu, er ljóst af þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið af reyndum aðilum um útgerð þessarra skipa, að halli verður á rekstrinum mið- að við óbreyttar ytri kostnað- araðstæður og afla, sem eðli- legt þykir að gera ráð fyrir. (15% meiri en meðalafli Akur- eyrartogara í 3 ár.) Öllum hlýt ur að vera ljóst að það er ekki síður sanngirniskrafa að þess ir aðilar, sem staðið hafa að ákvörðun um öflun nýrra þorskveiðiskipa með svo raun sæjum og ábyrgum hætti fái hliðstæða fyrirgreiðslu og aðr- ir, sem hafa stærri og kostn- aðarsamari áform í huga, þ.e. að hlutfallslega jafnhá upphæð hallarekstursins greiðist af al- mannafé í báðum tilvikum verði sú leið farin á annað borð. Auk þess sem almenn sanngirnisrök um ráðstöfun á fé almennings mæla með hliðstæðri fyrir- greiðslu til þeirra aðila, sem hyggja á byggingu nýrra tog- ara, eru margvíslegar sérrök- semdir, sem mæla með því að áform Norðlendinga verði studd af hálfu ríkisvaldsins. FYRRI SÉRRÖKSEMD NORÐLENDINGA: Hvergi í landinu er meiri nauðsyn á eflingu atvinnulífs- ins en á Norðurlandi. Stuðning ur opinberra aðila við togara kaup, sem helgast fyrst og fremst af sköpun atvinnu hlýt ur því ekki sízt að eiga við, þegar um útgerð frá Norður- landi er að ræða. Ástæða er til í þessu sambandi að vekja sér- staka athygli á algjörri sér- stöðu Norðlendinga í atvinnu- málum. Allar athuganir á at- vinnumálum landsmanna hafa leitt til þessa sérstöðu í ljós, en skýrasta myndin af þessum vanda fékkst, þegar almennur samdráttur varð í atvinnu árið 1969. >á var ekki lengur um að ræða fyrir Norðlendinga að sækja atvinnu í stórum stíl til annarra landshluta. Niðurstað- an var sú, að fimm sinnum meira atvinnuleysi varð að með altali árið 1969 á Norðurlandi en varð á öðrum byggðasvæð- um landsins. (Sjá meðf. stöpla rif). >ótt mikið atvinnuleysi yf ir vetrarmánuðina ætti þátt í þessu háa meðaltali, sést þó á meðfylgjandi linuriti að þar með var ekki öll sagan sögð, heldur varð atvinnuleysið jafn mikið á Norðurlandi bezta mán uð ársins, eins og það var þeg- ar verst gegndi í Reykjavík. Til þess að skilja þetta til fulls þyrftu Reykvíkingar að hugsa sér að jafnmikið atvinnuleysi hefði orðið hjá þeim s.l. sumar í ágúst og september, eins og var í janúar 1969, þegar verk- fall var á bátaflotanum og sam dráttur í vinnu í algleymingi. Á Norðurlandi vinna um 1000 hafa hliðstæða eða meiri sókn- argetu, þar sem þau eru með lokuð þilför. >etta tryggir bætta afkomu hraðfrystihús- anna á viðkomandi stöðum, en þau eru víða hornsteinar at- vinnulífsins á Norðurlandi. NIÐURSTAÐA: Telja mætti fleiri sérröksemd ir fyrir því að Norðlendingar fái a.m.k. hlutfallslega hlið stæða fyrirgreiðslu til togara- smíða og Reykvíkingar. Mætti þar til nefna örðugri aðstæður til stórfelldrar iðnaðar upp- byggingar, eins og dæmin sanna en höfuðborgarsvæðið nýtur 1 II ATVINNTJLEYSI EFTIR LANDSSVÆÐTJM 19^9 Meðaltal skráðara atv.leysingja sýnt sem £ af fjölda atvinnufólks. manns í hraðfrystihúsum, þeg- ar þau vinna með fullum afköst um. Mikill hluti þessa vinnu- afls er húsmæður. Með aðgerð- um til aukinnar og öruggari hráefnisöflunar nýtist þetta vandnýtta vinnuafl betur, tekj ur heimila vaxa, meiri eftir- spum verður eftir vörum og þjónustu, sem frámleitt er á Norðurlandi fyrir heimamarkað >annig hlýzt af hráefnisöflun- inni keðjuverkun til eflingar alls atvinnulífs i landshluta, sem sárvantar öflugra atvinnu líf. SÍÐARI SÉRRÖKSEMD NORÐLENDINGA: Nýting fjárfestingar í hrað- frystiiðnaðinum á Norðurlandi hefur til skamms tíma verið með því allra lélegasta, sem um gettrr í landinu. Koma þar til margar ástæður, sem of langt mál yrði hér upp að telja. Ætla má, að þau 17 frystihús, sem nú eru starfandi á svæði því, sem Norðurlandsáætlun nær yf ir, þurfi að bera um 50 m/kr fastan kostnað árlega, hvort sem mikið eða lítið er þar framleitt af fiskafurðum. Ráð- stafanir til að auka og tryggja hráefnisöflunina á þessu svæði gefa því meiri arð í bættri nýt- ingu mannvirkja og tækja en víðast annars staðar. í þessu sambandi eir rétt að benda á að afkoma og nýtmg hraðfrysti- húss Útgerðarfélags Akureyrar hefur verið í sérflokki á Norð- urlandi og þótt víðar væri leit að vegna þess öryggis í hrá- efnisöflun, sem núverandi tog- arafloti hefuir veitt þvi. Hin nýju skip, sem áformuð eru auðvitað góðs af geysilegri op- inberri fyrirgreiðslu til þeirra stórframkvæmda, sem fram- kvæmdar hafa verið á SV- landi eða eru á döfinni. Hvað sem þessum sérröksemdum lið- ur verður niðurstaðan sú, að sjónarmið Reykvíkinga og ann- arra landsmanna ættú alls ekki að vera andstæð um opin- bera fyrirgreiðslu til uppbygg- ingar nýtízku togveiðiflota, þótt hvorum aðila um sig henti mis- munandi stærðir skipa. Lita verður á, að einungis stærstu og öflugustu stöðum landsins er kleift að reka stórtogara. >eir kunna að vera nauðsyn- legir. Alveg á sama hátt er ýms um stöðum lífsnauðsyn að geta komizt yfir viðráðanleg togskip >vi á auðvitað ekki að gera upp á milli aðila í fyrirgreiðslu af fé almennings, heldur þarf að meta hvort áformin eru vel undirbúin í alla staði, hversu mikil fyrirgreiðslan þarf að vera og gera mönnum hlutfalls lega úrlausn. Auðvitað þarf að takmarka slíka fyrirgreiðslu við ákveðna tölu skipa, a.m.k. fyrst í stað, en nota ætti síðan næstu mánuði til þess að gera heildar áætlun um þörf nýrra togskipa með hliðsjón af sóknarþoli miða, nýtingu fjárfestingar í fiskiðnaði, úreldingu núverandi flota o.s.frv. Slík vinna er sjálf sögð til þess að unnt sé að end urskoða og ákvarða fyrir- greiðslustefnu hins opinbera á þessu mikilvæga sviði þjóðar- búskaparins á grundvelli beztu fáanlegrar þekkingar hverju sinni. Slíkt er auðvitað ekki einhlítt, en betur er ekki hægt að gera. F#?A JFjL UCjFELÆCI/y/U Storl í Kaupmannahöfn Maður óskast til að veita farskrárdeild fé- lagsins í Kaupmannahöfn forstöðu. Umsóknareyðublöð fást hjá skrifstofum fé- lagsins. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. FLUGFELAG /SLAJVDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.