Morgunblaðið - 26.05.1970, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.05.1970, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1070 tuitUfrnÍAkó HJE R R A D E I L D Sumarnámskeið fyrir börn Fræðsluráð Reykjavíkur hefur ákveðið að efna til sumarnám- skeiða fyrir börn, sem nú eru í 4., 5. og 6. bekk barnaskólanna í Reykjavík. Námskeiðin verða tvö og standa í 4 vikur hvort. Hið fyrra stendur frá 2. júní til 26. júní, en hið síðara frá 29. júní til 24. júlí. Daglegur kennslutlmi hvers nemanda verður 3 klst., frá kl. 9—12 eða 13—16. Kennt verður 5 daga í viku. Kennslustaðir verða Breiðagerðisskóli og Laugarnesskóli og fleiri skólar, ef þörf krefur. Verkefni námskeiðanna verða: Föndur, íþróttir og leikir, hjálp í viðlögum, umferðarfræðsla, náttúruskoðun, kynning á borginni, heimsóknir í söfn, leiðbein- ingar um ferðalög o. fl. Námskeiðsgjald er kr. 500,00 og greiðist við innritun. Föndurefni innifalið. Innritun fer fram í Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, Tjarnar- götu 12, dagana 27. og 28. maí n.k. kl. 16—19. Fræðslustjórinn í Reykjavík. HVERFISsKrifstofur í ReyKjavík Starfandi eru á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna og hverfissamtaka Sjálfstæðismanna í Reykjavík eftir- taldar hverfisskrifstofur. Eru skrifstofurnar opnar frá kl. 4 og fram á kvöld. Að jafnaði verða einhverjir af frambjóð- endum Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningamar til viðtals á hverri skrifstofu daglega milti kl. 6 og 7 sið- degis eða á öðrum tíma, sem sérstaklega kann að verða óskað eftir. Vesturbæjar- og Miðbæjarhverfi: Vesturgata 17 A (bakhús) símar: 26598—26789. (Að auki opið alla virka daga frá 9—12 f.h.) Nes- og Melahverfi: Reynimel 22 (bílskúr), sími 26736. Austurbæjar- og Norðurmýrarhverfi: Freyjugötu 15 (jarðhæð) sími: 26597. Hlíða- og Holtahverfi: Laugavegi 170—172 (Hekluhúsið) II. hæð sími: 26436. Laugarneshverfi: Sundlaugavegi 12 sími: 81249. Langhofts- Voga- og Heimahverfi: Elliðaárvogi 117 (Lystadún) sími: 81724. Háaleitishverfi: Háaleitisbraut 58—60 (h/Hermanni Ragnars) sími: 83684. Smáíbúða- Bústaða- og Fossvogshverfi: Háaleitisbraut 58—60 (h/Hermanni Ragnars) simi: 84449 Árbæjarhverfi: Hraunoær 102 (v/verzlunarmiðstöð Halla Þórarins) simi: 83936. I • • , Breiðholtshverfi: Víkurbakka 12, sími: 84637. Stuðningsfólk D-listans er hvatt til að snúa sér til hverfis- skrífstofanna og gefa upplýsingar, sem að gagni geta komið í kosningunum, svo sem upplýsingar um fólk sem er eða verður fiarverandi á kjördag o.s.frv. — Birgir ísl. Framhald af bls. 12 mikla félagsmálastarf ber þe»s glöggt vitni, en aðalmarkmið þess er að styðja hvern einstakl- ing til sj álfsbj argar. Reykjavík er líka vaxandi borg — og hefur stækkað og dafnað á kjörtímabilinu. Bezti vitnisburður um það eru hiraar miklu íbúðabyggingax í borg- inni. Á s.l. fjórum árum hafa ver ið byggðar í Reykjavík 3127 íbúðir. Þegar tekið er tillit til, hversu margir búa í hverri íbúð að meðaltali, hafa hér ver- ið byggðar íbúðir fyrir alla íbúa Akureyrar eða alla íbúa Kópa- voga — eða allt það fólk, sem býr í kaupstöðunum: ísafirði, Sauðárkróki, ólafsfirði, Húsa- vík, Neskaupstað. Þetta eru íbúðir fyrir rúmlega 11.000 mannis. í svo vaxandi borg hlýtur margt að vera ógert og auðvelt er að benda á óleyst verkefni. Við Sjálfstæðismenn gerum okk ur fyllilega grein fyrir því. Hitt viðurkennum við líka, að margt hefði mátt betur fara. Það er mannlegt að skjátlast og sú regla á við um okkur eins og aðra og vafalaust hefðum við gert ýmis- legt á annan hátt, ef við þá hefð um séð hlutina í því ljósi, sem við sjáum þá í nú. Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Það þekkj- um við öll úr daglega lífinu. Við Sjálfstæðismenn leggjum spilin á borðið. Geir Hallgríms- son, borgarstjóri, hefur lýst því yfir að hann muni standa og falla með störfum sínum og þess meirihluta, sem hann hefur stutt. Þetta er heiðarleg og drengileg afstaða og í fullu samræmi við leilkreglur lýðræðisiina. Þesisi af- staða er í rauninni sprottin upp úr þeirri bylgju, sem risið hefur meðal ungs fólks í stjórnmálum, sem krefst þess að stjórnmála- menn segi hug sinn allan. Geri borgurunum þess fulla grein fyrir kosningar, hvaða afstöðu þeir muni taka eftir kosningar og að stjómmálamenn eigi að þora að standa og falla með stefnu sínni og störfum. Borgarbúar vita því að öllu leyti að hverju þeir ganga, að því er okkur Sjálfstæðismenn varðar. Borgarbúar geta því val ið á milli opinnar og hreinskil- innar afstöðu Sjálfstæðismanna eða valið eitthvað annað, sem enginn veit hvað verður. Andstæðingar okkar, sem nú eru klofnir í fimm andstæðar fylkingar vilja ekki segja okk- ur fyrir kosningar, hvernig þeir muni stjóma. Þeir vilja t.d. ekki segja okkur, hver verða eigi borg arstjóri, ef flokkarnir fimm fái völdin. ,,Það fáið þið, góðir kjós- endur, að vita eftir kosningar," segja þessir menn. Þeir segja að vísu sumir með óljósum orðum að boTgarisitjóraembættið eigi að auglýsa og sá hæfasti eigi að fá stöðuna. Trúi því hver sem trúa vill, t.d. eftir síðustu afrek Alþýðuflokksins í embættaveit- ingum, að sú myndi verða raun- in á. Sumir láta líka að því liggja að rétt sé að fjölga borg- arstjórum og hver flokkur eigi að fá sinn borgarstj óra. En hvað sem þessu líður. Um þetta fáum við ekkert að vita hvorki við hér í sjónvarpssal, né þið sem við tækin sitjið. — Ekki fyrr en eftir kosningar. Annars á borgarstjóri ekki að falla slétt og fellt inn í embætt- ismannakerfið, þannig að hann þurfi að hneygja sig í átt til allra flokka við hvert skref. Borgarstjóri á að standa í farar- broddi og hafa frumkvæði, bæði um stefnumótun og framkvæmd- ir. Hann á því að vera foringi, á sama hátt og Geir Hallgríms- son hefur verið, en til þess að svo megi verða þarf hann að hafa samhentan meirihluta að baki. Þessar kosningar, sem nú verða háðar eru mjög tvísýnar. Við Sjálfstæðismenn höfum á kjörtíimabilinu ledtað eftir sem nánastri samvinnu við borgar- búa, t.d. í gegnum hverfafundi borgarstjóra, viðtalstíma borgar fulltrúa og víðtækt prófkjörvið undirbúning framboðslista. Við viljum að stefna okkar sé á hverj um tíma í samræmi við hug og vilja borgarbúa. Við viljum að stefna okkar sé sprottin upp úr kviku borgarlífsins, en byggð á grundvelli hugsjóna oklkaT, sem eru frelsi og sjálfstæði hvers einstaklings í þjóðfélaginu. í þeim anda munum við áfram starfa, ef þið viljið veita okkur bráutargengi á sunnudaginn kemur. Kaupiélag vestanlands vill ráða vanan bókara, sem getur unnið sjálfstætt. Upplýsingar gefur Gunnar Grímsson starfsmannastjóri S.i.S. STARFSMANNAHALD S.i.S. Tilboð óskast í Ford Fairlane 1965, skemmdan eftir árekstur. Bifreiðin er til sýnis á bílaverkstæði Árna Gíslasonar, Dugguvogi 23 í dag og næstu daga. Tilboð skulu berast tjónadeild Hagtryggingar fyrir 29. þ.m. Hárgrciðslu- og snyrtistofa til siilu Hárgreiðslustofa Austurbæjar, Laugavegi 13 er til sölu, nú þegar með öllu tilheyrandi. Einnig kæmi til greina að selja eitthvað af þurrkum og stólum, stakt. Upplýsingar á staðnum (ekki í síma). Baðherbergisskápar Fallegir, vandaðir, nýtízkulegir r 1 LUDVIG STORR É* J Laugavegi 15, sími 1-33-33. -------------TILBOÐ------------------ Einbýlishús, 162 fm. og 38 fm. bílskúr, í Hafnarfirði, er falt þannig: Kaupverðið sé kr. 2.100.000.—, er greiðist þannig: 1. Við undirritun samnings kr. 300.000.— 2. Hinn 1. sept.—1. okt. 1970 kr. 300.000.— 3. Hinn 1. febrúar 1971. kr. 200.000.— 4. Kaupandi yfirtekur lán (hagstæð) ca. kr. 980.000.— 5. Með 10 ára skuldabréfi 7% vexti ca. kr. 320.000.— Alls kr. 2.100.000.— Húsið er ekki alveg fullgert, en vel íbúðarhæft. í húsinu eru 5 svefn- herbergi, baðherbergi og sjónvarpsherbergi, sér á gangi, og stofa, borð- stofa, eldhús o. fl. FASTEIGNAÞJÓNUSTAN Austurstræti 17, sími 26600.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.