Morgunblaðið - 06.01.1971, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANUAR 1971
19
Minning
Franihald af bls. 18
«m, — spurningum um það sem
aldrei fást svör við.
Leiðir okkar Birgis Fanndal
lágu fyrst saman i Reykjaskóla
í Hrútafirði. Með honum deildi
ég herbergi og samferða urðum
við í námi. Þau vináttubönd
sem við þá bundumst styrktust
því meir sem ár liðu, ekki hvað
sízt vegna drengskapar vinar
mins.
Við hittumst oft, og til þeirra
stunda hugsa ég nú þegar leiðir
skilja um stund. Ég hugsa til
þess hversu glaðvær og skemmti
legur hann var aatíð, en þó hóg-
vær.
Þegar við hittumst á liðnu
sumri var mér sízt í huga að sá
fundur væri okkar síðasti —
þvert á móti. Birgir hafði ný-
lokið námi í mjólkurfræði og
hóf störf í þeirri grein á Akur-
eyri á liðnu vori og gæfan
blasti við. En „eigi má sköpum
ren-na.“
Hinn 29. desember s.l. var
Birgir á ieið til Akureyrar úr
fjölskylduheimsókn í Búðardal,
þegar slysið bar að höndum,
slysið sem markaði skil lífs og
dauða. Þar fórst góður drengur,
drengur sem ekki mátti vamm
sitt vita í neinu, starfsamur og
hjartahlýr.
Hér er skarð fyrir skildi, ást
vinir eiga um sárt að binda, vini
setur hljóða.
Þegar ég rita þessar linur er
ég á förum til útlanda og get
þvi ekki fylgt vini minum til
hinztu hvílu.
Ég sendi kveðjur mínar og for
eldra minna til allra þeirra sem
nú trega Birgi Fanndal, og bið
þeim Guðs blessunar.
Bjarni Ólafsson.
Einar Þ. Einarsson
- Minningarorð
í DAG verður til moldar borinn
frá Fríkirkjunni í Hatfnarfirði
Einar Þ. Einarsson Reykjavíkur-
vegi 21. Hann amdaðist þann HfH
23. desamber s.l. atf afLeiðingum
slyss.
þann
s, ei' hanin varð fyrir bifreið '
n 2. desember s.l.
Einair var fæddur 6. október
1889 að Álfsstöðum á Skeiðuim,
sonur hjónanna Geir’ augar
Jónsdóttur og Einar Jónssonar er
þar bjuggu og var hann næst
yngstur af 6 hræðrum sem allir
eru nú látnir, en 10 hálfsystk-
ini átti hann og eru 5 af þeim
á lífi, 4 systur og 1 bróðir. Hann
fluttist ungur með föðux sínum
til Eyrairbalkka og sUmdaði þar
sjóróðra og járnsmíðair. Einnig
ók hann vörubíl milli Eyrar-.
baklka og Reykjavíkur um ám-
bil. Til Hafnarfjarðar fiuttist
hann árið 1933 og sbundaði þar
aðallega akstiur vörubifreiða.
Einiar kvæntist 9. maí 1936
Elínu Jóhannsdóttur en misstr
hana eftir aðeins 12 ára samibúð
og var það homum miklll harm-
ur.
Ég ætla ek'ki að rekja ævi
Einars í þessum fátæklltegu orð-
um, til þess er ég ekki nógu
kunmugur, því ég kynntist Ein-
ari fyrir aðeins fáum árum og
þakka ég og fjölskylda mín hon
um þau góðu kynni því hann
var bamgóður svo af bar.
Einar bjó ail’la tíð í húsi sínu
að Rey k j avíkur vegi 21 bæði
meðain kona hans lifði og allá
tíð síðan en mesta athvarf átti
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofustarfa hjá heildverzlun hálfan dag-
inn kl. 1—5 Þarf að hafa bílpróf.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist afgr Mbl. merkt: „Skrifstofustúlka — 4347'.
Mntreiðslumnður óskast
Viljum ráða ungan, duglegan matreiðslumann til starfa í veit- ingahús vort. Snyrtimennska, stundvísi og reglusemi áskilin. Upplýsingar veittar á staðnum.
brauð bœr Þórsgötu 1 v/Óðinstorg. Símar 25090—20490.
hann hjá systur simni Sigríði o.g
manni hennar er búa að Kópa-
voasbraut 10 í Kópavogi og voru
þau og somur þeirra honum mjög
traust og góð tiil hinztu st.undar.
Við kveðjum þig Einar minn
og vitum að nú liíður þér vel
því nú ertu koiminn til ástvin-
anna sem á uindan voru famir.
Drottinn bltessi þig.
Áslaug Magnúsdóttir.
Hjónoklúbbur Gorðahrepps
heldur þrettándafagnað laugardaginn 9. jnúar 1971 kl. 9 e.h.
að Garðaho(ti.
Aðgöngumiðapantanir fimmtudaginn 7. janúar kl. 4—7 í sima
42914 og 40018.
Mætið vel og stundvíslega.
STJÓRNIN.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Þorvaldar Þórarinssonar hrl. og Einars Viðars hrl,
fer fram opinbert uppboð að Kleppsvegi 152, miðvikudaginn
13. janúar n.k. kl. 15.00 og verður þar seld vörulyfta, talin
eign Hverfisbakarísins.
Greiðsla vlð hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Þórarins Árnasonar hdl., fer fram opinbert uppboð
að Elliðavogi 5, miðvikudaginn 13 janúar n.k. kl. 11 f.h. og
verður þar seld plaststeypuvél, talin eign Böðvars Guð-
mundssonar.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Innilegar þakkir færi ég sonum mínum, tengdadóttur, syst-
kinum, samstarfsfólki, frændfólki og vinum, sem minntust
mín á sjötugsafmælinu með heimsóknum, gjöfum og hlýjum
kveðjum. Hjartans þakkir til ykkar allra fyrir samferð og sam-
starf á liðnum árum.
Guð blessi ykkur og gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
J6n Sæmundsson
Vörubílar
T I L S Ö L U :
M. Benz 1413 '69 með túrbínu.
M. Benz 1413 '67 báðir ný innfl.
M. Benz 1413 '66.
M. Benz 1413 '65.
M. Benz 1113 '64. Allir bílarnir eru í góðu ástandi.
Skandía (56) '66.
Bedford '63 pafl- og sturtulaus.
Landrover '66 diesel.
Landrover '67 benzin.
SÝNINGARSALURINN
v/Kleppsveg 152 — Sími 30995.
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
mmmmo
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fjórföld
vinnings-
npphæð
Árið 1971 mun Happdrætti Háskólans enn einu
sinni stíga feti framar. Nú eiga viðskiptavinir
Happdrættisins kost á því að fjórfalda vinninga sína.
í stað þess að vinna eina milljón í einum flokki
getið þér nú tvöfaldað, þrefaldað eða fjórfaldað
vinninginn með því að kaupa sama númerið í allt að
fjórum flokkum. Þessir flokkar nefnast E, F, G og H.
Happdrætti Háskólans, eina peningahappdrætti
landsins, greiddi rösklega 241 milljón í vinninga
á síðastliðnu ári. Happdrættið býður yður nú að
margfalda vinningsupphæð yðar. Hafið þér gert ráð
fyrir þessum möguleika?
Sláið fjórar flugur í einu höggi — látið umboðsmann
Happdrættisins tryggja yður sama númerið í öllum
flokkum strax í dag.
Á morgun gæti tækifærið verið glatað.
SPYRJIÐ UMBOÐSMANNINN UM NÚMER YÐAR
í HINUM FLOKKUNUM
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS