Morgunblaðið - 18.10.1970, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.10.1970, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNTJDAGUR 18. OKTÓBER 1970 39 setti fram i upphafi. Barnið hef- ur eðlilega þörf fyrir nána snert ingu við náttúruna. 1 glímunni við þau viðfangsefni, sem hún býður, öðlast unglingurinn innri ró og tóm til að finna sjálfan sig. Til þess á að nýta alla mögu leika. Þegar Pompidou og frú hans fóru í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna, vöktu föt frúarinnar mikla athygli, eins og menn muna. Var ekki laust við að mörgum þætti síddin á þeim alveg fáránleg. Er við litum á þessar myndir af Madame Pompidou, sjáum við þó, að föt hennar eru einmitt af þeirri gerð, sem tizkufrömuðir vilja innleiða fyrir haustið og vetiurinn. spurn og óþarft að fjölyrða um hana hér. En það sem er nýtt og byltingakennt í þessu sambandi er það, að heilbrigð tilhneiging æskufölks til tilbreytni og skemmtunar er orðin undirstaða að eins konar framleiðslugrein, virkjuð og hagnýtt i gróðaskyni. Þetta veldur grundvallar- breytingu i lifi ungrar kynslóð- ar. 1 hollri tómstundaiðju er ein staklingurinn frjáls og virkur, hann fylgir þá hneigð sinni og á frumkvæði eða þó að minnsta kosti meðráðarétt um það sem gerist. En af áróðri skemmtana- iðnaðarins sefjast fjöldi ungl inga svo gersamlega, að sú skemmtun, sem átti að verða þeim holl tilbreytni, er fyrr en varir orðin vani og ástríða, sem þeir megna ekki að standa á móti. Margur unglingur, sem þannig er bundinn á klafa skemmtanatízkunnar, sté sín fyrstu spor út á braut misferlis og afbrota, af því hann skorti fé til þess að halda til jafns við fjáðari félaga í skemmtana- lífinu. EITURLYFJANAUTN Þegar einstaklingur er hnepptur í viðjar sjúklegrar skemmtanaástriðu, fyllist hann oftast andúð og leiða gagnvart hversdagslegum skyldum i námi og starfi. 1 stað þess leitar hann sífellt endurtekinna skemmtana, nýrrar spennu, nýrra nautna. Heilbrigður viðnámsþróttur hans laimasit smám saman gagn- vart öllu, sem togar í þessa átt. Þess vegna er auðvelt að leiða hann út í eiturlyfjaneyzlu. Hún býður upp á nýbreytni, virðist meinlaus í fyrstú og veldur ann arlegu ástandi, sem losar hann úr vitundartengslum við raun- veruleikann. Ef áfengi er und- anskilið, er eiturlyfjanautn varla mjög algeng hér á landi. Um útbreiðslu hennar veit eng- inn, enda er eiturlyfjaneyzla leyniathöfn. Einstök tilvik, sem upp hafa komizt, vitna þó ótví- rætt um vaxandi ásókn í eitur- lyf og samsvarandi viðleitni til að smygla þeim inn í landið. Fyrirmynd þessarar venju er innflutt eins og lyfið. Erlendis frá berast fregnir um vaxandi útbreiðslu eiturlyfjaneyzlu. Hún tekur á sig form eins konar tízkufaraldurs, og hópur æsku fólks, sem lætur ginnast til þátt töku, er geigvænlega stór. Marg- ur byrjar i þeirri trú, að þetta sé aðeins stundar tilbreytni, alltaf sé hægt að hætta, en er brátt á valdi sjúklegr- ar ástriðu, sem hann losnar ekki undan, þegar honum skilst, að hann stefnir í ófæru. Vaxandi eiturlyfja- neyzla og hin ákafa viðleitni að hagnýta hana I gróðaskyni vek ur hugsandi mönnum geig, enda er hún eitt gleggsta einkenni um úrkynjun þjóðar. HVAÐ VELDUR? Hvað veldur því, að æska vel megandi menningarþjóða verður svona rótslitin og vegvillt? Ég ætia mér ekki þá dul að svara þessari spumingu í litlu grein- arkorni. Samt vil ég drepa á tvö atriði enn, sem ég tel valda miklu um þetta. Til þess verður þó að lita út fyrir okkar eigið land og sjá vandamálið í stærra samhéngi. Vegna hins hraða fréttaflutnings erum við líka svo að kalla í næstu nánd við hvern þann atburð, sem máli skiptir. Þessi alnálægð atburða, sem ger- ast með f jarskyMum þjóðum, hef ur sterk áhrif á líf nútímamanns ins, ekki sízt á æsku smáþjóðar, sem stendur mitt í róttækri sam- félagsbyltingu. Fyrrá atriðið, sem ég nefni, er efnisleg Mfsnautnarhyggja. Þótt velmegun sé góð og æskileg, fylgja henni nokkrar hættur, einkum ef hún hefur leyst gam- algróna fátækt af hólmi. Um leið og lífsbaráttan verður auðveld- ari, þurfa menn að koma auga á menningarleg verðmæti, sem þeim þykja eftirsóknarverð og veita lífi þeirra tilgang og festu. Slík stefnubreyting gerist ekki í einni svipan; kynslóðir þarf til að móta hana. Vöntun hennar hér á landi kemur átakanlega fram í kapphlaupi fólks um glys og munað, sem margir ástunda langt um efni fram. En ef kyn- slóð fullorðinna einblínir á ytra skraut og óhófsmunað, hvað skal þá um börn og unglinga? Ótíma bær fjárráð gera þau heimtu- frek við aðra en undanlátssöm við sjálf sig og þvi trygga við- skiptavini á hinu mikla sölutorgi skemmtana- og nautnalyfjaiðnað arins. Um þessi áhrif þykist ég sjá ýmis auðkenni gleggri á ís- lenzkum unglingum en á jafn öldrum þeirra með öðrum þjóð- um álfunnar. Ánægjulegar und- antekningar eru þó vitaskuld margar. TILVERA HINS SIÐMENNTAÐA HLUTA MANNKYNS HANGIR Á BLÁÞRÆÐI Seinni ástæðuna, sem ég nefni hér, er örðugra að skýra í stuttu máli. Við finnum öll, að tilvera hins siðmenntaða hluta mannkyns hangir á bláþræði. Nokkur stórveldi, hvert öðru andvíg í flestum greinum hafa smíðað sér vopn, sem veitir þeim tök á að tortima öllu lífi á þétt- býlustu svæðum jarðar og gera þau óbyggileg um langa fram- tíð. Hugmyndir, sem við gerum okkur um þessa hættu, eru kannske misjafnlega Ijósar, en sá geigur, sem þær valda, bær- ist i brjósti hvers fullvita manns. Lífi manna hefur að visu verið ógnað fyrr; tugir og hundruð þúsunda urðu styrjöld- um, hungursneyð og pestum að bráð. En einstaklingurinn átti sér þó jafnan nokkra undan- komuvon og akur og fiskimið héldu gróðurmagni sinu og end- urnýjunarkrafti. Slík von slokknar andspænis þeirri ógn, sem nú vofir yfir mannkyninu. Án þess við gerum okkur grein fyrir því, mptar þessi tortíming- arhætta lífsviðhorf okkar og hegðun, æsir okíkur uipp í sikefja lausan lífsnautnarþorsta hinnar hraðfleygu stundar. Bandarisk- ur menntaskólanemi orðar það svo: „Nowadays with world con ditions as they are, the wise person lives for today and lets tomorrow take care of itself.“ Það er veraldargeigurinn, orðað ur á atómöld: Etum og drekk- um og verum glöð, þvl á morgun kemur dauðinn. Undir ofurvaldi þessa geigs fjarlægist maðurinn mest það lifsviðhorf, sem þjóðskáldið likti við blómið, sem „kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót“. Þá er hætt við að hann glati trúnni á tilgang sinn og æðri andleg verðmæti og hyggi aðeins að svölun lífsþorstans þá örskotsstund, sem ævin varir. Um leið hlyti siðavitund hans að ruglast og hann yrði leiðitamur til hvers kyns öfga. Þegar gagn rýnihneigð og efagirni unglings áranna vakna og þróast við þess ar aðstæður, þá myndast auð- veldlega hópar vegvilltrar æsku, sem einmitt á okkar tið valda kynslóð foreldranna kvíða og áhyggjum. Ég segi hópar vegvilltrar æsku, því að sú skoðun er mér fjarri, að allur þorri íslenzkra unglinga sé vegvilltur. Ég álít að visu, að vegurinn sé ekki auð- rataður. Unglingur er oft ekki einfær um að ákvarða sig, hvort áreynsluvilji eða undanlátssemi, brattsækni eða nautnaværð eigi að ráða lifsviðhorfi hans. Heil- brigð æskulýðsstarfsemi þarf að stuðla að þvi, að hann marki stefnu sina rétt. Hún þarf að leggja megináherzlu á þroska vænleg viðfangsefni, sem heilli unglingana og veiti þeim tæki- færi til að reyna á krafta sína. bæði andlega og líkamlega. Með þessum orðum hverf ég aftur að þvi sjónarmiði, sem ég ÍSLENZK ÆSKA ÞARF AÐ UPPGÖTVA LAND SITT OG NEMA ÞAÐ AÐ NÝJU Ef Island er borið saman við hlýrri lönd, virðist ekki mjög að laðandi að eyða þar tómstund- um sínum við útilegur og göngu ferðir. En kannske er landnám- inu ekki fyllilega lokið. Ég man frá stúdentsárum mínum erlend- is, hve mjög mér fannst til um þann geysilega fjölda skólaungl inga sem ferðaðist fótgangandi dögum og vikum saman um fjöll og sköga Miðevrópu. Þar hafði borgaræskan lært að meta nátt- úruna, og hið nauðsynlega skipu lag, sem til þurfti, hafði mynd- azt smám saman. Hin einstöku gistiheimili æskunnar stóðu svo þétt, að hvar sem gönguhópur var staddur, átti hann ekki nema hæfilega dagleið tU næsta gisti- staðar. — Við gengum með mal pokann og svefnábreiðuna á bakinu, lifðum við fábreyttan kost og lögðumst þreytt til hvíldar, en við áttum glaðar stundir, fundum til skyldleika okkar við náttúruna og öðluð- umst um leið ljósari skilning á sjálfum okkur. Ég hef alltaf dáðst að Baden- Powell, stofnanda skátahreyf- ingarinnar, fyrir skarpskyggni hans á þá þörf, sem brýnust er fyrir borgaræskuna, að kynnast töfrum náttúrunnar, njóta útilífs og fást við þau margbreytilegu viðfangsefni, sem hraun og heið- ar, vötn og skógar bjóða. Af þeim töfrum er Island auðugt. Og mér hefur oft fundizt, að ís- lenzk æska þyrfti að uppgötva land sitt og nema það að nýju. Velduð þér bíl ef Hr þcegindum sœtanna þyrftuð þér ekki að hugsa yður um VOLVO Scetin eru stórkostleg k*ilO ^i') Suðurlandsbraut 16 • Reykjavik • Simnefni: Volver • Simi 35200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.