Morgunblaðið - 01.05.1971, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1971
ógilt samninginn. Væri hins veg-
ar ekkert að marka þetta
og hann fyndi ekki neitt, var
engín skaði skeður. Ég efast
ekki um, að Woodspring hafi
fullvissað Benjamín um, að færi
svo, myndi hann standa við gorð
an samning.
— Benjamín hefur sjálfsagt
verið vel tillleiðanlegur og svo
komu þeir sér saman um öll
smáatriði. Tilraunin skyldi gerð
tafarlaust og leynilega, svo að
ekkert um hana bærist til eyrna
Símoni. Benjamín lofaði að út-
vega sér nauðsynleg verkfæri
og gera tilraunina strax næstu
nótt. En þeir komu sér saman
Ungó Keflavík
Hljómsveitin ROOF TOPS skemmtir í kvöld.
Hljómsveitin ÁSAR skemmtir.
Miðasala hefst kl. 20:30.
1. maí nefnd.
VEITINGAHÚSIÐ
ÓÐAL
VID AUSTURVÖLL
Ljúffengir réttir
og þrúgumjöður.
Framreitt frá
kl. 11.30—15.00
og kl. 18—23.30.
Borðpantanir hjá
yfirfram reiðslumanni
Sími 11322
II
CCSPER
— Það er allt farið nema „skartg-ripirnir" sem |)ti gafst niér.
um, að mistækist tilraunin,
skyldi samningurinn öðlast gildi
þegar í stað. Því var þessari
aukagrein bætt við hann.
Það hefur komið í Ijós, að
Woodspring hefur ráSið gátuna
rétt og til fullnustu. Hann hef-
ur verið sæmilega viss um, að
þegar Benjamín sagaði sundur
járnbogann að innanverðu,
mundi turninn falla og
Benjamín verða undir hon-
um. Hann var einnig sæmilega
viss um, að Símon gamli mundi
fá taugaáfall ef turninn hryndi
og aldrei bíða þess bætur. En
vitanlega hafði Benjamín, enga
hugmynd um hættuna á þvi, að
turninn félli. Og hann átti full
an rétt á þvi að gera þessa til-
raun. Allt þar til samningurinn
tæki gildi, var turninn hans
eign, sem hann mátti gera við
hvað hann vildi. En væri skýr-
ing Woodsprings á dulmál-
inu skökk, væri fjölskyld-
an ekkert verr komin en hún
var fyrir.
— Hegðun Woodsprings eftir
viðtalið við Benjamín sýnir, hve
vandlega hann lagði áætl-
un sína. Hann útvegaði
sér sannfærandi fjarverusönn-
un, og gerði enga tilraun til
þess að víkja neitt frá áð-
ur gerðri fyrirætlun sinni. Hann
fór ekki til Lydenbridge fyrr en
hann fékk skeytið frá syni sin-
um. Og þá lét hann það verða
sitt fyrsta verk að komast að
þvi, hvernig lögreglan mundi
snúast við þessu. Krafa hans
um, að hún léti málið til sín taka,
var auðvitað gerð í blekkingar
skyni. En með því tryggði hann
sér einmitt, að ekkert yrði að-
hafzt. Sennilega hefur hann ætl-
að sér að hreyfa ekkert við
turninum fyrst um sinn, að
minnsta kosti þangað til fráfall
Calebs væri hætt að vekja
nokkurn áhuga manna.
Þegar svo loksins rúst-
irnar hefðu verið hreins-
aðar, mundi finnast lík, sem
kynni eða kynni ekki að vera
jarðneskar leifar Benjamíns.
Þarna held ég ástæðan sé til
þessarar viðbótarklausu við
samninginn. Án hennar hefði
Woodspring ekki getað tekið
turninn eignarhaldi, fyrr en
vitað væri með vissu um afdrif
Benjamins. En frá hvaða sjón-
armiði sem málið er athugað,
bendir hvert smáatriði þess til
sektar Woodsprings.
— Kann að vera, sagði
Appleyard eftir langa þögn. —
En hvernig eigum við að koma
með sannanir, sem geta sannfært
kviðdóm?
— Ég er nú ekki lögreglu-
maður, sagði Priestley þreytu-
lega. En ég hef íunöið skýringu
á málinu, sem ég er sjálfur
ánægður með og mér er alveg
sama, hvort hægt verður nokk-
uð að nota þessa lausn mína á
málinu. En nú verðum við
Harold að biðja ykkur að hafa
okkur afsakaða. Lestin okkar til
London fer eftir hálftima.
Þegar þeir Jimmy og
Appleyard yfirgáfu Drekann,
hristi Jimmy höfuðið. — Þetta
er allt í lagi, sagði hann dauf-
lega. Prófessorinn hefur á
réttu að standa. Enginn efi á
því. Skýring hans er fullkom-
lega skynsamieg og að vissu
leyti liggur hún í augum uppi.
En hún dugar bara ekki til að
sannfæra neinn kviðdóm. Það
liggur engin sönnun fyrir, sem
getur sett Woodspring í
samband við neitt fráfall
í Glapthorneættinni.
— Jæ.ia, við ættum nú samt
að hitta hann að máli, sagði
Appleyard. - Ef við spyrjum
hann spjörunum úr, kynni hann
að glopra einhverju út úr sér,
sem getur orðið hotnum að falli.
En þegar þeir komu í bóka-
búðina, var þar ekki annað
manina en Horace Woodspring.
— Ég er alveg í vandræð-
um, sagði hann, — að vera hérna
einn, þegar mest er að gera og
ég get ekki verið bæði í bóka-
safninu og búðinni samtímis.
Hvar er faðir þinn? spurði
Appleyard, með nokkurri óþol-
inmæði. —•
-—Það veit ég bara ekki, sagði
Horace. — Hann ók burt í
bílnum sínum, án þess að segja
mér, hvert hann ætlaði. Hann
var ákaflega sleginn við þessi
tíðindi, eins og eðlilegt er. Það
er líka alveg hræðilegt.
— Hver flutti honum fregn-
ina?
— Einhver, sem kom í búðina,
sagði, að lik Benjamíns hefði
fundizt í turninum og verið flutt
í líkhúsið. Ungfrú Black-
brook var hérna og henni varð
svo illt við, að hún fór strax
heim til sín. Og pabbi tók bíl-
inn og ók burt, án þess að segja
orð við mig. Á ég að segja hon-
um, að þið hafiö komið, þegar
hann kemur aftur?
—Þakka þér fyrir, en það er
alveg óþai'fi, sagði Appleyard
stuttur í spuna. Þeir Jimmy
gengu út úr búðinni og áleiðis
til lögreglustöðvarinnar, eins og
með þegjandi samkomulagi.
— Hann hefur áreiðanlega
farið upp að turninum, skal ég
bölva mér uppá, sagði Appie-
yard. — Við skulum ná okkur
í bil og gá að honum þar.
Þessi tilgáta hans stóð heima,
þvi þegar þeir komu að turn-
rústunum varð fyrir þeim ein-
kennileg sjón. Tveir lögregluþjón
ar stóðu þarna eins og stirðbusa-
legir englar við hlið Paradisar til
þess að banna öllum aðgang og
vakta hrúgu af peningum. Fram-
an í þeim stóð Woodspring, óða-
mála og patandi, og augun ætl-
uðu út úr höfðinu á honum, er
hann horfði með ágirndarsvip á
fjársjóðinn.
Hann snarsneri sér við, er
hann varð var við þá félaga. —
Þarna koma þá einmitt mennirn-
ir, sem ég vildi hitta, sagði hann
í æsingi. — Þessir menn ykkar
vilja ekki taka sönsum. Þeir
vilja ekki láta mig komast að
mínum eigin peningum. Vitan-
lega er það eins og hver önnur
vitleysa. Það er ekki hægt að
láta þá liggja svona á jörðinni.
Það verður að fara með þá í
bankann tafarlaust. Ég er hérna
með bílinn minn og . . .
Jimmy tók snöggt fram í fyrir
honum. - Andartak, hr. Wood-
spring, sagði hann’ Skilst mér
Offsetprentari óskast
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 4. maí merkt:
„Reglusamur — 7487“.
Hrúturinn, 21. marz — 19. april.
Þegar þú kemst yfir þá ringulreið, sem virðist ríkjandi í hví-
vetna verður allt auðveldara viðureignar.
Nautið, 20. april — 20. maí.
I dag eru smáatriðin alveg kæfandi og þér verður útlitið ekki
fylliiega ljóst fyrr en líður á daginn.
Endurskoðaðu upplýsingarnar, sem þú hefur fengið, og farðu
ekki rangt af stað. Þegar þú hefur byrjað rétt gengur allt vel.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júnl.
Alvörugcfni þín kemur öllu í lag.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
I*að er í lagi að hika, en taktu til hendinni cftir hádegið.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágfúst.
Þú verður að vera afgerandi í málum, sem þú ferð með fyrir
aðra
Meyjan, 23. átfúst — 22. september.
Vogin, 23. september — 22. október.
Það er höfuðatriði að vera léttur í lund, svona framan af a.rn.k,
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóveniber.
Smásnatt fer í taugaranar á þér, en þú verður feginn eftir á að
hafa lagt ómakið á þig.
Bogmaðurinn, 22. nóveniber — 21. desember.
Þegar þú hefur kynnt þér málin, skaltu leggja ótrauður í hann.
Steingeitin, 22. deseniber — 19. janúar.
Morgunninn er ágætur tlmi til að ljúka við smáatriðln, og seinnl
partinn skaltu ljúka langvarandi samningum.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Reyndu að leggja eitthvað í sölurnar til að koma til móts við
aðra, og síðan getur verið að þú sjáir sjálfur hlutina í réttu Ijósi.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Það er sama hvað þú ætlast fyrir; einhver nákominn getur lagt
þér lið.