Morgunblaðið - 18.10.1970, Page 4

Morgunblaðið - 18.10.1970, Page 4
í- 28 MORG-UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 197« v’ Leila Khaled Frægasti flugvéla- ræningi arabiskra skæruliða lýsir fyrsta flugvélar- ráninu sínu.... ekkert eiga í þessu lífi, jókst mér á ný þrek og áræði. Hitt atvikið gerðist í bifreið- inni, sem flutti okkur út að þotunni. Við hlið mér sat mað- ur, og hann spurði hvaðan ég væri. Kvaðst ég vera frá Bolivíu. Sagði hann mér þá að hann væri griskur, og á heim- leið til Aþenu eftir 15 ára dvöl í Chicago, og að móðir hans, sem væri ekkja, ætlaði að taka á móti honum á flugvellinum. Þetta varð mér mikið áfall. Við sem ættuð erum frá Paiest- ínu vitum hvað það er að vera fjarri ættlandinu, og ég átti einnig móður, sem var ekkja og beið min heima. Hann hélt áfram að tala, en ég hlustaði ails ekki á hann. MORGUNVEEÐAEBAKKINN Vinur minn og ég sátum í klefa fyrsta farrýmis, því það er næst stjórnklefanum. En í þessari ferð voru aðeins fimm farþegar á fyrsta farrými, svo starfsfólkið þar var stöðugt að stjana í kring um okkur. Var það einmitt það, sem við sízt óskuðum. Stuttu eftir flugtak settumst við tvö í fremstu sætaröðina, jiæst dyrunum. Við afþökkuð- um bæði boðna drykki, og raunar smakka ég alls ekki áfengi. Við neituðum einnig ár- degisverði, því við vildum ekki að matarbakkar í kjöltum okk ar yrðu til trafala. En vegna furðu flugfreyjunnar, og til að vekja ekki of mikla athygli, bað ég um kaffibolla, en vin- ur minn um flösku af öli. auk þess sem hann bað um töflu til að gefa í skyn að honum liði ekki sem bezt. í>að reyndist erfiðara að losna frá starfsfólki fyrsta far- rýmis en við höfðum haldið. 1 stað árdegisverðar var komið með hjólaborð, sem á voru hlaðar af kökum og ávöxtum, og okkur til mikils hugarang- urs var borðinu stillt beint fyr ir framan okkur svo við gætum fengið okkur af krásunum eft- ir vild. Og borðið lokaði algjör- lega leiðinni að dyrum stjóm- klefans. Okkur hafði verið skipað að yfirtaka stjórn þot- unnar innan klukkustundar frá flugtaki i Róm þar sem flug- tíminn til Aþenu er aðeins hálf önnur klukkustund. Var nú tím inn að renna út. Við vildum ekki biðja flugfreyjuna að færa borðið, því það gat vakið grunsemdir. Loks flutti hún borðið óbeðin, og farþegi, sem setið hafði í sætinu næst dyr- unum, flutti sig einnig. Nú var leiðin opin, og við gátum kom- izt fram í stjórnklefann án þess að beita nokkrum hótun- um — en það bar okkur að forðast; þegar hræðsla grípur um sig, geta menn fundið upp á ótrúlegustu hlutum. Ég bað um teppi, og flug freyjan aðstoðaði mig við að vefja því um mig. Vinur minn horfði undrandi á mig, og svip- brigði hans gáfu til kynna að hann héldi að ótti hefði gripið mig. Til að róa hann náði ég í snyrtitösku mína og tók að greiða hár mitt. Því næst leit ég á úrið og gaf merki með fingrunum um að við létum'til skarar skríða eftir fimm minút- ur — en ég stjórnaði aðgerð- unum. Undir teppinu —- það var þess vegna sem ég bað um það — drð ég skammbyssu upp úr hliðartösku minni og stakk henni framan í buxnastrenginn. Einnig tók ég upp hand- sprengju og tók úr henni ör- yggispinnann. „ÞAÐ ER VERIÐ A» RÆNA OKKUR“ Einmitt þegar öllum undir- búningi var að verða lokið kom flugfreyja út úr stjórn- klefanum með bakka. Hurðin opnaðist út, og hélt flugfreyj- an henni opinni með olnbogan- um. Þetta tækifæri gripum við. Vinur minn skauzt fram fyrir flugfreyjuna og inn um dyrnar. Þegar flugfreyjan sá skamm- byssuna hans og handsprengju, hrópaði hún „ó nei!“ og fieygði frá sér bakkanum. Á leiðinni fram í stjórnklef- ann hrópaði vinur minn hátt: „Hreyfið ykkur ekki. Þið fáið fyrirskipanir frá nýja flugstjór anum ykkar.“ Um leið heyrði hann flugstjórann tilkynna I talstöð þotunnar: „Tveir vopn aðir menn eru að ryðjast inn i stjórnklefann. Það er verið að ræna okkur.“ Hlutverk mitt við töku flug- vélarinnar var að standa við dyrnar að stjórnklefanum, snúa að farþegunum og hafa eftirlit með þeim með aðstoð skammbyssunnar og hand- sprengjunnar. En þegar ég stóð upp með handsprengjuna í annarri hendinni og ætlaði að draga upp skammbyssuna, fann ég hana renna niður eftir buxnaskálminni. Ég hafði ekk- ert borðað í heilan sólarhring, svo buxurnar voru orðnar nokkuð rúmar. Mér fannst svo fyndið að þetta skyldi gerast einmitt á þessari stundu, að ég skellti upp úr. í stað þess að standa á verði með skamm- byssu i hendi eins og fyrirhug- að hafði verið kraup ég þarna og sneri baki að farþegunum meðan ég fálmaði eftir byssunni inni í skálminni, eða öllu held- ur báðum skálmum. Flugstjór- inn sneri sér við í sætinu til að sjá nýja stjórnanda vélar- innar, en það eina, sem hann sá til „hans" var ofan á stóran, hvítan kvenhatt. Mér tókst fljótlega að finna byssuna og stakk henni í vas- ann þar sem hún fékk að hvíla til ferðaloka. Hún var allt of ógnvekjandi og „Holly- woodsk,1. Þið getið ekki ímyndað ykk- ur undrunarsvipinn á andliti flugstjórans þegar ég gekk inn í stjórnklefann og tilkynnti: „Ég hef tekið við stjórninni.1, Vesalings maðurinn — það var þá sjón, sem hann sá! Mig, í hvítu, ermalausu dragtinni minni, með barðastóra hattinn minn og á ilskóm. „Ég er nýi flugstjórinn,,' sagði ég, „og hér fáið þið smá minjagrip — það er öryggispinninn úr hand sprengju." Með þessum orðum rétti ég flugstjóranum pinn- ann. „Öryggið er tekið af hand sprengjunni. Ef þið ekki hlýð- ið fyrirmælum mínum, sprengi ég hana, og þá er úti um þot- una og alla sem í henni eru.“ — „Hvað viljið þér að ég geri,“ spurði flugstjórinn, og ég svar- aði: „Fljúgið til Lydda-flugvall arins." „Til Lydda,“ spurði þá aðstoðarflugstjórinn, „ég héiit við værum á leið til Aþenu.“ „Þér skiljið ensku, er það ekki?“ svaraði ég. Við settumst í sætin tvö beint fyrir aftan flugstjórann. Hélt ég á handsprengjunni í vinstri hendi allan tímann þar til við vorum lent. Vinur minn stakk sinni sprengju á sig, en mund- aði þess i stað skammbyssuna. Ég bað flugstjórann að láta mig fá aðal hljóðnema talstöðv arinnar, og hann var svo rugl- aður í riminu að hann reyndi að koma hljóðnemanum fyrir yf ir hattinn minn. „Ég ætia aðeins að flytja hattinn," sagði ég þá, og ýtti honum aftur á hnakka. Hafði ég saumað band í hann, svo unnt væri að hafa hann hangandi um hálsinn. Mig langaði nefnilega til að eiga hann áfram. Svo reyndi ég að ná sambandi við flugturninn í Róm, en enginn svaraði. Næst sneri ég mér að flug- vélstjóranum og spurði: „Hvað höfum við eldsneyti til margra flugstunda?" Sjálf vissi ég svar ið, því ég hafði litið á eldsneyt- ismælinn. Ég var viss um að hann reyndi að ljúga — og það var rétt. „Til tveggja stunda," sagði hann. „Það er ekki rétt." Ég veit að það nægir til þriggja og hálfrar stundar flugs. Það sést þama á elds- neytismælinum. Hvers vegna sögðuð þér ósatt? Ef þér gerið það næst þegar ég spyr yður einhvers, hálsbrýt ég yður.“ “ „Hvers vegna reiðist þér svona?" spurði flugstjórinn. „Vegna þess að ég kann ekki við lygara," svaraði ég. En í rauninni var ég ekki mjög reið. Ég vildi aðeins hræða þá örlít- ið svo þeir færu eftir fyrirmæl um okkar. Flugvélstjórinn flugvélarránið, Salim Issawi sagði ekki aukatekið orð það sem eftir var fararinnar. Klukkan var nú um 15,20. ÁVARP TIL FARÞEGANNA Fjöldi mæla, slökkvara og ljósa í stjórnklefa farþegaþotu getur haft mjög ruglandi áhrif við fyrstu sýn, en við höfðum fengið ítarlega þjálfun, og ég vissi hvað hver mælir sýndi. Ég hafði fengið sérlega ítarlega kennslu varðandi Boeing 707. Eftir að hafa gefið áhöfninni nauðsynleg fyrirmæli, áttum við að snúa okkur til farþeg anna um kallkerfi þotunnar. Við ávörpuðum þá svo: Kæru farþegar. Þið eruð beðnir að hlusta með athygli. Vinsamlegast fest- ið öryggisbeltin. I 1' - - Klæöið veggina með VYMURA Það or fallegt, endingargott. þvott- ekta, auðvelt í uppsetningu. Tilvalið ( skóla, sjúkrahús, samkomu- hús, skrifstofur, opinberar byggingar — og auðvitað á heimli yðar. VYMURA VEGGFÓÐUR má þvo og skrúbba, en þó heldur það alltaf sín- um upprunalega lit. Gerið ibúðina að fallegu heimili með VYMURA VEGGFÓÐRI. Umboðsmenn: G. S. Júlíusson. J. Þorláksson & Norðmann hf Stór heildverzlun hér í borginni óskar að ráða kvenmann til bréfritunarstarfa. Þarf að hafa góða kunnáttu í íslenzku, ensku og að minnsta kosti einu Norðurlandamáli ásamt góðri leikni í vélritun. Umsóknir, sem tilgreina menntun, aldur og meðmæli, ef fyrir hendi eru, sendist Morgunblaðinu fyrir 23. okt. 1970 merkt: „Bréfritari no. 4478".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.