Morgunblaðið - 25.11.1970, Síða 7
MORGUNIBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1970
7
Bókasafn skipanna
Merk hugmynd komin fram
„í>örfin er brýn á því, að
g-ott bókasafn sé í ölliim ís-
lenzkum skiptim, ekki sízt
þeim, sem dveljast langdvöl-
íim við veiðar fjarri heima-
höfn, eða sigla um heimshöf-
in, og koma sjaldan lieim,"
sögðu þeir Guðmundur Jak-
obsson og Oliver Steinn,
bókaútgefendur, þegar við
hittum þá á fömum vegi á
dögunum, til að frétta hjá
þeim, hvemig gengi að koma
„Bókasafni skipanna“ á lagg-
irnar. Gtiðmundur og Oliver
reka bókaútgáfurnar Skugg-
sjá og Ægisútgáfuna.
„Við höfum gengið með
þessa hugmynd í maganum í
nokkur ár," segja þeir félag-
ar, „en svo vill til, að útgáf-
ur okkar hafa gefið út fleiri
bækur en önnur forlög, sem
tengdar eru sjó, sjómennsku
og svaðilförum. Þess vegna
hefur orðið að ráði, að útgáf
umar söfnuðu þvi bezta af
þessum bökum í einn sérstak
an bókapakka, til þess ætlað
an að mynda visi að bóka-
safni skipanna. Að vísu er í
einstökum skipum visir að
slíku safni, svo og hafa ein-
stök bókasöfn séð um að út-
vega skipum bækur, en is-
lenzk bókasöfn eiga svo
sannarlega nóg með sig í
landi, eru varla aflögufær,
og þar á ofan bætist, að bæk
ur þær, sem búnar eru að
velkjast á sjónum um nokk-
urt bil, verða tæpast lánaðar
aftur út.“
„Er þessi bókapakki dýr?“
Nei, hann mun kosta um
15000 krónur, og verðið er
ekki tiltökumál í rekstri eins
skips. Auðvitað geta svo önn
ur útgáfufyrirtæki gengið
inn i þetta bókasafn. Þá höf-
um við gert ráðstafanir til, að
hægt verði að fá hentuga
bókaskápa undir safnið. Al-
mennt eru islenzkir sjómenn
ekki síður lestrarhestar en
aðrir landsmenn.“
„Hafið þið einhverja hug-
mynd um viðtökur íslenzkra
útgerðarmanna við þessu hug
sjónamáli ykkar?“
„Já, við höfum talað við
allmarga, og undirtéktirnar
lofa sannarlega góðu. Þeir
haía tekið þessu fagnandi
hendi, að geta þannig sýnt
hug sinn til þeirra starfs-
manna sinna, sem lengstar
fjarvistir hafa frá heimilum
sínum, og til þeirra, sem hag
ur fyrirtækjanna hvílir oft-
ast á. Árlega bætast svo bæk
ur í þetta bókasafn, og eins
og við sögðum áður, þá geta
önnur forlög lagt hér líka
hönd á plóginn. Auðvitað
geta líka aðrir, einstaklingar
og fyrirtæki í landi, notið
þessara kjara, fengið bóka-
pakka þennan með hóflegum
afborgunum, og þannig bætt
við heimilisbókasafn sitt
veruiega."
„Það er auðvitað alltof
langt mál, að telja allar þess
ar 50 bækur upp í þessu
„Bókasafni skipanna", en gæt
uð þið ekki bent á eins og
10 bækur, sem sérstaklega
ættu að vera sniðnar fyrir
sjómenn?"
„Það er fljótgerí, því að af
mjög mörgu er að taka, eins
og t.d. Að duga eða drepast
endurminningar Björns Ei-
ríkssonar, Á skönsunum eft-
ir Pál Hallbjörnsson, Á
ströndinni í hálfa öld, ævi-
saga Þórðar á Akraborg, Ára '
skip Jóhanns Bárðarsonar,
Hart í stjór, ævisaga Júlíus-
ar Júliussonar, 1 farar-
broddi, ævisaga Haralds
Böðvarssonar, Mennirnir i
brúnni, þættir af starfandi
sjómönnum, Sigurjón á Garð
ari, sjálfsævisaga Sigurjóns
Einarssonar, Sonur bjargs og
báru, endurminningar Jóns í
Belgjagerðinni, og er þá ekki
kominn meira en fimmtung-
urinn. Svo eru þama ferða-
sögur eftir innlenda og er-
lenda menn, hetjusögur og
ýmislegt fleira. — Og það er
von okkar, að islenzkir út-
vegsmenn taki þessari ára-
gömlu hugmynd okkar vel,
en við erum vissir um að
starfandi sjómenn kunna vel
að meta þessi bókasöfn. Þörf
in er vissulega brýn, og þetta
hefur góð áhrií i aliar áttir,
við erum í engum vafa um
það,“ sögðu félagarnir að Bóka
safni skipanna að lokum. Við
tökum undir síðustu orð
þeirra Guðmundar Jakobsson
ar og Olivers Steins, því að
þetta er mikið menningarat-
riði. — Fr. S.
*
A
förnum
vegi
Guðniiindur Jakobsson og Oliver Steinn standa hjá bókunum, sem ætlaðar eru i Bóka
safn skipanna.
FRETTIR
Kvenfélag Ásprestakalls
Hinn árlegi basar félagsins verð
ur í anddyri Langholtsskólans
sunnudaginn 29. nóvember kl.
2. Tekið á mógi gjöfum í Ás-
heimilinu Hólsvegi 17, sími 84255.
GAMALT
OG
GOTT
Rauðalækur
Meðal þess, sem þótt hefir
óteljandi hér á landi, er:
Vötn á Tvídægru,
eyjar á Breiðafirði og
vöð á Rauðalæk.
Þjóðvegurinn lá fyrir 20 ár-
um meðfram og eftir Rauðalæk
(læknum sjálfum) endilöngum,
og segja sumir, að fara hafi
orðið yfir hann 18 sinnum ein-
leiðis á stund úr degi.
Spakmæli dagsins
Lélegt þótti höfuð hans,
en hjartað, — það var gott.
Runeberg (M.J.)
(Gömul vísa og algeng).-
Rýkur enn á Rauðalæk,
rýkur hjá heaini Steinku spík,
reykjarsvælan römm og stæk
rýkur austr að Sigluvik.
Rauðalækur er í Holtum, en
Sigluvik í Landeyjum, og er
langt á milli.
SÁ íiíÆST BEZTI
Skuldheimtumaður (við stúdent): Klæðskerinn hefur falið mér
að innheimta þessa skuld.
Stúdentinn: Þá má ég óska yður til hamingju með að þér hafið
íengið fasta stöðu.
VOLKSWAGEN 1300 '66 trl sö-Bu. Mjög góður bíM. Uppi í ®4ma 50911 eiftiir kikukikain 5. BROTAMALMUR Kaupi allan brotamákn lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatúni 27, slmi 2-58-91.
IBÚÐ ÓSKAST Ung (hijón með eiitt baim óslka eiftiir 2ja—3ja herb. íbúð. R egl'usemi og góðni umgengmi heitið. Upplýsirg- ar í síma 14373. DÖMUR Garðahreppi og nágrermi. Gert baett við nokkrum kijól- um tH að smíða og máta fyr- «r jól. Sauma eimnig kápur og kjóla eftir áramót. Simi 42140. Geyrmið auglýsingiuma.
IESI0 DHGLEcn BiLSKÚR við vestamverða Bárugötiu ta leigu. Ársfyrirfrarngrerðsle. Uppfýsimgar í s'rma 16675.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofustarfa hjá þekktu fyrirtæki í Mið-
borginni. Tungumála-, vélritunar- og reikningskunnátta nauð-
synleg.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf
sendist Mbl., merkt: „Nákvæmni — 6379".
Fiskbúð til sölu
með öllum innréttingum og tilheyrandi tækjum.
Góðir greiðsluskilmálar.
HELGI HAKON JÓNSSON
löggiltur fasteignasala.
Skólavörðustíg 21 A.
Smi 21456.
REYKJÁVÍK 2ja herb. 70 ferm. við Sogaveg. útb.
350 þús. 4ra herbergja við Holtsgötu,
útb. 750 þús., 5 herbergja við Miklu-
braut, útb. 800 þús.
Sérhæð við Bræðraborgarstíg, 3 lítil her-
bergi og eldhús á efri hæð. Hálfur kjallari.
Eignarlóð 480 ferm., útb. 500—600 þús.
SELTJARNARNES 5 herbergja sérhæð við Akur-
gerði, útb. 1 milljón.
KÓPAVOGUR 2ja herbergja búð við Álfhólsveg. Ný
eldhúsinnrétting. Teppi á öflum gólfum,
útb. 200 þús. Einbýlishús við Mánabraut,
135 ferm. Bílskúr undir hæð.
HAFNARFJÖRÐUR 2ja herbergja jarðhæð við
Reykjavíkurveg, útb. 250 þús. ásamt stór-
um bílskúr.
3ja herbergja íbúðir við Álfaskeið, útb.
frá 600 þús.
í SMÍÐUM 2ja og 3ja herbergja íbúðir við Amarhraun
í Hafnarfirði. Ibúðirnar seljast tilbúnar
undir tréverk með frágenginni sameign.
Teppi á stigagangi og lóð fullfrágengin.
Beðið eftir Húsnæðismálastjórnarláni. Lán
seljanda 200 þús. til 3ja ára.
Einbýlishús á Flötunum í Garðahreppi.
Húsið er 165 ferm. Plata að tvöföldum
bílskúr fylgir. Selst fokhelt.
5 og 6 herbergja við Tjarnarból 4 Seltjarnarnesi.
2ja, 4ra og 5 herbergja við Tjamarból 14.
Ibúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk með-frágeng-
inni sameign. Eeðið eftir Húsnæðismölastjórnarláni.
Lán seljanda 200 þús. til 5 ára.
Höfum einnig kaupendur að flestum stærðum búða á höfuð-
borgarsvæðrnu. M.a. vantar okkur einbýlishús á einni hæð,
með bílskúr og góðri geymslu í Reykjavk.
Skip &
fasteignir
Skúlagötu 63,
sími 2-17-35, eftir lokun 3-63-29.