Morgunblaðið - 01.05.1971, Page 24
24
MORGTJNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1971
1. maí hátíðisdagur verkalýðsins
Framhald af bls. 11.
an aeskulýð en flest annað.
líennarar gera sér íyUilega
Ijóst, að hve miklu leyti fram-
þróvín skólamála er undir hæfni
kennslukraftanna komin. Gæði
kennslunnar hljóta að takmark-
ast við gæði þess vinnuafls, sem
framkvæmir hana. Fullnægjandi
kennaramenntun, síopnar leiðir
til framhalds — og endurmennt-
imar og mat til iauna í samræmi
við kröfur til starfsins, — það
eru þær kröfur, sem kennurum
koma fyrstar í hug sjálfra sín
yegna í dag. 1 kröfum þeim,
sem við gerum fyrir hönd nem-
enda okkar, mætast svo að síð-
ustu algerlega hagsmunir okk-
ar og hinna raunverulegu vinnu
veitenda, hinna ónefndu for
eldra úr öllum stéttum, sem fela
skólum landsins börn sin í hend
ur á hverju hausti: Að skóla-
kerfi iandsins sé þannig
úr garði gert, að það skili af
sér ungu fólki með viðtæka
íræðiþekkingu, með skilning á
sjálfu sér og sínu umhverfi og
samheimi, fordómalausri virð
ingu fyrir hverjum sínum ná-
unga, og getu og viija til þess
að tjá sig um sín eigin mál og
sinnar samtíðar. Þetta eru þær
kröfur, sem hæst ber í
Félagi gagnfræðaskólakennara i
Reykjavík þennan fyrsta maí-
dag 1971. Við sendum öðrum
íslenzkum launþegum beztu
kveðjur, og teljum kröfur okk-
ar ekki síðri verkalýðsmál en
hver önnur
Víkingur Guðmundsson.
Næg atvinna
fyrir alla nyrðra
Rætt við Víking Guð-
mundsson, bónda og
verkamann.
Víkingur Guðmundsson, bóndi
á Grænhóli við Akureyri, er
formaður málfundaféiagsins
Sleipnis þar nyrðra, sem er
fyrst og fremst félagsskapur
iaunþega. Víkingur var á ferð í
Reykjavik fyrir skömmu og sat
á Landsfundi Sjáifstæðisfiokks-
ins. Notaði Mbl. þá tækifærið
og hitti hann að máli. Hann var
fyrst spurður um tiigang féiags
ins.
— Markmið þess er fyrst og
fremst að auka þekkingu féiag-
anna á stjórnmáium, og gera þá
hæfari í iífskjara- og stjóm-
málabaráttunni almennt. Þetta
er félagsskapur þeirra, sem
lengst eru til vinstri innan
Sjálfstæðisflokksins; fyrst og
fremst eru félagamir launþegar,
t.d. iðnaðarmenn en geta einnig
verið með eigin smáfyrirtæki,
þar sem þeir eru húsbændur en
launþegar jafnframt.
— Hvernig er þetta félag til-
komið?
— Það var stofhað af Eiríki
Einarssyni, verkamanni á Akur
eyri, og upphaflegt markmið
þess var að fá verkalýðinn til
samvinnu við Sjái fstæðisf lokk-
inn. Félagið er þó ekki miðað
við iaunþega eingöngu, heldur
er þetta félagsskapur áhuga-
manna um kjör iaunþega.
— Hvað átt þú við, þegar þú
ræðir um Sleipni sem félag
þeirra, sem lengst standa til
vinstri af Sjálfstæðismönnum?
— Jú, við verðum þá að hafa
í huga, að upphaflega var farið
að ræða um hugtökin vinstri og
hægri í stjórnmálum í franska
þinginu á dögum frönsku bylt-
ingarinnar, og stafaði af því, að
fulltrúar aiþýðunnar sátu
vinstra megin I þinginu en full
trúar yfirstéttanna hægra meg-
in. í daglegu tali nú er hugtak-
ið vinstri aimennt notað um
launþega og hægri um þá, sem
betur eru settir fjárhagslega,
því að ekki er um aðra stéttar
skiptingu að ræða í íslenzku
þjóðfélagi en efnahagslega.
Vinstri menn í Sjálfstæðis-
flokknum eru þvi þeir menn,
sem taka laun sín hjá hinum
ýmsu atvinnurekendum, þeir
sem vilja byggja upp atvinnu-
rekstur á félagsgrundvelli og
svo þeir sem eru með smáat-
vinnurekstur. Það er því engan
veginn raunhæft að tala um
Sjálfstæðisflokkinn sem hægri
flokk einvörðungu — hann hef-
ur að geyma bæði þessi öfl.
-— Þú ræðir um atvinnurekst
ur á féiagsgrundvelli. Samræm-
ist það stefnunni um einkafram-
takið?
— Vissulega. Að minum dómi
er einkaframtakið fólgið í hverj
um einstaklingi, og við teljum
Sjálfstæðisfiokknum það fyrst
og fremst til gíldis, að hann
leyfir einstaklingnum að njóta
sín. Með atvinnurekstri á félags
grundvelli á ég einkum við það,
að hafi einhver ekki fjárhags-
legt bolmagn til að koma hugð-
arefnum sínum i framkvæmd,
geti hann það með því að fá
fleiri til liðs við sig.
— Hver er meginskoðun þín
í verkalýðsmálum almennt?
—- Ég tel, að tryggja verði
verkamönnum og öðrum í hópi
hinna lægst launuðu sama rétt
til gæða lífsins og aðrir eru að-
njótandi. Verkamaðurinn vinnur
á sama tima og námsmaðurinn
nemur. Hann er hið skapandi
afl þjóðféiagsins meðan hinn er
neytandi, og hann á ekki að
þurfa að gjalda þess með mun
iakari lifsafkomu en hinir hijóta
þegar þeir eru tilbúnir til
starfa í þjóðfélaginu.
Að lokum spyrjum við Vik-
ing tíðinda úr heimabyggð hans:
— Ég get aðeins sagt góðar frétt
ir úr héraði, svarar hann. -—
Veðurfar í vetur hefur verið
með eindæmum milt. Mjög lítið
hefur borið á atvinnuleysi, og
þó að alltaf birtist tölur um það,
tel ég að skráning atvinnuieys
ingja sé verulega villandi og oft
blekking. Ég hef sjálfur starfað
tíma og tíma sem verkamaður
með mínu búi, og hef haft að-
stöðu til að fylgjast með því, að
aldrei hefur verið hægt að
manna tvö skip í uppskipun
samtímis, allan atvinnuleysistim
ann nema með því að sækja
menn út í sveitir. Nú er svo
komið, að allir eiga að geta feng
ið jafn mikla vinna og þeir
óska eftir. Að vísu verður vafa
laust erfiðleikum bundið, eins
og oft áður, að útvega skóla-
fóiki atvinnu yfir sumarið. En i
því sambandi má geta þess, að
ýmsir nyrðra furða sig á því,
að Sambandsverksmiðjumar á
Akureyri skuii loka yfir sumar-
leyfistimann, því að ætla má að
þær geti tekið við stórum hluta
vinnuaflsins sem losnar á vorin
um leið og skólar hætta.
Símon Teitsson.
Kjarabaráttan
markist af
hagsmunum
hinna vinnandi
stétta
segir Símon Teilsson,
járnsmiður.
Morgunblaðið ræddi við
Simon Teitsson, jámsmið í Borg
amesi, en hann starfar hjá Bif-
reiða- og trésmiðju Borgarness
og hefur gert frá þvi 1942.
Símon var hér á ferð vegna
landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins.
—- íbúatala Borgarness er nú
miili 11 og 1200 manns, segir
Símon okkur. — Aðalatvinnuveg
ur þorpsins er ýmis iðnaður og
verzlun ásamt ýmiss konar þjón
ustu viðvíkjandi verzluninni, en
hún annast aliar næriiggjandi
sveitir. Iðnaðurinn er aðallega í
sambandi við bifreiðaverkstæðin
eða í tengslum við kaupfélagið.
Verkstæðið, þar sem ég starfa,
hefur þó gert meira en að þjóna
héraðinu einu. Sérsvið okkar
hefur verið yfirbyggingar á bíla
og við höfum einnig byggt tölu-
vert fyrir aðila annars staðar á
landinu — allt austur á
Neskaupstað, vestur á firði
og fyrir aðila í Reykja-
vik. Þegar mest hefur verið að
gera hafa um 20—30 manns
starfað hjá fyrirtækinu. Verzlun
in er að langmestu leyti á veg-
um kaupfélagsins. SÍS-skipin
koma til Borgarness með vam-
ing, og þaðan eru fóðurflutning
amir fyrir Borgarfjörð og Snæ-
fellsnes.
— Hvert er þitt álit á verka-
lýðsbaráttunni núna?
— Mér finnst nokkuð á það
skorta, að kjarabaráttan nú á
dögum hafi í för með sér raun-
hæfar kjarabætur fyrir laun-
þegana, og þessi barátta sé of
oft af póiitiskum toga spunnin.
Launþegamir fá ekki nógu mik
ið út úr kjarabaráttunni, því að
ég fæ ekki séð að kaupið núna
dugi okkur miklu betur en fyr-
ir nokkrum árum.
Því vii ég láta ganga þannig
frá hnútunum, að kjarabaráttan
geti ekki markazt af neinum
öðrum sjónarmiðum en hags-
munum hinna vinnandi stétta,
og ekkert annað blandist þar sam
an við. Mér hefur til að mynda
stundum fundizt verkföll undan
farinna ára hafa mótazt fremur
af pólitískum skoðunum en hags
munum og það verður að fyrir-
byggja í framtíðinni.
Marteinn Einarsson.
„Ríkisvaldið
komi til móts
við launþega“
Rætt við Martein Ein-
arsson.
Marteinn Einarsson, verka-
maður á Höfn í Hornafirði var
fyrir skömmu á ferð I Reykja-
vik og sat hér Landsfund Sjálf-
stæðisflokksins. Morgunblaðið
átti þá við hann stutt rabb.
— Hvar starfar þú, Marteinn?
-—- Ég starfa í frystihúsinu í
Höfn, svarar hann. ■— Ég er að
vísu orðinn öryrki, en hef feng
ið að starfa áfram í frystihús-
inu, af því að þar var ég búinn að
vinna í 8 ár áður en ég var
dæmdur öryrki. Áður var ég
hins vegar bóndi að Ási í Nesja
hreppi.
— Hvernig unir þú þínum
hag?
— Ég uni hag mínum bæri-
lega. Það hefur verið næg at-
vinna á Höfn núna undanfarið
— jafnvel of mikil, að sumum
finnst. Á sumrin er oft unnið all-
ar helgar meðan humarvertiðin
stendur sem hæst, því að verka
verður fiskinn samstundis og
hann berst á land til að frysta
flokks vara fáist úr hráefninu.
— Hver eru helztu atvinnu-
íyrirtækin eystra ?
— Á Höfn er eitt frystihús,
tvær söltunarstöðvar og beina-
og fiskimjölsverksmiðja, ásamt
síldarbræðslu, sem er víst hluta
félag. Öflugasti atvinnurekstur-
inn er í höndum kaupfélagsins,
þar eð fis'kiðnaðurinn er allur á
þess vegum. Þegar mest er um
að vera er' skortur á vinnuafli
heima fyrir þvílíkur, að kaupfé-
lagið verður að sækja fjölda
fólks utan af iandi — allt til
Rcytkjavíkur —- til að hafa und-
an. Talsverð atvinna er einnig í
sambandi við byggingariðnaðinn
x þorpinu. Ótrúlega mikið hefur
verið byggt á síðustu 5—6 ár-
um, og hygg ég að framfarirnar
í þorpinu séu einna mestar á
þvi sviði.
— Hvað um verkalýðsmálin á
staðnum og skoðanir þínar á
launamálum?
— Verkalýðsfélagið á staðnum
er talsvert öflugt en ég hef
þó ekki tekið svo virkan þátt I
starfsemi þess, að ég geti um
það fjallað. Ég virðist hafa
nokkuð sérstæðar skoðanir á
launamálum. Auðvitað er ég
samþykkur þeim kröfum, að
verkamenn eigi að hafa eins góð
laun og kjör og mögulegt er.
Hins vegar álit ég, að
fleira geti komið til en beinar
kauphækkanir, t.d. að rikisvald
ið komi á móti okkur launþeg-
unum og gefi eftir í sköttum,
sem gæti jafnvel verkað eðlileg
ar en bein kauphækkun í vas-
ann.
Marteinn kvaðst að lokum að-
eins viija undirstrika það, að
kaupfélagið væri sá aðiii á
Höfn sem öll atvinna ylti meira
eða minna á, og uppbygging stað
arins væri undir góðri afkomu
kaupfélagsins komin.
Sigurður G. Sigurðsson
Varanleg yerð-
stöðvun gæti
tryggt kaupmátt
launa
segir Sigurður Guðmann
Sigurðsson, múrari.
Með stofnun Bárufélaganna
laust fyrir síðustu aidamót hófst
fyrsti visirinn að íslenzkri
verkalýðsbaráttu, það voru sjó-
mennimir, sem ruddu brautina,
síðan komu iðnaðarmenn og loks
verkamenn með stofnun Dags-
brúnar árið 1906.
Enda þótt sú barátta hafi í
fyrstu verið þungsótt og marg-
ir erfiðleikar í vegi er árang-
urinn fyrir löngu orðinn mik-
ill. Við getum fagnað styttri
vinnudegi, betri aðbúð á vinnu-
stöðum, sæmilegum tryggingum,
lífeyrissjóðum og fleiru, ásamt
hærri kaupgreiðslum, að
minnsta kosti, að krónutölu. —
Þó virðist hinn raunverulegi
hagur flestra launþega naumast
betri, en áður var, miðað víð
FELAGSSTARF
SJÁLFSTÆÐISPLOKKSINS
BINGO AÐ HOTEL BORG
Hvöt, félag Sjálfstæðiskvenna, hefur sitt glæsilega
SUMAR-BINGÓ
að Hótel Borg miðvikudaginn 5. maí kl. 8,30 e.h.
Meðal vinninga er tveggja daga veiðileyfi, gisting
og matur i Laxá i Kjós og fjöldi annarra glæsilegra
vinninga að vanda.
Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
STJORNIIM.