Morgunblaðið - 02.12.1970, Síða 15

Morgunblaðið - 02.12.1970, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESBM’B'BR 1970 15 Rætt við sveitarstjóra á fræðsluráðstefnu í Rvík bíl fjórðungur gatna á Akureyri með varanlegu sflitlagi. Vonir standa til að á næstu 8 til 10 árum Verði unnt að gera gatnalfeerfið þannig úr garði að ailiar götur verði feomnar í það ástand. — Um höfnina er það að segja, að svo sem kunmugt er, er verið að gera höfn á Akureyri sunnan Oddeyrartanga og hefur Vita- og hafnamálaskrifstof- an séð um verkið. Framkvæmdir hafa nokkuð dregizt á langinn og feemur þar til bæði fjár- magnsskortur og vissir tækni- legir örðugleikar á hönnun mannvirkjanna. f>ó standa vonir tH að unnt verði að ijúka fram- kvæmdum við þennan áfanga hainargerðarinnar á næstu tveimur árum, enda er það knýjandi þörf, þar sem aðstaða til lestunar og losunar við Torfunessbryggju er orðin mjög ófullnægjandi og Eimskipafélag Isttands er að reisa vöruskemm- ur við hina nýju höfn. Fram- kvæmdum við vöruskemmumar mun sennilega ljúka á næsta ári. Höfnin hefur og komið upp dráttarbraut, svo sem komið hefur fram I fréttum. Unnið er að því að bæta og íullkomna að- stöðuna við hana. — Uörfin fyrir ný skólahús er alltaf hin sama á Akureyri jafnt sem annars staðar. Miðað er við að reisa nýtt skólahús á næsta ári til þess að fullnægja brýn- ustu þörf, en svo til samtímis og því verður lokið verður full þörf á öðrum skóla, þannig að innan 6 til 8 ára þyrfti Akur- eyrarbær að hafa lokið bygg- ingu tveggja skólahúsa. Þetta kostar mikla fjármuni og þarf dálítið átak til, svo sem annans staðar. — Ég hef nú setið þessa ráð- stefnu sveitarfélaganna hér — sagði Stefán Stefánsson að lok- um — og margt hefuir borið á góma. Margir fara héðan eflaust margs visari og gott er að kynn- ast hinum ýmsu viðfangsefnum, ræða þau og skeggræða þær lausnir sem til greina koma og líkur benda tii að séu þær skyn- samlegustu. Skoðun mín er sú, að fróðleiksráðstefnur sem þessi, séu mjög gagnlegar og að þær eigi fylista rétt á sér. Fyrstu raðhús í Mosfellssveit Rætt við varaoddvitann Salome Þorkeisdóttir er vara- oddviti I Mosfelishreppi og hef- ur átt sæti í hreppsnefnd þar siðasta kjörtímabii og aftur nú. — Okkar stærsta vandamál nú er væntanleg gagnfræða- skólabygging, sagði Salome er við spurðum hana um það sem efst væri á baugi í Mosfells- hreppi. Búið er að teikna og grafa fyrir skólahúsinu, sem á að vera til frambúðar og ætlað 390 nemendum. Um það höfum við samstarf við tvo aðra hreppa, á Kjalarnesi og í Kjós. Þetta er því bygging, sem kost- ar milljónatugi. Hún er þannig teiknuð, að steypa þarf upp í einu lagi og er ætlunin að reyna að reisa húsið fyrst og koma því i fyrsta áfanga það á veg, að hægt verði að nota 1. hæðina. Er búið að bjóða út fyrsta hlut- ann, þ.e. að steypa upp bygg- inguna. — Þetta er mjög dýrt verk, heldur Salome áfram. Og sam- skipti ríkis- og sveitarfélags grípa þama inn í. Okkar skóli verður stærri en það norm, sem ríkið hefur ákvarðað, en við það kemur stærri hluti í hlut sveit- arfélagsins. Er eftir að ganga frá samningum við menntamála- ráðuneytið um þetta. Þessi stærð á skólanum stafar mest af þvi að við erum að nýta gangarými í miðju húsi fyrir sali til afnota fyrir skólann og þykir það hag- kvæmt. Okkur finnst því slæmt að það sfeu'li efeki geta fallið inn í þau form, sem ráðuneytið setur sér. — Annar vandi, sem við stöndum frammi fyrir í Mosfells hreppi, er kaldavatnsveita, seg- ir Salome ennfremur. Við höf- um nóg af köldu góðu vatni í Seijadal, á friðunarsvæði, en það þarf að leiða um langan veg og það er kostnaðarsamt. Búið er að leggja fyrir vatnsveitu í þéttbýlustu hverfin, en vatns- veita er ekki komin í hluta af hreppnum. Þetta er þvi stórmál, sem við verðum að fara að sinna. — Heitt vatn? Jú, mörgum þykir skrýtið að við skulum ekki hafa heitt vatn til úthlut- unar og það er mikið vandamál. En staðreyndin er að við hðfum ekki yfir neinu slá'ku heitu vatni að réða, það var alllt selt burt á sínum tíma. Við vonum þó að far Salome Þorkelsdóttir. ið verði að nýta heita vatnið i Henglinum og að þetta leysist. — Jú, við höfum eitt fremur lítið hverfi skipulagt, sem stend ur fyrir dyrum að úthluta bygg- ingarlóðum í, svarar Salome spurningu ökkar. Það er svo- nefnt Teigahverfi. Þar verða fyrstu raðhúsin hjá okkur. Að lokum berst ta'lið að sam- vinnu við nálæg sveitarfélög, en Mosfeilishreppur er í Sambandi Sveitarfélaga á Reykjanesi. Sagði Saiome að sveitarfélögin ynnu mikið saman. Til dæmis hefðu þau nýlega tekið sig sam an um sálfræðiþjónustu í skól- um, ráðið einn sálfræðing og þyrfti að bæta við. Þetta væri þörf þjónusta og hefði gefizt mjög vel. Eignarnám tveggja jarða Rætt við sveitarstjóra á Patreksfirði Jón Baldvinsson heitir ungur sveitarstjóri á Patreksfirði. 1 sumar stóð hreppsfélagið í ýms- um framkvæmdum, s.s. breikkun aðalgötunnar með þvi að taka af lóðum, sem meðfram henni eru. Á Patreksfirði eru nú bú- settir um 100 manns eða voru við síðasta manntal. Árið 1969 fækkaði nokkuð á Patreksfirði, en með batnandi árferði, hefur tapið aftur unnizt. Jón sagði: — 1 dag er svo komið, að við liggur, að húsnæðisvandamál séu á Patreksfirði, hvert her- bergi er setið. Þessi húsnæðis- skortur hefur kannski staðið frekari vexti mannfjöldans fyr- ir þrifurn. Ekki hefur verið mik- ið um framkvæmdir af hálfu ein stalklmga í byggingu íbúðarhúsa, en hreppurinn er nú að láta reisa læknisbústað, sem verið er að ganga endanlega frá. Þá hef- ur hreppurinn einnig staðið í vatnsveituframkvæmdum og í sumar var unnið að því að end- urbyggja smábátabryggjuna. — Mikil gróska hefur verið í atvinnulífmu og er það mikil bót frá því sem var, er mikið at- vinnuleysi ríkti aðallega vegna gæftaleysis. I sumar var ágæt vinna og Skjöldur h.f., sem er annað hraðfrystihúsið á staðn- um tók til starfa. Nú eru því tvö frysíihús á staðnum og bát- arnir landa nær undantekning- arlaust allir heima, sem þeir gerðu ekki í fyrra. — 1 sumar lögðum við mikla áherzlu á að fegra og snyrta um hverfi í kauptúninu og höfðum til þess unglinga. Þegar aitvinna jókst fóru þeir svo í frystihús- in, þar sem þeirra var meiri þörf. — Mitt persónulega álit er að við eigum fyrst og fremst að efla atvinnulífið sem fyriir er á staðn um, þótt einhæft sé, því að það er undirstaða alls. Stefna verð- ur að þessu, og þá á eftir verð- ur að ráðast í húsnæðisvanda- málin. Fyrirlhugað er að athuga með möguleika í byggingu fjöl- býdishúss næsta ár og einnig þarf að koma upp góðu félags- heimili — bæta verður aðstöðu íbúanna á staðnum á sem flest- um sviðum. — Stærsta málið hjá hreppn- um er hins vegar eignarnám á tveimur jörðum — eignamám í Vatnseyrarlandi og Geirseyrar- landi. Matsorð kom um síðastlið in mánaðamót frá yfirmatsmönn um og er það 12,5 milljónir feróna. Geirseyri var metin á 6 milljónir króna, en Vatnseyri á 6,5 milljónir króna. Rlkissjóður mun lána af þessari upphæð allt að 60%, en ganga í ábyrgð fyr- ir 40%. Nýja fasteignamatið á þessum jörðum er þó verulega mikið lægra. Kaup á þessum löndum er ékki lítið fyrirtæki fyrir kaup- tún á borð við Patreksf jörð. Álögð útsvör voru á þessu ári rúmar 7 milljónir króna og að- stöðuigjöld um 2 miUjónir. Nauð- Laghentur maður óskast til vinnu um nokkurn tíma. Upplýsingar í síma 22170. synlegt er þó hreppsfélaginu að fá þessi lönd, því að ekki hefur reynzt unnt að framkvæma neitt án samþykkis landeigenda og samninga við þá. — Jú, sjúkrahússmálin eru einnig ofarlega á baugi. Við lít- um á Patreksf jörð sem eins kon ar læknamiðstöð. Þar er sjúkra- hús, héraðsŒæknir og aðstoðax- læknir hans. Við hefðum hins vegar aðeins takmarkað gagn af læknamiðstöð á ísafirði, þar eð samgöngur á vetuma eru mun betri við Reykjavík, en þangað er flogið þrisvar í viku. Patreks fjörður hefur þó ekM verið við- Jón Baldvinsson. urkenndur af heilbrigðisyfir- völdum sem læknamiðstöð, sagði Jón Baldvinsson að lokum. BLAÐBURÐARFOLK A OSKAST í cftirtalin hverfi Flókagötu, neðri — Tjarnargötu Holtsgötu — Njálsgötu Freyjugata I — Ingólfsstrœti Úthlíð — Sogamýri TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100 Nv bók eftír A. J. Cronin f þýðingu JÓNS HELGASONAR ritstjóra Fóir erlendir höfundar hafa notið slíkra vinsælda hjó íslenzkum lesendum sem skozki læknirinn A. J. Cronin. Eftir nokkurt hlé hefir þessi kunni rithöfundur nú sent fró sér nýja skóldsögu, sem hlaut afburða góða dóma brezkra blaða í fyrra. Fróbœr skáldsaga - Vönduð bók Bláfellsútgáfan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.