Morgunblaðið - 26.05.1970, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 26.05.1970, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1970 21 — Ólafur B. Framhald af bls. 12 ur hún breytzt úr litlum og fá- tækum bæ í borg með 5 földum íbúafjölda, þar sem 75% íbúanna býr í eigin húsnæði, þar sem 96% íbúanma hita hús sín og íbúð ir með vatni úr hitaveitu og þar sem 76% allra gatna hafa verið malbikaðar eða steyptar. Ég minnist á þessar staðreynd ir hér til þess að leggja áherzlu á, að verkefnin hafa verið mörg og að mikið hefur áunnizt. Sá árangur, sem náðst hefur, hefur vissulega byggst á dugnaði ykk ar sem búið í borginni, því þið hafið lagt fram það fé, sem gert hefur framkvæmdir þessar mögulegar, en samhent og ábyrg stjórn borgarmálefna hef- ur líka ráðið miklu. Og vitneskj an uim það gerir okkur Sjálfstæð ismönnum auðvelt að biðja nú um umboð ykkar til þess að halda starfimu áfram. Því þótt mikið hafi áunnizt er þó enn margt, sem þarf að gera. Reykja vík er í örum vexti og verkleg- ar framkvæmdir kalla víða að. í vaxandi borg þarf að sjá fyrir nægilega mörgum byggingalóð- um á hverjum tíma, skipuleggja þarf ný hverfi og halda verður áfram að fegra og snyrta borg- ina. Jafnframt slíku starfi, verð- ur borgarstjóm að hvetja og örva atvinnulífið í borginnd, og tryggja þannig íbúum hennar góða afkomu. En hlutverk borgarstjórnar er annað og meira en mannvirkja- gerð. Hún verður að láta sig varða það líf, sem lifað er í borg- inn'i. Þeisis vegna viljum við Sjálf- stæðismenn leggja vaxandi áherzlu á þá þætti borgarmál- efna, sem beinlíns varða það fólk, sem í borginni býr. Því skipa félags- og menntamál veg- legain sess í stefmuskrá okfk- ar fyrir þessar kosningar. Mál- efni hinna öldruðu svo og æsku- lýðsmál teljast til þessa mála- flokks og þótt þar hafi ýmislegt verið aðhafst viljum við þó gera betur. Auk 90 íbúða, sem nú eru í smíðum og ætlaðar öldruðu fólki, er í byggingú hjúkrunar- heimili fyrir 72 vistmenn við Grensásveg og ætlaður hefur ver ið staður fyrir næsta áfanga íbúcSabygginga fyrir aldraða. Stefna okkar í æskulýðsmálum er að efla og styðja félags og tómstundastarf ungs fólks — fyrst og fremst þau félög sem fyrir hendi eru, en jafnframt er Æsku.lýðsráði ReykjavSkur ætlað að annast viðfangsefni, sem ekki eru á stefnuskrá annarra, eða aðrir hafa ekki bolmagn til þess að annast. Enginn vafi er á því, að fjölbreytt og hollt tómstunda starf unglinga er meðal mikil- vægustu viðfangsefna í borginni því í slíku starfi er fólgin bezta vörnin gegn ýmsum þeim vanda- málum, sem fest hafa rætur í er- lendum stórborgum. Ég segi 'Stórborgum — því þótt íbúa- fjöldi Reykjavíkur sé ekki hár á erlendan mælikvarða þá öðlast þó borgin með degi hverjum fleiri og fleiri einkenni hinnar alþjóðlegu stórborgar. Þetta er þróun, sem enginn fær við ráðið — hvort sem okkur líkar betur eða verr — aðeins afleiðing af stöðu borgarinnar sem höfuð- borgar frjáls og fullvalda ríkis, sem býr þegnum sínum gott lífs- viðurværi. En einmitt þess vegna er stjórnendum borgarinniar mik ill vandi á höndum. Hvemig eig- um við að varðveita hið frið. sæla og viðkunnanlega andrúms- loft, sem einkemnt hefur Reykja vík. Hvernig eigum við að vernda borgina gegn hinni ógn- vekjandi hættu á mengun lofts og lagar — fylgifiskum hins iðn- vædda velferðarríkis. Þessum vandamálum viljum við Sjálfatiæðiemiemin giefa gaiuim meðan enn er tími til. Ég gæti haldið áfram að telja upp ýmsa málaflokka, en til þess er ekki tími nú. í þeirri kosnimgabaráttu, sem nú er háð, munu andstæðingar oikikar Sjáifstæðismainna segja við ykkur, að Reykjavík hafi verið illa stjórnað. Þið sjálf, fólkið sem býr í borginni, og mörg hver hafið fylgst með henni og séð hana vaxa í ára- tugi, eruð bezt dómbær um það. Finnst ykkur að borgin beri um- merki lélegrar stjómar — ef svo er munuð þið greiða atkvæði gegn D-listanum á sunnudaginn kemur — en séuð þið hins vegar þeirrar skoðunar að Reykjavík eins og við þekkjum hana nú, sé lífvænleg og fögur borg, sem þið áfram munið kjósa ykkur að dvalarstað, veitið þá Sjálfstæðis mönnum umboð ykkar á ný til þess að stjóma borginni og gera hana að enn betri borg. Síðustu orðum vil ég beina til ykkar ungir kjósendur. Þið eruð 7290 sem gangið nú að kjörborð- inu í fyrsta sinn. Ég vil óska ykkur til hamingju með þennan áfanga í lífi ykkar og vona og treysti að við getum átt góða samvinnu um hagsmunamál Reykjavíkur í framtíðinni. — Afmæli Framhald af bls. 13 gekk daglega t.i kinda sinna. Þar er góð vetrarbeiit, en minnst klukkutíma gangur frá Miðhús- um. Sumarið 1918 seldi hann all- an kindastofn sinn, svo og ýms ar aðrar reytur austur þar og fluttist áuður, eins og áður er sagt. Erlendur bóndi á Vatns- leysu sagði mér einhverju sinni, að þar hefðu forlögin verið Magnúsi hliðholl, því að næsta vetur, snjóaveturinn 1919, fyllt- ist allt Úthlíðarhraun af snjó og alla beit þraut. Hefði það að sjálf sögðu verið honum mikill skaði, þótt það á engan hátt hefði yfir- bugað hann eða orðið honum þröskuldur á leið sinni til efna- hagslegrar velsældar, enda var vinnudagur hans oft á tíðum lengri en auðvelt er að trúa mið að við, hversu vel hann ber ald ur sinn. Að vísu hefur hann nú síðustu ár hætt erfiðisvinnu vegna sjúkdóms, sem hann ber, eins og honum er eiginlegt. Ef ég vissi ekki betur, mundi ég trúa, að ég væri að skrifa um hann 65 ára, en ekki 75. Við, sem höfum borið gætfu til að kynnast honum, tökum í hönd hans á þessum merkisdegi í lífi hans, þökkum honum góða við- kynnin.gu, stuðning og uppörvun og gleðjumst þeim mun meir með honum í dag. Ekki má gleyma hinni ágætu eiginkonu hans, sem á sinn þátt í þeirri reisn og menningu, sem einkennt hefur heimili þeirra hjóna alla tíð. Heill sé þér Magnús, á þessum mer'kisdegi, og megi gæfan fylgja ykkur hjónum áfram, sem fyrr, og þið njóta langm daga og góðra. Magnús verður í kvold stadd u'r á heimili dóttur sinnar að Háa leitisbraut 42. Benedikt Bogason. Kvenveski stolið STOLIÐ var úr verzlun við Lauigaveg í gær kveiniveski. Kona kom inm í búðina og gerði sig líkiega til þess að kaupa iamp'a. Afgreiðsluigtúlkan fór augnaiblik frá til þess að ná í lampainin í g'eymslu baka til í verzluninmi, og er hún kom aftur fram, var veski heninar horfið og konam ií'ka. I veekimu voru 5000 krónur. — Það er bagailegt við tjón stúllk- urnnair, að penimiga'rnir voru ætlað ir til kaupa á blómuim á kistu móðux hennair, sem er nýlátin og skorar því ranmsóknarl'ögreglan á fconuna, sem tók veskið, að koma því ásamt peninigumuim til slkila. xD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.