Morgunblaðið - 19.04.1970, Qupperneq 21
MOKGUNBLAOIÐ, SUNNUDAGUK 19. APRÍL 1970
91
ámá 1
— Við erum
Framhald af bls. 10
Vissulega er það hjartanlegt
gleðiefni öllum trúuðum mönn
um að samvinna og sam-
starf kirkjudeildanna aukist.
Raunar er hér um að rseða
eina hjörð, og hví skyldi hún
þurfa að standa sundruð fyr
ir Guði sínum?
Á því rúmu ári, sem dr.
Frehen hefir dvalizt hér, hef-
ir hann gert sér far um að
kynnast fólkinu. Hann hefir
átt einkar vinsamleg sam-
skipti við íslenzka presta-
stétt og óhætt mun að full-
yrða að góður kunningsskap
ur hefir skapazt milli hans og
biskupsins yfir íslandi herra
Sigurbjörns Einarssonar.
Dr. Frehen segir að hann
dáist að mörgu í fari íslend-
inga. Honum finnst ánægju-
legur þroski felast í því
hivernig við tökum jafnvel á
móti óskilgetnum börnum,
sem öðrum. Og einmitt í því
sambandi fan.nst honum
siðferðiskennd íslendinga á
háu stigi.
Ekki er nokkur vafi á því
að okkur er mikill fengur að
því að fá jafn lærðan, við-
förlan og hógværan mann
hingað til lands, þótt hann sé
settur yfir tiltölulega fá-
mennan söfnuð. Ef til vill er
uppruni þessa manns nckkur
skýring á miklum skilningi
og þroska. Hann er þýzkætt-
aður í föðurætt, móðirin belg
isk og fjölskyldan bjó í Hol-
landi og þar er hann upp al-
inn. Hann gerist síðan mikill
lærdómsmaður og er m.a.
þekktur fyrir tungumálakunn
áttu sína. Okkur hlýtur því
að vera mikill fengur að slík-
um manni til þess að miðla
okkur af þekkingu sinni og
skoðunum.
. Nýlega hefir verið gefin út
ný messubók fyrir hina
Rómversk-káþólsku kirkju.
Dr. Frehen var dálitið hreyk
inn af því að vera fyrstur
Norðurlandabiskupa til að
gefa bókina út á tungumáli
síns biskupsdæmis og gat
hann fært hinum biskupunum
bókina á fundi þeirra í Osló.
I formála fyrir bókinni segir
herra biskupinn:
„Annað kirkjuþing Vaíí-
kansins hafði það að mark-
miði að efla kristilegt liferni
hinna trúuðu í æ ríkari
mæli, einkum með helgisiðum
messunnar, enda er heilög
messa bæði kirkjunni í heild
og sérhverjum trúuðum ein-
staklingi uppsprettulind og
hámark kristilegs lífernis.
Kirkjuþingið lét ekki und-
ir höfuð leggjast að hvetja
hina trúuðu til virkrar,
áhugasamrar og sem full-
komnastrar þátttöku í heil-
agri messu. Til liðsinnis þeim
ákvað kirkjuþingið að endur
skoða messubókina, einkum
með það fyrir augum, að eðli
og tilgangur messunnar kæmi
skýrar fram í helgisiðun-
um, og hún yrði hinum trú-
uðu hjálparhella til að geta
tekið virkan og guðrækilegan
þátt í heilagri messu.
Þessi messubók krafðist
mikils undirbúnings og rann-
sókna og hlaut að lokum sam-
þykkt páfans. Fyrsti og mik-
ilvægasti hluti hennar .er hér
með fenginn yður í hendur.
í heilagri messu minnumst
vér þjáninga Krists, dauða
hans og upprisu, sem á ný
verða gerð að raunveruleika
á meðai vor.
Vér skulum leggja oss
fram við guðrækiiega þátt-
töku af sálu og líkama, í trú,
von og kærleika. Með þessu
móti, og þó einkum með því
að sameinast Kristi á sérstak
an hátt í Altarissakramentinu,
hljótum vér þær náðargjafir,
sem Kristur hefir áunnið sér
oss til handa með dauða sín-
um og upprisu. Oss hlotnast
kraftur til að fyigja Jesú í
daglegu lífi voru og bjóða
það sem stöðuga fórnargjöf,
Guði, Drottni vorum og Föð-
ur.
í fyrsta hluta heilagrar
messu, í orðsþjónustunni, er
fyrirmynd Jesú leidd oss fyr
ir sjónir. Vér heyrum orð
hans og veitum því viðtöku
í hjörtum vorum og sjáum
hvernig hann skilyrðislaust
fórnar sér Guðs ríki og fyrir
náungann í hlýðni og kær-
leika til Föðurins.
Megi Guðs heilagur Andi
upplýsa anda vorn, örva
hjörtu vor og styrkja vilja
vorn til tíðrar þátttöku í
heilagri messu og til að finna
þar uppsprettulind og kraft
til að lifa sannkristnu Iífi.“
Þannig ávarpar herra bisk
upinn söfnuð sinn í nýrri
messubók.
En svo bundinn er dr. Fre-
hen ekki af trúarlegum mál-
efnum og kennisetningum að
ekki megi taka upp léttara
hjal. Talið berst að söguhetj
unum Don Camillo og Pepp-
one, sem velflestir kannast
við. Þetta þykja dr. Frehen
skemmtilegir menn og hann
segir að það séu margir Pepp
onar á Ítalíu. Hann þekkti
sjálfur einn slíkan og sagði
mér stutta sögu af honum.
Þessi ítali gerðist kommúnisti
í þeirri- von að þeir myndu
útvega honum vinnu, því
hann lifði í sárustu fátækt.
Breytingin reyndist lítil til
hins betra af þeirra völdum.
En allt í einu var svo kom-
ið að hann var kominn í safn
aðarstjórn kirkju sinnar og
hann stóð í fylkingarbrjósti
fyrir nýbyggingu fyrir kirkj-
una. Dr. Frehen sagðist hafa
spurt hann hvernig þetta
gæti farið saman, hvort hann
væri hættur að vera kommún
isti. Nei, hann var ekki hætt-
ur því. Hinir flokkarnir voru
ek-kert betri. En hann hélt
sinni trú og trausti til kirkju
sinnar hvað sem hver sagði.
Síðast ræddum við um ein-
lífi kaþólskra presta. Það er
sú dyggð og sú fórn, sem ég
hef dáðst mest af í fari
þeirra. Dr. Frehen sagði að
talsvert væri rætt um mögu
leika á breytingu í þessu efni
og líkur væru til að svo færi.
Ég sagðist hafa tilhneig-
ingu til að vilja heldur ræða
vandamál mín og trúnaðar-
mál við prest, sem lifði einn,
heldur en fjölskylduprest, ef
ég á annað borð Leitaði til
þeirra.
Hann kvaðst skilja það vel.
En mörgum prestum væri
þetta mikið átak að lifa ein-
ir. Margir hefðu hins vegar
svo mikinn styrk fólginn í
sjálfum sér að þeim væri
þetta næsta auðvelt. En
hvernig sem færi mætti ávafflt
treysta því að mangir prestar
héldu uppteknum hætti og
lifðu einlífi, tökjulausir, eigna
lausir og algert verkfæri
kinkju sinnar og Guðs síns.
Þótt enn væri vetur í höf-
uðborg okkar fannst mér vor
blær fylgja þessum látlausa
kirkjuhöfðingja.
—vig.
„ . . . Við snúum okkur til ykk-
ar sem óskið eftir bréfavini".
Nánari upplýsingar sendast
ókeypis um bréfaklúbbinn:
ROVEMA INTERNATIONAL,
Afd. 7, Box 42 066, S-126 12
Stockholm 42, Sweden 00
SJÓSTÍGVÉLIN
eru sérstaklega framleidd með
tililiti trl veðurfars og aðstæðna
á fslandi. — Sólinn er vel ein-
angraður, og í hann er felld stál-
fjöður, sem heldur ilinni beinni
og varnar þannig þreytu. —
Allur bolur stígvélanna fylgir
lögun fótleggjanna og þrengir
hvergí að, og ofánálímdur efri
bolur er gerður úr mjúku, stinnu
gúmmii og helzt því vel uppi.
Einkaumboð Sími 20000
Verð oðeins kr. 22.995,oo
með 24“ skermi
Nú aftur komin með nýju glæsilegu útliti.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar á hinum
vönduðu H.M.V. sjónvarpstækjum.
F A L K I N N II/F.,
Suðurlandsbraut 8 Reykjavík.
Vel skipulogt norskt iyrirtæki
óskar að komast í samband við byggingameistara, ríkis eða
bæjarfyrirtæki og einstaklinga sem óska áætlana og aðstoðar
við uppsetningu á iðnaði, rör.ögnum og skipaiðnaði.
Ráðum, í samvinnu við vort sænska bróðurfirma, yfir verk-
fræðingum og ca. 170 faglærðum verkamönnum.
Höfum hæfnisvottorð frá:
Kungl Arbeidsstyrelsen í Sverige, 5 stk , Norske Arbeidstil-
synets Kjelekontroll, bue og gasssveising.
Veitum fjárhagslegan stuðning og aðstoð við lausn á fjár-
hagslegum örðugleikum.
Hafið samband við okkur sem fyrst varðandi samninga.
Stord Rör og Sanitær A/S
Boks 210 5401 Stord, Norge.
'w\
VIÐ LÆKJARTORG
HUN i
ER AÐ PRESSA
FYRIR PABBA ? !!!
Sé pabbi svo hygginn að kaupa KORATRON
buxur þarf einungis að setja þær i
þvottavélina og siðan í þurrkarann.
KORATRON BUXUR ÞARF ALDREI AÐ PRESSA
AÐALSTÆ.TI SIMI 15005