Morgunblaðið - 17.07.1970, Page 24
24
MOBiGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUB 17. JÚIÍ 1*70
Til sölu
hjólbarðasuðuvélar.
Upplýsingar í síma 1379 Akranesi.
mm bjabu og bljömsveit
ásamt
OG FL. O. FL. O. FL. O. FL. O. FL. O. FL.
SÖNGUP., GRÍN OG GLEfil
Borðpantanir í síma 20221 eftir kl. 4.
Enginn sérstakur aðgangseyrir.
Aðeins rúllugjald kr. 25.—
Góða skemmlun
Dansað til kl. 1.
NÝTT — NÝTT — NÝTT — XÝTT
Ílvi'OLD í KVOLD ÍKVÖID ÍKVOLD ÍKVOLD
Þættir og lífsmyndir
í nýútkominni Skagfirðingabók
Komið er út ársrit Sögiifélags
Skagfirffinga, fjórði árgangnr,
undir ritstjórn þeirra Hannesar
Péturssonar, Kristmundar
Bjarnasonar og Signrjóns Bjöms
sonar. Efni ritsins er fjölbreytt
á rúmlega 2ðð blaðsíðum. Það
flytur þætti um menn og mál-
efni, staðarlýsingar og vísnr.
Skal þar nefnt: Sveimn Þor-
valdsson, skákmaður, eftir Hann
es Pétursson. Þáttur Mála-
Bjöms Illugasonar, eftir Kol-
bein Kristinsson. Villa á Geit-
húsmeium, eft:r Bjöm Egilsson.
Jón Gottskálksson, Skagamanna
skáld, eftir Sigurjón Bjömsson.
Merkigil í Austurdal, eftir Hjör
leif Kristinsson. Gfeli Haildórs-
son frá Hjaltastöðum, eftir Þor-
móð Sveinsson. Smáræði um
Gissur jarl dauðan, eftir Ög-
mund Helgason. Kvöld við Mið-
hlutará, eftir Sigurð Eiríksson.
Þáttur af Hallgrími Halldórs-
syni, eftir Jón N. Jónasson.
Minnzt nokkurra Reykstrend
inga, eftir Sigurjón Jónasson.
Gamlir dagar í Bjamastaðahlíð,
frásögn Guðrúnar Sveinsdóttur.
Halklór á Syðra-Hóli, eftir Jón
Jóhannesson. Frá Sölva Helga-
syni. Og loks nokkrar vísur.
Til gamans skal gripið niður
í þátt Mála-Bjöms Ulugasonar,
en frá honum eru komnar mikl-
ar ættir og margt þjóðkunnra
manna Nægir þar að telja af-
komendur Helgu Gunnlaugsdótt
ur sonardóttur Björns. Með fyrra
mamni sínum Guðmundi átti hún
Eimar bónda og alþingismann á
Hraunum, sem frá er komin stór
ætt. Með seinni manni sínum
Sveini Sveinssyni frá Haganesi
eignaðist Helga m.a dótfeirina
GunnJaugu, sem giftist Jóni
Antonssyni í Arnarnesi viðEyja
fjörð. Meðal bama þeirra: Mar-
grét, gíft Sigtryggi Benedikts-
syni frá Hvassafelli, Kristín,
gift Valtý Stefánssyni ritstjóra,
Jónína, gift Gunnari Schram sím
stjóra, Araton, kvæntur Margréti
Dregið hefur verið í Landshappdrætti
Rauða krossins.
Vinningurinn kom n nr. 5588
Rauði kross íslands.
Útboð
Landsbanki íslands óskar eflir tilboðum í nýbyggingu banka-
húss á Akranesi. Húsið er boðið út fokhelt og að fuilu frá-
gengið að utan.
Ötboðsgagna má vitja á Arkitektastofuna s.f.. Álftamýri 9
og á Verkfraeði- og teiknistofuna s.f., Skagabraut 35, Akra-
nesi. gegn kr. 3.000.— skilatryggingu.
Magnúsdóttur og Ámi, kvæntur
Þóm Stefánsdóttur frá Fagra-
skógi.
Ekki gefst hér kostur að rekja
nánar afkomendur Bjönna
Auknefni sitt dró Mála-Bjöm
af þvi að hann átti í allmiklum
málaferlum, m.a. var hann sak-
aður um að eiga hlut að hvarfi
Reynisstaðabræðra. Segir í
Þætti Mála-Björns allrækilega
frá málaferlunum og er vitnað
til réttarskjala þar um.
í niðurlagi þáttarins segir höf.
nokkrar smásögur, sem lýsa eiga
Bimi nokkru nánar og em þær
skemmtilegar. Sést giöggt af
þættinum að Mála-Bjöm hefir
verið mannkostamaður, hrein-
skiptinn, en harður i lund, hert-
ur í eldi óblíðrar lifsbaráttu frá
því að vera að dauða kominn
úr hungri i MóðuharðLndunum
og til þess að vera einn ríkasti
maður í Skagafirði. Þættinum
lýkur svo:
„Eitt sinn kom góðkunningi
Bjöms til hans að Hofstöðum.
Var það á síðustu árum Bjöms.
Sagði þá gesturinn, að Bimi
hefði flest til auðnu gengið á
langri ævi. Þá svaraði Bjöm:
„Nítján sinnum hef ég mætt fyr-
ir rétti ag hefir sjaldan unnizt
mikið á mér, en tuttugaista rétt-
arhaldið á ég eftir — og líklega
verður það erfiðast."
Ekki var Bimi tamt að fárast
eða hafa mörg orð um atburði þá,
er orðið höfðu þótt betra hefði
mátt kjósa. Þó gat haran þess, er
hann ræddi eitt sinn við góðvin
sinn á síðustu áram sínum, að
ætið væri sér hugstætt frá
Móðuharðindunum, er hann átti
lif sitt undir því komið að fá
athvarf og franjfærzlu hjá
bónda þeim, er hanm bað lið-
veizlu og áður er um getið. Taldi
hann sig iðra þess mjög, að hafa
ekki heldur kosið verganginn og
eiga þar með fullkomlega á
hættu að týna lífi sínu, en að
vama keppinaut sínum vistar-
innar. Það sagði hann að ylli sér
sárum sviða að hafa orðið til
þess að valda honum dauða.“
Skagfirðingabók er prentuð í
Prentsmiðjunni Odda.
TÓMSTUNDAHÚSIÐ
Laugavegi 164
Tjöld, tvílit, venjuleg og uppblásin.
Tjaldsúlur, allar tegundir.
Svefnpokar, vindsængur, tjalddýnur, tjaldborð með 4 stóluni, 2 gerðir.
TJALDSTÓLAR — GRILL, 5 gerðir — FOTTASETT.
GASSUÐUTÆKI — GASLUKTIR — GASHITARAR.
TIL VEIÐA:
VEIÐISTENGUR — VEIÐIHJÓL — VEIÐIKASSAR.
SILUNGSFLUGUR — LAXAFLU GUR — SPÚNAR.
TÓMSTUNDAHÚSIÐ
Laugavegi 164