Morgunblaðið - 26.05.1970, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2«. MAÍ 1070
Ólafur B. Thors
í sjónvarpsumræðunum:
Félags- og
mennta-
mál skipa
veglega
sess
— vegna þess að lífið í
borginni skiptir meiru en
mannvirkjagerð.
í RÆÐU sinni í sjónvarps-
umræðunum minnti Ólafur
B. Thors, sem skipar baráttu-
sæti Sjálfstæðismanna í
Reykjavík, á það, að hlut-
verk borgarinnar er annað
og meira en mannvirkjagerð.
„Hún verður að láta sig
varða það líf, sem lifað er í
borginni. Þess vegna viljum
við Sjálfstæðismenn leggja
vaxandi áherzlu á þá þætti
borgarmálefna, sem beinlínis
varða það fólk, sem í borg-
inni býr. Því skipa félags- og
menntamál veglegan sess í
stefnuskrá okkar,“ sagði
Ólafur B. Thors. Mestur hluti
ræðu hans fer hér á eftir:
Við erum að nálgast borgar-
stjórnarkosningar og enn á ný
biðjum við Sjálfstæðismenn um
traust ykkar. Af því tilefni vil
ég í upphafi 9egja þetta: For-
senda þess að Sjálfsitæ-ðismenn
fari áfram með stjórn Reykja-
víkur er að flokkurinn fái 8
menn kosna í borgarstjórn. Það
hefur komið í minn hlut að skipa
8. sæti á framboðslista flokks-
ins við þessar kosningar, svo
mér er eðlilega nokkuð í mun
að það takist.
En málið snýst engan veginn
um örlög minnar eigin persónu.
Ugglaust eru margir, sem ekki
mundu reynast síðri borgarfull-
trúar en ég. Málið snýst einung-
is um það hvort áfram verður
haldið þeirri stefnu sem fylgt
hefur verið í borgarmálunum
sem ráðið hefur mestu um þróun
og uppbyggingu borgarinnar að
undanförnu. Þar er mikið í húfi
og þess vegna bið ég um stuðn-
ing ykkar á sunnudaginn kemur.
Á því tíimatoili seim Sjálfstæðis-
menn hafa ráðið Reykjavík hef-
Framhald á bls. 21
Birgir ísl.
Gunnarsson
í sjónvarpsræðu:
Valið
stendur
milli op-
innar og
hrein-
skilinnar
afstöðu
Sjálfstæð-
ismanna
— og einhvers annars, sem
enginn veit hvað er.
„BORGARBÚAR vita að öllu
leyti að hverju þeir ganga,
að því er okkur Sjálfstæðis-
menn varðar. Borgarbúar
geta því valið á milli opinn-
ar og hreinskilinnar afstöðu
Sjálfstæðismanna eða valið
eitthvað annað, sem enginn
veit hvað verður.“ Þannig
komst Birgir ísl. Gunnarsson
að orði í sjónvarpsumræðun-
um í fyrradag, en hann var
síðasti ræðumaður af hálfu
Sjálfstæðisnianna. Ræða hans
fer hér á eftir í höfuð-
dráttum:
Athyglisvert er að Framsókn-
armenn gagnrýna nú Sjálfstæð-
ismenn í borgarstjóm fyrir of
miklar framkvæmdir. Má t.d.
benda á gagnrýni þeirra á
Sundahöfn. Fyrir borgarstjórnar
kosningarnar 1966 var það eitt
að ail g agnrýnisiefni Fraimsókn ar-
manna að þá skyldi bygging
Sundahafnar ekki verið hafin og
eitt mieigimiaitriðið í þeiima sietfnu-
skrá þá var bygging Sunda-
hafnar. Þá sögðu Framsóknar-
menn já-já, þegar um Sunda-
höfn var rætt, nú segja Fram-
sóknarmenn nei-nei.
En það er fleira en merkileg-
ar framkvæmdir af ýmsu tagi,
sem einkennt hafa störf Sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn. Við
höfum lagt aukna áherzlu á það
mannlíf, sem hér er lifað. Hið
Framhald á bls. 18
Lít á mig
sem full-
trúa fólks-
ins í borg-
inni
sagði Sigurlaug Bjarna-
dóttir í sjónvarpsumræð-
um.
SIGURLAUG Bjarnadóttir,
sem skipar 3. sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík var í hópi þeirra,
sem þátt tóku í sjónvarps-
umræðunum sl. sunnudag.
Hún ræddi þar m.a. málefni
kvenna og sagði síðan: „En
hvað sem líður aukinni
menntun kvenna og vinnu
þeirra utan heimilis, þá
skulum við varast að gera
lítið úr starfi húsmóðurinn-
ar í samanburði við önnur
störf. Sannarlega er sú kona,
sem í kyrrþey sinnir sínu hús
móður- og móðurhlutverki af
trúmennsku og árvekni og
skilar þjóðfélaginu traustum
og heilbrigðum samfélags-
þegnum, engu síður lofs- og
virðingarverð en hin sem
stendur í ströngu á opinber-
um vettvangi og fær mörgu
góðu áorkað. Sannleikurinn
er auðvitað sá, að heimilið og
fjölskyldan hlýtur enn sem
fyrr að vera undirstaða þjóð-
félagsins.“ Hér fer á eftir
ræða Sigrlaugar Bjarnadótt-
ur í megindráttum:
Það er sagt, að almenningur
sé orðinn þreyttur og leiður á
stjómmálum, — vilji helzt leiða
þau hjá sér, sem eitthvað óþarft
og óviðkomiandi venjulegu fólki.
Ég held því miður, að þetta við-
horf sé sérstaklega algengt með-
al kvenna. Það liggur þó í aug-
um uppi, að vilji konur njóta í
verki þeirra sjálfsögðu réttinda,
sem þær hafa öðlazt í orði
kveðnu, þá dugar þeim ekki að
draga sig sífellt inn í þægilega
skel áhuga- og afskiptaleysis
um það sem er að gerast í kring-
um þær í þjóðfélaginu. Sé þar
sitthvað, sem við teljum spillt og
rotið, færist okkur ólíkt mann-
legar að reyna, sem ábyrgir
þjóðfélagsþegnar, að hafa þar
einhver áhrif til bóta, fremur en
að þegja og halda að okkur
höndum.
Framhald á bls. 24
Kjósið
eins og
sannfær-
ingin
býður
ykkur
— en myndið ykkur sjálf-
stæða skoðun, sagði Kristj-
án J. Gunnarsson í sjón-
varpsumræðunum.
„KJÓSIÐ bara eins og sann-
færing ykkar býður ykkur —
en þá skuluð þið líka mynda
ykkur sjálfstæða skoðun og
ráðgast við sannfæringu ykk-
ar eina. . . . En hver sá, sem
gefur sundruðu flokkunum
atkvæði sitt, ætti að þessu
sinni ekki að treysta því, að
Sjálfstæðismenn fái meiri-
hluta þrátt fyrir það, heldur
búast við þeirri uppskeru
glundroðans, sem til var
sáð.“ Þannig komst Kristján
J. Gunnarsson að orði í sjón-
varpsumræðunum í fyrra-
kvöld og hann sagði enn-
fremur:
Ókosturinn við það, að koma
fram í sjónvarpi er sá, að maður
sér ekki þann, sem við er talað.
Þess vegna ætla ég að hugsa
mér, að ég sé kominn í heim-
sókn til ykkar inn á vistlegt og
niotalegt heimili, sem að ykkar
dómi er þó ef til vill alls ekki
fullkomið. Sennilega teljið þið
ykkur vanhaga um ýmsa hluti,
jafnvel þá, sem til nauðsynja má
telja. En þannig verður það
ávallt, að heimili byggitst upp
smám sarnan eftir því, sem efni
og ástæður leyfa.
Sama máli gegnir um borgina,
sem við byggjum og er eins kon-
ar heimili okkar allra. Hún veit
ir okkur mörg þægindd og þjón-
ustu. En hún er ekki fullkomin.
Margt skortir, jafnvel sumt, sem
teljast má til nauðsynja. En
haldið er áfram að byggja hana
upp smám saman, eftir því, sem
efni leyfa. Þó verður því verki
aldrei lokið, því að fyrir hvert
leyst verkefni, hefir anoað til
orðið. Borg verður ekki byggð
á einum degi.
Framhald á bls. 23