Morgunblaðið - 03.07.1971, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLl 1971
\
1 BREIÐHOLTI standa nú yf-
ir byggingarframkvæmdir við
stærsta fjölbýlishús, sem hing
að til hefur risið á Islandi.
Stendur húsið við Asparfell
og í því munu verða 180 íbúð-
ir. Að byggingarframkvæmd-
unum stendur Byggingasam-
vinnufélag atvinnubílstjóra og
eru meðlimir í félaginu skráð-
ir 778, en „virkir“ félagar
munu vera um 500 talsins.
1 fyrsta áfanga, Asparfelli 2 og 4, eru 59 íbúðir og 8 leiguherbergi.
Framkvæmdir í Breiðholti:
Stærsta f jölbýlishús á íslandi
Getur rúmað alla íbúa Stykkishólms
hjá fyrirtækinu
manns.
50
Áætlað er, að framkvæmd-
um ljúki um áramótin 1973—
’74, en þær hófust í ágúst
1970. Stærð hússins við Asp-
arfell verður um 58 þús. rúm-
metrar og gólfflötur þess á
öllum hæðum verður um 21
þús. fermetrar. Grunnflötur
þess er 2522 fermetrar. Heild-
arkostnaður við byggingar-
framkvæmdirnar er áætlað-
ur rúmar 218 millj. kr.
1 fyrsta áfanga, Asparfelli 2
og 4, sem áætlað er að steypa
upp í vetur og fram á vorið
1971, eru 59 ibúðir og 8 leigu-
herbergi. Undirstöður voru
steyptar í október. Áætlað
er, að íbúðimar verði íbúðar-
hæfar jafnóðum og verkinu
miðar áfram á tímabilinu frá
því í febr.—marz 1972 til
ágúst—september sama ár.
1 öðrum áfanga, Asparfelli
6 og 8, verða 70 íbúðir og 8
leiguherbergi. Uppsteypa á
honum á að hefjast í maí—
júní 1971. Áætlað er að íbúð-
ir verði íbúðarhæfar á tíma-
bilinu okt.—nóv. 1972 til rnarz
—april 1973.
1 þriðja áfanga, Asparfelli
10 og 12, eru 51 íbúð, barna-
heimili og 8 rými fyrir at-
vinnu- og þjónustufyrirtæki.
Uppsteypa á að hefjast í
febrúar—marz 1972, áætlað
íbúðarhæft frá apríi 1973 til
des. 1973.
Blaðamaður og ljósmyndari
Mbl. lögðu leið sína upp í
Breiðholt fyrir skömmu, skoð-
uðu framkvæmdir þar og
ræddu við menn að störfum.
Fyrstan tókum við tali Ólaf
Guðmundsson, trésmið, en
hann hefur unnið við þessar
byggingarframkvæmdir síðan
þær hófust. Ólafur er ættað-
ur af Skógarströnd á Snæ-
fellsnesi,
— Það þyrfti ekki nema eitt
hús af þessari stærð til að
fullnægja húsnæðisþörf allra
íbúa í Stykkishólmi og myndi
það spara geysilegt fé við
gatnagerð. Ekki er þó víst,
að „Hólmararnir" séu mér
sammála um að þetta sé rétt.
— Jú, ég er mjög ánægður
með vinnuaðstöðuna hér, að-
búnaður er allur mjög góður,
t.d. er mötuneytið hér til fyr-
irmyndar.
Við ræddum næst við Gest
Vigfússon, járnabindinga-
mann, en hann er frá Skálma-
bæ I Álftaveri og vinnur hér
i byggingavinnu á veturna
og vorin.
— Mér likar að mörgu leyti
vel að vinna hér. Maður er
alltaf á sama stað og aðstað-
an er hér góð. Auk þess eru
vinnufélagarnir mjög góðir og
ósjaldan gerist eitthvað
skemmtilegt. Ég reyni að
halda það út að vinna hér
þar til verkinu lýkur, þ. e.
ef mér endist aldur til,
Loks tókum við tali verk-
stjórann, Einar Jónsson. Ein-
ar var áður leigubílstjóri, en
hóf störf sem verkstjóri hjá
B.S.A.B. fyrir fimm árum síð-
an.
— Hversu margir vinna hér
á vegum Byggingasamvinnu-
félagsins? .
— Hér vinna nú 38—40
manns, en alls munu vinna
— Notið þið einhverjar nýj-
ungar í byggingatækni hér
við þessa byggingu.
— Það er í rauninni ekki
hægt að segja það. Við not-
um Breiðfjörðsmót og fáum
þannig mjög góða nýtingu á
timbri. Hins vegar finnst
mér byggingariðnaðurinn hér
á landi standa helzt til mikið
í stað, því ekki er hægt að
segja að neitt nýtt hafi kom-
ið fram í byggingatækni hér
á undanförnum árum. Það
getur þó verið að stálmótin,
sem framkvæmdanefnd bygg-
ingaiðnaðarins er að gera til-
raunir með, séu nýjung á ein-
hvern hátt.
— Hafið þið margt skóla-
fólk í vinnu?
— Við erum með átta
stráka hér, en það er talsvert
há prósentutala af verka-
mönnum. En þeir eru yfir
hÖfuð mjög nýtir starfs-
kraftar og engin ástæða til
að sniðganga þá á vinnu-
markaðinum. Reyndar tel ég
það siðferðislega skyldu, að
þeir aðilar sem standa að
svona miklum framkvæmd-
um, taki skólapilta i vinnu.
— Hvernig miðar svo fram-
kvæmdum hér.
— Vel, við steypum alltaf
upp tvær hæðir á mánuði fyr-
ir utan það sem við vinnum
í undirstöðum og öðru slíku.
Ég held að með því fram-
haldi eigum við að ljúka verk-
inu á tilskildum tima.
— Loks vil ég benda á að
samvinnufélög sem þetta,
geta lækkað byggingakostn-
aðinn veruiega, t.d. taldi ég
þetta einu leiðina fyrir mig
til að koma mér upp ibúð.
Einar Jónsson
Gestur Vigfússon
...... ■
be u
s»rr:: n““
Frá framkvæmdunum við Asparfell
Norðurhlið fjölbýlishússins eins og það verður fullgert.