Morgunblaðið - 01.05.1971, Side 15
MÖRGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAl 1971
15
75 ára í dag;
Þorvaldur Ólaf sson frá
Arnarbæli í Ölfusi —
75 ára er I dag Þorvaldur
Ólafsson frá Arnarbæli í Ölfusi.
Ærin ástæða er til að minnast
svo merks manns á slikum tíma-
mótum, en sem betur fer ótíma-
bært með öllu að rekja æviferil
hans og ágæti i eftirmælastíl og
vissara að gera það ekki, meðan
von er á viðbrögðum af hans
hálfu.
Eínhvern veginn barst mér sú
vitneskja notður á Akureyri fyr
ir aldarfjórðungi eða svo, að á
Suðurlandi væri bóndi nokkur,
sem léki sér áð þvi að hafa
í fuliu tré við þjóðmálaskörunga
og ræðusnillinga eins og sr.
SveinbjÖrn Högnason og fléiri i
málflutningi á mannfundum.
Hlýtur þetta hafa þótt saga til
næsta bæjar, úr þvi hún komst
inn í hausinn á mér, unglingi í
öðru landshomi.
Fljótt komst ég að því, er ég
kvnntist Þorvaldi Ólafssyni fyr
ir um fimmtán árum hér i Reykja
vík, að þar væri kominn bónd-
inn af Suðurlandi, sem áður get
ur. Hann var þá i forystu þeirra
manna, sem tóku Iðju, félag verk
smiðjufólks í Reykjavík, úr
'höndum kommúnista og var rit-
ari félagsins um árabil.
Vegna þátttöku í kiarasamn-
ingum Iðju, sat ég eitt sinn
fund 1 félaginu, þar sem hörð
hríð var gerð að stjóm þess.
Kom það einkum í hlut Þorvalds
að mæta áhlaupi þessu. Á ég
þess varla von aftur að sjá ræðu
mann mæla i líkingu við það,
sem Þorvaldur gerði á fundi
þessum. Sá ég þá, að sagan um
ssunnlenzka bóndann hafði ekki
Verið orðum aukin.
Þrátt fyrir verulegan aldurs-
rmm tókust með okkur Þorvaldi
góð kynni, sem haidizt hafa
óslitin. Þótti mér fljótt með ein-
dæmum, hvað maðurinn hafði
mikið fram að færa á mörgum
sviðum. Er talið barst að skáld-
iskap kom í ljós, að Einar Bene-
diktsson kunni hann allan. En
gagnstætt þeim, sem tönnlast á
Einari Ben. eins og einhverjum
eiiífðarharðfiski og kunna fátt
annað, reyndist Þorvaldur jafn-
vígur á flest það, sem máli
skipti í hefðbundnum skáldskap
íslenzkum. Þegar hann svo fór
að þylja erlend Ijóð þ.á.m. þýzk,
fór mér að þykja nóg um. Klass-
íska músík ræddi hann af meiri
þekkingu en svo, að ég væri við
ræðuhæíur.
Fleira mætti nefna af þessu
tagi, en skemmst er frá því að
segja, að þessi óskólagengni erf
iðisvinnumaður er með gagn-
menntaðri mönnum, sem ég hefi
kynnzt. Vafalaust gætir þar
áhrifa frá föðurgarði, en heim-
ili sr. Ólafs í Arnarbæii, föður
Þorvalds, mun hafa verið mikið
menningarheimili, þar sem bók-
menntir, söngur og tónlist var
sjálfsagður hlutur í daglegu lífi.
Lífshlaup Þorvalds hefur ver-
ið fjölbreytt og ekki ævinlega i
föstum skorðum. Auk búskapar
hefur hann stundað sjómennsku
og siglingar og unnið fieiri störf
en ég kann upp að telja. Eftir
kynni mín af Þorvaldi, þótti mér
það ekkert merkilegt, er
Halldór Dungal fræddi mig
á þvi eitt sinn, að hann hefði
fengið Þorvald til að syngja
gamanvísur í útvarpið á fyrstu
árum þess, en Halldór stóð þá
fyrir auglýsingaútvarpi með
skemmtiatriðum i hádeginu.
Fyrir strið var Þorvaldur i
framboði til Alþingis í Árnes-
sýslu með Eiríki Einarssyni frá
Hæli. Fengu þeir meira kjör-
fylgi en andstæðingum Fram-
sóknarflokksins tókst að ná
í einn til tvo áratugi þar á eft-
ir. Áttu þeir þó ekki færi á
þingsæti, vegna ranglátrar kjör
dæmaskipunar, sem ekki var leið
rétt fyrr en 1942.
Þótt Þorvaidur hafi mátt
reyna mótbyr og ýms áföll um
dagana, hefur það hvergi
náð að beygja hann. Hann hef-
ur alla tíð verið höfðingi og
heimsmaður, heillað konur ög
drukkið vin og er enn hress og
andlega heill. Einhverjum finnst
e.t.v., að ekki hafi náðst rétt
hlutfall milii hæfileika hans og
veraldlegs frama, en Þorvaldur
er sáttur Við tilveruna og sér
ekki eftir þeim herkostnaði, sem
hann hefur greitt fyrir að lifa
lifinu á sinn hátt.
Mér hefur verið það einstök
ánægja og ávinningur að kynn-
ast Þorvaldi Ólafssyni og fyrir
það þakka ég honum um leið og
ég óska honum allra heilla á
þessum merkisdegi.
Magnús Óskarsson.
Heimili Þorvalds er að Greni-
mel 12, Reykjavik.
VORHATÍD
Húnvetningafélagsins í Reykjavík
Sunnudapinn 9. maí n.k. efnir Húnvetningafélagið í Reykjavík
til vorhátíðar i Súlnasal Hótel Sögu. Samkoman hefst kl. 20.
Dagskrá:
1. Ræða, síra Þorsteinn B. Gíslason frá Steinnesi.
2. Grímstungubræður kveða.
3. Þjóðdansasýning: Þjóðdansafétag Reykjavíkur.
4. Ingþór Sigurbjörnsson fer með lausavísur.
5. Skemtiþáttur, Jón B. Gunnlaugsson.
6. Drápa til Húnaþings, Þórhildur Sveinsdóttir.
Einsöngur, Guðrún A. Símonar.
8. Dansað til kl. 1.
Samkomustjóri: Baldur Pálmason.
Húsið opnað kl. 19.00 fyrir matargesti.
Húnvetningar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti.
ATH. Aðeins rúllugjald.
NEFNDIN.
VÖKULL HF. HR,NGB.RA;Lnn
-----------------------simi 10 600
AKUREYRI: GLERÁRGÖTU 26
.. sími 213 44
Hinn stórglæsilegi fransk-byggoi
Chrysler er kominn til landsins.
Við getum boðíð til afgreiðslu
þrjár gerðir 160-160GT;- 180.
KOMIO
SKOÐIÐ
OG
REYNSLUAKIO
CHRYSLER 1971.
Verð frá kr. 360.000
HVAO ER ÞAÐ FYRIR CRYSLER?
CHRYSLER
CHRYSLER
Hinn 5 manna Chrysler 1971 býður upp á allt það bezta í einum fiölskyldubil:
- AA/IERÍSKUR STYRKLEIKI - EVRÓPSK GÆDI - VIO YÐAR HÆFl -
ÞETTA ER BÍLIINN SEM FER SIGURFÖR UM EVRÓPU í ÁR.
Chrysler 1971 er draumur fjölskyldunnar.
Þorsteinn Stefánsson skipstjórí er
einn þeirra íslenzku sjómanna, sem
njóta elliáranna að Hrafnistu að vel
loknu dagsverkl. Hann er f hópi
þefrra dugnaðarmanna sem stuðlað
hafa að velmegun þjóðarlnnar með
starfi sinu og hefir stundað sjó-
mennsku frá barnsaldri i flestum
tegundum skipa.
ÞORSTEINN STEFÁNSSON skipstjóri
Að dagsverki loknu eiga aldraðir rétt i því að njóta hvfld-
•r og öryggís, og þeir sem yngrí eru, standa I þakkarskuld
vlð þi og geta eýnt það f verkl með þvf að kaupa kapp-
drættismiða DAS — og stuðla jafnframt að eigin mögu-
leikum til stórhapps.