Morgunblaðið - 12.05.1971, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MEDVIKUDAGUR 12. MAÍ 1971
21
Jónas Jónsson mál-
arameistari-Minning
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaiskilnaðar Viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja vininn sinn
látna,
er setfur hinn síðsta blurnd.
Marg's er að minnast,
maxgt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir iiðna tíð.
Margs er að minnast
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
Héðan skal halda,
heimili sdtt kveður
hedmilisprýðin i hinzta sinn.
Síðasta sinni.
Sárt er að skilja,
en heimvon góð í himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á
braut
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér siðar fylgja I friðarskaut.
Jónas Jónsson frá Siglufirði
lézt hinn 3. þ.m. og verður útför
hans gerð frá Siglufjarðarkirkju
i dag. Með Jónasi er horfinn
einn af ágætustu borgurum Siglu
fjarðar. Virðulegur og glæsileg-
ur maður sem eftir var tekið, að
eins 61 árs að aldri.
Ekki gat mig rennt grun I að
við ættum ekki eftir að sjást og
talast við oftar, er ég fyrir
stuttu fékk óviðráðanlega löng-
un til þess að hringja í hann
og njóta þeirrar hressingar er
ætíð fólst í því að ræða
við hann, þá hafði hann á orði
að næst ætlaði hann að hringja
til mín.
Jónas var fæddur í Haganes-
vik í Austur-Skagaíirði 19. des-
ember árið 1909. Sonur merkis
hjónanna Friðrikku Þorsteins-
dóttur og Jóns Jónassonar verzl
unarmanns. Ungur fluttist hann
með foreldrum sínum til Siglu-
fjarðar. Þar starfaði faðir hans
að verzlunarstörfum, var lengst
af við verzlun HalMórs Jónas-
sonar og varð vinsæll og mjög
vel metinn og þau hjón bæði.
Jónas Jónsson ólst upp og
hrærðist i lófi og blómaitíð Siglu
f jarðar og tók þátt í þeirri miklu
uppbyggingu er þar átti sér
stað, er silfri hafsins var þar
mokað á land á sínum tima.
Jónas vann margvisleg störf, t.
d. vann hann að verzlunarstörf-
um um skeið, en lengst af vann
hann við málningar, var um
fjölda ára verkstjóri yfir allri
máiningarvinnu hjá Sildarverk-
smiðjum ríkisins, og var það oft
erilssamt og ábyrgðarmikið starf.
Sérstaklega á sumrin er fjöldi
manns víðs vegar að af landinu
vann hjá verksmdðjunum, ogvar
oft á tíðum seibtur í að vinna
að hreinsun og málningu á lýs-
istönkum og ýmsum öðrum mann
virkjum Síldarverksmiðjanna.
Þá var I mörgu að snúast og
eftir mörgu að Mta, því gáleysi
manna t.d. við tankana gat kost
að þá örkuml, eða jafnvel Mfið.
Ef hann varð var við glannaskap
uppi í tönkum þá lét hann þá
menn fara til annarra starfa, og
hefur sennilega bjargað mörg-
um frá slysum með þvi móti. Jón
asi rókst vel verkstjómin hjá
verksmiðjunum, gegndi því
starfi með mikilM prýði, þvi
hann var samvizkusamur og
mjög verklaginn að hverju sem
hann gekk. Einhverjum hefði
nú stundum í hans sporum fund
izt of mikið á sig lagt, en ekki
kom það niður á undirmönnupi
hans, af þeim var hann sérstak-
lega vel liðinn og vart hægt að
hugsa sér betri yfirmann. Jónas
var hjálpsamur, og góður vinur
vina sinna.
Sem málari var hann vandvirk
ur með afbrigðum og mjög eftir-
sóttur málari. .Nú siðustu árin
unnu þeir saman við málningar
Jónas og Herbert Sigfússon mál
arameistari á Siglufirði, en báð-
ir hafa þeir verið sérstaklega
eftirsóttir í þessu starfi vegna
ágætrar vinnu og snyrti-
mennsku.
Jónas slasaðist fyrir fimm ár-
um en vann þó þegar hann mögu
lega gat, en afleiðingar þessa
slyss munu hafa háð honum
mjög, og hann aldrei náð sér að
neinu ráði eftir það.
Jónas var hrókur alls fagnað-
ar í góðra vina hópi, hann hafði
yndi af söng og tónlist, einnig
hafði hann mjög góðan smekk
fyrir hvers konar list
Hann átti sér ýmis tónstunda-
áhugamál, bar þar efst skák og
bridge. Áður fyrr tók hann oft
þátt i skákkeppnum og stóð sig
ágætlega, einnig var hann með-
limur i Bridgefélagi Siglufjarð-
ar og tók þátt í keppnum fyrir
það félag enda maðurinn ágætur
bridgespilari. Á yngri árum var
Jónas mikið í iþróttum bæði
hlaupum og stökkum og þótti
mjög liðtækur á þeim vettvangi.
Jónas var ekki einn á lífsleið-
inni, hann eignaðist myndau-lega
og góða konu Fanney Lárusdótt
ur frá Neskaupstað sem ætíð
stóð við hlið manns síns í bhðu
og striðu. Hún bjó manni sínum
og sonum fagurt og gott heimiii,
yfir þvi hvUdi reisn og höfðings
bragur enda hjónin samtaka um
að gera það sem bezt úr
garði, þar sátu hlýjan og gestrisn
in i hávegum, er allir urðu varir
við er komu inn á heimili þeirra
að Hvanneyrarbraut 64 á Siglu-
firði. Kæri vinur og frændi ég
vil að lokum þakka þér samver-
una, já þakka þér fyrir allt og
allt, það var ánægjulegt að
vinna þér við hlið og undir
þinni stjórn, af þér lærði ég
margt í starfi, sem oft hefur
komið sér vel um dagana.
Ég mun sakna þín Jonni, af
heilum hug, en hinar góðu end-
urminningar sem ég á um þig
munu í framtíðinni milda eitt-
hvað þann trega, en óhjákvæmi
lega verður þar eftir tómarúm
sem ekki verður bætt.
Guð blessi þér heimkomu þína
Guðmundur Sigur-
jónsson húsasmiður
Fæddur 21. apríl 1903.
Dáinn 3. maí 1971.
Þótt kveðji vinir einn og einn
og aðrir týnist mér,
ég á þann vin, sam ekki bregzt
og aldrei burtu fer.
Þetta láttausa vers Margrétar
Jónsdóttur, skáldkonu kom mér
í hug er ég frétti hið svdplega
fráfall Guðmundar Sigurjónsson
ar, húsasmiðs Urðarstíg 7, Hafn
arfirði. Ég er einn þeirra mörgu,
sem finnst auðara og snauðara í
kringum mig, er sá góði og tryggi
vinur er horfinn af sjónarsvið-
inu, því svo reyndist mér hann
jafnan.
Ef ég fór eitthvað út úr bæn-
um, þá var það með Guðmundi,
með honum var ég óttalaus og
öruggur.
Já, Guðmundur var sannar-
lega gæðadrengur, þann vitnis-
burð báru honum, undantekm-
ingalaust allir samferðamenn
hans, hvort sem þeir höfðu ver-
ið með honum á sjó eða landi.
Sjómennsku stundaði Guð-
mundur framan af ævinni, en
lærði trésmiðar hjá Jóhannesi
Reykdal á Setbergi, er hann fór
að þreytast á sjónum. Eftir það
stundaði Guðmundur smíðar til
síðasta ævidags 3. þ.m. að hanm
hneig niður örendur.
Guðmundur var fæddur að
Hreiðri í Holtum 21. apríl 1903.
Foreldrar hans voru Margrét
Árnadóttir frá Skammbeinsstöð
um, Árnasonar frá Galtalæk, og
Sigurjón Jónsson frá Hreiðri,
Guðmundssonar frá Gíslholti, en
kona Árna bónda á Skammbeins
stöðum var Ingiríður Guðmunds
dóttir frá Keldum á Rangárvöll
um, Brynjólfssonar, saman flétt-
aðar rangæskar bændaættir,
traustar mjög.
Þau Margrét og Sigurjón
bjuggu í Hreiðri á árunum 1890
—1917 og eignuðust 12 börn og
komust 9 þeirra til fullorðins-
ára, 6 eru lifandi enn, allt mæt-
asta fólk, hógvært, starfsamt og
vinfast, kröfuharðast við sjálft
sig.
Er þau Margrét og Sigurjón
létu af búskap fluttust þau til
Hafnarf jarðar, áttu þá elztu börn
þeirra þar heimiM, yngsti sonur-
inn, Guðmundur, var þá stoð
þeirra og stytta í ellinni. Þessi
merkishjón hvíla nú i kirkju-
garði Hafnarfjarðar.
Frændrækinn var Guðmund
ur, hygg ég að systkinabörn
hans tækju undir það með mér.
Þegar jólagjafirnar frá „Guð-
mundi frænda“ fóru að berast
VILJUM RÁÐA NOKKRA VAIMA
byggingaverkamenn
yfir á sólskinsstrendur hins ei»
lifa lifs.
Eftirlifandi kona Jónasar er
Fanney Lárusdóttir frá Neskaup
stað, börn þeirra eru Haukur
skipstjóri, kvæntur Érnu Odds-
dóttur, búsett á Siglufirði. Jón
sjómaður og froskkafari nú
starfsmaður i Straumsvík, kvænt
ur Sigríði Júliusdóttur, búsett í
Kópavogd. Eftirldfandi systir Jón
asar er frú Sigurlína búsett á Nes
kaupstað, ekkja eftir Sigurð
Jensson kaupmann og bakara-
meistara þar á staðnum.
Fyrir hjónaband eignaðist Jón
as 2 dætur og eru þær Edda gift
Rafni Sigurbergssyni vélstjóra „
búsett í Reykjavik og Svava gift
Ingimundi K. Helgasyni lögreglu
þjóni , búsett í Reykjavík.
Ég vil að lokum votta eigin-
konu, börnum, systur hins
látna og barnabörnum og öðrum
ættingjum innilega samúð mína
og fjölskyldu minnar og bið Guð
að styrkja þau í sorg þeirra.
Karl Einarsson.
„austur yfir Fjall“ voru jólin 1
nánd. Sá ég eitt sinn hjá Guð-
mundi bréf frá Mtilli frænku,
mjög hlýlegt, sem sannaði þetta.
Þvi segjum við nú öll, skyld
og vandaiaus:
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðl. E.
VILJUM RÁÐA VANAN
bílstjóra
á steypubíl. BREIÐHOLT HF., Lágmúla 9 — Sími 81550.
Bílstjórar
Okkur vantar bílstjóra á vörubíl.
Upplýsingar hjá verkstjóra, ekki í síma.
NATAN & OLSEN HF..
Ármúla 8.
Skurðarmaður
Óskum eftir að ráða pappírsskurðarmann.
LITBRÁ H/F., Höfðatúni 12
Símar 22930 og 22865.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Þorvalds Þórarinssonar hrl. veður bifreiðin X-2641,
Volvo, vörubifreið, árg. 1965, talin eign Bergs Sverrissonar og
Theodors Kjartanssonar, boðinn upp og seld á opinberu upp-
boði að Ármúla 44, miðvikudaginn 19. maí n.k. kl. 14.00.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
N auðungaruppboð
Eftir ákvörðun Skiptaréttar Kópavogs verður bifreiðin R-8889
(Rússajeppi) eign þrotabús Guðmundar Þorvarðs Jónassonar,
Ásbraut 17, seld á opinberu uppboði, sem haldið verður við
félagsheimili Kópavogs í dag, miðvikudaginn 12. maí kl. 15.00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
BREIÐHOLT HF.,
Lágmúla 9 — Sími 81550.
I.O.O.F. 9 = 1525127i/2 = L.F,
I.O.O.F. 8 = 1535128/2 = L.F.
I.O.O.F. 7 = 1525127 = L.F.
Kvenfélag Ásprestakalls
Vorfundurinn okkar verður
í Ásheimilinu, Hólsvegi 17,
miðvikud. 12. maí, og hefst
kl, 8.30.
Dagskrá:
1. Rætt um sumarferðina og
fleira
2. Hafliði Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkurborgar,
talar um skrúðgarða og
sýnir myndir
3. kaffidrykkja.
Stjórnin.
Kristniboðssambandið
Samkoma verður í kristni-
boðshúsinu Betaníu, Laufás-
vegi 13 í kvöld kl. 8.30. Guðivi
Gunnarsson prentari talar.
Affir eru velkomnir.
Kvenfélagið Keðjan
Síðasti fundur vetrarins verð-
ur haldinn að Bárugötu 11
fimmtudaginn 13. maí kl. 8.30.
I.O.G.T. Einingin nr. 14
Fundur í kvöld kl. 2030.
Kosnirvg embættismanna.
Æ.t.
Kvenfélag Breiðholts
Á fundinum í kvöld verður
tekin ákvörðun um ferðalag-
ið og Margrét Kristinsdóttir
kynnir nýja ostarétti.
Stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
í Tónabæ
l dag verður opið hús frá kL
1.30—5.30 e. h. Auk venju-
legra dagskrárliða verður
kvikmyndasýning.