Morgunblaðið - 26.05.1970, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1970
BJALFBODALIflAR
A
KJÖRDAG
D-listann vantar fólk til margvíslegra sjálfboðastarfa á kjör-
dag. Sérstaklega vantar fólk til starfa, sem fulltrúar listans
í kjördeildum auk margvíslegra annarra starfa.
Þeir sem vilja leggja D-listanum lið með starfskröftum sínum
á kjördag hringi vinsamlegast i síma 25980, Valhöll.
Skráning fer einnig fram á skrifstofum hverfasamtakanna.
- LISTINN
Stúlka
Hreinleg og ábyggileg stúil.a getur fengið atvinnu við af-
greiðslustörf strax í sérverzlun í Miðænum.
Umsóknir má senda í afgreiðslu Morgunblaðsins merktar:
„H — 5272".
Nýleg íbúð óshost til koups
Vil kaupa nú þegar 4ra herbergja (2 stofur) nýtízkulega íbúð,
helzt i Mið- eða Vesturborginni. Þarf að vera laus fyrir 15. júní
n.k. 1. eða 2. hæð æskilegust.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 30. þessa mánaðar merkt:
,MIKIL 0TBORGUN — 5416".
Flugu getið þér drepið
en VOLKSWACEN ekki
Margir hafa reynt
. . . en ekki tekist
HVERSVEGNA?
Vegna, þess að VOLKSWAGEN er ekkert
tízkufyrirbæri . . . Árviss reynsla og tækni-
þróun, án útlitsbreytinga hefir gert hann
að öruggri fjárfestingu og þeim bíl . . . sem
jafnvel afi og amma þekkja, pabbinn vill
eignast, mamma vill keyra og börnin kalla
ekki bíl, heldur
. . . VOLKSWACEN . . .
Kynnið yður verð varahluta-
og viðgerðaþjónustu.
VOLKSWAGEN er einmitt
framleiddur fyrir yður
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
— Sigurlaug
Framhald af bls. 12
Allt okkar stjórnmálastarf
þyrfti aið opnast til virkari þátt-
töku og áhrifa almennings —
kvenna sem karla. Skoðanahöft
og flokksræði að víkja að sama
skapi. Sjálf lít ég á mig sem
væntanlegan fulltrúa í borgar-
stjórn, ekki fynst og fremst
sem fulltrúa ákveðina stjórn-
málaflokks, heldur sem f-ull-
trúa fólksins í borgimni, og
sem slík mun ég reyna mitt bezta
til að verða að einhverju liði,
hvað sem allxi pólitík líður.
Hverafundir Geirs Hallgríms-
sonar borgarstjóra á þessu
síðasta kjörtímabili eru tví-
mælalaust spor í rétta
átt til að skapa aukin tengsl
milli borgarstjórnar og borgar-
búa — og í fulliu samræmi við
þau lýðræðislegu og frjáislyndu
viðhorf sem Sjálfstæðisflokkur-
inn befur umfram aðra íslenzka
stjórnmálafldkka.
Ég held, að borgarfulltrúum
öllum væri ómetanlegur styrkur
að því í starfi sínu að vera í sem
nánustu sambandi við hina al-
mennu borgara, og ég verð að
segja, að ein bezta hvatning, sem
ég hef fengið í þessari kosninga
baráttu hingað til, var, er ég hitti
um 15 ungar húsmæður inni 1
Breiðholtshverfi rétt fyrir Hvíta
sunnuhelgina. Þær höfðu gert
sér það ómak, mitt í hátíðaönn-
unum að koma til móts við mig,
er mín var von í stutta heim-
sókn á hverfaskrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins til að spjalla við
mig um sín vandamál, — barna
gæzlu, skóla, verzlunaraðstöðu
og sitthvað fleira. Þama voru
greinilega á ferð vandamál og
erfiðleikar borgarhverfis í upp-
byggingu, en nú eru liðin um
það bil tvö ár, síðan fyrstu íbú-
axnir fluttu í hverfið. Og þarna
er hreyfing á hlutunum. Malbikun
aðalgötunnar er að hefjast,
sömuleiðis framkvæmdir við
byggingu leikskóla og síðan dag
heimilis, annar áfangi barna og
unglingaskóla í smíðum, með
íþróttahúsi og aðstöðu til heil-
brigðisþjónustu, þriðji áfangi
væntanlegur á næsta ári.
TIL MECRUNAR
Viljið þér grennast um mitti, mjaðmir eða læri? Hafið þér
of slappan barm? Kynnið yður bls. 11 í ALT FOR DAMERNE
Nr. 18 HYPNG-TWIST fæst hjá oss.
.......................HMMNk.
iiiMHlmiH.
iiiiiitmimi.
lliiimmiimi
iiiliiiiniiiiiii
•ttimittitmm
nmmimiMM
IHIIIIIIINIIIH
•imtmmiH*
iiiiimiiini'
tmtmm*
GBfiBtóyfflB-M
SiMAR: 30288 322SZ
UTAVER
Vinyl veggfóður
Veggfóður við allra hæfi.
Glæsilegir litir.
fyrsta flokks blöndunartæki
handlaugina
BÁS 49
á sýningunni
„Veröld
mnan
veggja
NEPTÚN — blöndunartæki
með loftblandara og einni still-
ingu fyrir rennsli og hitastig.
Handfangið er hitaeinangrað með
ACRYL.
STJORNU
BLÖNDUNARTÆKI
MARIIVÓ
PÉTUItSSOJV
HEILDVERZLUN - HAFNARSTRÆTt 8 - SlMI 17121
Sá ég ekki þama í hnotskum
hina stórkostlegu uppbyggingu
Reykjavíkur, sem á ævintýra-
lega skömmum tíma hefur
breytt henni úr fátæku þorpi í
glæsilega nútímaborg? Og sá ég
ekki þarna verðuga fulltrúa hins
þróttmikla unga fólks, sem að
yfirgnæfandi meirihluta byggir
þessi nýju hverfi? Fólks,
sem vill í krafti eigin viðleitni
hyggja upp framtíð sína með
fulltingi ábyrgra borgaryfir-
valda.
Já, auðvitað vantar enn margt
í Reykjavík, þrátt fyrir allt sem
þegar hefur verið gert. Það er
t.d. enginn vafi á því, að nýtt
átak þarf að gera í byggingu
leikskóla og sérstaklega dagheim
ila til að svara vaxandi eftir-
spum, en á þessu og næsta ári
verða byggðir í borginni þrír
nýir leikskólar og tvö dagheim-
ili, en fyrir eru tíu dagheimili og
ellefu leikskólar, auik 27 gæzlu-
leikvalla og fjölda opirana leik-
svæða.
En hvað sem iíður aukinni
menntun kvenna og vinnu þeirra
utan heimilis, þá skulum við
varast að gera lítið úr starfi hús
móðurinnar í samanburði við
önnur störf. Sannarlega er sú
kona, sem í kyrrþey sinnir sínu
húsmóður og móðurhlutverki af
trúmíennsku og árvekni, og skilar
þjóðfélaginu traustum og heil-
brigðum samfélagsþegnum, engu
síður lofs- og virðingarverð en
hin sem stendur í ströngu á op-
inberum vettvangi og fær
mörgu góðu áorkað. Sannleikur-
inn er auðvitað sá, að heimilið
og fjölskyldan hlýtur enn sem
fyrr að vera undirstaða þjóðfé-
lagsinis. Bili sú undirstaða, er
voðinn vís, og ég verð hrein-
lega að játa, að á meðan fjölg-
un mannkynsins fer ekki fram í
tilraunaglösum, — þá vefst fyrir
mér að skilja, hvernig komizt
verði hjá vissri verkaskiptingu
milli karla og kvenna.
Félagsmál borgarinnar eru i
nýsköpun og margar merkilegar
hugmyndir og framkvæmdir á
döfinni. Ég gæti aðeins
nefnt nýtt fóstrunarkerfi á
einkaheimilum og aukna fjöl-
skylduvemd, stórbætta félags-
lega aðstöðu unglinga — og
aldraðra með tilkomu Tónabæj-
ar, stofnun mæðraheimilis skipu
lagða heimilishjálp — svo fátt
eitt sé nefnt.
Öll þessi mál ásamt ýmsum
mikilvægum umbótum í skóla-
málum borgarinnar, aukinni sál
fræðiþjónustu, stofnun tilrauna-
skóla, stofnun skólabókasafna,
verða áfram meðal meginverk-
efna næstu borgarstjómar. Og
takið eftir því, að nærri allt þetta
er þjónusta sem Reykjavík býð-
ur íbúum sínum, fram yfir önnur
sveitarfélög!
Góðir samborgarar. Það hve
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi
haldið meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur byggist auðvitað á
því að meirihluti reykvískra
borgara hefir treyst honum til
að gegna þar forystuhlutverki.
Traust virkar alltaf sem hvatn-
ing til að reynast traustsins verð
ur og svo mun reynast enn sem
hingað til, að ný traustsyfirlýs-
ing ykkar mundi verða okkur
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins
ný hvatning til að leggja okkur
alla fram við að vinna jafn vel
og enn betur en áður — að vel-
ferð allra Reykvíkinga, hvar
seim þeir í flokki standa.
Ef þið, hvert og eitt ykkar,
látið ábyrgðartilfinningu og dóm
greind ráða atkvæði ykkar í
þessum kosningum, — þá er ég
bjartsýn um úrslitin.