Morgunblaðið - 12.05.1971, Blaðsíða 28
JUGLVSMGflR
@^»22480
LESIB
DflGLEGR
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1971
Sumarvinna skólafólks;
Góðar horfur á
vinnu skólapilta
— verr gengur að útvega
skólastúlkum atvinnu
VEL gengur að útvega skóla-
fól'ki vinnu um þessar mundir,
en fjölmargir, sem ekki hafa
lokið prófum hafa látið skrá
sig og óvíst er ennþá hvemig
mál þeirra leysast.
Samkvæmt upplýsinigum Jór-
unnar Isleifsdóttur á Ráðninga-
skrifstofu Reykjavikurborgar
hefur skrifstofan getað komið
öilum skólapiitum í vinnu sem
hafa leitað til skrifstofunnar að
undanfömu og hafa verið tilbún-
ir til þess að hefja vinnu strax.
Verr hefur gengið að koma stúlk
um í vinnu og eru 6 stúlkur
sem ekki hefur tekizt að útvega
vinnu, skráðar hjá skrifstofunni.
Alls er búið að skrá um 190
skólapilta á aldrinum 16 ára og
eldri, en þeir hafa ekki lokið
prófum og því liggur ekki fyrir
ennþá hvernág mál þeirra leys-
ast, en mestur hluti þeirra, sem
ráðningarakrifstofan hefur komið
í vininu hefur fengið vinnu hjá
borginmi og í byggingavinnu.
Þá er búið að skrá tæplega 100
skóiastúlkur, en hins vegar
sagði Jórunn að þessi mál skýrð
ust ekki að ráði fyrr en skólum
lyki og þá kæmi betur í ljós
hvert framboð væri af vinmuafli
og hver eftirspum, en eins og
væri liti vel út með vinrnu, sér-
staMega fyrir skólapiita.
Pétur Thorsteinsson BA 12 á siglingu.
Tóku 250 tn. skip og ætl-
uðu að fá sjóveð í þvl
— fyrir launum, er komið væri til Reykjavíkur
65 tonn
af síld
við Reykjanes
ÖRFIRISEY landaði í fyrradag
65 tonnum af síld til Norður-
stjörnunnar í Hafnaxfirði. Síldin
var frekar horuð, en ágæt til
vinmslu. Veiddist hún út af
Kirkj uvogi við Reykjanes. Örfir
isey var aftur á sjó í gær.
Um þessar mundir er ekki
unnið við niðuriagningu í Norð-
urstjörmunmi, en safniað er hrá-
efni í forðabúr til þess að hægt
sé að vinna samfellt annað veif-
ið.
UM kl. 16 í gær höfðu forsvars-
menn útgerðarfyrirtækisins Arn
firðings hf. á Bíldudal samband
við Landhelgisgaezluna og báðu
hana að ná aftur skipi þeirra,
Pétri Thorsteinssyni BA 12, sem
búið væri að stela og sigla á haf
út. Skipið er 250 lestir að stærð.
Sam'kvæmt upplýsimgum Pét-
urs Sigurðssonar forstjóra Land
helgisgæzlunnar fór hann fram
á að beiðni um töku skipsins
kæmi frá sýslumanni og kom
'hún nokíkru síðar.
Varðskipið Óðinn var þá sent
á vettvang, en það var statt
út af Vestfjörðum þegar beiðn-
in barst. Náði Óðinn Pétri Thor-
steinssyni út af Arnarfirði og
stöðvaði skipið. Var skipstjór-
inn á Pétri Thorsteinssyni tek-
inn um borð í Óðinn til Skýrslu-
gerðar.
Skipstjórinn var ekki skráður
á Pétur Thorsteinsson, en hins
vegar var hann ráðinn til að
taka við skipsstjóm af skipstjóra
sem var að hætta. Átta menn
voru um borð í Pétri og voru
þeir skráðir á skipið. Skipst.j ór-
in-n gaf þá skýringu í viðtali við
Morguntolaðið að áhöfnin hefði
ekki fengið greidd laun sín um
langt ákeið þrátt fyrir marggef-
in loforð og var því afráð-
ið að taka skipdð og sigla
með það til Reykjavíkur til þess
að láta taka sjóveð í því fyrir
launum þeirra og til þess að
þeir kæmust heim til sín, en þeir
voru imiatar- og peningalausir, og
framkvæmdastjórinn var farinin
til Reykjavíkur.
Þegar varðskipsmenn komu
að Pétri Thorsteinssyni voru
skipverjar búnir að hafa sam-
band við lögfræðing í Reykja-
vík til þess að koma um borð
í skipið í dag í Reykjavíkurhöfn,
en svo fór um sjóferð þá, að
skipinu var snúið aftur til Bíldu
dals af varðgkipsmön'num og hóf
ust þar réttarhöld í gærkvöldi
í þessu máli. Var ekki unnt að
fá frekari fregnir af málinu í
gærkvöldi, en þess má geta að
gkip eins og Pétur Thorsteins-
son er vart undir 30 rhillj. kr,
virði.
Hefðbundinn lokadagur í gær:
Um 30% minni afli en á
síðustu vertíð
Grindavík hæsta löndunarver-
stöðin á bolfiski — Vestmanna-
eyjar hæsta vinnsluverstöðin
LOKADAGUR vertíðarinnar
samkvæmt gamalli hefð var í
gær 11. maí. Afli vertíðarbáta
er þó miðaður við 15. maí, svo
og allir samningar. Morgunblað-
ið hafði samband við 5 aflahæstu
verstöðvamar í gær og innti
frétta af gangi mála. Eins og
allir vita er útkoman á þessari
vertíð mun verri hjá bálum
sunnan- og suðvestanlands mið-
að við vertíðina í fyrra. Um síð-
ustu mánaðamót var landsaflinn
af bolfiski orðinn 132.300 tonn
miðað við 184.700 tonn í fyrra.
Munar hér röskum 50 þúsund
tonnum, eða tæplega 30%.
Hæsta löndunarverstöðin á
Hætta á aukinni sókn á Islandsmið:
Vegna ástands þorskstofnana
í Barentshafi og við V-Grænland
Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsnefndarinnar
æskir ýtarlegri rannsóknar
„ÁSTAND þorskstofnana í Bar-
entshafi og við Vestur-Græn-
land er þannig, að mikil hætta
er á, að skip, sem hafa stundað
veiði á þessum svæðum leiti í
æ ríkari mæli á miðin við ís-
land.“ Framanritað er ein af nið-
urstöðum 9. ársfundar Norðaust-
ur-Atíantsrafsveiðinefndarinnar,
sem haldinn var í London 3.—8.
þessa mánaðar.
1 skýrslu Alþjóðahafrannsókn-
aráðsins komu fram mörg atr-
iði, sem skipta mjög miklu máli
fyrir ísland og má þar nefna
m.a. að sókn brezkra togara á ís-
landsmið jókst jafnt og þétt frá
1960—1964, en síðan hefur hún
farið minnkandi ár frá ári og
var árið 1969 tæp 56% af þvi
sem hún var árið 1964. Fullyrt
er að þessi þróun hafi haft góð
áhrif fyrir þá árganga í þorsk-
stofninum, sem nú eru að alast
upp, en hins vegar hefur sókn
íslenzkra togara farið vaxandi
um tæplega helming sl. áratug.
Ekki er talið í skýrslunni að
þorskstofninn við Island sé nú
ofveiddur, en varað við hættu
af vaxandi sókn og aukinni veiði
tækni. Var nefndin sammála um
að koma yrði í veg fyrír hætt-
una á aukinni sókn á Islands-
mið. Þá er fjallað um það hve
ýsuveiðum við ísland hefur hrak
að síðustu ár og skýringin á
því er helzt talin vera sú að síð-
an 1957 hefur enginn góður ár-
gangur komið í stofninn.
Felld var á fundinum tillaga
íslands um lokun svæðis út af
norðaustur íslandi fyrir öllum
togveiðum á timabilinu júií til
desember ár hvert í 5 ár, en til-
lagan kom fyrst fram 1967. Var
hún felld á grundvelli niðurstöðu
Alþjóðahafrannsóknaráðsins á
þann veg að lokun svæðisins
hefði ekki tilætluð áhrif til vernd
ar fiskstofnunum, þar sem slik
lokun myndi aðeins hafa í för
með sér sóknartilfærslu, en ekki
sóknartakmörkun.
Beindi fundurinn því til Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins að
það léti í té heildarupplýsingar
um ástand og þol þorsk- og ýsu-
stofnana við fsland. Nefndin
fagnaði samkomulagi, er gert
hefur verið milli fsiands, Nor-
egs og Sovétríkjanna um tak-
markanir á aflamagni við veið-
ar á norsk-íslenzka síldarstofn-
inum. Á fundinum nú var sam-
þykkt tillaga Breta um að bann-
aðar yrðu laxveiðar á svæði und-
an írlands- og Bretlandsströnd-
um, en felld var tillaga af fs-
lands hálfu um að banna einnig
iaxveiðar á svæðinu umhverfis
fsland og við Avistur-Grænland.
Fer hér á eftir fréttatUkynn-
ing frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu um fundinn:
9. ársfundur Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar
Framhald á bls. 17
þessairi vertíð er Grinidavík með
um 37.000 tonn í gær, en veru-
legum hluta þess afla sem landað
er í Grindavík er landað þar af
aðkomubátum og aflanum síðan
ekið til ýmissa verstöðva á
Reykjanesskaga og allt til Reykja
víkur.
Aflahæsta vininsluverstöðiin er
hims vegar, eins og mörg undan-
farin ár, Vestmannaeyjar, með
um 23.000 lestir af bolfiski í gær
og er þetta þó einhver lélegasta
vertíð í Eyjum í möirg ár. Þá
var eininig landað í vetux í Vest-
maninaeyjum um 55 þúsund lest-
um af loðnu af alls 182 þúsund
iestum sem veiddust við landið.
Næst hæsta löndunarverstöð
loðnuafla var Reykjaví'k með 26
þúsund lesMr.
Afli Grir-^avíku rbáta var ágæt
ur í fyrrad ig, en þá lönduðu þar
38 bátar um 500 tonnum. Am-
firðingur er aflahæstur Grinda-
víkurbáta með 1251 tonin, en fast
á eftiæ fylgiir Albert með 1231
tonin. Þriðji báturinn Br Hnafn
Sveinbj amarson með 1110 tonm,
Geirfugl með 1017 tonn og Hóps-
nesið rreð 997 tonn.
Þriðja hæsta löndunarstöðin
er Þorlákshöfn með liðlega 17.000
tonn í gær, en eins og í Grinda-
vik er mikill hluti aflans fluttur
til vinmslu á öðrum stöðum.
Fjórða verstöðin er Keflavík með
um 13.000 tonm í gær og 5. ver-
stöðin er Sandgerði með 11.000
til 12.000 lestir í gær.
„Úr frysti
u
SEÐLABANKI Islands og við-
skiptabankarnir tóku skrán-
ingu vestur-þýzka marksins úr
„frysti“ í gær og var það skráð
með 4% hækkun. Kaup á 100
mörkum var 2477 kr. og sala
2494 kr.