Morgunblaðið - 03.07.1971, Qupperneq 5
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLl 1971
Kristin Magnús Guðbjartsdóttir og fnski leikstjórinn Jobn
Fernald
Leikur og söngur
fyrir erl. ferðamenn
— á vegum Sumarleikhússins
í Glaumbæ
SUMABLKIKHÚSIÐ, sem stóð
f.yrir kvöldvökum fyrir erlenda
ferðamenn í fyrrasumar, er nú
að fara af stað á ný, og verður
fyrsta sýningin i Glaiunbæ n.k.
niánudagskvöld. Þar niunu leik-
ararnir Kristín Magniis Guð-
bjartsdóttir og Ævar Kvaran
flytja riinilega tveggja klukku-
stimda dagskrá í bundnu og
ólunidnii niáli. Kr efnið tekið úr
íslenzkiitn sögiun, kveðskap og
leikritiun, aftur úr ölduni og
frani til jiessa dags. Molly
Kennedy hefur Valið efnið og
þýtt yfir á ensku, en dagskráin
er öll flutt á ensku. Inn á niilli
konia frani þrír piltar, seni kjósa
að kalla sig „Tópa, Drösul ok
0|u>la“ og syngja íslenzk lög,
göniiil og uý.
Sumarleikhúsiö, sem eiginlega
er angi af Ferðaleikhúsinu, var
starfrœkt í ágústmánuði í fyrra-
sumar og fékk þá svo góðar
viðtökur að ákveðið var að end-
urtaka kvöldvökurnar í sumar,
í júlí og ágúst með auknu efni
og endurbættu. Kristín Magnús
og Halidór Snorrason, forstöðu-
fólk Ferðaleikhússins standa
f.vrir Sumarleikhúsinu og hafa
þar fengið til liðs við sig Ævar
Kvaran, söngtríóið, Molly Kenn-
edy og brezka leikstjórann John
Fernald, sem tekið hefur að sér
leikstjórnina. Fernald hefur unn-
ið víða á meira en 40 ára starfs-
íerli, þar á meðal fært upp 200
leiksýningar í London og Liver-
pool. Um 10 ára skeið stjórnaði
hann Konunglega brezka leik-
listarskólanum og síðustu fimm
árin hefur hann starfað í Banda-
rikjunum, en er nú á leiö til
Bretlands til starfa.
Á blaðamannafundi, sem Sum-
arlei'khúsið efndi til í gær, sagði
Fernald, að sér væri það mikil
ánægja að koma og færa upp
kvöldvökur Sumarleikhússins -
enda væri hér um merka starf-
semi að ræða, sem hann vissi
ekki til að ætti sér hliðstæðu.
nokkurs staðar í heiminum.
Ég varð reyndar „ástfanginn“
af íslandi 1941 þegar ég kom
hir.gað í brezka sjóhernum —
og síðan 1968 hef ég komið hing
að á hverju sumri, sagði Fern-
ald. í fyrrasumar leyfði Krist-
in Magnús, sem er gamall nem
andi minn, mér að fylgjast með
æfingu hjá Sumarleikhúsinu og
fannst mér þetta svo skemmti-
leg hugmynd að ég kvaðst með
ánægju skyldi koma í 10 daga
nú í sumar og stjórna uppfærsl
unni. — Að mínum dómi eru
þýðingar Molly Kennedy alveg
frábærar og efnisvalið er þann
ig, að ég held að flestir hljóti
að hafa gaman af, því þarna
fer saman fróðleikur um ísl.
menningu og létt og fersk
skemmtun.
Kristín Magnús sagði að Sum
aiieikhúsið hefði fengið smáveg
is fjárhagsaðstoð hjá Ferðaskrif
stofu í-ikisins og Ferðaskrifstofu
Zoéga, en að öðru leyti væri
það áhuginn í aðstandendum
og flytjendum, sem bæri þetta
uppi, því gróðavonin væri ekki
mikil, frekar en i annarri hlið
stæðri leikstarfsemi. En þakk-
irnar og viðtökurnar hjá hinum
erlendu áhorfendum hefðu full
vissað þau um að þau væru að
leggja þarna sitt af mörkum til
landkynningar og í þeirri trú
ætluðu þau að reyna að halda
starfsemi Sumarleikhússins á-
fram á komandi sumrum.
Kvöldvökur Sumarleikhússins
verða á mánudögum, þriðjudög
um og miðvikudögum kl. 21 i
Glaumbæ — fleiri sýningar er
ekki hægt að hafa í viku, þvi
aðra daga þurfa unglingarnir að
dansa í Glaumbæ.
Eyðileggur aspirin
áhrif „lykkiunnar“
BRF.ZKIIt vísindamenn hafa
komizt að því, að aspirin getur
haí't áhrif á frjósemi. Er liugs
anlegt, að þessar venjulegu höf
uðverkjatöflur geti dregið úr
álirifum „Iykkjunnar“ svonefndu
til þess að koma í veg fyrir
getnað.
Aspirin dregur úr myndun
svonefndra prostaglandinhvata,
en menn hafa þá hugmynd um
„Iykkjuna“, að hún orsaki mynd
un prostaglandinhvata, sem aft
ur á móti hafi þau áhrif á leg
ið, að það dregst saman og veld
u r fóstureyðingu. Taki kona
töfiu ; til að losa sig við höfuð-
vérk, kann það hins vegar að
upphefja áhrif „lykkjunnar".
Niðurstöður rannsókna á á-
hrifum aspirins eru skráðar í
skýrslu, sem lyfjafræðideild
„The Royal College of Surge-
ons“ í London hefur nýlega
birt. Brezka vísindaritið „New
Scientist“ rekur málið einnig
og telur hið merkilegasta.
Það samband, sem virðist vera
milli aspiríns og prostaglandin-
hvata, getur orðið til þess að
menn finni ný og áhrifameiri
lyf gegn ýmsum sjúkdómum,
svo sem gigtsótt, jafnframt því
að auka mönnum skilning á
mannalíkamanum.
Atuskilyrði, ástand
sjávar og fiskigöngur
— rædd á fundi
haffræðinga á Akureyri
markaður við 40— 50 lestir vegna
vinnslumöguleika um borð. Um
80% aflans fara í frystingu til
manneldis en hitt í bræðslu.
FUNDUR sovézkra og islenzkra
haf- og fiskifræðinga var bald
inn á Akureyri 27.—29. júní. Á
fundinum voru tekin saman
gögn sem sýndu ástand sjávar,
átuskilyrði og fiskigöngur i liaf
inu miili Noregs og íslands og
norðan Islands seinni hluta maí
og í júni. í fréttatilkynningu frá
Ilaíraniisóknastofnuninni er
skýrt frá ýmsu sem kom fram
á fundimim. Þar segir:
Eins og flestum er kunnugt
var isbrúnin í vor fjær land
inu en verið hefur síðan 1964.
Sjómælingar, sem gerðar voru
í febrúar sl. milli íslands og Jan
Mayen, bentu einnig til að svo
myndi verða. í samræmi við
legu isbrúnarinnar var hitastigið
í hintpn kalda Austur-íslands-
straumi hærra en undanfarin
hafísár og lágmarkið nú minus
ein gráða, en í upphitaða yfir
borðslaginú allt að 4°C í júní.
Seltumagn sjávar í Austur-ís
landsstraumnum er samt en*n til
tölulega lágt eins og venja hef
ur verið síðan 1964 og sýnir spU
an að áhrifa pólsjávar gætir en.,
í ríkum mæli fyrir norðaustan
ísland. Norðanlands gætti sæv
ar sunnan úr Atlantshafi með
minnsta móti i maí. Þannig verð
ur ástand sjávar fyrir Norður-
landi í vor að teljast til undan
farinna kaldra ára, þótt hita-
stig í yfirborðslögum sé tiltölu
lega hátt vegna mildrar veðr-
áttu og fjarlægðar íss.
að kolmunninn var óvenjulega
stór á öllu svæðinu (25 til 36
sentimetrar).
Gagnstætt reynslu undanfar-
inna ára fundust ekki kolmunna-
torfur, sem veiðanlegar hefðu
verið í herpinót, en þess má þó
geta að engar rannsóknir fóru
fram á kolmunnasvæðinu sjálfu
í maí.
Jákvæðar veiðitilraunir rann-
sóknaskipanna með flotvörpu í
júní urðu þó til þess að 20—30
rússnesk verksmiðjuskip komu á
svæðið og fengu þar strax góð-
an afla. Algeng veiði þeirra var
15—20 lestir i togi sem stóð i
l'a klst., en dagsafli var þó tak-
Áætlað er að þessum rann-
sóknum verði haldið áfram á
næsta ári í samvinnu við Rúss-
ana.
Frá Hafrannsóknastofnuninni
sátu fundinn þeir Hjálmar Vil-
hjálmsson og Sveinn Svein-
björnsson fiskifræðingur og
Svend-Aage Malmberg haffræð-
ingur.
LESIfl
DRGLEGR
Mínar hjartans þakkir tii
allra, sem sýndu mér vinsemd
á 100 ára afmæli minu, börn-
um mínum, tengdabörnum,
barnabörnum og barnabarna-
börnum, sem gerðu mér dag-
inn ógleymanlegan.
Ennfremur öllum ættingjum
og vinum, er glöddu mig með
blómum, gjöfum, skeytum og
hlýjum handtökum.
. Guð blessi ykkur öll.
Guðhjörg Svanlaug
Árnadóttir,
Aiistiirgötn 24, Keflavík.
Heilar þakkir öllum þeim, sem vottuðu mér vináttu sína
30. júni. _
Sigurbjöm Einarsson.
Mælingar fyrir Austurlandi
og í Noregshafi öllu, en þær
voru gerðar í júní sýna að hita-
stig í hafinu sunnanverðu var
yfir rneðallagi, en undir meðal
lagi í því norðanverðu. Skilin
milli hlý- og kaldsjávarins fyr
ir Austurlandi náðu á 10° v. 1.
norður á 65° n. br. og þaðan
lágu þau í suðaustur á 63° n.
br. norður af Færeyjum, en síð
an til norðurs að 70° n. br.
austur af Jan Mayen. Þau voru
eins og á undanförrium árum
austar og sunnar en var fyrir
1965. Ekkert bendir því til þess
að hafísástand sjávar, sem hófst
hér við land 1964, sé um garð
gengið.
Eins og við mátti búast með
hliðsjón af hitastiginu var þör
ungagróður með mesta móti
sunnarlega á athugunarsvæðinu
milli íslands og Noregs. Það
er því augljóst að með tilliti til
þörungamagns hefur vorað þar
vel í ár, en norðanlands aftur á
móti ekki.
Enda þótt rauðátumagn í Nor
egshafi sé svipað og á undan-
förnum árum bar nú mun meira
á yngri dýrum og verulegt magn
pólsjávartegunda var á áhrifa-
svæði Austur-íslandsstraumsins
austan og norðaustanlands.
Virðist því svo, sem sú upphit-
un, sem mældist í efstu lögum
sjávar og áður var getið hafi
ekki flýtt fyrir vexti átunnar.
Aöeins óverulegt síldarmagn
fannst seinast í maímánuði uppi
við norska landgrunnið norðan-
vert. Síldin var þarna í smáum
torfum og stóð djúpt. Aðrar síld-
arlóðningar fundust ekki.
í júnímánuði var þess vegna
aðaláherzlan lögð á að kanna
•magn og útbreiðslu kolmunna á
hafinu milli íslands, Færeyja og
Jan Mayen, á véiðitilraunir og
öflun sýnishorna.
Að þessu sinni fannst aðal
kolmunnamagnið um 65. breidd-
argráðu, 60—120 sjómílur austur
af Gerpi. Dreifður kolmunni var
þó einnig á allstóru svæði aust-
ur og suðaustur frá Jan Mayen
sitt hvorum megin við 0-lengdar-
bauginn. Lengdarmælingar sýna,
a
m
m
*