Morgunblaðið - 01.05.1971, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1971
I DAG, 1. maí, hætast Loftleiða-
hótelinu 110 tiý gistiherbergi,
fuHkominn ráðstefnusalur, er
tekur 100 nianns, stór samkomu-
salur, veitingabúð (cafeteria),
ný gestamóttaka, flugafgreiðsla
o.fl. Er allt þetta til husa í nýrri
álmu, sem tekin er í notkun i
dag, réttum fimm áriim eftir að
llótelreksturinn hófst.
(Myndimar tók Öl. K. M.)
Nýja viðbyggingin við Hótel Loftleiða sést hér lengst til vinstri.
Gistirými Hótels Loftleiða
tvöfaldast á 5 ára afmælinu
Nýja álman tekin í notkun í dag
Smíði nýju álmunnar hefur
gengið mjög vel, því fyrsta
skóflustungan var tekin 11. apríl
í fjTra. Þetta er þó engin smá-
smíði, því viðbyggingin telst
19.500 rúmmetrar. Þegar skýrt
var frá áformum Loftleiða um
stækkun hótelsins í febrúar
i fyrra var jafnframt áætl-
að að nýja álman yrði tek-
in í notkun í dag, 1. maí. Stenzt
sú áætlun fyllilega, því segja má
að álman hafi verið opnuð i gaer-
kvöldi með móttöku vegna um-
dæmisþings Kiwanisklúbba á ís-
landi, en þingið er haldið að
Hótel Loftleiðum i dag.
Fyrstu gestirnir í nýju álm-
unni voru væntanlegir í dag. Eru
það um 50 norrænir barþjónar,
hingað komnir til að sitja mót
barþjóna frá öllum Norðurlönd-
unum. Verður mótið haldíð að
Hðtel Loftleiðum dagana 2.—6.
maí. Er það skemmtileg tilvilj-
un að fyrstu gestirnir, er gistu
Hótel Loftleiðir þegar það var
opnað fyrir fimm árum voru ein-
mitt norrænir barþjónar, hingað
komnir sömu erinda og starfs-
bræður þeirra nú.
Nýja álman er fjórar hæðir
og kjallari og er innangengt
á samsvarandi ha;ðir eldra húss-
ins. Gistiherbergin eru á
þremur efstu hæðunum, og þar
eru einnig á hverri hæð iitlar
sebusto fur fyrir hótelgesti búnar
sjónvarpstækjum og öðrum þaeg-
indum. Öl'iuim gist iberbergjuniuTn
fytgiii' forstotfa, bað og smyntiað-
staða, útvarps- og sjónvarpskerfi
auk síma. Á efsbu hæðirani er
svo ,,gul lisivítan“, það er sknaut-
lega búin viðlhafnaríbúð, sern
hlotið hefur nafnið
Jarðhæð nýju áilTmuinmar er
æbluð ráðstefreuim og sam/kom
um. Þar er fuillk/>niinn ráðsbefniu-
saliur með hallandi góLfi og föst-
um sæbuarn fyrir 100 mamns. Aft-
an við þanin sal er svo sýningar-
klefi og herbergi fyrir þýðenciur,
en heymiartæki tenigd þýðemóa-
ktefum oru við hvert seeti L saln-
um. Geita fundargestir í ráð-
stefniusal hiuistað á ræðuhöld á
fjórnim tungumáium þegar um
alþjóðaráðstefnur er að ræða.
Er salur þessi sá elni sinnar
tegundar hér á landi. Auk ráð-
stefnusalarins er á hæðinni stór
samkomu- oig fundarsalur, sem
skipta má með hiljóðheidum
dragveggjum i þrjá minni sali,
og lltið funcfarherbergi fyrir um
20 manna. Þá er við hóteland-
dyrið veitinigabúð (cafeteria)
fyrir 120 manns.
Hótielanddyrið hefur verið
stækkað verulega og því gjör-
breytt, ag nær það út í nýju
átenuna. Þaðan er annars vegar
gengið að sundlaug hótelsms og
snyrtistofum kvenna, en hins
vegar i stóra verzlun í kjaMara
og að rakarastofu. 1 kjallaran-
um eru svo fjórar kennsiliustof ur
Ráðstefmisaluriim.
þjálfunarskóla Loftleiða
fyrir
o. H.
Þessi vandaða og viðamikla ný
bygging er reist á skemmri ttena
en áður hefur þekkzt um sam-
bærilegar byggingar hérlendis og
þótt víðar væri leitað.
Nýja veitingabúðin. Verið var að leggja siðustu hönd á verkið þegar myndirnar voru teknar i gær.
Frá þvi að gerð undirstöðu
hússins hófst, 11. april 1970, eru
liðnar um 48 vinnuvikur, þegar
frá eru dregnar tafir vegna verk
fallanna siðastliðið vor. Eftir
verkföllin var öllum verkáætlun-
um breytt þannig, að verktök-
um tókst að steypa upp húsið
fyrir 1. september sl. haust, en
það var skilyrði þess að húsið
yrði fullgert nú, 1. maí.
Forsendur fyrir slíkum bygg-
ingarhraða voru skipulögð fjár-
mögnun, nákvæmar verkáætlan-
ir, hönnun mannvirkisins niður
í minnstu smá atriði, skipulögð
innkaup efnis auk hagnýtingar
nýjunga í byggingartækni. Síð-
ast en ekki sízt má þakka þenn-
an árangur öruggri verkstjórn,
leikni iðnaðarmanna, og áhuga
alira á að verkinu yrði lokið á
tiiskildum tíma.
Til dæmis um byggingarhrað-
ann má geta þess, að rúmlega
tveimur dögum hefir að meðal-
tali verið varið til að fullgera
hvert gistiherbergi, en í því felst
að steypa húsið upp frá grunni,
leggja öll leiðslukerfi, flísa-
leggja, smiða ailar innréttingar
og húsgögn, vefa teppi, glugga-
tjöld o.s.frv. Samtímis hafa ver-
ið fullgerð hin miklu salarkynni
á fyrstu hæð, og í kjallara, með
tilheyrandi húsbúnaði.
Margir verktakar hafa lagt
gjörva hönd að þessu verki. Má
t.d. geta þess, að stundum hafa
49 verktakafyrirtæki verið sam-
tímis starfandi í húsinu, og orð-
ið að grípa inn í verk hvert ann-
ars á réttu byggingarstigi. I skipu
lagningu verka þurfti þess vegna
ekki einungis að ákveða hvada
dag hver aðili ynni sín verk,
heldur hvenær dagsins.
Teiknistofa s.f. Ármúla S,
Reykjavík teiknaði nýbygging-
una, svo og allar innréttingar og
Húsgögn. Hafa þeir Gísli Hall-
dórsson arkitekt og Ölafur Júlí-
usson byggingartæknifræðingur
haft yfirumsjón með verkinu og
daglegt eftirtit með framkvæmd-
um af hálfu Teiknistofunnar og
annazt útboð og verksamninga
við verktaka að hinum ýmsum
verkþáttum. Framkvæmdaaðili í
umboði stjórnar Loftleiða var
byggingarnefnd, þannig skipuð:
Erling Aspelund hótelstjóri, Finn
björn Þorvaldsson, deildarstjóri,
Martin Petersen, deildarstjóri og
Þorvaldur Daníelsson, bygginga-
fulltrúi. Sá siðastnefndi var bygg
ingarstjóri Loftleiða og fór með
framkvæmd á byggingarstaðnum
og eftirlit af hálfu félagsins.
f herbergjum Hótels Loftleiða
er nú unint að hýsa 436 gesti.
í öllum öðrum salarkyrvnum,
þar með töldum vínstúkum og
ráðstefnusal, geta 1140 gestir ver
ið samtímis. Eru þó ekki talitt
önnur afdrep, svo sem hár-
greiðslu-, raikara- og snyrt.istof-
ur, verzlun og baðdeild. Þegar
þess er gætt, að starfslið hótels-
ina er. um 180 manins. þá lætur
nærri, að í hótelinu geti sam-
tírnis verið jafnimargir og þeir,
sem heima eiga í byggðarlagi,
sem telja mætti allfjölmennt á
ísiandi og er t. d. auðsætt að
allir íbúar Neskaupstaðar myndu
rúmast þar vel samtímia.
Þegar stjóm Loftleiða boðaði
til fréttamannafundarins hiinn 6.
febrúar 1970 kom það fram, að
miðað við bær áætlanir, sem þá
höfðu verlð gerðar um nýbygg-
iinguna myndi hún, að verðlagi
lítt breyttu kosta fuhgerð um
130 milljóniir króna. Á því tíma-
bili, sem nú er að baki, hafa
meiri breytingar orðið á hvoru
tveggja en þá var ætlað, og
munu lokatölur reikningsskUa
þeste vegna reynast nokkru hærri
en þá var gert ráð fyrir.
Eins og fyrr segir er fyrsta
samkoman i nýju álmunni þegar
hafin með umdæmisþingi Kiw-
arais, og síðan taka barþjónarnár
við. En fyrsta stórverkefnið í
rekstri nýju álmuMniar verður
ársþing EFTA, sem hefst 10. maí
og stendur út vikuna. Á fjórðia
hundrað manrns taka þátt í þing-
inu, og verða þing- og nefndaM-
fundir haldnir í öllum fundaie-
sölum hótelsins. Hefur 181 af 218
gisbiherbergjum hótelsins veríð
frátekið fyrir fundarmenn, en af
þeim verða 23 notuð fyrir skríf-
stofur. Þá verður „gullsvítan"
vígð, því þar á að búa Sir Jolvn
Coulson, forstjóri EFTA.
Alls hafa 18 ráðistefnur verið
bókaðar að Hótel Loftleiðum niú
í vor og fram á haust, og þegar
hafa borizt sex pantanir fyrir
ráðstefnuhöld á næsta ári og
tvær fyrir árið 1973. Aúk þess
hafa borizt fyrirspurnir frá fteiri
aðiilum, og verður ekki annað séð
en að næg vertkefai séti fr-aim-
undan.