Morgunblaðið - 02.12.1970, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1970
a
báöum
áttum
EFTIR FEITH BALDWIN
•— Eg spurði nú ekkert um
það. Ég sagði henni bara að við
hefðum lent í árekstri, og ég
hefði farið með þig hingað. Þeg-
ar hún spurði, hvers vegna ég
hefði ekki farið með þig heim,
sagði ég, að hér ættirðu heima,
þar sem þú ætlaðir að giftast
mér.
Frú Bell rak upp 6p, og Kath-
leen reyndi að rísa upp í rúm-
30
inu. — Já en , . . Ertu alveg
genginn af göflunum, Pat? Þetta
er ekkert ákveðið enn.
— Það er allt ákveðið nema
dagurinn, sagði Pat, — og neit-
aðu því ef þú getur.
Frú Bell velti vöngum og
sagði: — Hann þurfti bílslys til
að vakna! Snáfaðu út héðan,
Patrick Bell! Náðirðu í lækn-
inn?
Master
— Hitarar
MASTER-hitarinn er handhægt og ódýrt hitunartæki.
MASTER-hitarinn er kjörið tæki til hitunar á eftirfarandi:
Nýbyggingum Fiskvinnsluhúsum
Bílaverkstæðum Skipalestum
Bilskúrum Skipasmíðastöðvum
Útihúsum og mörgu fleira.
MASTER brennir olíu.
MASTER fæst í níu stærðum.
Kynnið yður MASTER. — Kaupið MASTER.
G. Þorsteinsson og
Johnson hf.
ÁRMÚLA 1 - GRJÓTAGÖTU 7
SÍMI 2-42-50
— Já, það gerði ég.
— Ég þarf engan lækni, sagði
Kathleen. Bara sofa almenni
lega.
— Þú skalt fá hvort tveggja,
sagði Pat.
Hann laut niður til þess að
kyssa hana og hún lagði báðar
hendur um hálsinn á honum. Frú
Bell hummaði eitthvað og veik
þjónustustúlkunni út. Sjálf stóð
hún samt kyrr með hendurnar
krosslagðar á maganum og
horfði á son sinn og Kathleen
með velþóknun.
— Hvað sagði Hanna? spurði
Kathleen, þegar Pat var að fara
út.
— Ég hlustaði ekkert á það,
en hún var afskaplega hávær.
Veinaði upp yfir sig. Hún kem-
ur að vitja þín á morgun.
— En ég vil fara í skrifstof-
una, Pat! sagði Kathleen.
— Nei, ekki aldeilis.
— Ertu þá að reka mig?
— Heldurðu, að ég vilji láta
konuna mína vinna?
— En ég er ekki orðin konan
þín. Nú fékk hún aftur höfuð-
verk og leit vandræðalega á frú
Bell. — Æ, reyndu að fá hann
héðan út, bað hún.
— Út með þig, sagði móð-
ir hans og dró hann út að dyrum.
Þar stóð hann kyrr stundar-
korn, brosandi, sigrihrósandi og
fallegur. Hann kyssti á fing
ur til Kathleen. — Sofðu vel,
sagði hann. — Ég astla að bíða
hérna fyrir utan og sjá til, hvað
læknirinn segir.
Dyrnar lokuðust og Kath-
leen sagði: — Ég vildi ekki láta
þetta gerast svona snögglega.
Þetta getur nú einmitt líkzt
honum Pat, sagði móðir hans,
rólega.
—- Já, ég veit það, en .. .
Hún gat ekki vel gert sér
grein fyrir þessari sorgarkennd,
sem var blandin hamingju henn-
ar. Þetta hafði líklega komið of
snöggt og svo óvænt. Hún hafði
kunnað svo vel við þetta eins
og það var, daglegan spenning,
undrunina og eftirvæntinguna.
Hún hafði haldið, að þetta
mundi þróast og verða að ást,
rétt eins og þegar blóm opnast
mót sólu. Hún hafði ekki verið
viss um ást hans til sín og samt
hafði hún kunnað vel þessari
óvissu, dag frá degi.
Læknirinn kom — aivarlegur
ungur maður. Hann gaf henni
eitthvað til þess að draga úr höf
uðverknum og láta ha»a sofna.
Hann gat ekki fundið nein
Hrúturimi, 21. marz — 19. april.
Reyndu að sinna Jagalegu hliðinni á
erfitt sé.
áhugamálum þínum, þótt
Nautið. 20. april — 20. mai.
Reyndu að lagfæra þín mál og koma þeim I það horf að vel sé.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
EinkamáUn og samvinna við aðra verða athyglisverðari með hverj-
nm deginum. Reyndu að gefa þér tíma til athugunar fleiri málcfna.
Krabbinn, 21. júni — 22. júli.
Þér lætur vel að tala við fólk þessa dagana, einkum áhrifamenn.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Efnaleg þrekraun þín er talsvert íhugunarcfni þessa stundina.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú hcfur nægan tíma og notaðu kraftana til samskipta við fólk,
sem þú átt erindi við.
Vogin, 23. september — 22. október.
Skrifaðu sem flest bréf núna. Þú finnur fólk á förnum vegi, sem
þú hefur ekkert samband haft við lengi.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Fjármál og skapsmunir eru að komast í ágætt horf.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Reyndu að halda til streitu eigin áhugamálum i dag.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þú færð mikla aðstoð, ef þú getur sýnt fólki fram á að aðstoð
þcss fiæki það ekki i frekari málalcngingar. Óliklegasta fólk tekur
þátt i þessu.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þú ert líklegur til að láta gikkshátt vina þinna glepja þig eitthvað
af leið. Taktu ekki ákvarðanir sjálfur í þessum efnum.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Reyndu að sinna starfi þínu og reyndu að sýnast — og vera
skárri, en þú hcfur verið undanfarið. Það er auðvelt að bæta upp
það, sem miður hefur farið
meiðs’li, en ætlaði að i«ta taka
röntgenmynd af henni að
morgni. En hann þóttist samt
viss um, að þetta væri ekki ann-
að eða meira en slæmt höfuð-
högg og taugaáfall, en ekkert
væri brotið.
Þegar hann var farinn,
breiddi frú Bell ofan á hana,
opnaði gluggana og kyssti hana
á kinnina. Og Kathleen brosti til
hennar, rétt eins og hún væri
að biðjast afsökunar.
— Ég geri ykkur svo mikið
ómak, sagði hún, — en hann
vildi endilega fara með mig hing
að.
— Hvert hefði hann heldur
átt að fara með þig? spurði móð
• TTE X-XT3nTI liT Ti( S'
SIMl 16245.
★ TÖKUM DAGLEGA UPP NÝJAR VÖRUR.
■k NÆRFATNAÐUR A ALLA FJÖLSKYLDUNA
k DRENGJA- OG HERRANATTFÖT.
★ NATTSAMFESTINGAR, nAttkjólar,
NATTFÖT fyrir DÖMUR.
★ LEIKFÖNG OG AÐRAR GJAFAVÖRUR I ÚRVALI.
k JÓLAKORT OG JÓLAPAPPÍR.
Góði dátinn
SVEJK
eftir Tékkann Jaroslav Hasek í þýð-
ingu Karls ísields, sem verið heiur
uppseld árum saman, er komin út í
nýrri .og vandaðri útgáfu. Ævintýri
góða dátans Sveik er eitthvert hið
sniallasta skáldverk, sem nokkru sinni
hefur verið ritað um styrialdir. Um
þýðingu Karls þarf ekki að fjölyrða.
Það er vafamál a3*aðrar þjóðir eigi
snjallari þýðingu af góða dátanum
Svejk. Fyndnin er svo leiftrandi, að
það er dauður maður, sem ekki tárast
við lóstur bókarinnar.
Verð í bandi kr. 450 -f 'söluskattur.
~\r
Jar&sfðv Hasek
Góðí dátínn
SVEJK
ANDERSEN
PJÖLSKYLDAN
eftir norska rithöfundinn Sigbjörn
Hölmebakk, í þýðingu Álfheiðar Kjart-
ansdóttur, er bráðskertimtileg gam-
ansaga. Hún er hnyttin og skemmti-
leg lýsing á lífsþægindakapphlaup-
inu, sem lýsir sér á 'svipaðan hátt
hvort heldur er í Noregi eða á íslandi.
Sagan náði miklum vinsældum í Nor-
egi og hefur verið kvikmynduð._ —
Skemmtilegar teikningar eftir Olaf
Torfason prýða hókina. Þetta er bók,
sem öll fjölskyldan hefur skemmtun
og ánægju af.
Verð í bandi kr. 385 + söluskattur.
^VIKURUTGAFANyg
ir Pats. — Ég verð héma í næsta
herbergi, og þú þarft ékki ann-
að en kalla til mín. Og Emily
sefur í hinu herberginu . . . og
hún heyrir til þín þótt þú gerir
ekki annað en hreyfa þig.
Reyndu nú að sofna.
En hana iangaði ekkert til að
sofna heldur vildi hún hugsa um
hverja mínútuna af þessu
kvöldi. Hún vildi sjá fyrir sér
svipinn á Pat, er hann laut yfir
hana, þegar hún vaknaði eftir
þetta skamma meðvitundarleysi.
En hún gat illa haldið opnum
augunum og verkurinn var nú
horfinn og brátt sofnaði hún, og
vaknaði ekki nema einu sinni,
þegar Emily kom inn í gráum
slopp til þess að laga koddana
hjá henni, færa henni vatn og
laga til kring um hana.
Hún var enn sofandi þegar
Pat fór í skrifstofuna næsta
morgun, svo að hún sá hann
ekki. Morgunverðurinn var til-
búinn þegar hún vaknaði og frú
Bell kom inn með heitt vatn og
handklæði og nýjan tannbursta
og fór að hjálpa henni, rétt eins
og krakka. Brátt gat hún setzt
upp og drukkið kaffi og ávaxta
safa. Nú leið henni miklu bet-
ur. Höfuðið var aumt við-
komu, en hún var ekki leng-
ur með velgju eða svima. Hún
var hressari og vel hvild, en ját-
aði, að sig langaði ekkert
að fara strax á fætur.
Læknirinn kom snemma aftur
og með röntgentæki og aðstoðar
mann og tók myndir. Þegar hún
spurði hann, sagði hann henni,
að henni væri bezt að vera kyrr
í rúminu. — Þér hafið fengið
taugaáfall, sagði hann alvörugef
inn.
— Því trúi ég varla, tautaði
hún og renndi augunum til frú
Bell, sem tók undir með skelii-
hlátri.
Þær voru einar saman þennan
morgun.
— Ég má ekki vera að tefja
fyrir þér, sagði Kathleen afsak-
andi, — þú ert svo góð við mig,
frú Bell.
— Gætirðu ekki kallað mig
Molly? sagði gamla konan. —
Það kynni ég betur við.
— Vitanlega vildi ég það
gjarna, sagði Kathleen og brosti.
En láttu mig ekki vera að tefja
fyrir þér. Bezt væri ef þú
gleymdir alveg, að ég sé hérna.