Morgunblaðið - 02.12.1970, Side 7
MÖRGUNBLAÐIÐ, M2ÐVIKUBAGUR 2. DESOEMBER 1970
7
SNJOKERLINGAR
Þótt íslenzknm bændum
hafi aldrei verið vel við snjó
inOt þá hefir hann þó jafnan
verið yndi og eftirlæti ís-
lenzkra barna. Það er alltaf
hátíðardagur í þeirra augum
þegar fyrsti snjórinn fellur,
þvi að þá skapast ný skilyrði
til þess að skemmta sér á
margan hátt. Þá eru dregin
fram sldði og sleðar til þess
að renna sér á, þá er hægt að
fara í snjókast og- þá er jafn
vei hægt að hlaða snjókerl-
ingar. Sennilega er það með-
fædd listhneigð, sem veldur
þvi hve óðfús börn eru
að gera líkneskjur úr snjó.
Og snjórinn er hið þægileg-
asta efni í slík Jistaverk,
hann er mjúkur og samlöð-
unarhæftir, og þess vegna er
hægt að hafa likneskjurnar
með ýmsu móti, háar og
grannar, stuttar og digrar,
litlar og tröilauknar.
Fullorðna fólkinu þykir
vænt um áhuga barnanna, og
hefir gaman af að skoða
handaverk þeirra. Þess
vegna munu böm aldrei fá
neinar ákúrur fyrir það að
hlaða snjókerlingar. Full-
orðnir hafa lílka gaman af að
sýna list sína og gera stórar
og vandaðar snjókerlingar.
Má þar t.d. minna á, að það
var lengi siður i latínuskól-
anum í Reykjavik, að piltar
fengju frí úr tímum einu sinni
á vetri ti’l þess að búa
til snjókerlingu, þegar snjór
var mestur og bezt fallinn til
hleðslu. Er þvi hægt að kalla
þetta þjóðlegan íslenzkan sið,
því að hann tíðlkast víst
hvergi ' erlendis. Ólafur
Davíðsson segir frá þvi, að
er hann var á Garði i Kaup-
mánnahöfn, þá hefðu is-
lenzkir stúdentar nokkr-
um sinnum hiaðið snjókerl-
ingu þar í húsagarðinum, og
hefðu dönsku stúdentamir
undrast þetta mjög, því að
þeir hefðu aldrei séð þvílík
teikn og stórmerki úr snjó.
★
t>ess er sérstaklega getið,
að fyrir 110 árum hafi skóia
piltar í Reykjavik hlaðið for-
'láta snjókerlingu. Hefir hún
sennilega verið stærri og
virðuiegri heldur en aðrar
snjókerlingar, er þá höfðu
sést, enda fór þar fram mikil
athöfn er hún var skirð.
Þetta gerðist 6. marz 1860, og
var Jón A. Hjaltalín (síðar
Skólastjóri) kjörinn tii þess
að vera skírari. Flutti hann
þá eftirfarandi kvæði:
Hver er sú hin fagra,
hvitfaldaða,
hátt er gnæfir
hjarls að rjétfri
er hún jðtna kyns
járnviðju systir,
eða Ásynja
ítursköpuð?
Era Ásynja
né jötni borin
svanni svalbrjósta,
sveina angan;
bar hana ei móðir
brjósti und mjúku;
drengja er dóttir
drós hin vasna.
Hér er gamalt kort með mynd af snjókarlinum, sem Ríkarð-
ur Jónsson myndhöggvari hlóð á I.ækjartorgi 1925. Var þetta
gert vegna fjársöfnunar út af sjóslysinu mikla á Hala (Hala-
veðrinu). Baka til við styttuna var liötfð málningarkrús, og
safnaðist í hana mikið fé. í baksýn sést söluturninn frægi,
sem eitt sinn stóð á Lækjartorgi. Ganian væri að vita hvort
einliver vissi, hvenær hann var fluttur af torginu. Þetta ganila
póstkort fengum við lánað hjá einum frægum kortakarii,
Bjarna Guðmundssyni póstfuHtrúa.
Bros fer eigi
né blíða af vöfrum,
og öllu fremur
ýta hjarta
nær hefir í brjósti
en meyjar lundu,
og ástum bliðum
eigi sinnir.
Vindlóna bur
henni vænstur þykir,
hans og vill hún
heitmey vera.
Skulum því sveinar
skira brúði,
og Vindsvölu
væna nefna.
Vitji þín Vindsvala
ver þinn hinn prúði,
og örmum vef ji
áður köldum
en Svásaðar bur
og sunnu Ijómi
vekur seggi
af vetrarblundi.
(Svo segir í Gylfaginn-
ingu: „Svásuður heitir sá, er
faðir Sumars er, og er hann
svo sællífur, að af hans
heiti er það kallað sváslegt,
er blítt er. En faðir Vetrar
er ýmist kallaður Vindlóni
eða Vindsvalur. Hann er Vás-
aðar son, og voru þeir átt-
ungar grimmir og svalbrjóst-
aðir, og hefir Vetur þeirra
skaplyndi).
Nú mun langt síðan, að
þessi siður lagðist niður í
skólanum, og er það afturför.
En nú eru komnir hér fleiri
menntaskólar og væri því
ekki tilvalið, að þeir kepptu
um, á hverjum vetri, hver
skóli gæti skapað fegursta
sn jókerlingu ? Þetta mætti
vera viðurkennd samkeppni,
þar sem hæfir menn dæmdu
listaverkin.
Merkilegasta snjólistaverk,
sem gert hefir verið I
Reykjavík, mun vera það, er
Ríkharður Jónsson mynd-
höggvari gerði á Lækjatorgi
fyrir mörgum árum, en vakti
þá verðsku'ldaða athygli
allra vegfarenda.
Frá
horfnum
tíma
FRETTIR
Kvenstúdentafélag Islands
heldur jólafund í Þjóðleikhús-
kjallaranum fimmtudaginn 3.
desember. 25 ára júbilantar frá
MA sjá um fundinn. Jólahapp-
drætti. Seld jólakort Bama-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Fundurinn hefst með borðhaldi
kl. 8. Þátttaka tilk. í síma 19636.
Kveníélagið Hrönn
Jódafundurinn verður haldinn í
kvöld kl. 8.30 að Bárugötu 11.
Magnús Guðmundsson sýnir
bJóma- og jólaskreytingar.
Hvítabandskonur
Munið fundinn að Hallveigar-
stöðum miðvikudaginn 2. des.
kl. 8.30.
Kvenfélagið Seitjörn
Jólafundur félagsins verður mið-
vikudaginn 9. desember kl. 8.30.
(Athugið breyttan fundardag.)
Spakmæli dagsins
Ég kysi heldur að vera fremst
ur í þessum kotbæ en annar í
Róm.
— Cæsar (er félagar hans
niðruðu þorp, er þeir
fóru um).
VÍSUKORN
Skipstjórinn.
Hann var talinn hörkutól
hrjúft um ránarveldi,
innst í brjósti eldinn fól
undir köldum feldi.
Gunnlaugur Gunnlaugsson.
SÓFASETT Sófaisett með 2ja, 3ja og 4ra sæta sófum. Hábalksstólar með ruggiu og tógibaka. Úir- vaŒ áklæða. Greiðslus'k'i'timái- ar, Nýja Bólsturgerðin ,La«ga vegi 134, ’símii 16641, BROTAIVlALMUR Kaupi al’lan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreíðsla. Nóatúni 27, sími 2-58-91.
FlAT 850 ángi&rð 1968 eða 1969 óslkast til kaiuips. Upipl í síma 81224 ■og 25144. IESIÐ júíivtumblaViþ DRCLEGII
Byggingavöruverzl un
óskar eftir afgreiðslumanni.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist
blaðinu merkt: „Framtið — 6146" fyrir 7. desember.
Húseign — Flókagata
Til sölu húseign við Flókagötu. Húsið er 2 hæðir og kjallari.
Húsið getur hentað sem einbýlishús með 4ra herb. íbúð í
kjallara eða fyrir 3 fjölskyldur.
Ennfremur hentugt fyrir félagssamtök eða skrifstofur.
Bílskúr fylgir,
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GAMLA BÍÓI
SÍMI 12180.
HEIMASÍMAR
GÍSLI ÓLAFSS. 83974.
ARNAR SIGURDSS. 36349.
ÍBÚÐA-
SALAN
Bifreiðostjórí óshost strox
Upplýsingar á staðnum í dag eftir kl. 6
(ekki í síma).
26600
allir þurfa þak yfirhöfuðið
Fasteignaeigendur
hafið þið hugleitt sölu á eign ykkar?
Ef svo er, athugið eftirfarandi:
Við höfum á biðlista kaupendur að
flestum gerðum og stœrðum fasteigna
MEÐAL ANNARS:
KAUPANDA
að 2JQ herb. Íbúð á 1., 2. eða 3. hæð á góðum stað
í Austurborginni. STAÐGREIÐSLA.
oð 3/0 herb. nýlegri eða góðri, eldri íbúð. Afhend-
ingartími algjört samkomulag. Útborgun 650 þús.
oð 4ra herb. íbúð í Árbæjarhverfi. Otborgun 700 þús.
að S herb. Sérhæð með bílskúr. Þessi íbúð má vera
hvar sem er á hitaveitusvæðinu. Útborgun við samning
1 milljón.
að einbýlishúsi Æskilegur herbergjafjöldi 7—9.
Afhending hússins miðuð við 15. maí i vor.
Útborgun: 1,1 milljón.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli&Valdi)
simi 26600