Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1970 Otgefandi hf. Arvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveirvsson. Ritstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ámi Garðar Krístinsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6. Simi 22-4-80. Askriftargjald 165,00 kr. á mánuði innaniands. I lausasölu 10,00 kr. eintakið. VERÐGÆZLUFRUMVARP FELLT au tíðindi gerðust á Al- þingi í gær, að stjórnar- frv. una nýskipan verðlags- mála féll á jöfnum atkvæð- um í Efri deild, en gegn því greiddu atkvæði allir stjóm- arandstæðingar og einn af ráðherrum Alþýðuflokksins, Eggert G. Þorsteinsison. í sambandi við flutning máls- ins er þess að geta, að sam- komulag varð um það í rík- isstjóminni, að málið yrði flutt sem stjómarfrv. en hins vegar lýstu Alþýðuflokks- menn því yfir, að þing- menn Alþýðuflokksins væm óbundnir um framgang máls- ins. Flutningur þess var samt sem áður talinn mikilvægur, þar sem fullvist var talið, að það mundi ná fram að ganga vegna yfirlýstrar stefnu Framsóknarflokksins í heilan áratug um nauðsyn nýskip- unar í verðlagsmálum. Ýms- ir af forystumönnum þess flokfes áttu einnig þátt í und- irbúningi frv. og höfðu lýst fyllsta stuðningi við það. Þegar verðgæzilufrv. kom fyrst til umræðu á Alþingi fyrir jól, snerist Ólafur Jó- hannesson, formaður Fram- sóknarflokksins gegn því og vakti það mikla undmn þing- manna, ekki sízt í hans eigin flokki. Síðan hefur honum tekizt að handjáma allt þing- lið Framsóknar. Eims og áður greinir lá fyrir, að Alþýðuflokkurinn mundi klofna í málinu en hitt gat engum hugkvæmst, að þeir sem margsinnis höfðu lýst stuðningi við nýskipan verðlagsmála snerust allir gegn því eins og raun varð á um þingmenn Framsóknar- flokfesins. Eins og kunnugt er hefur meðferð verðlagsmála sætt mikilli gagnrýni um langt skeið og hefur verið unnið sleitulaust að því síðan 1966 að finna heilbrigða lausn þess máls. Er frv. það sem nú hef- ur verið fel'lt árangur af starfi 20 manna nefndar, en mikil'l meinhluti hennar sam- einaðist um álit, sem frv. er byggt á og var þar gert ráð fyrir svipuðu fyrirkomulagi þessara mála og nú þykir sjálfsagt i nágrannalöndun- um. Er mjög miður, að ekki skyldi fást þingmeirihluti fyrir heilbrigðri lausn verð- lagsmálanna. NIXON OG STEFNA HANS TVTixon Bandaríkjaforseti hef- ’ ur nú setið að völdum í Bandaríkjunum um rúmlega eins árs skeið og ætti það að vera nægilega langur tími til þess að hægt sé að meta, hvaða breytingar stjórn hans mun hafa í för með sér í bandarískum stjómmálum. Nú þegar er orðið ljóst, að meiriháttar breyting er að verða á valdahlutföllum milli einstakra landshluta og þjóð- félagshópa. Nixon hefur lagt mikla og vaxandi áherzlu á að efla fylgi sitt og repúblikana- fiokksins meðal hvítra manna í Suðurríkjum Bandaríkj- anna, en þar hafa demókratar raunverulega verið einráðir um margra áratuga skeið. Þetta hefur Nixon m.a. gert með því að fara sér hægt í aðgerðum til þess að bæta úr því misrétti, sem blökkumenn búa við í Bandaríkjunum. Þá hefur Nixon svarað gagnrýni frjálslyndu aflanna í Bandaríkjunum með því að leiða fram á sjónarsviðið hinn þögla minnihluta eins og hann nefnir hinn mikla fjölda almennra borgara í Banda- ríkjunum, sem lítið lætur til sín heyra í samanburði við hinn háværa minnihluta. í stuttu máli sagt hefur Nixon í innanlandsmálum ekki ver- ið hugsjónaríkur umbótamað- ur eins og t.d. Kennedy, en hann hefur með hægð reynt að bæta framkvæmd ýmissar löggjafar, sem sett hefur ver- ið á síðustu árum og þykir hafa kostað mikið fé, en bor- ið takmarkaðan árangur. í utanríkismálum hefur Nixon að sjálfsögðu einbeitt athygli sinni og starfsorku að Víetnam. Honum hefur tek- izt að draga mjög úr umræð- um og aðgerðum innan Bandaríkjanna vegna þátt- töku þeirra í styrjöldinni í Víetnam, með því að hefja brottflutning bandarískra her sveita frá Víétnam. Þetta hef- ur orðið til þess, að meiri ró hefur færzt yfir bandarískt þjóðlíf en var um skeið og meirihluti þjóðafinnar virðist reiðubúin til þess að bíða og sjá hvort Nixon tekst að losa Bandaríkin úr þeirri klípu, sem þau hafa verið í. Nixon hefur reynzt lag- inn stjórnandi en til lengdar getur Suðurríkjastefna hans og afskiptaleysi af málefnum blökkumanna orðið Banda- ríkjunum mikill hnekkir, a.m.k. meðal hinna upplýstu og menntuðu þjóða heims og þá ekki sízt í Evrópu. Það kann að vera rétt að doka við um skeið og meta árangurinn af því, sem gert hefur verið, en hlutskipt.i blökkumanna er slíkur blettur á Bandaríkjun- um, að þau mega einskis íáta ófreistað að þurrka hann út. FYRIR RÚMRI viku var fjallað um prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykja- vík í þessum þætti en kosningar fara víðar fram í vor en í höfuðborginni einni. Að þessu sinni er ætlunin að ræða uim prófkjör og kosningahorfur í þrem- ur stærstu kafupstöðum landsins utan Reykjavíkur, þ.e. Akureyri, Hafnarfirði og Kópavogi en bæjarstjórnarkosning- amar í þessum kaupstöðum hafa veru- lega þýðingu og gefa nokkra vísbend- ingu um fylgi flokkanna í tveimur stærstu kjördæmum landsins utan Reyikjavikur. Akureyri Bæjarstjórnanmál á Akureyri kom dá- lítið einkennilega fyrir sjónir að minnsta kosti þeim, sem vanir eru meiriihluta og minnihluta í sv'eitarstjórniuim. I bæjarstjórn Akureyrar virðast bæjarfull trúar nefnilega ekki táka afstöðu til mál á flokksgrundvelli heldur er þar um mjög einstaklingsbundna álkvörðun að ræða. Þetta er raunar alþekkt fyrirbrigði í minni sveitarstjómum og sumir halda því fram, að í því felist mun heilbrigð- ari stjórnarhættir og hentugri sveitar- félögum en þar sem menn skiptast í meiriihluta og minnihluta eftir flpkkum. Nú hefur því verið lýst yfir af hálfu Sjálfstæðismanna, að þeir vilji beita sér fyrir því að myndaður verði fa-stur meirihluti í bæjarstjórninni, sem fólk geti gengið að sem ábyrgum aðila. Sjálfstæðismienn á Akureyri efndu til prófkjörs vagnia bæjarsitjómarkiosning- anna þar í vor og tókst það mjög vel. í prófkjörinu komu fram mun fleiri gild atlkvæði en Sjálfstæðisflokkurinn hlaut í bæjarstjómarkosningunum 1966. Próf kjörið var framkvæmt þannig, að kjör- gögn voru send út til kjósenda og síðan sótt en sú aðferð við framkvæmd próf- kjörs virðist gefast vel og hefur alls staðar verið mjög vel heppnuð. Fram- boðslisti Sjálfstæðismanna á Akureyri hefur þegar verið birtur og er í megin- dráttum byggður á úrslitum prófkjörs- ins, þótt nökkur breyting verði á sæta- röð. Jón G. Sólnes, sem hlaut fleist at- kvæði í fyrsta sæti í prófkjörinu og ann að mesta iheildaratkvæðamagn mun sjálf ur hafa óskað eftir því að skipa 4. sæti listans. Nú hafa Sjálfstæðismenn 3 full trúa í bæjarstjórn og er 4. sætið því bar áttusæti, sem Sjálfstæðismenn gera sér góðar vonir um að vinna. f heild virðist augljóst, að fram- boðslisti Sjálfstæðismanna sé mjög sterk ur. Fyrsta sæti skipar Gísli Jónsson, menntaskólakennari, sem nýtur afar mikilla vinsælda á Akureyri og er raun- ar einn af þeim mönnum, sem Sjálf- stæðisflokknum er hvað mestur fengur að, einnig í ábyrgðarmeiri störf en bæj- arstjórnarmál. Annað sæti skipar Ingi- björg Magnúsdóttir, yfirhjúikrunarkona, sem hefur unnið mjög gott starf að heil- brigðismálum á Akureyri og hið þriðja, Lárus Jónsson, viðskiptafræðingur, sem er upprennandi áhrifamaður í stjómmál um og þá ekki aðeins á Norðurlandi. í fimmta sæti er Knútur Otterstedt, raf- veitustjóri. Honum bar raunar sæti ofar á listanum skv. úrslitum prófkjörsins, en mun ekki hafa verið fáanlegur til þess. Greinilegt er, að Sjálfstæðismenn á Akiureyri eru bjartsýnir um úrs'lit kosn- inganna í vor. Sú bjartsýni byggist fyrst og freimst á sterkum lista. Jafn- framt virðaist andstæðingarnir veikari en oft áður. Framsðknarmenn efndu til skoðanakönnunar, sem mun minni þátt- taka var í en hjá Sjálfstæðismönnum og úrslit hennar hafa valdið nokkrum erf- iðleikum innan Framsóknarflokksins á Akureyri. A.m.k. drógst það úr hófi að úrslitin yrðu birt. Kosningarnar á Akureyri í vor munu ekki sízt vekja eftirtekt vegna þess, að þær leiða væntanlega í ljós styrkleika- hlutföllin milli komimúnista og fylgis- manna Björns Jómssonar. En þetta eru fyrstu kosningarnar, sem fram fara þar, sem annars staðar, eftir að til algjörs klofnings kom í þeirra röðum. Komm- únistar hafa lagt mikla áherzlu á að styrkja stöðu sína á Akureyri og kunn- ugir menn eru mjög ósamimála um hvern ig staðan er í þeim leik. Atkvæðamagn þessara tveggja hópa getur tvímælalaust haft töluverð áhrif í landsmálunum t.d. á það, hvort Björn Jómsson leitar sam- starfs við aðra flokka í þingkosningun- um. Haf narf j örður Líklega er enginn kaupstaður á land- inu í jafn mi'klum uppgangi og Hafnar- fjörður um þessar mundir. Fólksfjölgun in í Hafnarfirði varð t.d. hlutfallslega mun meiri á síðasta ári en í öðrum byggðarlögum á höfuðborgarsvæðinu og almiemn grósika virðiist eiin/kenna bæjarlíf- ið. Til marks um það eru stórhýsin, sem prýða nú Strandgötuna í Hafnarfirði og hafa risið á örfáum árum. Þau setja viss an borgarsvip á Hafnarfjörð. Á undan- förnum árum hefur verið byggt mjög mikið af íbúðarhúsnæði og nú hefur verið sikipulagt nýtt hverfi, svokallaður Norðurbær, en þar munu búa svo til jafnmargir íbúar og í Hafnarfirði og framkvæmdir þegar hafnar. Hafnfirzk stjórnmál hafa lengi einlkennzt af óvenju mikilli hörku. Sjálfstæðismenm og Al- þýðuflokksmenn hafa í áratugi tekizt þar á og enn í dag er harkan í hafn- firzkuim stjórnmáium meiri en víðast annars staðar á landinu. Framboðslisti Sjálfstæðismanna í Hafn arfirði hefur verið birtur og eru 9 efstu sæti hans í samræmi við úrslit próf- kjörsins, sem þar var efnt til fyrir nokkru. Það prófkjör tókst mjög vel, enda atkvæðaseðlar sendir út til fólks og síðan sóttir. í síðustu bæjarstjómar- kosningum fengu Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði 1286 atkvæði en í prófkjör- inu komu fram 1818 gild atkvæði. Þetta aflkvæðiamiaign hefur af aiuigljóisum á- stæðum hleypt töluverðri bjartsýni í raðir hafnfirzkra Sjálfstæðismanna. Eggert ísaksson, formaður Fulltrúa- ráðsins í Hafnarfirði hlaut flest atkvæði í prófkjörinu og skipar þvi fyrsta sæti listans. Atkvæðamagn hams sýndi, að hann nýtur milkilla vinsælda meðal Sjálf stæðismanna. Annað sæti slkipar Árni Grétar Finnsson, hrl. Hann hefur verið bæjarfulltrúi sl. kjörtimabil og jafn- framt um árabil einn helzti forystumað ur ungra Sjálfstæðismanna. Árni Grétar hlaut flest atikvæði í 1. sæti en prófkjör ið fór þanmig fram, að merkt var með tölustöfum við frambjóðendur í sam- ræmi við það, hvaða sæti kjósendur vildu, að þeir slkipuðu á listanum. Sú staðreynd, að Árni Grétar hlaut flest atkvæði í 1. sætið er mikil traustsyfir lýsing. Guðmundur Guðmundsson, spari sjóðsstjóri er í 3. sæti. Hann er traustur maður og drengur góður. Stefán Jóns- son, sem átt hefur sæti í bæjaristjórn Hafnarfjarðar á þriðja áratug tefeur að sér sama hlutverk og Jón G. Sólnes á Akureyri að skipa 4. sæti listans, sem væntanlega verður baráttusætið. Og í 5. sæti er Einar Mathiesen, sem hlaut stuðning íþróttahreyfingarinnar í Hafn arfirði í prófkjörinu en íþróttafélögin eru nú óðum að verða eitt sterfeasta stjórnmálaaflið í fjölmennari feaupstöð- um, svo að elkki sé talað um Reykjavík. f bæjarstjórnarkosningunum 1966 hlaut Félag ðháðra borgara óvænt og mikið fylgi undir forystu Árna Gunn- laugssonar hrl., sem hafði sagt slkilið við Alþýðuflokkinn. Þetta félag fékk 3 bæj arfulltrúa og gerði Al'þýðuflokkinn að smápeði í þessu fyrrum höfuðvígi jafn- aðarmanna á íslandi. í prófkjöri, sem ný lega fór fram hjá þessu félagi feomu 677 aflkvæði til skila og bendir það til þess, að það eigi enn nokkru fylgi að fagna í Hafnarfirði. Annars er sjaldgæft að slflkar hreyfingar haldi fylgi sínu leng- ur en eitt kjörtímabil og þasis vegna verður fróðlegt að fylgjast með árangri félagsins að þessu sinni. Loks má geta þess, að sú fregn 'hefur flogið fyrir, að Framsóiknarmenn hyggist reyna að bjóða fram í iHafnarfirði en þar hafa þeir átt sáralítið fyílgi. Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.