Morgunblaðið - 02.12.1970, Side 17

Morgunblaðið - 02.12.1970, Side 17
MORGUNBL.AÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DBSBMB'ER 1970 17 Gagnrýni ungra manna og leit að nýjum viöhorfum er: Vottur um líf sþrótt menningar - fyrirheit um bjartari framtíð - Ræða Helga Skúla Kjartans sonar á hátíðasamkomu stúdenta 1. desember Það er hefð orðin, að stúdent- ar gangist fyrir hátíðahöldum í minningu fullveldis Islands hinn fyrsta desember ár hvert, og svo er enn i dag. Þegar stúdenta er getið, er vasntanlega margur, sem fyrst kemur x hug hugtak, sem sjald- an bar á góma fyrir fáum miss- erum, stúdentaóeirðir. Og þœr verða upphaf umræðuefnis míns í dag. Við höfum haft fréttir af því, að í útlöndum séu stúdentar hin mesta plága, vilji einir öllu ráða og efni sífelldlega til óeirða í stað þess að sinna því námi, sem þeir ættu að vera fegnir að fá að stunda. Við veltum þvl kannski fyrir okkur, hvort þetta stafi einfaldlega af illu upplagi fárra stúdenta, sem tæli svo fé- laga sína til hlutdeildar í ósóm- anum, eða hvort allsnsegtir og eftirlæti hafi spillt svo hinni uppvaxandi kynslóð. Við höfum kannski þótzt geta hrósað happi að vera lausir við þvílíkt og þá ekki orðið um sel, þegar við fréttum, að íslenzkir stúdent ar hefðu tekið herskildi sendi- ráð okkar i Stokkhólmi. Það kynni jafnvel að hafa hvarflað áð einhverjum, að ekki væri nú vert að leggja of mikið kapp á æðri menntun, t.d. með því að efla Háskóla íslands, ef það yrði svo bara til þess að ala upp ófriðarseggi. En hugmyndir okkar um stúdentaóeirðir eru fengnar úr fréttamiðlum, sem eðlilega gera fyllst skil hinu æsilega og af- brigðilega. Ef einhver hefði enga vitneskju um iðju og at- hafnir mannkynsins nema svo sem einnar viku skammt af fréttum, gæti vafizt fyrir hon- um að segja, hvort styrjaldir, flugvélarán eða kosningar væri helzti atvinnuvegur manna; iðn- aður kæmi ekki tii greina, og til viljun væri, ef hann hefði heyrt landbúnaðar getið. Og stúdentaóeirðirnar títt- nefndu, mótmælaaðgerðir og átök við lögreglu, eru aðeins lít- ffl hluti miklu víðtækara fyrir- bæris. Við getum talað um stúdentahreyfingu, þó með þeim fyrii-vara, að í rauninni er hún engan veginn takmörkuð við stúdenta, en hjá þeim kemur hún skýrast fram, og við þá eina er það miðað, sem ég ætla að segja i dag. Sögu stúdenta- hreyfingarinnar reyni ég ekki að rekja og ekki að lýsa henni á neinn tæmandi eða kerfisbund inn hátt, enda ekki á mínu færi, en ég ætla að skýra nokkuð með sundurlausum dæmum, að hverju stúdentar beina gagnrýni sinni og kröfugerð. Á þessum stað vil ég taka það fram, að stúdentahreyfing nútím ans í sinni alþjóðlegu mynd hef- ur ekki náð til Islands nema að takmörkuðu leyti og þá helzt fyrir áhrif Islendinga, sem eru eða hafa verið við nám erlend- is, og samtaka þeirra, SfNE. GAGNRÝNI OG FÉLAGSLEGT AFL Hreyfing stúdenta einkennist af því, að þeir reyna að gagn- rýna flesta hluti með opnum huga og sem minnst bundnir hugsanavenjum samtímans og jafnframt vilja þeir mynda fé- lagslegt afl til að koma kröfum Bttnum í framikvæmd. Eins og eðlilegt er, beinist gagnrýni stúdenta mjög að há- skólunum og starfi þeirra. Er þá jafnan markmið þeirra að fylgjast með timanum, losna við venjubundnar viðjar, t.d. þætti námsefnis eða próftilhögun, sem helzt við lýði af vana, en þeim þykir ekki gegna jákvæðu hlut- verki. Eftirfarandi klausu tek ég upp úr nýútkomnu blaði deild- arfélags við Háskóla fslands: „Helztu baráttumál félagsins nú gagnvart deildinni eru að fjölga fulltrxiuni stúdenta á deildar- fundum, auka sjálfstæði deildar innar, fjölga námsgreinum, bæta stundaskrá deildarinnar, auka þátttöku stúdenta í ýms- um nefndum og ráðum, bæta kennsluhætti deildarinnar, taka upp hentugri námsskipan, lappa upp á einkunnastigann o.fI. o.fl.“ Ekki eru það þó aðeins þessu lík framkvæmdamál, sem stúdent ar láta sig varða, heldur bera þeir mjög fyrir brjósti markmið og hlutverk háskólastarfsins; sætta sig ekki við að halda áfram á markaðri braut án þess að gera sér ljóst, hvert hún leiði. Slik leit að innihaldi og umhugsun um samfélagslegar af leiðingar er raunar einkennandi fyrir stúdentahreyfinguna. í sið- ustu viku birtist í dreifiblaði Stúdentafélagsins grein, þar sem kynntar eru hugmyndir um há- 'Skóla, sem hæst ber meðal nor- rænna stúdenta. Þar segir: „Skólinn verður að vera stofn- un þjóðfélagslegrar verðmæta- myndunar auk þess að vera mið- stöð þekkingar og fræðslu. Slíkt hlýtur að gera ráð fyrir stöðugu endurmati á takmarki menntunar og rannsókna . . . Háskólinn á ekkl eingöngu að þróast og vaxa samliliða þjóðfé- laginu, heldur að vera brautryðj andi þróunar þess. Háskóla er ætlað að taka óhlutdræga og krítíska afstöðu til þjóðfélags- Iegra fyrirbæra og brjóta þau til mergjar. Um leið verður hann að vera sér meðvitandi um gildi menntunar og þekkingarmiðlun- ar.“ HUGTAKIÐ LÝÐRÆÐI Ein af þeim kröfum, sem oft eru gerðar til hásíkóla, er, að hann sé lýðræðislegur, og er þá átt við, að allir, sem við hann starfa, stúdentar jafnt sem kenn arar, hafi sem jafnastan rébt til ákvarðanatöku og stefnumótun- ar innan hans. í framhaldi af því, sem ég las áðan, segir í sömu grein: „Einnig hlýtur breyting þessi að krefjast lýð- ræðislegri stjórnunar skólans og aukinnar samábyrgðar alira þeirra, er við skólann starfa.“ Það á ekki aðeins við um stjórn háskóla, að stúdentar brjóti heilann um lýðræðishug- takið. Gagnrýna þeir oft hefð- bundna framkvæmd lýðræðis, 6enda á, að það sé ekki fólgið í stofnunum af tiltekinni gerð, heldur sé það hugsjón eða mark mið, sem stjórnarfar eigi að mið- ast við og svonefndar lýðræðis- legar stofnanir geti þjónað vel eða illa eftir atvikum. 1 siðustu viku kom út í fyrsta sinn blað, sem kallast Afángi, blað náms- manna, og er þetta fyrsta tölu- blað að mestu skrifað af félög- um í samtökum námsmanna er- lendis. Þar segir í einni grein, að hugtakið lýðræði sé ofnotað og afskræmt og hafi þvi í flestra eyrum litla sem enga merkingu. Islendingar eru taldir búa við lýðræði að mjög takmörkuðu leyti. Kosningar séu ójafn leik- ur, þar eð möguleikar allra til að hafa áhrif á skoðanamyndun séu engan veginn hinir sömu. Kjósandinn velji aðeins fulltrúa eftir óljósri stefnu í nokkrum höfuðmálum, stefnu, sefn í flest- um tilvikum sé ekki annað en lýðskrum, og geti kjósandinn engin áhrif haft á gang þeirra mála, sem upp koma á kjörtíma- bilinu. Síðar segir höfundur: „En lýðræði er ekki i því fólg- ið, að sumir sinni því alltaf og aðrir aðeins nokkra daga á æv- inni. Það er ölhl fremur fólgið í því, að allir sinni því alltaf og sem jafnast." AÐSTÖÐUMUNUR TIL NÁMS Enn vil ég nefna dæmi um al- gengt baráttumál stúdenta, þar sem eru menntunarforréttindi eða aðstöðumunur til náms. í mörgum löndum hefur verið at- hugað, að tiltölulega langflestir stúdentar eru börn þess fólks, sem mestrar virðingar nýtur og býr við bezt kjör. Að nokkru stafar þetta af efnahagslegum aðstöðumun, enda er þess kraf- izt að úr honum sé bætt, t.d. með námslaunum, það er, að námsmenn fái laun sambærileg og jafnaldrar þeirra við önnur störf, og er þá bent á, að nám sé vinna, sem þjóðhagsleg nauð- syn sé, að innt sé af hendi, ekki síður en önnur störf. Er þá oft gert ráð fyrir, að launamunur menntamanna og annarra eigi jafnframt að minnka, svo að námslaunin auki ekki úr hófi að stöðumun stéttanna. Raunar má hugsa sér ýmis vandamál í tengslum við námclaunakerfi, en ég fer ekki lengra út í þá sálma að svo stöddu. Sýnt hefur verið fram á með gildum rökum, að það er ekki að eins efnahagur, sem ræður, hversu algengt það er, að börn af tilteknum uppruna afli sér æðri menntunar, sem svo er nefnd. Þar koma einnig til uppeldisáhrif og uppvaxtarskil- yrði almennt. Sum böm alast upp við, að eðli'Iegt sé fyrir þau, jafnvel sjálfsagt, að ganga menntaveginn; þeim er innrætt- ur hugarheimur, sem fellur vel að starfi og viðfangsefnum skól- anna. Um önnur börn gegnir þveröfugu máli. Og ekki aðeins þetta, heldur er nú ljóst, að hæfileikar, svo sem almenn greind og ýmsar sérgáfur, ráð- ast mjög af uppvaxtarskilyrð- um barna, e.t.v. miklu fremur en af beinum erfðum. Þetta hvort tveggja er gagnrýnt sem mis- rétti, meðal annars af stúdent- um. Ýmissa aðgerða er krafizt til úrbóta, bættrar fræðslu um upp eldismál og viðbúnaðar skóla og barnaheimila til að vega á móti áhrifum skaðlegra eða ófullnæg; andi uppvaxtarskilyrða. En væntanlega verður þess langt að bíða, að öll heimili geti búið börnunum hin ákjósanleg- ustu þroskaskilyrði, svo að þau hljóti öll jafnríflegt veganesti. Af þeim sökum hafa stúdentar sums staðar talið, að uppeldi á heimilum verði ávaillt til þess að gera aðstöðu barna misjafna, gefa sumum forskot á kostnað annarra, og þess vegna beri að ala öll börn upp við sömu skil- yrði á opinberum stofnunum án afsíkipta foreldra. Að vísu hefur þráfaldlega komið fram, að börnum er miklu hollara að al- ast upp á venjulegu heimili en slíkum stofnunum, a.m.k. í þeirri mynd, Sem þær þekkjast nú. Virðist mér, að þetta sé dæmi um óaðgengilega kröfu, sem þó geti haft það gildi að beina athygli að raunverulegu vandamáli, vandamáli, sem fremur færi fram hjá ráðamönnum og al- menningsáliti, ef það væri ekki gert að lið í baráttu stúdenta. B YLTIN G ARSTEFN A Að lokurn má geta þess, að í stúdentahreyfingunni gætir all- mjög byltingarstefnu. Hinum gagnrýnu stúdentum ofbýður þá spilling samfélagsins, kúgun og blekkingar. Þeir telja óréttlátt þjóðfélagskerfi hafa fest sig svo í sessi og náð þvílíkum tökum á vitund og vild alþýðunnar, að vonlaust sé að koma fram nauð- synlegum breytingum nema með byltingu, sem kollvarpi þvi í einu vetfangi. Afángi birtir grein, þýdda úr norsku stúdenta blaði, þar sem segir m.a.: „Að- stæður allar í Skandinavíu og allri Norður-Evrópu eru þær, að þensla og þróun mannlegrar tilveru eru svo að segja ekki fyrir liendi, þrátt fyrir fjárhags grundvöll.“ Og um „stúdenta uppreisnina" segir þar, að hún sé „almenn uppreisn gegn mann- hatandi stjórnmálakerfi sjálf- stæðissviptingar, samkeppni og firringar." En á það er bent, að það kerfi, sem við tekur eftir byltingu, hefur æði oft reynzt nokkuð frábrugðið þeim draum- sýnum, er fyrir mönnum vöktu, þegar þeir steyptu hinu gamla. Því hafa sumir - stúdentar sett upp sem stefnumið hina viðvar- andi byltingu, byltingu, sem ekki sé gerð og ljúki svo, held- ur sé henni komið á til frambúðar. Byltingarstefna stúdenta I vestrænum löndum dregur mjög déim af stjórnmálastefnum, sem kenndar eru við vinstri. Oft hafa stúdentar leitað samstöðu með sósíal’ískum verk»lýð, en yfirieitt ekki tekizt með þeim traust samvinna. Ég hef nú farið nokkrum orð- um um hræringar meðal stúd- enta og nefnt sundurlaus dæmi um áhuga- og baráttumál, sem mikið ber á í þeirra hópi. Gagnrýni og endurmat eru þau stefnumið, sem mest móta af- stöðu þeirra. í NÁNUM TENGSLUM VIÐ MÓÐLfFIÐ Málflutningi sánum og kröfu gerð koma stúdentar svo á fram- færi með ýmsu móti, en oft með fjölmennum mótmælaaðgerðum, sem vilja þá enda í átökum og jafnvel viðvarandi ófriðar- ástandi. Þar koma til skjalanna stúdentaóeirðir fregnmiðlanna. Væntanlega getum við flest verið sammála um, að slík at- vik séu óæskileg og beri að forð- ast. f vitund okkar er það eitt- hvert miikilvægasta boðorð mannlegra samskipta, að þau skuli fara fram sem friðsamleg- ast og án ofbeldis, enda er of- beldishneigð og ofbeldisvenjur með því versta böli, sem hrjáir mannkynið. En sjaldan veldur einn, þá tveir deiia. Hér kemur til gxeina ósanngimi og harð- nes'kja af hálfu fleiri aðila en stúdenta einna, og má sjálfsagt gera upp á mismunandi vegu ábyrgðina á einstökum atburð- um. Hér langar mig að geta þess, að mér virðist ekki líklegt, að mikið kveði að stúdentaóeirðum á fslandi hin næstu ár. Til þess liggja ýmis rök, en eitt atriði vil ég nefna sérstaklega. Miðað við það, sem gerist í ýmsum öðr- um löndum, kannski flestum, þá eru stúdentar á fslandi í mjög nántim tengshim við þjóðlifið ut- an liáskóla. Þeir vinna lang- flestir almenna vinnu í sumar- Helgi Skúli Kjartansson, stud. philol. leyfum, margir einnig með skóla á veturna; tiltölulega margir þeirra eru fjölskyldumenn; óvenju algengt er, að þeir búi í foreldrahúsum; margir þeirra sinna mjög skemmtana- og fé- lagslífi utan Háskólans. Stúd- entum á fslandi er vafalaust slður tamt en víða annars stað- ar að lita á sig sem sérstakan hóp, en hugsa fremur um sig sem bjóðfélagsþegna eða bara ein- staklinga. Þetta gerir ólíklegt að stúdentar sem slíkir myndi ein- hvers konar uppreisnarhóp í íslenzku samfélagi. Þetta á aug- Ijóslega ekki við um íslendinga, sem stunda nám erlendis. Auk þess eru kjör þeirra að sumu leyti örðugri en okkar flestra. sem nemum hér heima, svo að það þarf ekki að vera eingöngu fyrir náin kynni af erlendum óróaöflum, að þessir námsmenn taka hvassari afstöðu til ýmissa mála en almennt er meðal okkar. Við höfum þá kannski fallizt á, að stúdentaóeirðir séu ekki bara óþægð, heldur hluti af — eða afleiðing af — hreyfingu, sem á sér hugsjónalegan grund- völl og félagsleg markmið. En hvers konar grundvöll og hvaða markmið? Eru þessir stúdentar ekki alla tið að gagnrýna allt og alla, þykjast of góðir til að alast upp við þær beztu aðstæður, sem nokkurri kynslóð hafa verið búnar frá ómunatið? Gera þeir sér ekki leik að því að vefengja flest það, sem sjálfsagt er og eðlilegt í þjóðfélaginu? Að- hyllast þeir ekki meira og minna háskalegar kenningar róttækra heimspekinga og stjórnmála- manna? Gera þeir ekki kröfur um allt milli himins og jarðar, þó það komi þeim ekkert við, hugsa ekkert um hvort yfirleitt sé hægt að verða við þeim, en ganga svo af göflunum, ef sagt er við þá kurteislegt NEI? Þeg- ar um svona hreyfingar er að ræða, hlýtur þá ekki að vera bezt að hafa sem minnst af þeim að segja? BREYTINGAR í HÁLFA ÖLD Við skulum athuga málið bet- ur og byrja á svolitlum söguleg- um útúrdúr. Á þessum degi er- um við að minnast áfanga í sögu Islands, sem náðisit fyrir 52 ár- um. Og hvert sinn, sem við leiðum hugann aftur í tímann, þó ekki sé nema hálfa öld, hlýt- ur að blasa við okkur, hve margt hefur breytzt. Fyrst koma okkur í hug hvers kyns verk- legar og tæknilegar nýjungar. En jafnframt breytist hugsunar- háttur manna og viðhorf til flestra hluta. Hvort sem við hugsum um vélar og tæki, hug- myndir og skoðanir, eða venjur og siði, þá hefur allt þetta ein- hvern tíma verið nýtt, furðulegt og jafnvel rangt eða háskalegt. Jafnframt þvi sem nýjungar koma upp, hlýtur annað að Framhald á næstu síðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.