Morgunblaðið - 24.03.1970, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1'970
legur á stólbrúninni. Hann
heyrði ekki annað aí samtalinu
en þetta:
— Hvar?
— í lítilli krá við höfnina,
með Solemdal.
Babin kaefði niðri í sér hlátur.
— Hvað eigum við að gera?
— Þú gaetir sent einhvem eft-
ir honum.
Það var kallað á þjóninn og
honum gefin einhver fyrirskip-
un. Gilles hitaði í allan skrokk
inn og fann til svima. Hann af-
þakkaði vindil, sem Babin bauð
honum.
— Nei, þakka yður fyrir. Ég
reyki ekki.
— Púrtvínsglas þá?
— Ég er óvanur víni.
Það var eitthvað grunsamlegt
við þetta allt saman, en Gilles
var of ringlaður til þess að
geta greitt úir því. Það var sýni-
lega haft mikið við hann, en
framhjá honum, ef svo mætti
segja, næstum eins og hann væri
einskis metinn sjálfur.
Þá mælti Hervineau lögmað-
ur:
— Það er ekki hægt að les*
erfðaskrána formlega upp fyrr
en helgin er liðin, með öðrum
orðum ekki á morgun heldur
hinn, en okkar í milli sagt, herra
Mauvoisin, get ég segt yður, að
þér eruð einkaerfingi að eignum
frænda yðar. Síðustu fjóra mán
uðina höfum við verið að leita
að yður, dyrum og dyngjum.
Gilles heyrði orðin greinilega
en botnaði bara ekkert í þeim
og gerði sér ekki ljósa merk-
ingu þeirra. Mennirnir tveir,
sem athuguðu viðbrögð hans,
voru hissa, er þeir gátu hvorki
séð á honum undrun né gleði.
Kannski voru þeir farnir að
halda, að hann væri einhver hálf
viti.
— Frændi yðar átti ekki ein-
asta þetta vörubílafyrirtæki,
heldur átti hann líka hlut í svo
að segja hverju fyrirtæki, sem
nokkuð kveður að, hér í ná-
grenninu.
Þjónninn hafði lokið erindi
sínu og opnaði nú dyrnar fyrir
Edgard Plantel og Solemdal
skipstjóra. Plantel virtist ekki
eins rjóðleitur og áður. Hann
snerti höndina á Babin og taut-
aði um leið lágt:
— Til hamingju.
— Minnztu ekki á það!
Hvað Solemdal snerti þá
horfði hann með undrun, sem
var virðingarblandinn, á piltinn
sem hann hafði smyglað inn í
landið, en var nú orðinn ein-
hver mikilvægasti borgarinn í
La Rochelle.
— Sælir, hr. Mauvoisin. Ég
heyrði fyrir tilviljun, að þér vær
uð nýlega tekið yður gistingu í
lítilli krá niður við höfnina, og
ég lét ekki á mér standa. . .
Trúið mér, að það gleður mig að
hitta yður og ég vona. . .
Hvers vegna leit Gilles snöggt
til lögmannsins, sem hallaði sér
aftur í stólnum? Það var slæm
birta á andlitinu á honum, en
Gilles fannst hann sjá háðsbros
á því, og hann varð hræddur
við það.
VIII
Rétt sem snöggvast fannst hon
um hann vera kominn aftur um
borð í skipið og það veitti hon-
um einhverja augnabliks gleði.
Honum fannst kojan sín dúa
upp og niður og vagga á hlið, og
hann þóttist meira að segja
heyra gjálpið í sjónum. Það
minnti hann á þessa daga, þegar
FLINT valt og hjó, og þegar
hann lá sjóveikur í kojunni, og
blessunin hann Solemdal var
öðru hverju að heimsœkja hann,
og augun ljómuðu af velvild.
En því miður var hann ekki
þar nú. Hann var farinn af
FLINT og hann vissi mætavel,
hvar hann var. í fínu húsi í Ré-
aumurgötu sem var mesta höfð-
ingjagatan í La Rochelle. Hann
hafði enga hugmynd um, hvað
tímanum leið, þar eð enginn ljós
geisli gat smogið inn með harð-
lokuðum gluggahlerunum. En að
minnsta kosti var þó fólk á stjái
í húsinu, því að hann gat heyrt
mannamál beint niður undan sér
og hljóð í krana, sem rann úr.
TIGER
skœrin komin
Verzlunin Brynja
Laugavegi 29.
Karlmaður og kona voru að tala.
Hvert orð glumdi eins ogbyssu
hvellur í verkjandi höfðinu á
honum. Þetta var allt svo ógreini
legt og ruglingslegt og hann
beið eftir, að hvellirnir byrjuðu
aftur.
Bang-bang bang!
— Banga-bang. . . Bamg. . . .
Svo kom glamur í leirtaui og
smellur í potthlemmi. Þessi hljóð
hlutu að koma frá eldhúsinu.
Guð minn góður! Hvílíkur
kvöldverður! Og hvers vegna
kepptust allir við að fá hann til
að drekka? Var það til þess
að skemmta honum? Hafi svo
verið, var það heldur betur mis
bjóð á því frá upphafi til enda,
heppnað. Hann hafði haft við-
allt frá púrtvínsglasinu, sem
hann hafði orðið að drekka hjá
þessum hræðilega gamla lög-
manni.
Hvað sagði hann nú aftur við
hann, þegar hann fór?
„Ég vona, að þér skemmtið yð
ur vel, ungi maður“.
Þeir fóru svo í húsið í Ré-
aumurgötu. Gilles mundi þenn-
an hluta kvöldsins greinilega.
Veggimir við stigann voru
þaktir gömlum prentmyndum af
höfninni í La Rochelle á öllum
tímum.
— Ég verð að fá hann Jean
son minn, til að sýna yður þær.
Hann safnar þeim, sagði Plantel.
Hann er hreinasti kunnáttumað-
ur.
Brytiinn var lítill og digur, með
svart hár, sem var greitt yfir
beran skallann. Svo stuttur var
hann og digur, að Gilles datt
helzt í hug myndir af manni í
spéspeglunum á markaðsskemmt
Bíll — Hilmann Minx
Til sölu Hillman Minx, árgerð 1968, ekinn 27. þús km.
Upplýsingar i síma 31316. — Bein viðskipti.
Allar tegundir f útvarpstæki, vasaljós og leik-
föng alltaf fyrirliggjandi.
Aðeins I heildsölu til verzlana.
Fljót afgreiðsla.
HNITBERG HF.
Ötdugötu 16. Rvlk. — Siml 2 28 12.
Loksins eitthvað nýtt í
svefnbekkjngerð
Þessi frábæra lausn er hönnuð af Þorkeli
G. Guðmundssyni húsgagnaarkitekt, sem
með þessu framkvæmir á sinn smekklega
hátt, það sem hver unglingur helzt óskar sér.
■ýy&y/ZtátYÆw.
PIRA UMBOÐIÐ, ÁRMÚLA 5.
HÚ5 OC SKIP HF. Sími 84415
84416.
Til leigu
4ra herb. íbúð í nýju fjölbýlishúsi í Vesturbænum.
Teppi á gólfum, svalir móti suðri.
Upplýsingar í síma 26382 eftir kl. 8 á kvöldin.
Ilrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Reyndu að inna starf þitt alveg sériega vel af hendi Fdlk, MIB
kemur langt að, hefur eitthvað forvitnilegt að segja.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þú hagnast eitthvað og það á óvenjulegan hátt. Framkvæmdn
strax, það sem þú færð tækifæri til að gera. Tækifærin bíða ekki,
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
ímyndunarafl þitt er afar líflegt og þér verður vel ágengt. Not-
aðu það til að byggja starf þitt upp, fremur en að friðþægja vinum
þínum.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þú þarft að einbeita þér að starfinu. Ef þú átt eitthvert frí í dag,
skaltu gera áætlun um starf þitt og hvað þú getur gert til úrbóta.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Glys og glaumur kunna að ganga svo í augu þér, að þú gleymir
eða vanrækir dagleg störf, sem þú áttir að vinna. Reyndu að skrifa
hlutina hjá þér, ef þú ert gleyminn.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Reyndu að leggja eitthvað fyrir f dag. Sameignir aukast, ef dá-
lítið er ltiið eftir þeim. Einkamál þín eru að komast í gott jafnvægi.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þér gengur betur. Reyndu nú hvað úr hverju nýjar aðferðir.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Það sem þú hefst að í dag, getur haft mikil áhrif á hagnað þinn
í framtíðinni. Gerðu eitthvað áþreifanlegt, svo að allir megi sjá og
við una, meðan þú ert að skemmta þér.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Byrjaðu tímanlega og reyndu að gera varning þinn sem girnileg-
astan.
Steingeitin. 22. desember — 19. janúar.
Þú færð sennilega innblástur fyrri hluta dagsins og langar til
að breyta heimili þin, og dagfari öllu. Gerðu þetta allt saman strax.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Biddu fjölskylduna og samstarfsmenn alla um hjálp, en leggöu
aðaláherzluna á að ná þér í sem bezt sambönd.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Tillitssemin er gulli betri í dag.