Morgunblaðið - 02.06.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 02.06.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIB, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNl 1971 17 Á þessum stað urðu leiðarlok eina nótt í sólmánuði, dimma nótt, sem verða mun auðkennd í minningaletri Þingvalla og eigi máð úr minni Þjóðarinnar. manngildi sé metið í raun á ts- landi og að vér sjáum og met- um vora mestu menn, meðan þeirra nýtur við og að vér heiðr- um þá fallna að verðleikum. Nöfnin þrjú, sem hér eru fest á stein úr bálastorku Þingvalla, eru horfin inn i söguna saman, þar sem þau geymast saman og mun bera hátt, þegar raktir verða atburðir vorra tíma, þótt eitt komi mest við sögu. Bjarni Benediktsson, Sigríður Björns- dóttir, Benedikt Vilmundarson, hér hurfu þau inn í nóttina, hér skal þeirra minnzt, meðan dag-' ar heilsa vakandi augum á Þing- velli og Island á menn, sem það blessar lífs og grœtur liðna. Hver, sem hér gengur hjá, skal minnast þess, að hér er friðar- reitur, vígður stórri minningu. Og megi varðinn og nöfnin þrjú vekja til hljóðrar bænar fyrir íslenzkri framtíð og fyrir þeim, sem Guð vors lands felur stór og ábyrgðarmikil hlutverk. Góður Guð blessi þau, sem vér minnumst hér, Bjarna, Sig- ríði, Benedikt litla. Þau eiga helgan varða í hug- um vor allra. En Drottinn einn er eilífur, oá það, sem hann blessar, er blessað að eilífu. Hann vaki yfir ástvinum. Hann vaki yfir Islandi í miskunn sinni og trúfesti. Ég lýsi friði Drottins yfir þessum stað og þeirri minning, sem hann skal bundinn um aldur. Drottins náð og friður sé með yður öllum.“ var það þá sem alþingi feðranna stóð til forna. En einnig síðar lágu hingað leiðir margra. Og hér var þeim kært að koma og vera, sem unnu Sögu og fundu það öðrum betur, að hér á steinninn mannamál og moldin sál. Jóhann Hafstein, forsætisráðherra, flytur ávarp við minnisvarðann á Þingvöllum. Hér var konungshús, svo kallað eití sinn. Það var reist á löngu liðnu fagnaðarári, þegar heilsað var göfugum höfðingja. En það, sem þjóðin hyllti þá, vitandi vits og óvitandi, var kon- ungshugsjón frelsisins. Og sú hugsjón rættist. Nú blaktir lýð- veldisfáni á Lögbergi. Margir draumar hafa rætzt. Það eigum vér Guði að þakka. Hann hefur gefið oss menn, karla og kon- ur. Farsæld og manndáð hefur hann gefið og. vakið. Það kom morgunn eftir hverja nótt. Vér minnumst á þessum morgni þeirra þriggja, sem hér mættu skapadómi og þjóðin tregar. Héðan í frá er hér hvorki konungshús né ráðherrabústað- ur, heldur minningarmark um mikinn harm og mikla þökk, helgaður reitur, sem kynslóðir, aldir og óbornir, munu ganga um í hljóðri lotning. Jafnan megum vér muna það, að lífið er valt, lán og gengi brothætt og stökkt. Því meir vegur vor ævi stuttrar stundar, því meir er í húfi um það, að — Minnisvarðinn hylinn, alltaf eins og alltaf ný. Og meiðar risu og féllu, sterk- ir stofnar og laufgaðir mjög féliu líka, meðan harpa lands- ins var knúin ósýnilegum fingr- um og aldanna straumur hneig að sinum ósi fram. Oft bar bólstra í bláa heiðið yfir landinu, margan dag og marga nótt. 1 sólmánuði var jafnan fegurst á Þingvelli, enda Framhald af bls. 1. Minnisvarðinn á Þingvölliun. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, helgar staðinn. Swaran Singh til Vesturlanda — að tala máli A-Pakistana Stríðshetjan Murphy fórst í flugslysi Roanoke, Virginia, 1. júní AP—NTB. BANDARÍSKA stríðshetjan og kvikmyndaleikarinn, Audie Murphy, fórst í flugslysi s.l. föstudag, ásamt fimm mönnum öðrum. Lenti flugvél þeirra i fjallshlíð 32 km vestur af Roan- oke í Virginia en fannst ekki fyrr en á mánudag. Sennilegt er talið, að flugmaðurinn hafi ætl- að að nauðlenda en veður var slæmt á föstudag, rigtiing og stormur. Murphy var írskrar ættar, en fæddur og uppalinn i Texas. Hann hlaut 24 heiðursmerki fyr- ir framgöngu sína í heimss<tyrj- öldinni síðari, þar á meðal æðsta heiðursmerki Bandaríkjahers, „The Medai of Honor“. Hann beið hins vegar aldrei bætur liifs reynslu sinnar úr styrjöldinni, þjáðist liöngum af svefnleysi og martröðum og taugar hans voru oft itla komnar. Var hann sagður lítt hreykinn af framgöngu sinni í heimsstyrjöldinni, hvað sem ölil um heiðursmerkjum leið og þau hafði hann ÖM gefið ungum frændum sínum og kunningjum. Murphy lék i nokkrum kvik- myndum, m.a. mynd, sem byggð var á reynslu hans í styrjöldinni og nefndist „To Hell and Baek“, en leikframi hans varð heldur líitill. Murphy var tvíkvæntur og átti svo syni. 150 Sjálfstæðiskonur - í kaffisamsæti hverfasamtaka HVERFASAMTÖK Sjálfstæðis- flokksins efndu í gærdag til kaffisajnsætis með koniun í Voga- og Heimahverfi. Fór það Sauðárkrókur: V elheppnaður k j ósendaf undur fram í hinnm nýju salarkynnum að Álfheimum 74, og hófst kl. 3. Ingiimar Einarsson flutti stutt ávarp í upphafi samsætisins og sagði m.a. að tilgangurinn með því væri, að konur gætu hitzt og rætt saman. Velheppnað vormót í Stapa Sauðárkróki, 1. júní. SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Sauð árkróki efndu til almenns kjós- endafundar s.l. föstudag. Frum- mælendiur voru Gunnar Thorodd- sen prófessor, og EMert B. Schram, formaður F.US. Fimm efsitu menn á D-iistanum í kjör- dæminu mættu á fundinum, og svöruðu fjölmörgum fyrirspurn- um fundarmanna. Fundinn sóttu um 130 manns, og vakti athygi’i hve margt ungt fólk sat hann. Fundurinn stóð frá kl. 8.30 fil miðnættis. Fundarstjóri var Kári Jónsson. — Jón. Meðal gesta voru Geirþrúður HMdur Bernhöft, ellimálafuMtrúi, sem skipar 9. sæti framboðslista Sjálfstæðisfliokksins í Reykjavík, og Ragnhiildur Helgadóttir sem skipar 6. sætið. Ræddu þær við konurnar um hin ýmsu mál. Gert hafði verið ráð fyrir um 60 gestum, en alls sóttu um 150 konur samsætið og voru forráða menn þess mjög ánægðir með árangurinn. NÝJU DELHI 1. júní, AP. Utanríkisráðherra Indlands, Swaran Shigli, skýrði þinginu í Nýju Dellil svo frá í dag, að hann færl í næstu vlku tll Moskvu, Parísar, Lundúna og Wasliington til þess að reyna að fá ríkisstjómir fjórveldanna til þess að hlutast til lum það, sjálfra sín vegna“, að bundinn verði endi á þjóðarmorðið í Austur-Pakistan. Singh kvaðsit ætfa að gera allt, sem i hans valdi stæði, tiil þess að gera almenminigi á Vesitur- löndum ljósa nauðsyn. þess, að SJÁLFSTÆÐISMENN á Suður- nesjum efndu til vormóts í Stapa laugardaginn 22. maí s.l. Ingvar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, sem skipar 5. sæti á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi setti mótið og bauð sérstaklega velkominn Jóhann Hafstein, forsætisráð- herra og árnaði honum heilla í starfi hans sem formanns Sjáif- stöðva þær ofsðknir, siem Austur-Pakisbanar yrðu fyrir af hálífu Vestur-Pakisbana. Enn- fremur yrði að búa svo um hnút- ana, að þær fjórar milHjónir fflóttamamna frá Austur- Paikist- an, sem nú eru í Indlandi, gæbu smúið heim til sín. Singh kvað vestrænar þjóðir hafa — með stökium heiðartog- um undairtekningum — látið sig liitflu skipta hið alvartiega ástand í Au stu r- Pakistan en eina landið, sem látið hefði vopn af hendi við Vestur-Pakistan frá því 25. miarz sl. væri alþýðullýðveldið Kína. stæðisflokksins. Gestir á vormót inu tóku undir orð Ingvars með því að standa upp og fagna for- sætisráðherra. Jóhann Hafistein flutti ávarp við góðar undirtekt ir og Matthías Á. Mathiesen, fyrsti þingmaður Reyknesinga fliutti einnig ávarp. Síðan flutti Ómar Ragnarsson skemmtiþátt en dans var stiginn til miðnætt- is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.