Morgunblaðið - 12.05.1971, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 12. MAl 1971
17
— Ársfundur
Framhald af bls. 28
var haldinn í London 3.—8. þessa
mánaðar. Eftirgreindar þjóðir
eiga sæti í nefndinni: Belgía,
Bretland, Dammiörk, Frakkland,
Holland, Iriand, Island, Noregur,
Pólland, Portúgal, Sovétríkin,
Spánn, Sviþjóð og Þýzkaland.
Fundinn sóttu af Islands hálfu
Hans G. Andersen, þjóðréttar-
fræðingur utanrikisráðuneytis-
ims, Jón L. Arnalds, ráðuneytis-
stjöri sjávarútvegsráðuneytásins,
Jón Jónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar, Már Elís-
son, fiskimálastjóri og Pétur Sig
urðsson, forstjóri Landhelgis-
gæzlumnar.
Á dagskrá fundarins voru
meðal eunnars eftirgreind mál-
efni:
Skýrsla Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins um rannsóknir á fiski-
stofnum á Norðaustur-Atlants-
haifssvæðinu, en I skýrslunni er
gefið heildaryfiriit yfir fisíkveið-
ar á svæðinu á árumum 1962 til
1969 og ástand einstakra stofna,
þjám. ástand þorsk- og ýsustoín-
anna við Island og í Barents-
hafi og ástand norsk-islenzka
síldarstofnsins, sildarstofnanna í
Norðursjó og makrílstofnanma í
Skagerak og Norðursjó. Fyrir
fundinum lá ennfremur að ræða
um bamn við laxveiðum í sjó.
Á dagskrá fundarins var einn-
ig að ræða sameiginlegt eftir-
lit með því að ákvæðum Norð
auistur-Atlantshafssaimninigsiins
sé framfylgt, og samræmingu á
aðferðum við mælingar á
möskvastærð á Norðaustur- og
Norðvestur-Atlantshafi.
Þá var og til umræðu gildis-
taka 2. málsgr. 7. gr. samnings-
ins um ákvörðun hámarksafla
I Norðaustur-Atlantshafi og
skiptinigu hans milli þjóða, en
sjö riki hafa samþykkt gildis-
töku ákvæðisins, þ.e. Bretland,
Danmörk, Frákkland, Irland,
Noregur, Spánn og Sviþjóð.
Mörg önnur efni voru á dag-
skrá fundarins.
Svo sem áður greinir lá fyrir
fundinum skýrsla Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins, þar sem með-
al annars er skýrt frá ástandi
þorsk- og ýsustofnanna við Is-
land og sókn i þá
1 skýrslunni kom meðal ann-
ars fram, að sókn brezkra tog-
ara á Islandsmið jókst jafnt og
þétt frá lokum síðari heimsstyrj-
aldar og fram til ársins 1964, en
það ár komst hún upp í 235
milljón tonntima. Síðan hefur
sókn þeirra minnkað ár frá ári
og var komin niður I 92 milljón-
ir tonntíma árið 1969.
Sókn islenzkra togara hefur
farið vaxandi undanfarinn ára-
tug; hún var 38 milljón tonn-
tímar 1960, en var komin upp
i 62 milljónir tonntíma árið 1969.
Sé litið á sameiginlega sókn
togara beggja þjóðanna — en
hún er hér mæld í sömu einin.g-
um — þá var hún:
196 milljónir eininga árið 1960.
271 mi'Mjón eininga árið 1964
og 153 milljónir eininga árið
1969.
Sókn þýzkra togara er mæld
í öðrum einingum — veiðidög-
um —, en á henni hafa verið
sáralitlar breytingar síðastliðinn
áratug.
Sókn brezkra og islenzkra tog-
ara var árið 1969 96% af því sem
hún var árið 1964 og tæp 80%
af því sem hún var árið 1960.
Ekki eru á þessu stigi til ör-
uggar heimildir um sókn is-
lenzka bátaflotans, en hún hef-
ur þó aukizt í heild, sökum
samdráttar sildaraflans.
Minni sókn brezkra togara
undanfarin ár hefur haft já-
kvæð áhrií á þá árganga i þorsk
stofninum, sem eru nú að alast
upp. Að vísu hefur ekki dregið
úr afla Breta jafnmikið og
minnkun sóknarinnar, en það
stafar af því, að afli á sóknar-
einingu hefur aukizt mjög, að-
allega vegna hins góða árgangs
frá árinu 1964 Það er ástæða
til þess að ætla, að þessi árgang-
ur nýtist Islendingum betur en
ella hefði orðið.
EkM er talið, að þorskstofn-
inm við ísland sé nú ofveiddur,
enda þótt jafnan veirði að hafa
í huga hættuna á vaxandi sókn
og aukiinni veiðitækni. Ennfrem
ur ber að gæta, að mikill hluti
vertíðaraflanis er af grænlenzk-
um uppruna og árgangurinn frá
1961, sem á mestan þátt í vertíð-
araflanum undanfarin ár, hefur
þegar skilað mestu af framlagi
sínu til veiðanna.
Ýsuveiðum hefur hrakað und-
anfarin ár. Aðaldkýringiin virð-
ist vera sú, að ekki hefur komið
neinm góður árgangur í þenman
stofn síðan árið 1957.
Fyriir fundimum lá tillaga ís-
Iendinga um lokun svæðis út af
Norðaustur-lslandi fyrir öllum
togveiðum á tímabilimu júlí til
deseimber ár hvert í fimm ár, en
tillaga þessi kom fram á ára-
fundi mefndarinnar 1967 og var
frestað xneðam séristalkar rann-
sólknir á áistandi þorsk- og ýsu-
stofmanma við íslandi færu fram
Niðuristöður þeirra ramnsókna
lágu mú fyrir. Á grundvelli
skýrelunniar taldi nefndin, að
lókun svæðisins hefði ekki til-
ætluð áhriif til vermdar stofnun-
um, þar sem slík lokum myndi
aðeins hafa í för með sér sókn-
airtilfærslu en ekki sóknartaik-
mjörkun.
Nefndim var samimála um, að
koma yrði i veg fyrir hættuna
á aukinmi sókn á fslctndsmið.
Astand þorskstofnanna í Barents
bafi og við Vestur-Grænland er
þaninig, að milkil hætta er á, að
skip, sem stundað hafa veiði á
þessum svæðum, leiti í rílkari
mæli á miðin hér við land.
Fundurinm beindi því til Alþjóða-
hafrannisóknaráðsinis að það léti
í té heildarupplýsingar um á
stand og þol þorek- og ýsustofn-
anmia á Norðvestur- og Norð
austur-Atlantshafi og sókn í þá,
þamnig að hægt væri að taka af-
stöðu til sóknar á íslamdsmið
með hliðsjón af því. Jafnframt
ákvað nefndin að taka til athug
urnar á næsta ársfundi eða fynr,
ef umint er og ástæða þykir til,
hvaða ráðstafanir séu nauðsyn-
legar til vermdar þorsk- og ýsu
stofnunum við ísland.
Af íslands hálfu var því lýst
yfir, að slíkar ranimsóknir væru
mjög æskilegar og vonir stæðu
til að þær gætu haft mikla þýð
ingu, en að ríkisstjónn íslands
miyndi að sjálfsögðu hafa öll
þessi mál í stöðugri athugun
með það fyrir augum að gera
nauðsynlegar og fullnægjandi
ráðstafamir til að vernda þá lífs-
hagsmuni, sem hér er um að
ræða.
Nefndin fagnaði saimkomulagi
er gert hefur verið milli íslands,
Noregs og Sovétríkjanma um
takmarkanir á aflamagni við
veiðar á morsk-íslenZka síldar-
stofninum.
Nefndin ræddi eimnig um ráða
gerðir Dammerkur, Noregs og
Svíþjóðar um takmarkanir sín á
milli á veiðum síldar í Norður-
sjó og ákvað að ræða afstöðu
anmarra ríkja til þeirra eða
framihald gildandi takmarkana á
sérstökum fundi í desember.
Þá ákvað nefndin einnig að
bamina síldveiðar með snurpunót
á svæði suður af írlandi til að
fyrirbyggja skyndiaukningu
sókn í þá stofna.
Á ársfundi nefndarinnar 1969
mælti nefndin með því að bamma
laxveiðar á úthafinu, en það
kom ekki til framkvæmda vegna
mótmæla sunara ríkja. Á árs
fundinuim 1970 varð saimikomu
lag uim bann við laxveiðum á
tilteknu svæði undan Noregs
ströndum til þess að koma í veg
fyrir útþanslu veiðanna. Á fund
inum iniú lögðu Bretar tii, að lok-
að yrði svæði undan Bretlands
og Irlandsströndum og var það
samþykkt. Af íslands hálfu var
lagt til að einnig yrðu bannaðar
laxveiðar á svæðinu umhverfis
ísland og við Austur-Grænland.
Sú tillaga náði ekki fram að
ganga að þessu sinni.
Sovétríkin lögðu til, að sér-
stakur ráðhenrafundur skyldi
haldinn fyrrir næstu áramót til
að ræða ýmis mál er nefndin
fjallar um. Nefndin var sam-
mála um að ákvörðun um slíkan
fund yrði tekin, þegar uppiýs-
ingar lægju fyrir um afstöðu
ráðherranna til þesis máls.
BRIDGE
KEPPNIN á heimsmeistaramót-
inu í bridge, sem fram fer þessa
dagana á Formósu, er afar tví-
sýn og skemmtileg. Núverandi
heimsmeistarar, DALLAS-ásarn-
ir, eru nú komnir í efsta sæti,
en franska sveitin (Evrópumeist
arar 1970) fylgir fast á eftir. í
síðustu umferð urðu úrslit þessi:
Frakkland — Bandaríkin A 11-9
Ástralía —- Brazilía 14-6
Staðan er þá þessi:
1. Bandaríkin A. 117 stig
Frakkland 115 —
3. Ástralía 75 —
4. Formósa 58 —
5. Brazilía 55 —
6. Bandaríkin B. 52 —
Keppninni er háttað þannig að
fyrst fer fram undankeppni sú,
sem nú stendur yfir. Að hertni
lokinni keppa 2 efstu sveitirnar
um heimsmeistaratitilinn, sveitir
nr. 3 og 4 um þriðja sætið og
sveitir nr. 5 og 6 um fimmta
sætið.
Það hefur vakið mikla athygli
hve franska sveitin hefur staðið
sig vel og bendir allt til að
keppnin um heimsmeistaratitil-
inn verði milli frönsku sveit-
arinnar og núverandi heims
meistara frá Bandaríkjunum.
Fari 3vo má búast við spenn-
andi keppni og ekki að vita
nema frönsku spilurunum takist
að stöðva sigurgöngu banda-
rísku sveitarinnar.
— Rólegra
Framhald af bls. 1
frankanis né láta hanu fljóta.
Þessi ákvörðun var tékin þrátt
fyrir mikinin þrýsting af hálfu
Svisslendinga og Vestur-Þjóð-
verja um að gengið yrði hsekk-
að. Yeija fréttaritarar að þróun
mála værði ljósari er kemur und
ir hádegisbilið á morgun.
Sýningnm fer senn að fækka á hinni skemmtilegu Universal-
mynd „Harry Frigg“, sem I.augarásbíó hefur nú sýnt við góða
aðsókn um þriggja vikna skeið. Myndin gerist á stríðsáruniim
og fjailar um það, þegar herstjórn bandamanna ákveður að
reyna að bjarga fimm hershöfðingjum úr fangabúðum á Ítalíu.
Tii björgunarfararinnar veist Harry nokkur Frigg, óbreyttur
liðsmaður, sem er kunnur úr her sínum fyrir sífelld agabrot og
fangelsanir — og jafn sífelld strok úr fangelsi. Aðalhlutverkið
leikur Paul Newman, sem er nú meðal vinsælustu leikara
hvarvetna, og Sylva Koscina, auk ýmissa annarra frægra
leikara.
— Krabbamein
Framhald af bls. 1
kleift að beizla kjarnorkuna og
senda menn til tunglsins, til þess
að sigrast á krabbameini og
verja til þess, nauðsynlegu fjár-
magni.
Hann sagði, að sérstakri nýrri
stofnun yrði komið á fót í þjóð-
arheilbrigðismálastofnuninni og
myndi hún hagnýta sér niður-
stöður allra þeirra víðtæku rann-
sókna, sem nú væru gerðar á
krabbameini. Hin nýja stofnun
á að hafa aðskilinn fjárhag og
verður ábyrg gagnvart forsetan-
um. Nixon sagði blaðamönnum:
„Ég hef farið fram á þetta, þvi
að mér er það mjög umhugað,
og einnig vegna þess að ég held,
að forsetinn geti flýtt fyrir þvi
að krabbamein verði læknað með
áhuga á leiðsögn.“
Nixon bætti þvi við, að hvorki
fjárskortur, skipulagsskortur né
áhugaieysi forseta ættu að
standa baráttunni fyrir þrif-
um. Þjóðarheilbrigðisstofnunin
myndi beita öllum kröftum sín-
um til baráttunnar. Forstjóri
stofnunarinnar, dr. Robert Q.
Marston, sagði hins vegar, að
ekki væri unnt að setja það
mark að sigrast á krabbameini
á 10 árum eins og þegar ákveð-
ið var að koma mönnum til
tunglsins á tíu árum. „Ógerning-
ur er að spá nokkru um, hvenær
við náum því marki að lækna
krabbamein,“ sagði hann. Fjár-
veitingar til baráttunnar gegn
krabbameini hafa aukizt úr 180
milljónum dollara í 232 milljónir
á yfirstandandi fjárhagsári, sem
lýkur 31. júlí, en þar við bætist
fyrirhuguð aukafjárveiting fyrir
næsta fjárhagsár.
— Kostnaður
Fratnhald af bls. 5.
við upplýsingar, sem liggja fyr-
ir á nefndarkostnaði, er gert ráð
fyrir, að hver nefnd kosti 150
þús. kr. eða alls 2,1 millj. kr.
2. FLOKKUB
I öðrum flokki eru þingálykt-
unartillögur, sem fela ríkisstjórn-
inni að framkvæma umfangs-
miklar athuganir og/eða undir-
búning löggjafa. Ofangreindar
tillögur skiptast á stjórnmála-
flokka sem hér segir: Alþýðu-
bandalag 3 nefndir. Framsóknar-
flokkur 13 nefndir. Samtök frjáls
lyndra og vinstri manna 2 nefnd-
ir. Hér er alls um 18 nefndir að
ræða. Miðað við nýgerða athug-
un á nefndarkostnaði, er gert ráð
fyrir, að hver nefnd kosti 100
þús. kr. eða alls 1,8 millj. kr.
3. FLOKKUR
I þessum flokki eru þings-
ályktunartillögur stjórnarand-
stæðinga um stofnun ríkisfyrir-
tækja. Hér er um að ræða tvær
tillögur. Önnur er frá Alþýðu-
bandalaginu um lyfsölu, en hin
er frá Framsóknarflokknum um
klak- og eldisstöð fyrir lax og
silung. Gera verður ráð fyrir, að
ríkiseinkasala á lyfjum myndi
ekki kosta bein útgjöld úr ríkis-
sjóði. Kostnaður við byggingu
klak- og eldisstöðvar fer eftir
stærð og hve góð aðstaða er fyr-
ir hendi af náttúrunnar hálfu.
Eftir þvi, sem næst verður kom-
izt, má gera ráð fyrir, að kostn-
aður geti verið frá 20 og upp i
80 millj. kr. eftir stærð. Hér er
reiknað með 30 millj. kr. (áætluð
tala).
4. FLOKKUR
Hér er um að ræða frumvörp
til laga um stofnun fyrirtækja,
sjóða, nefnda og fjölgun í þeim.
Frumvörpin skiptast á stjórn
málaflokka sem hér segir: Al-
þýðubandalag 4 frumvörp; Fram
sóknarflokkur 9 frumvörp; Fram
sóknarflokkur og Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna 1 frum-
varp. Alls eru hér um að ræða
14 frumvörp og áætlaður kostn-
aður 492,7 millj. kr.
1 sumum ofangreindra frum-
varpa er gert ráð fyrir nefndum
og stjórnum. Skiptast tillögur
um það efni sem hér segir eftir
stjórnmálaflokkum; Alþýðu-
bandalag 3 stjórnir og nefndir.
Framsóknarflokkur 6 stjórnir og
nefndir. Alls 9 stjórnir og nefnd-
ir. Áætlaður kostnaður er 1,35
millj. kr.
— Gjaldeyris-
tekjur
Framhald af bls. 3.
baka, þá sér maður að í raun-
inni varð ekki á þessu fullur
skilningur fyrr en með til-
komu viðreisnarstjórnarinnar.
Og Ingólfur Jónsson, sam-
göngumálaráðherra, er mjög
opinn fyrir þessu og hefur
góðan skilning á þvi.
Ferðamannastraumurinn
hefur sem sagt aukizt mjög
mikið hér. Skemmtiferðaskip
koma einnig hér í síauknum
mæli og þó það fólk stanzi
kannski ekki lengi i það skipt-
ið, þá koma margir aftur ef
þeir eru heppnir með veður
og lízt vel á sig. Sama er að
segja um bakpokafólkið. Marg
ir ferðamálasérfræðingar
segja, að ekki megi amast við
því, þar sem fólk festi oft ein-
mitt ást á því landi, sem það
kom fyrst til meðan það var
ungt og móttækilegt.
Við eigum margt eftir að
gera hér á sviði ferðamála,
sagði Lúðvík að lokum. En ég
hefi trú á því, að þessi þátt-
ur í þjóðarbúskapnum eigi
eftir að aukast.
TIL SÖLU
Tilboð óskast í húsið Borgartún 11 (Sendibílastöðin Þröstur).
Húsið er litið timburhús, sem hægt vaeri að flytja.
Til sýnis daglega.
Tilboðum sé skilað á Sendibílastöðina Þröst, sem fyrst.
FOSSVOGUR
200 ferm. raðhús fokhelt
Selzt á sanngjörnu verðí ef
samið er strax.
MEIST AR AVELLIR
Góð 2ja herb. íbúð verður
laus fljótlega.
MUftOBO
FASTEIGNASALA
Lækjargötu 2, i Nýja bió húsinu.
Simi 25990 og 21682.
A TEIGUNUM
150 ferm. hæð með risi samt.
8 herbergi. falleg eign. Getur
verið laus strax.
KÓPAVOGUR
Góð 4ra herb. sérhæð með
bilskúr.