Morgunblaðið - 28.07.1970, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2(8. JIJLÍ 1870
John Bcll
ÍNÆTUR
HITANUM
Sam kinkaði kolli. — Ég
stanza héma fimmtán mínútur
til að fá mér bita.
Áður en hamin kæmist lengra,
leysti Tibbs hann úr vandanum.
— Farðu bara og þú þarft ekk-
ert að flýta þér, sagði hann. Ég
bíð þín hérnia.
Þegar Sam var kominn inn í
krána, hélt sarmtzkan áfram að
angra hann. Hún hafði þegar
vaknað áðan, þegar hann breytti
um stefnu, sem út af fyrir sig
var lítilvægt, enda þótt það
væri gert í ákveðnum tilgangi,
en að skilja samferðamanninn
eftir — jafnvel þótt negri væri
— meðan maður sjálfur naut
góðgierða og tiLtöluiegra þæg-
inda, angraði Sam. Hann sneri
sér að Ralph. — útbúðu fyrir
mig samloku í bréfi, og köku-
bita. Og það er betra að láta
líka eina mjólkuröskju fylgja
og strá.
— Það er þó ekki handa
negralöggunmi? sagði Ralph. —
Ef svo er, höfum við þetta ekki
til.
Sam rétti sig upp í fulla hæð.
— Þegar ég segi þér að gera
eitthvað, hvæsti hann, — þá
gerirðu það. Til hvers ég ætla
þennan mat, kemur þér andskot
ann ekkert við.
Ralph gekk sýnilega saman
fyrir augnaráði Sams, en vildi
eamt ekki láta undan. — Hús-
bóndinn vill það ekki, sagði
hann.
— Fljótur nú! skipaði Sam.
Ralph hlýddi, með ólund þó.
Þegar Sam laigði dal á borðið,
hrinigdi hann kassanum og gaf
til baka, rétt eims og þetta væru
saurugir peningar. Og þegar
Sam var farinn út, slkældi hann
sig í framan og fussaði: Negra
slieikja! Það var sama, hvað það
kostaði: nú ætlaði hann að
segja húsbóndanum frá þessu.
Jlann var bæjarfulltrúi og Sam
Wood gætii ekki vafið honum
um fingur sér.
Þessi þvermóðska Ralphs hafði
engin áhrif á Sam, nema helzt
þau að friða samvizku hans of-
urlítið. Þegar hann rétti Virgil
Tibbs matinn, var bann hreyk-
inn af sjálifum sér. Hann ræsti
bílinn, ók eftir aðalweginum, at-
A-ugaðii úrið og heimti sín laun
um leið: bann var nákvæmlega
á mínútunni! Hann lagði bíLn-
um varLega þar sem hann hafði
fundið lWð, kveiíkti rauðu að-
vörunarljósin og beið.
— Jæja, hvað ertu nú stund-
vís? sagði Tibbs.
— Upp á mínútu, svaraði Sam.
— Þakka þér kærlega fyrir,
sagði Tibbs. Þú hefur hjálpað
mér mjög mikið og medra en
þér dettur í bug. Og þakka þér
ííka fyrir að útvega mér matar-
bita. Hann þagnaði til þess að
bíta í samlokuna og fá sér sopa
af mjólkinni.
En nú langar mig bara að
spyrja þig að einu: Hvers vegna
breyttirðu um stefnu, þegiar við
fórum yfir sporið, núna rétt fyr
ir skömmu?
». kafli.
Þegar Bill Gillespie frétti, að
Allar tegundir i útvarpstæki, vasaljós og leik-
föng alltaf fyrirliggjandi.
Aðeins í heildsölu til verzlana.
Fljót afgreiðsla.
HNITBERG HF.
Öldugötu 15, Rvik. — Simi 2 28 12.
hann hafði verið kosinn lögreglu
stjóri smábæjarins Wells, hafði
hann haldið það hátíðiegt með
þvi að kaupia sér nokkrar bæk-
ur um lögreglustjórn og rann-
sókn glæpamála. Fyrstu v'kum-
ar sem bann var þarna í Wells,
veittu þær honum talsvert mikil
vægi, enda þótt hann fengi eng-
an tíma til að lesa þær. Eftir
fund sinn við Ssihubert borgar-
stjóra, ásetti hann sér að fara
að kynna sér þær án tafar. Og
þegar hann hafði lokið kvöld-
verðinum og hafði gott næði, sett
ist hann í þæg legan stó.l, undir
góðum lampa og gerði alvar-
liega tiiraun til að kynna sér
efni bókanna.
Hann byrjaði á bók, sem hét
„Morðrannsóknir“, eftir Snyder.
Áður en hann var kominn langt,
rann það upp fyrr honum, að
býsna margt væri það nú, sem
hann vissi ekki — margt, sem
hann hefði átt að gera og ekki
gert. Það var nú til dæm sþetta
að skoða líkið. í stað þess að
rannsaka það nákvæmlega, hafðd
hiann rétt litið á það og síðan
farið bur.t. Og meira að segja
höfðu verið sjónarvottar að
þessu. En sem betur fór hötfðu
þe:r ekki haft neitt vit á því.
En þá mundii hann, að Vir.gil
Tibbs hafði verið þama við-
staddur. Og ekki nóg með það,
heldur hafði hann líka, þegar
honum var boðið uppá það, rann
sakað líkið nákvæmlega, enda
þótt áhugi hans hefði þegar hér
var komið sögu, verið aðeins
fræðileigur. Gillespie lagði frá
sér bókina og spennti gneipar
fyrir aftan hnakka. Einhver
sanngirni greip hann, aldrei
þessu vant, og hann játaði fyrir
sjálfum sér, að þarna hatfði negr
inn strax farið fram úr honum.
En þá fann hann, sér til gleði,
að enn gæti hann heimtað
skýrslu atf T.bbs um það, sem
hann væri búinn að komiast að,
og þannig fyllt upp í skarðið,
sem var í han.s eigin rannsókn-
um. Að vísu var það til fyrir-
stöðu, að þá mundi hann viður-
kenna, að Tibbs hefðd einhverja
'hæfileika til starfs síns. Gilles-
pie hugsaði málið andartak og
honum fannst þetta mundd ekki
verða otf dýru verðd keypt. Það
liti betur út ef hann spyrði um
þessia skýrslu, og það skyldi
hann gera., strax í fyrramálið.
Þegar hann loksins kornst í
rúmið, fannst honum kvöldinu
hafa verdð vel varið, og hann
var fljótur að sofna.
Eitthvað var etftir atf þessari
velliða.n, þegar hann vaknaði
um morguninn og meðan hann
nakaði sig, hugsaði hann út ým-
islegt sem gera þyrtfti. Þegar
hann kom í skrifstotfuna, beið
Eric Kaupmann þar ef.tir hon-
um. Gillespie visaðd honum til
Rólegur — rólegur, — ef þú ekki hittir þetta, þá er allt í
lagi því að það kem ur annað fast á eftir.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
I»ú ert ógurlega óþolinmóður í dag. Reyndu að lofa öðrum að
anda líka.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Einhverjir samstarfsmenn þínir eru fullir stríðni.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Þú hefur nægan tíma fyrir liádegi til að ganga frá öllum smá-
atriðum.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
í þeirri lægö, sem nú ríkir, skaltu reyna að taka upp þráðinn,
þar sem frá var horfið.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Það kemur eitthvað upp á teningnum, sem varðar starfsaðferðir.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Reyndu að halda stillingu þinni, meðan þú starfar að leiðindamáli.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þú verður spenntur og einhver ringulreið tefur þig.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Vertu fljótur til og ljúktu öllu því, sem nauðsynlegt er fyrir há-
degi.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Þetta er prýðilegur dagur til þess að reyna að koma skynsamleg-
um hugmyndum á framfæri.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Allt það fóllk, scm er þér kærast, er líklcgt til þess að gera
þér lífíð leitt. Oakktu hreint U1 verks í því að lagfæra þessi ósköp.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Ferðalög og fjarskipti eru þér hvergi nærri fullnægjandi.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Þú færð nægilega andstöðu til þess að ögra þér tU dáða.
wg
i* • _ u
TlZKUV.
UNGA
FÓLKSINS
TÝSGÖTU 1
SMI 12330.
<§> KARNABÆRi
FYRIR
VERZLUNARMANNA-
HELGI!!
DÖMUDEILD
★ SPORTJAKKAR
★GALLABUXUR
★ JERSEYBLÚSSUR
★ BOLIR
ir MINI — MIDI
MAXI-PEYSUR
ir KÖFLÓTTAR BUXUR
IIERRADEILD
★ SAFARI JAKKAR
★ SlÐAR PEYSUR
★ STUTTERMA
PEYSUR
★ BOLIR — SKYRTUR
★ SPORTBOLIR
★ TERYLENEBUXUR
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT.
I