Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 19
 MORGUNBUAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1970 19 tc axz ac. sn U c- u 2CC-ii.ii.iJ. c-— xcr^rr- ts — Af innlendum Framhald af bls. 17 Kópavogur Ef þessi fjöknennasti kaupstaður landsins utan Reyíkjavikur er borinn saman við önnur byggðarlög á höfuð- borgarsvæðinu keimur í ljós, að Kópa- vogur er langt á eftir öðrum í margvís- leguim framkvæanduim og þjónustu bæj- arfélagsins. 1 eina tíð var hægt að skýra þetta með því, að vöxtur bæjarfélagsins væri svo ör, að ekki hefðist undan en sú skýring dugir ekki lengur. AHt bend ir til þess, að nú sé það fyrst og fremst með eindæmum léleg stjórn, sem veld- ur niðurníðslu bæjarfélagsins. Stjórnmálaflokkarnir í Kópavogi tóku upp á því að efma til sameiginlegs próf- kjörs. Flestum mun hafa þótt hugmynd- in fráleit í fyrstu en komiist að þeirri niðurstöðu á kjördag, að hún hefði ýmsa kosti. Þátttaka reyndist þó liítil eða um 30% og er það a.rn.k. lítið miðað við þá þátttöku, sem fengizt hef- ur í prófkjörum Sjálfstæðismanna víða um landið og m.a. í Hafnarfirði og á Akureyri. Sameiginlegt prófkjör veitir einnig betra tækifæri til að kjósa hjá öðrum flokkum en þeim, sem viðkom- andi tOheyrir, í því skyni að hafa áhrif á úrslitin þar og er ekki grunlaust um, að nokkuð hafi verið um það í hinu sam eiginlega prófkjöri í Kópavogi. Enginn vafi leikur á því, að kosningahorfurnar í Kópavogi eru mjög óvissar, svo að e'kki sé meira sagt. Mikil hreyfing er á íbúum bæjarins og mun því mjög stór hópur fólíks kjósa þar í fyrsta sikipti í vor. Hvaðan kemur það? Hvemig kýs það? betta eru spurningar, sem framá menn í Kópavogi velta fyrir sér þessa dagana. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokk urinn í Kópavogi en hefur alltaf verið í minnihiuta í bæjarstjórn. Þó , hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins þar farið vax andi jafnt og þétt. Framboðslisti Sjálf- stæðismanna hefur enn ekki verið birt- ur, og þess vegna verður hann efkki gerð ur að uimtalsefni hér. Óhætt er þó að full yrða, að í öllum megindráttum byggist hann á niðurstöðum prófkjönsins. Margir eru þeirrar gkoðunar, að kosn ingarnar muni leiða til verulegra breyt- inga á stjórn Kópavogskaupstaðar. Kem ur margt til. Sl. 8 ár hafa Framsóknar- menn og kommúnistar farið sameigin- lega með stjórn bæjarmála. Nú er mikil sundrung í röðum Framsóknarmanna og má raunar segja, að' Framsóknarflokk- urinn í Kópavogi sé klofinn í tvennt. Ólafur Jensson, sem skipaði 1. sæti í síðustu kosningum hlaut 4. sæti í próf- kjörinu. Síðustu fréttir herma, að hann hafi hafnað því sæti og að helztu stuðn- ingmenn hans muni heidur ek'ki gefa kost á sér á listann, I>á er lílka talað um, að Ólafur Jensson muni bjóða fram séristakian lista, þanniiig að í raun réttri verði tveir listar á vegum Framisóknar- flokksins. H'inn möguleikinn er sá, að þessi óánægði armur Fraimsóknarflokks ins sitja hekna í kosningunum eða láti atkvæði sín falla á -aðra flokka og þá er spurningin: hvaða flokk eða flokka? Mikill ótti virðist ríkja í herbúðum kommúnista um úrsht kosninganna og einn helzti forystumaður þeirra skipar nú 3. sæti á framboðslista þeirra. Kunn- ugir telja þó, að nokkurrar óánægju gæti með þetta í röðum kommúnista, sem séu þeirrar skoðunar, að listi þeirra sé ekkert betur settur með Ólaf Jóns- son í 3. sæti en hinu fyrsta. Verulegar líkur eru taldar á, að Alþýðuflokkurinn þurrkist hreinlega út úr bæjarstjórn Kópavogs, en þar hefur hann átt einn fulltrúa sl. kjörtímabil. Ástæðan er tal- in sú, að einhverjir Alþýðuflokksmenn muni skipa sæti á framboðslista hanni- balista í Kópavogi og að sá flokkur nái töluverðu fylgi frá Alþýðuflokknúm. Raunar virðist sundrungin ekki minni í herbúðum hannibalista í Kópavogi en hjá öðrum vinstri mönnum. Einn af helztu forystumönnum þeirra, Páimi nokkur Steingrímsson hefur þegar yfir gefið skútuna. Þessi sundrung og óeining í röðum vinstri manna í Kópavogi gerir það að verkum, að Sjálfstæðismenn eru lang- sterkasta og samhentasta stjómmálaafl ið í bæjarfélaginu og þvi líklegastir til að taka stjórn bæjarmála föstúm tök um. Sagt er, að ákveðinn hópur Fram- sóknarmanna hafi hug á samvinnu við Sjálfstæðismenn að kosningum loknum um stjórn bæjarins. Eins og allt er í pottinn búið ættu Sjálfstæðismenn að hafa töluverða möguleika á því að auka fylgi sitt. Niðurstaðan af þessum hugleiðingum er því sú, að kosningahorfur séu harla óvísar, allt geti gerzt en að töluverðar líkur séu á breytingum á stjórn bæjar- ins að kosningum loknum. Styrmir Gunnarsson. X Frábær námsárangur nám við fyrrgreindan skóla. Lauk hann prófinu á fjórum og hálfu ári, en eðlilegur námstími er talinn sex ár. Jón er 24 ára gamall, sonur Þorbjargar Þórhallsdóttur og Ara heitins Kristinssonar sýslu- manns. Hann er kvæntur Jón- ínu Elísabetu Þorsteinsdóttur og eiga þau einn son. Jón er nú við framhaldsnám við háskólann í Mainz. í FEBRÚAR s.I. lauk Jón Krist- inn Arason kandidatsprófi í stærðfræði frá Stærð- og nátt- úrufræðideild Georg-Ágústhá- skólans í Göttingen. Hlaut Jón 1, sem er hæsta einkunn, sem gefin er. Jón lauk stúdentsprófi frá menntaskólanum á Akureyri vorið 1965 með fyrstu ágætis- einkunn, og hóf haustið eftir UM helgina var brotizt inn í Einholt 6 og stolið þaðan magn ara og tveimur stórum hátölur- um, gömlum plötuspilara og plötusafni. Málið er í rannsókn. Enskar popplínkápur unglingasfœrðir T ízkuskemman FÉLAG \mim HLJIÍMLISTAIIMAÍA úTvcgo yður hljóðfæraleikara og hljómsveitir við hverskonar tækifæri Vinsamlcgast hringið í 2(1255 inilli kl. 14-17 Sveinbjöm Dagfinnsson, hri. og Einar Viðar, hrl. Hafnarstræti 11. - Sími 19406. LÉTT Á F/ETI EKKI HAL audveld í umhirdu Fást sem venjuleg stígvél og sem reidstigvél i öllum betri skóbúdum Volkswagen varahlutir tryggia Volkswagen gæði: HEKLA hf. Örugg og sérhæfð viðgerðaþjonusta Hœð til sölu Til sölu er efri hæð með góðum bílskúr í tveggja hæða húsi á einum bezta stað í borginni. Ibúðin er 168 fermetrar að stærð, 6 herbergi og eldhús með mjög góðum geymslum, Fallegt útsýni. Lysthafendur leggi nöfn sín inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 1. apríl n.k. merkt: „Álfheimar — 8290", 15. Iundsþing S.V.F.Í. 15. landsþing Slysavarnafélags íslands hefst með guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni i Reykjavík fimmtudaginn 16. april n.k, kl. 14.00. Að aflokinni guðsþjónustu kl. 15.30 verður þingið sett í slysa- varnahúsinu á Grandagarði. Þær slysavarnadeildir, sem ekki hafa þegar sent kjörbréf þing- fulltrúa, eru vinsamlega beðnar að senda þau sem fyrst. STJÖRNIN. tKnnttspyrnulélngið VflLUR Árshátíðin verður haldin í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikudag inn 25. marz og hefst með borðhaldi kl. 7 stundvíslega. Miðasala og borðapantanir í íþróttahúsi Vals föstudags-. mánu- dags- og þriðjudagskvöld. Húsið opnað kl. 6.30. kirkjuhljómleikar verða haldnir I Dómkirkjunni föstudaginn langa 27. marz n.k. kl. 21.00 og í Eyrarbakkakirkju laugardaginn 28. marz kl. 16.00. Fluttur verður Kvartett um „Sjö orð Krists á krossinum" eftir Joseph Haydn. Flytjendur: Sigfússon-kvartettinn, sóknarprestarnir séra Óskar J. Þorláksson, og séra Magnús Guðjónsson. Sextett undir stjóm Ruth L. Magnússon syngur. við orgelið Abel Rodríguez. Aðgöngumiðar verða seldir hjá Bókaverzlun Lárusar Blöndal og Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.