Morgunblaðið - 19.04.1970, Page 15
MORGWNBL.AÐIÐ, SUNNIJDAGUR 19. Ai’R'.D i®7fl
15
llOFTLEIDIfí
Ritarastarf
Einangrun
Góð plasteínangrun heur hita-
leiðnis aðal 0,028 til 0,030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
minni hialeiðni, en fíest önn-
ur einangrunarefni hafa þar á
meðal gleru'H, auk þess sem
piasteinangrun tekur nálega eng
an raka eða vatn í sig. Vatns-
drægni margra annarra einangr-
unarefna gerir það, ef svo ber
undir, að m;ög lélegri rinangrun.
Vér hófum fyrstir allra, hér á
landi, framleiðslu á einangrun
úr plasti (Po.ystyrene) og fram-
leiðum góða vöru með hag-
stæðu verði.
REYPLAST H.F.
Ármúla 26. — Sími 30978.
Sendisveinn
á eigin vélhjóli óskast. Leiga fyrir vélhjó.ið greiðist auk launa.
Upplýsingar á skrifstofum okkar að Sætúni 8.
Upplýsingar ekki gefnar í síma
O. JOHNSON & KAABER H.F.
Óskilamunir
I vörzlu rannsóknarlögreglunnar er nú margt óskilamuna, svo
sem reiðhjól, fatnaður, lyklaveski, lyklakippur, veski, buddur,
úr, gleraugu, o. fl.
Eru þeir, sem slíkum munum hafa týnt, vinsamlega beðnir að
gefa sig fram í skriístofu rannsóknarlögreg unnar, Borgartúni 7
í kjallara (gengið um undirganginn) næstu daga kl. 2—4 og
5—7 e.h. til að taka við munum sínum, sem þar kunna að vera.
Þeir munir, sem ekki verða sóttir, verða seldir á uppboði.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN.
Vanan ritara vantar strax í söludeild okkar.
Þarf að hafa góða reynslu í vélritun auk þess
að rita íslenzku, ensku og dönsku eða annað
Norðurlandamál. Stúlka, sem getur unnið
sjálfstætt, gengur fyrir.
Upplýsingar veitir starfsmannahald félags-
ins milli kl. 10 og 12, sími 20200, mánudag
og þriðjudag.
Frá Ljósmæðraskóla Islands
Samkvæmt venju hefst kennsla í skólanum hinn 1. okt. n.k.
Inntökuskilyrði.
Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri
en 30 ára, er þeir hefja nám. Undirbúningsmenntun skal
vera gagnfræðapróf eða tilsvarandi skólapróf. Krafist er góðrar
andlegrar og líkamlegrar heiibrigði. Heilbrigðisástand verður
nánar athugað í skólanum.
E:ginhandarumsókn sendist forstöðumanni skólans í Fæð-
ingardeild Landspítalans fyrir 15. júni 1970. Umsókn skal fylgja
læknisvottorð um andlega og líkamlega heilbrigði, aldursvott-
orð og löggilt eftirrit gagnfræðaprófs. Umsækjendur eru beðnir
að skrifa greinilegt heimilisfang á umsóknina, og hver sé næsta
símstöð við heimili þeirra.
Umsóknareyðublöð fást í skólanum.
Upplýslngar um kjör nemenda.
Ljósmæðraskóli íslands er heimavistarskóli og búa nem-
endur í heimavist námstímann.
Nemendur fá laun námstimann. Fyrra námsárið kr. 5.057,00
á mánuði og siðara námsárið kr. 7.225,00 á mánuði. Auk þess
fá nemar greiddar lögboðnar tryggingar og skólabúning.
Húsnæði ásamt húsbúnaði, fæði, þvotti og rúmfatnaði, sem
Ljósmæðraskólinn lætur nemendum í té. greiða þeir sam-
kvæmt mati skattstjóra Reykjavíkur.
Fæðingardeild Landspítalans,
16. apríl 1970.
Skólastjórinn.
nVor
undir vœngjum “
ÖQ Vorltekhun
Til móts við vorið
VoriS er að koma suður i álfu og Loftleiðir
bregða ekki vana sinum en bjóða nú:
frá 15. marz til 15. maí
hin lækkuðu vorfargjöld til fjölmargra
staða í Evrópu.
Fljúgið með Loftleiðum til móts við vorið
og njótið hinnar rómuðu þjónustu um
borð í Loftleiðaflugvélunum.
Fjöldi þeirra íslendinga, sem nota sér hin
lækkuðu vorfargjöld, eykst með ári hverju,
Loftleiðir fljúga til:
Oslóar - Kaupmannahafnar - Gautaborgar -
Glasgow - London og Luxemborgar,
en selja jafnframt framhaldsferðir með flug-
félögum á öllum flugleiðum heims.
Og enn sem fyrr geta farþegar notið hinna
hagkvæmu greiðslukjara Loftleiða:
FLUGFAR STRAX — FAR GREITT SÍÐAR
Skrifstofur Loftleiða, ferðaskrifstofurnar og
umboðsmenri um land allt veita upplýsingar
og selja farseðla.
koFTLEIDIfí