Morgunblaðið - 27.04.1971, Blaðsíða 1
28 SÍÐUR OG 4 SÍÐUR ÍÞRÖTTIR
Háskólabíó var þéttsetið fulltrúum og: gestum er 19. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur á sunnud agskvöld.
1 w •wfl
SsL»
Í|
|Py| flPpV ,v' Illjj
flflHMHPs * i wSPm Sr ' : m,
Jóhann Hafstein við setningu 19. Landsfundar:
Með þessum Landsfundi fylkjum
við liði til kosningabaráttunnar
„VIÐ væntum niikilla um-
bóta í bættu stjórnkerfi og
lífrænni stjórnsýslu. Við ætl-
um að hagnýta okkar eigin
auðlindir: hafið á landgrunns-
svæðinu og landgrunnið
sjálft, orku jarðvarma og
fallvatna. Við ætlum að
ástunda gróðurvernd í harð-
býlu landi á norðurhjara.
Eins er og um náttúruvernd
yfirleitt. Sjálfstæði lands og
þjóðar viljum við tryggja
með því að standa traustan
vörð um tungu okkar og
þjóðlega menningu, samhliða
eðlilegum skiptum við aðr-
ar þjóðir á sviði stjórnmála
og menningarmála. Við vilj-
um halda áfram samvinnu
við vestrænar lýðræðisþjóðir
og tryggja öryggi landsins
með þátttöku í Atlantshafs-
bandalaginu. Við viljum
kappkosta að efla norræna
sainvinnu.“
Þannig komst formaður
Sjálfstæðisflokksins, Jóhann
Hafstein, forsætisráðherra, að
orði í setningarræðu sinni við
upphaf 19. Landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins sl. sunnudags-
kvöld. Fundarstjóri á setning-
arfundinum var Ingólfur
Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, en fundarritarar
Freyja Jónsdóttir, Akureyri,
og Oddur Andrésson, Hálsi.
Lúðrasveit Iék meðan full-
trúar og gestir gengu í sal-
inn í Háskólabíói, sem var
þéttsetinn áheyrendum.
Ræða Jóhanns Hafstein
verður birt í heild í sérstöku
aukablaði, sem Morgunblaðið
gefur út á morgun. í loka-
kafla ræðu sinnar sagði Jó-
hann Hafstein m.a.:
Hvað felst í skauti framtíðar?
Washington, 26. apríl -— AP
BANDARÍSK nefnd, sem
Nixon forseti skipaði í júlí sl.,
skilaði í dag áliti sínu, þar
sem hún leggur m.a. til, að
Nixon forseti styðji inngöngu
kínverska alþýðulýðveldisins
í Sameinuðu þjóðirnar, jafn-
Þetta er spurning, sem fyrst
og fremst brennur á vörum
hinnar ungu, komandi kynslóðar.
Eigi er þó fyrir að synja, að við,
sem grónir erum úr grasi, höf-
um áhuga fyrir svarinu við
henni. Bæði er, að við viljum
gjarna hafa orkað til góðs, þeg-
ar liðinn er okkar dagur, og á
meðan enn er ratijóst, viljum
við byggja sem traustasta undir-
stöðu þess, sem verða vill.
Það er eðlilegt, að unga fólkið
vilji leita skjóls í aukinni mennt-
un og handleiðslu vísinda. Á síð-
asta Landsfundi ræddum við
sérstaklega þátt vísinda í þágu
atvinnulífsins. Á þessum fundi
munum við auk landheigismáls-
ins fjalla sérstaklega um menn-
framt því, sem þjóðernis-
sinnastjórnin á Formósu haldi
sínu sæti, en hún skipar nú
sæti Pekingstjórnarinnar hjá
S.Þ.
Auk þess leggur nefndin til,
að A- og V-Þýzkaland, N- og S-
Kórea, N- og S-Vietnam fái aðild
að S.Þ. Formaður nefndarinnar
ingar- og menntamál. Við höfum
ekki tiltekið í dagskránni, í
hvers þágu þau mál séu sérstak-
lega rædd. En ég veit, að engum
blandast hugur um, að það er
fyrst og fremst í þágu einstakl-
ingsins til þess að efla eigin
þroska og auka manngildið. Við
viljum, að sá sé meginþáttur
menntunar- og skólamála okkar,
að einstaklingurinn þroskist, að
persónuleikinn vaxi. Þetta er og
hefur verið grundvallarhugsjón
Sjálfstæðisstefnunnar. Þetta
verður hornsteinn hennar í
framtiðinni.
Auðvitað breytast tímarnir og
mennirnir með. Þetta er ekki svo
að skilja, að ný manntegund
muni við taka af hinum eldri.
var Henry Cabot Lodge, fyrr-
verandi sendiherra Bandarikj-
anna í S-Vietnam, en auk hans
átti Fulbright, öldungadeildar-
þingmaður, formaður utanríkis-
málanefndar öldungadeildarinn-
ar, sæti í nefndinni, ásamt 48
öðrum mönnum.
Bandaríska tímaritið Life segir
frá því í viðtali við Mao tse-
Sérhvert nýtt, sem framundan
er, grundvallast á reynslu þess
liðna. Það skiptir ekki mál, hvort
menn vilja viðurkenna þessa
staðreynd eða ekki, hún er jafn
bjargföst. Margt nýtt er að vísu
harla rótlaust, að þvi er virðist.
Þannig hefur það áður verið, en
fyrr en varir er slíkt horfið. Var
ekki nasisminn eitthvað nýtt?
Var ekki fasisminn eitthvað
nýtt? Var ekki kommúnisminn
eitthvað nýtt? Flest er þetta
horfið eða á fyrir sér að hverfa.
Hér á landi þorir nú enginn að
kalla sig kommúnista lengur.
Þegar ég var á skólaárum, köll-
uðu menn sig kommúnista með
stærilæti.
Framhald á bls. 12.
Tung, leiðtoga Kinver ja, að hann
hafi sagt, að hann vonaði að
Nixon Bandaríkjaforseti gæti
heimsótt Kína, hvort sem hann
gerði það sem forseti eða eftir
að hann lætur af embætti. Frétta
maðurinn, sem skrifar viðtalið,
var á ferð i Kina í september sl.
Talsmaður Nixons sagði á
Framhald á bls. 12.
Bandarísk nefnd:
Mælir með aðild Kína að S.Þ.
i