Morgunblaðið - 30.09.1970, Page 15
MOKÖUNBLAiHD, MIÐV1K.UDAGUK 30. SEP'l’. Í970
15
Ætluðu að
ræna þotu
New York, 28. sept.
— NTB.
KARL og kona voru handtekin
á Kennedy-flugvelli við New
York á sunnudagskvöld er þau
ætluðu að stíga um borð í far-
þegaþotu frá brezka flugfélag-
inu BOAC, og reyndist parið
hafa í fórum sinum fjórar
skammbyssur og eina hand-
sprengju.
Lögregla flugvallarins telur
fullvíst að skötuhjúin hafi ætlað
að ræna þotunni, sem var á leið
til Tel Aviv í ísrael með við-
komu í London. Höfðu þau keypt
sér farseðla til London.
Bftirlitið á Kennedy-flugvelli
fann skammbyssurnar fjórar hjá
skötuhjúunum, og við nánari leit
fannst handsprengj an, sem kon-
an hafði fest á sig með límbandi
innan klæða. Eftir að vopnin
fundust var leitað á öllum karl-
farþegum þotunnar og allur far-
angur var skoðaður. Fékk þotan
ekki að hefja ferð sína fyrr en
að lokinni þeirri rannsókn.
BOAC-þotan var tveimur
London, 24. sept. — AP
BREZKA ballettdansmærin lafði
Margot Fonteyn sagði í dag að
hún væri ekkert farin að hugsa
um að leggja dansskóna á hill-
una. Fonteyn hefur dansað með
Rudolf Nureyev undanfarin ár
og eru þau frægasta ballettdans
par heims. Ýmsir höfðu haft orð
á því að Fonteyn myndi draga
sig í hlé og Natalía Marakova,
sem nýlega flúði frá Kirovball
ettinum kæmi í hennar stað.
klukkustundum á eftir áætlun, er
hún kom til London á mánudag.
Kom þá í ljós að bað hafði ver-
ið einn af öryggisvörðunum á
Kennedy-flugvelli, sem kom
upp um fyrirætlanir skötuhjú-
anna. Hafði hann tekið eftir því
að fötin fóru hjúunum einkenni-
lega, rétt eins og þau væru með
eitthvað grunsamlegt inn á aér.
Gerði hann lögreglumönnum að-
vart, og þeir handtóku pardð.
I New York var frá því skýrt
að skötuhjúin væru bæði banda-
rískir borgarar. Heitir hann
Gordon Ryder, en hún Nancy
Jane McGovern. Verða þau dreg-
in fyriir dóm í New York sökuð
um brot á nýjum lögum þar í
landi, er banna vopnaburð í
farþegaflugvélum.
Verzlunarstarf
17 ára stúlka með gagnfræðapróf og vön afgreiðslustörfum.
óskar eftir vinnu í verzlun.
Upplýsingar í síma 33756.
Atvinnurekendur
Reglusöm og dugleg 21 árs stúlka með gagnfræðapróf óskar
eftir framtíðarvinnu. Getur byrjað strax.
Upplýsingar í síma 41899.
Skóli úti á landi
óskar eftir að taka á leigu bifreið til daglegs aksturs ca.
20 skólabama í 7—8 mánuði.
Tilboð óskast sent til Morgunblaðsins fyrir 8. ágúst merkt:
„Skólaakstur — 2694".
DANSSKOLJ
Síðasta innritunarvika
Kleppsholt
Sund
Heimar
Vogar
Kennt verður
í safnaðarheimili Langholtssóknar
LAUGAVEGI 178.
Byrjenda- og framhalds-
flokkar fyrir börn, ungl-
inga og fullorðna (ein-
staklinga, pör og hjón).
STEPP, JAZZBALLETT.
Upprifjunartímar hálfs-
mánaðarlega fyrir hjón.
Munið sértímana 1
MENUET.
LES LANCIERS
og
GÖMLU
DÖNSUNUM.
TÁNINGAR
Allir nýjustu
Diskótek-dansarnir.
Innritun byrjenda- og framhalds-
flokka daglega.
Upplýsingar í síma 14081 kl, 10—
12 og 1—7 og 83260 kl. 2—7.
AKRANES — REIN
Innritun sunnudaginn 4. október kl.
1—4.
SELFOSS
Innritun laugardaginn 3. október kl.
1—4.
Kennsla fer fram í Selfossbíói.
ÁTLÁS
Skoðið
FR YSTIKIS TURN AR
Skoðið vel og sjáið muninn í
í. A4. tonlmí litnm fnrmí
Ytrabyrði og lok úrformbeygðu stóli, sem dregur ekki til sín ryk,
gerir samsetningarlista óþarfa og þrif auðveld. Hiti leiddur út með
ytrabyrði og botni til að hindra slaga. Ósamsettar frystipípur inn-
an við létthamrað ól-innrabyrði. Það er öruggast. Ný, þynnri en
betri einangrun veitir stóraukið geymslurými og meiri styrk. Sér-
stakt hraðfrystihólf og hraðfrystistilling, auk froststillis með örygg-
islampa, sem gefur tií kynna rétt kuidastig. Mikil frystigeta, langt
umfram kröfur gæðamatsstofnana. Hentugar körfur' og færanleg
skilrúm skapa röð og reglu ( geymslurýminu. Lok .með Ijósi og
Íafnvægislömum, sem gera það Tauflétt og halda því opnu, þann-
ig að allur umgangur um kistuna er frjóls og þægilegur. Lamir
leyfa stöðu fast við vegg. Það sparar rými, skemmir ekki vegginn
og er miklu fallegra. Þétt .segullokun og lykillæsing. Nylonskór
hlífa gólfi og auðvelda tilfærslu. Sterklega húðað lok ( borðhæð
veitir auka vinnuplóss. Og ekki spillir útlitið: Litasamsetning og
form eins og dönsk hönnun gerist bezt.
SÍMI 2 44 20 - SUÐURGÖTU 10
Berklavörn
hefur kaffisölu fyrir Hlífarsjóð á sunnu-
daginn.
Þeir sem vilja gefa kökur láti vita í síma
17399 og 24689.
Forskóli
fyrir prentnám
Verklegt forskólanám í prentiðnum hefst í Iðnskólanum
í Reykjavk, að öllu forfallalausu hinn 7. október n.k.
Forskóli þessi er ætlaður nemendum, er hafa hugsað sér að
hefja prentnám á næstunni og þeim, sem eru komnir að
í prentsmiðjum, en hafa ekki hafið skólanám.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu skólans í síðasta lagi
mánudaginn 5. október. Umsóknareyðublöð og aðrar upplýs-
ingar verða látnar í té á sama stað.
Iðnskólinn í Reykjavík.
blaðbíirðarYolk
*
OSKAST í eStirtolin hverfi
Freyjugötu 1-27 — Laufásveg 2-57
Laufásveg 58-79 — Lindargötu — Hátún
Skólavörðustíg — Hverfisgötu 1-64
Hverfisgötu 63-125 — Laugaveg 114-171
Suðurlandsbrauf — Barónstígur
Stórholt — Lynghagi
TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100