Morgunblaðið - 02.12.1970, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 02.12.1970, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 2. DESEMBER 1970 5 Ársskýrsla Rarik fyrir 1969; 90 millj. kr. í nýbygging- ar Rafmagnsveitnanna „Svarta ljósið“ ■ Þriggja milljón króna hagnaður af rekstri Rafmagnsveitnanna Á ÁRINU 1969 var unnið að ný- byggingum fyrir um 90 milljónir króna á vegum Rafmagnsveitna rikisins, að því er rafmagns- veitustjóri Valgarð Thoroddsen segir í inngangi að ársskýrslu rafmagnsstjóra fyrir árið 1969. Af þessum 90 milljónum króna fóru til orkuvera og stofnlína 39 milljónir króna, til bæjarkerfa 9 milljónir króna, til sveitarafvæð- ingar 40 milljónir króna og til annars 2 milljónir króna. Af framkvæmdum við orkuver var meata verkefnið virkjun Smyrlabjargaár, en sú virkjun var tekin í notkun 25. september etftir 13 mánaða byggingartíma. Á árinu voru tengd inn á sam- veitusvæði Rafmagnsveitnanna 145 býli og 54 aðrir staðir í sveit, auk þess 109 notendur í þorpum, eða samtals 308 nýir notendur. Fram til ársloka 1969 hefur verið lagt rafmagn til samtals 3.604 sveitabýla á samveitusvæði Raf- magnsveitnanna og mun þá láta nærri, að um 1300 býli í sveit séu utan samveitusvæða ýmist með einkarafstöðvar eða án raf- magns. Orkuver Rafmagnsveitnanna eru nú með um 30 megawött í uppsettu vélaafli og er aukning þess frá fyrra ári um 4%. Orku- vinnsla eigin orkuvera var 71 gígawattstund og var aukning frá fyrra ári 7.6%, en aðkeypt orka 182 gígawattstundir og aukning 6.7%. Heildarorkusala var 225 gíga- wattstundir, þar af 40% beint til notenda, en 60% í heildsölu til bæjarafveitna og stórra not- enda. Heildarútgjöld Rafmagns- veitnanna voru 418 milljónir króna til rekstrar og nýbygginga, en vegna hins síðamefnda voru tekin 42 milljón króna ný lán. f formiála Valgarðs Thorodd- sens að árskýrslunni segir, að miðað við sömu uppsetningu rekstrarreiknings sem áður var. varð nú fyrsta sinni nokkur rekstrarhagnaður, eða um 3 milljónir króna. Höfðu þá 66 milljón króna afskriftir verið færðar til gjalda á rekstrarreikn ingi. Samkvæmt þeirri nýskipan sem nú mun vera tekin upp hjá öllum ríkisfyrirtækjum, þannig að stofntillög og heimtaugagjöld Rafmagnsvéitnanna eru færð til tekna á rekstrarreikningi, er bókfærður hagnaður allmiklu meiri, svo sem fram kemur í skýrsltmni. Á árinu 1969 var tekið upp það nýmæli, að skipa sérstaka stjóm fyrir Rafmagnsveiturnar. Ráð- herra raforkumála skipaði hinn 17. júlí 1969 í hina fyrstu stjórn þá Bjama Braga Jónsson, hag- fræðing, sem formann og með- stjórnendur verkfræðingana Jó- hann Indriðason og Kjartan Jó- hannsson. Á árinu var Gönguskarðsár- virkjun veitt viðurkenning Fegr- unarsjóðs Sparisjóðs Sauðár- króks fyrir fegrun og snyrtilega umgengni. Rafmagnsveitumar meta mikils slíka viðurkenningu — segir Valgarð Thoroddsen, og vænta þess að hún verði öðrum innan og utan stofnunarinnar til örvunar á þessu sviði. Stöðvar- stjóri er Hákon Pálsson og á haran og stanfsmenm hans skildar þakkir Rafmagnsveitnanna fyrir. Hvert er húðin þurr eða feit? Hvers þarfnast húðin til þess að verða sem fallegust? læssum spumingum og ótal fleiri leitast snyrtisérfræðingurinn frú Zick við að svara, en hún er hér & vegum franska snyrtivörufyrir- tækisins Orlane. Frú Zick ferðast á milli snyrti- vöruverzlana í borghmi með tæki sem nefnist Svarta ljósið en með þvi gegnumlýsir hún húð þeirra sem þess óska og gefur svör og ráðleggingar f samræmi við niðurstöður gegn- umlýsingarinnar. Þessi mynd er tekin af frúnnl við störf sin f verzluninni Tíbrá. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Helgi Hermann Eiríksson „Eldur er beztur“ Saga Helga Hermanns skráð af Hagalín ÚT er komin bókim „Eldur er beztur“, sa/ga HeJiga Henmanins Eiríkssonar og aldalhvarfa í ís- lenzkum iðnaði, skráð af Guð- muiradi G. Hagalín eftiir sögu Helga sjálfs og ýmsum öðirum hekniildum. Starfsævi Helga Harimamnis hefur nálega öll verið helgiuð iðju og iðniaði. Hann var skóla- stjóri Iðnskólans í Reykjavík í áratuigi, forystuim aður í félags- máluim iðnaðainmairaraa um langtf Skeið, ritstjóri Tímairits iðnaðar- mamna og að lokum bankastjóri Iðraaðarbamkans. Á yragri árum varnn Belgi tadisvert að rainm- sóknum á hagnýtum jEirðefnium víða um land. Bók þessi ex því elklki aðeins saga Helga Hermannis. Hún er einnig að verulegu leyti saiga iðraaðariras í aillimarga áratuigi og þeirra aldahvarfia í iðmþróun, sem átt hetfur sér stað á þeim tíma. Geymir hún mikinn og gagn/liegan fróðleik um þaiu mál öll. iÞá hefur Helgi Henmann gegnt fjölmöii-gum trúnaðarstörf- um og teíkið þátt í félagsiífi ut- am vettvanigs iðnaðariras, þar á meðal verið borgarfuilltrúi í Reykjavík og formaður fræðslu- ráðs borgarinnair. Þór Sandholt, skólastjóri, ritar formála að bókinni. Hún er tæp- ar 300 bls. að stænð með aíll- mörgum myndasíðum. Útgefamdi er Iðunm. Opnar vefnaðarvöru- deild með frönskum efnum V ÖRUM ARK AÐURINN i Ar- múla 1 hefur nú bætt við hjá sér vefnaðarvörudeild, og er hún á 300 fermetra stórum gólf- fleti á þriðju hæðinni, og hef- ur Vörumarkaðurinn þá tekið allt húsið undir verzlunina. 1 vefnaðarvörudeildinni, sem var verið að opna, er miðað að því að hafa sérstæða vöru, að þvi er Ebeneser Ásgeirsson, eig andi verzlunarinnar tjáði Mbl. Kvaðst hann kaupa beint frá verksmiðjunum og flytja inn sjálf ur, og taka aðeins það sem hann er einn með. Flytur hann mest inn frá Frakklandi og kvaðst fá að kaupa svo lítið af hverju etfni þótt keypt væri beint frá verksmiðjunum. Kvaðst hann hafa byrjað að athuga þetta í sumar og opnaði fyrir hálfum mánuði. Á neðri hæðum hússins hefur Ebeneser rekið vörumarkað, þar sem selt er með afslætti út á sparikort. Er matvöruverzlunin á neðstu hæðinni, húsgagna- verzlun á annarri hæð og vefn- aðarvörur og heimilistæki á þriðju hæðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.