Morgunblaðið - 12.05.1971, Qupperneq 12
r-
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MAl 1971
C
Nybáe Andersen, markaðsmála-
ráðherra Dana.
Michael Noble, viðskiptaráðherr*
Breta.
Geoffrey Rippon, ráðherra Breta
um EBE.
Kjell-Olof Feldt, viðskiptamála-
ráðhera Svía.
Ernst Brugger, efnahagsmálaráð-
herra Sviss.
Ráðherrafundur EFTA
á morgun
Staða EFTA og viðræð-
ur við EBE ef st á baugi
RÁÐHERRAFUNDUR Frí-
verzlunarsamtaka Evrópu
hefst á Hótel Loftleiðum á
morgun, fimmtudag, og er
það í fyrsta skipti, sem slík-
ur fundur er haldinn á Is-
landi. Öll EFTA-löndin
senda ráðherra hingað til
að sitja fundinn og frá
Bretlandi koma tveir, þeir
Rippon, sem fer með mál
Bretlands í sambandi við að-
ild að EBE, og Noble, við-
skiptaráðherra. Er komu
hins fyrrnefnda beðið með
mikilli eftirvæntingu, því
að hann situr nú á mikil-
vægum fundum í Briissel
með ráðherrum EBE-Iand-
anna sex. Hafa Bretar látið
svo ummælt, að svo kunni
að fara að hér verði um úr-
slitaviðræður að ræða.
Rippon kemur síðastur
ráðherranna hingað, eða um
hádegisbilið á morgun, með
flu'gvél beint frá Brússel.
Mun hann þegar við kom-
una gefa fundinum skýralu
um viðræðumar. Einnig
munu fulltrúar Noregs og'
Danmerkur gefa skýrslu um
sínar viðræður um inngöngu
í EBE. Þá gefa ráðherrar
hinna landanna sex skýrslu
urn þeirra viðræður um
aukaaðild eða sérsamninga
við EBE. Þessi mál verða
því efst á baugi á þessum
ráðherrafundi, enda mjög
mikilvæg varðandi framtíð
EBE.
Fyrsta málið á dagskrá
fundarins verður hins veg-
ar staða EFTA í dag og
þróun viðskiptamála inman
samtakanna. Auk þess
verða önnur mál rædd, er
kunna að verða lögð fyrir
fundinm og má telja líkiegt
að staðan í gjaldeyrismál-
um í Evrópu gagnvart doll
aranum verði ofarlega á
baugi, en tvö af aðildarríkj-
um EFTA, Sviss og Austur-
ríki hafa þegar hækkað
gengi sinna gjaldmiðla, Sviss
um 7% og Austurríki um
5%, eins og áður hefur ver
ið getið í Mbl.
Fundurinn stendur í tvo
daga, en honum á að ljúka
síðdegis á föstudag og verð
ur þá gefin út ameigin-
leg yfirlýsing. Mikill við-
búnaður er vegna komu
þessara háttsettu gesta, og
reynir nú fyrat verulega á
hin nýju og glæsilegu ráð-
stefnuhúsakynni Hótels Loft
leiða. Mikill fjöldi eríendra
fréttamanma kemur hingað
til að fylgjast með furndin-
um og m.a. kemur leigu-
flugvél Flugfélags íslands
beint frá Gemf á morgun
með fréttamenm. Fulltrúun-
um verður sýndur ýmis
sómi meðan á dvöl þeirra
stendur hér. Þeir halda frá
íslandi um eða eftir helg-
ina.
Geoffrey Rippon, ráðherra Bret
lands um mál er varða Efna-
hagsbandalag Evrópu, er 47 ára
að aldri, kunnur lögfræðingur
og stjórnmálamaður. Hann
hlaut menntun sína frá Oxford.
Hann átti sæti I borgarstjórn
Lundúna á árunum 1952—61.
Þingmaður fyrir Norwich frá
1955—64 og þingmaður fyrir
Hexhan siðan 1966. Hann var
flugmálaráðherra frá 1959—61
og húsnæðismálaráðherra frá
1961— 62. Ráðherra opinberra
bygginga- og atvinnumála frá
1962— 64. Starfaði i stjórn iðn-
og verzlunarfyrirtækja í Bret-
landi á árunum 1964—70. Skip-
aður i núverandi embætti, er
stjórn Heaths tók við sl. ár.
Rippon kemur til fslands um
hádegisbilið á morgun beint frá
viðræðum við EBE og er
skýrslu hans beðið með mikilli
eftirvæntingu.
Michael Anthony Cristobal
Noble, viðskiptaráðherra Breta.
er kunnur brezkur stjórnmála-
maður, 58 ára að aldri. Hann
hlaut menntun sina frá Eton.
Hann hefur setið á þingi frá
þvi árið 1958 og var Skotlands-
málaráðherra á árunum 1962--
64. Hann hefur verið viðskipta-
máiaráðherra frá því í júní
1970, er stjórn Heaths tók við.
Ernst Brugger, efnahagsmála-
ráðherra Sviss, er jafnframt
formaður ráðgjafanefndar
EFTA, sem hélt fund sinn hér
í fyrradag. Brugger er 57 ára
að aldri og hefur verið þing-
maður í 11 ár, en hafði áður
haft talsverð afskipti af stjórn-
málum í Sviss, einkum á sviði
borgarmála í Zurich, en hann
er nú þingmaður fyrir þá borg.
Brugger er svipmikill stjóm-
málamaður og orðlagður dugn-
aðarforkur.
Paui Nybáe Andersem mark-
aðsmálaráðherra Danmerkur er
58 ára að aldri fæddur á dönsk-
um bóndabæ. Hann nam hag-
fræði i háskóla og að loknu
námi varð hann aðstoðarkenn-
ari við Árósarháskóla. Þaðan
lauk hann svo doktorsprófi ár-
ið 1946. Kenndi síðan við lýð-
háskðlann í Krogerup í tvö ár,
en varð kennari við danska
verzlunarháskölann 1948 og
prófessor 1950. Hann var for-
maður samstarfsnefndarinnar
við vanþróuð lönd 1962—1968,
en það ár tók hann við emb-
ætti m a rka ðs mála r áðhe r ra.
Andersen hefur aldrei verið á
þingi, en er taiánn til vinstri í
stjórnmálum.
Per Kleppe, viðskiptamálaráð-
herra Noregs er fæddur i Osló
árið 1923 og er því 48 ára að
aldri. Hann lauk kandidats-
prófi i viðskiptafræði árið
1946. Hann hóf þá fljótiega
störf við norska fjármálaráðu-
neytið og varð ráðuneytisstjóri
1957, eftir að hafa gegnt þing-
mennsku í þrjú ár. Árið 1963
varð hann yfirmaður efnahags-
deildar EFTA í Genf og starf-
aði þar unz hann var kallaður
heim árið 1967. Hann hefursíð-
an starfað mikið að máLum
Verkamannaflokksins og er tal-
inn mjög sterkur og valdamik-
ill í miðstjórn hans. Hann varð
ráðherra 16. marz sL
Olavi Johannes Mattila, utan-
rikisviðskiptaráðherra Finn-
lands er 53 ára að aldri, verk-
fræðingur að mennt. Mattila
hefur starfað um 20 ára skeið
fyrir finnska ríkið á ýmsum svið
um. Hann var viðskiptafuEtrúi
í finnska sendiráðinu í Pek-
ing 1952—1956, i sendiráðinu i
Buenos Aires 1957—’60. Hann
varð ráðuneytisstjóri finnska ut
anríkisráðuneytisins 1960 og
tók sama ár við stöðu yfir-
manns viðskipta I iðnaðarráðai
neytinu og gegndi henni i tvð
ár. 1962—’64 var hann yfirmað-
ur viðskiptadeEdar utanrikis-
ráðuneytisins og aðstoðarutan-
ríkisráðherra 1964. Hann hefur
nú um árabil verið utanríkis-
viðskiptaráðherra Finnlands.
KjelI-OIof Feldt, viðskiptaráð-
herra Svía er yngsti ráðherr-
ann, sem sækir EFTA-íundinn,
39 ára að aWri. Hann tók við
embætti viðskiptaráðherra í
stjórn Palmes á sL ári. Áður
hafði hann starfað við sænska
fjármálaráðuneytið, sem ritari
og ráðuneytisstjóri frá þvi ár-
ið 1962. Hann tók sæti á þingi
skömmu eftir síðustu áramót.
Xavier Pintapo, viðskiptaráð-
herra Portúgal, er 44 ára gam-
all. Hann er hagfræðingur að
menntun og heíur m.a. stundað
nám í Bretlandi við háskólann
í Edinborg. Um tíma starfaði
hann hjá EFTA á árinu 1965,.
Síðan gerðist hann prófessor
við háskólann í Lissabon og
þar á eftir yfirmaður Efnahags
stofnunar Portúgais. Á árinu
1969 varð hann ráðherra við-
skiptamála og hann var for-
maður EFTA-ráðsins á fyrri
hluta sl. árs, er ísland gerðist
aðili að EFTA.
J. Staribacher, viðskipta- og
iðnaðarráðherra Austurríkis,
varð ráðherra á sl. ári. Hairun
er jafnaðarmaður og laerðt
prentiðn á unga aldri en eftár
stríðið stundaði hann nám í hag
fræði og gerðist starfsmaður
verkalýðssamtafcairma í Austur-
ríki. Hann hefur allt frá stríða-
lokum haft mikU afsfcipti af
veifcalýðamálum í Austurríki
og alt til þess tíma er hanm tók
við ráðherraembætti á sl. ári.
Áður en hann gerðist ráðherra
í austurríáku ríkisstjórninni
hafði hanm setið á þingi laruda-
iras um árabil.
Dayan hlynnt-
ur opnun Súez
Bandaríkin vöruð við kostnaði
Tel Aviv, Kairó, 11. maí.
NTB-AP.
fSRAELSK blöð héldu þvi fram
í dag að opnun Súez-skurðar
mundi hafa í för með sér
óhemjukostnað fyrir Banda-
rikjamenn, sem mundu hafa veg
og vanda af hreinsun skurðar-
ins samkvæmt Ioforði er Will-
iam P. Rogers utanríkisráð-
herra hefði veitt Anwar Sadat
forseta í viðræðunum í Kairó í
síðustu viku. Auk þess hefur
fsraelsstjórn ttikynnt opinber-
lega að hún hafi beðið Banda-
ríkin um 200 milljónir dollara í
efnahagsaðstoð og að auki 300
milljónir að láni með hagstæðum
kjörum.
Moshe Dayan varnarmálaráð-
herra er í einu blaðanna gagn-
rýndur fyrir að hafa bundið
fsraei með tilslökunum til að fá
skurðinn opnaðan. Dayan er að
sögn ísraelskra blaða upphaf3-
maður sveigjanlegri afstöðu, er
mun hafa komið fram í viðtöl-
um við bandaríska að3toðarutan
ríkisráðherrann Joseph Sisco.
Dayan mun hafa tjáð Sisco, að
fsraelar væru reiðubúnir að
fallast á nærveru Egypta á aust
urbakka Súez-skurðar gegn því
að Egyptar byndu enda á styrj-
aldarástandið í samskiptum
landanna.
HÖRFI 185 KM
Að því er Anwar Sadat hefur
tjáð þingflokki sínum sagði
hann Rogers að áður en Súez-
skurður yrði opnaður yrðu ísra
elar að hörfa 185 km frá skurð-
inum til E1 Arish og fallast
innan sex mánaða á tímaáætl-
un um brottflutning frá öllum
herteknum svæðum. Sadat
kvaðst einnig hafa neitað að
skuldbinda sig til þess að isra-
elskum skipum yrði leyft að
sigla um skurðinn, aðeins lofað
að athuga málið. Sadat sagði, að
egypzkt herlið yrði að fara yfir
Súez-skurð til að tryggja örugg
ar siglingar.
Á þingi Evrópuþingsins í
Strassborg sagði egypzkur ráð-
herra, Esmal Abdel Mehuid, að
Egyptar „neituðu afdráttarlaust"
að fallast á að Sinai-skagi yrði
friðlýstur og að samþykkja nær-
veru ísraela í Sharm-el-Sheikh.
Hann kvað Egypta fúaa að fali-
ast á nýtt takmarkað vopnahlé
við Súez ef ísraelar hörfuðu og
egypzka herliðið gæti tekið við
„þjóðlegum skyldustörfum" á
austurbakkanum. Hann sagði
þetta í umræðum um Mið-Aust-
urlönd.
- EBE
Framhald af bls. 1
fá lenigri aðlöguinartímabil, en
þau 5 ár, sem nú er kveðið á um
innan EBE.
Maurice Sdhumann utanríkis-
ráðherra Frakklands, se.m er for
nnaður ráðherranefndar EBE
staðfesti á fundi með frétta-
mönnum í Bru.ssel í kivöld, að
mikið hetfði miðað í samikomiu-
lagsátt á fundiunum í dag. Var
að síkilja á Scíhumann, að raiun-
verulega væri nú engin stór hindr
un efltir á veginum fyrir saim-
konaulagi. Scíhumann áitti að
gefa Pompidou forseta Frafcik-
iands nákvæma skýrslu um við-
ræðumar í dag, seinna í fcvöthL
— Mansfield
Framhald af bls. 1
riska herliðinu í V-Evrópu. Hiann
saigði, að gjaldeyriskreppan staf-
aði af greiðsHuhaHa Bandarífcj-
anna, sem ætiti ræbur að refcja
til herkostnaðar I Vtetnaim,
Evrópu og víðar. Hann kvaðsfc
hafa verið vairaður við að ieglgja
frumvarpið fram, en efcki væri
hægt að biða lentgur eims og mái-
um væri nú komið.