Morgunblaðið - 18.10.1970, Síða 7

Morgunblaðið - 18.10.1970, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1970 31 Leila Khaled handtekin í Lond on eftir síðara flugvélarránið. um nokkuð frá föður mínum. Við höfðum reyndar gefið upp alla von og töldum að hann hefði verið drepinn. Kom þá í ljós að hann var kominn til Eg- yptalands. Var þetta ekkert einsdæmi: Ég vissi um margar fjölskyldur, sem sundruðust og dreifðust um öll Arabarík- in. Faðir minn var sjúkur, þeg ar hann kom til okkar á ný — hann var með of háan blóð- þrýsting og hjantaveila hafði gert vart við sig. En það sem þjáði hann mest var heimilis- og atvinnumissirinn. Þ*að var heldur ekki óalgengt. Ég þekki fjölda manna á svipuðum aldri og faðir minn, sem urðu fyrir heilsutjóná við atvinnumiss- inn. Ef til vill hefði hann átt að berjast áfram, Síðustu fimm ár ævi sinnar vaT faðir minn rúmfastur. Hann lézt árið 1966. Sem betur fer var móðir mín ættuð frá Tyrus, svo fyrstu árin fengum við inni hjá frændfólki henn- ar. Eftir það fluttum við í lít- ið tveggja herbergja hús þar sem við bjuggum næstu 16 ár- in — og þegaT þar var komið voru fjölskyldumeðlimimir orðnir 14. Það eru því engar ýkjur að segja að þröngt var um okkur. Samt vorum við bet ur sett en þeir, sem urðu að búa í tjöldum. í vetrarveðrum gerðist það oft að félagar mín- ir komust ekki í skóla vegna þess að tjöld þeirra höfðu fok- ið. Lítill bróðir einnar vinkonu minnar hvarf er flóðbylgja gekk yfir tjaldbúðirnar. Einu föstu tekjur okkar voru 100 líbanonsk pund (tæpar þrjú þúsund krónur) á mánuði frá frænda móður minnar, en sú upphæð nægði skammt fyr- ir 14 manna fjölskyldu. í BIÐRÖÐUM Við urðum einnig að láta skrá okkur sem flóttamenn hjá fulltrúum Sameinuðu þjóð- anna. Fengum við matar- skammta frá flóttamannahjálp SÞ (UNRWA). En eins og full- trúar UNRWA sögðu sjálfir hafðfi stofnunin ekki ráð á að veita hverjum flóttamanni nema lágmarksskEimmt af hita einingum daglega, eða 1.500 hitaeiningar. Við vöndumst hungrinu, en verra var að sætta sig við þá auðmýkingu að þurfa að standa í biðröð með könnu og poka í hendi og biða eftir „bakhshish“-skammtin- um. Við vorum orðin að betl- urum, þótt ölmusan kæmi frá SÞ en ekki einstaklingum. Á Bifreiðnstjóri ósbast Norðurstjarnan h.f. í Hafnarfirði vill ráða bifreiðastjóra með meirapróf, nú þegar. Upplýsingar í verksmiðjunni. NORÐURSTJARNAN H.F. HAFNARFIRÐI. EMMA Barnafataverzlun Skólavöröustíg 5. Sængurgjafir Ungbarnafatnaður, mikið úrval. Nýkomið Loöfóðraðar drengjaúlpur og frakkar (2ja—6 ára) Barnagallar Telpna- og drengjapeysur Pollabuxur Regngallar Regnkápur Skírnarkjólar. Póstsendum. ljósmyndum þeim sem UNRWA hefur birt frá matarúthlutun- um, er venjulega fátt fullorð- inna í biðröðunum. Þeir fást ekki til að standa þaiyia, og senda venjulega börnin, eins og gerðist hjá okkur. Þegar eldri systur mínar fengu kenn- arastörf árið 1957 voru matar- skammtar fjölskyldunnar minnkaðir smám saman, og mat argjöfunum síðan hætt. Var þetta mikið áfall fyrir okkur, en okkur leið samt betur á eft- ir, því okkur fannst við orðin sjálfstæðari. Það þezta, sem UNRWA gerði fyrir Palestínubúana var að sjá um að börn þeirra kæm- ust til mennta. Mér fannst gam- an í skóla, og það er mér nær að halda að öllum hafi þótt, því skólinn var eini staðurinn þar sem við gátum sýnt að við værum einstaklingar, en ekki aðeins númer á skömmtunar- lista. Fyrst fór ég í kirkjuskóla í Tyrus, en síðar fékk ég UN- RWA-styrk til framhaldsnáms við bandarískan trúboðsskóla í nágrannabænum Sidon. Ég hlaut nýjan styrk til náms yið bandaríska háskólann í Beirut, en þar ætlaði ég að nema lyfjafræði, sem er heppi leg menntun fyrir stúlku í þess um hluta heims. En námsstyrk urinn nægði ekki fyrir öllum kostnaði í borg eins og Beirut, og fjölskyldan gat ekki veitt mér neinn fjárbagsstuðning. Ég gat því ekki stundað nám við háskólann nema í eitt ár, og ég hef aldrei orðið fyrir meiri vonbrigðum en þegar ég varð að hætta námi. Ég fékk vinnu sem ensku- kennari í Kuwait þar sem ég dvaldist í sex ár. Mér finnst ekkert sérlega gaman að kenna, en ég varð að afla mér tekna til að geta lagt minn. skerf af mörkum til fjölskyld- unnar. Einn bræðra minna tók háskólapróf í verkfræði, og starfar nú í Abu D'habi. Annar tók próf í viðskiptafræðum og starfar í banka í Abu Dhabi. Vegna þeirra peninga, sem við sendum heim, kemst fjölskyld an nú vel af. Við höfum nú ráð á að kosta eina af yngri systr- um mínum til náms við háskól- ann, en hún hefur miklu meirí áhuga á að verða Fedaiin, það er að taka þátt í frelsisbaráttu Palestínu. Einn bræðra minna og ég vinnum nú eingöngu á vegum Fedaiin. Á VESTURBÖKKUM Margir vina okkar í Líbanon Hvað segir kokkurinn um Jurta? „Ég er alltaf ánægður með árang- urinn, þegar ég nota Jurta-smjör- líki. Jurta er bragðgott og laðar fram Ijúffengan keim af öllum mat. Þess vegna mæli ég eindregið með Jurta smjörlíki." • smjörlíki hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.