Morgunblaðið - 03.07.1971, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLl 1971
17
£r
Seldu sælgæti og gáfu
út auglýsingablað
— til að geta tekið þátt í alþjóðiegri
söngkeppni í Wales
SKÓLAKÓR Menntaskólíatia
við Hamrahlíð er nú á för-
um til Bretlands, þar sem
hann mun taka þátt í alþjóð
legu tónlistarmóti í Llangoll
en í Wales. Mótið hefst 6.
júlí og stendur til 15. júlí,
en síðan mun kórinn ferðast
nokkra daga um England og
heimsækja helztu sögustaði
þar.
Hamrahlíðarkórinn var
stofnaður fyrir fjórum árum
og er söngur hans nú orðinn
fastur liður á helztu samkom
um og tyllidögum skólans.
Þá hefur kórinn sungið víða
sungið hvað sem um yrði
beðið. Enda kom í ljós að efn
isskráin hjá kórnum er ó-
venju fjölbreytt: gömul þjóð
ilög, íslenkar og erlendar tón
smíðar af ýmsum gerðum,
stúdentasöngvar og svo margt
fleira. Eftir að hafa sungið
nokkur lög til að gefa hug-
mynd um fjölbreytnina brá
æskufól'kið á leik og söng
Trölladansinn, sem Þorkell
Sigurbjörnsson samdi og gaf
skólanum, en efst á nótna-
blaðinu segir að Trölladans-
inn sé saminn handa hálf-
tröllum i Hamrahlíð.
Fjáröflunarstjórarnir Áslaug Helgadóttir og Þóroddur Þór-
oddsson
í skólum úti um land, og á
jólunum skemmtir hann jafn
an sjúkum og öldruðum í
Reykjavik og nágrenni með
söng sínum. Þar sem söng-
kennsla er ekki kennslugrein
í skólanum eru æfingar kórs
ins allar utan skólatíma, en
yfirleitt er æ£t tvisvar í
viku yfir vetrarmánuðina.
Frá því þátttaka í mótinu í
Wales var ákveðin hefur æf
ingum mikið verið fjölgað og
undanfarið hefur verið æft
á hverju kvöldi. Áhuginn hef
ur verið svo mikill í kórfólk
inu, að einn kórfélaganna,
sem búsettur er í Hvera-
gerði, og annar, sem búsett-
ur er í Keflavík, hafa komið
til æfinga á hverju kvöldi
— og þá ekki sett það fyrir
sig að þurfa að ferðast á
„puttanum", ef aðrar ferðir
hafa brugðizt. Og ekki hefur
stofnandi kórsins og stjórn-
andi, Þorgerður Ingólfsdóttir
talið æfingarnar eftir, enda
finnst henni hún eiga orðið
hvert bein í „börnunium sín
um“ eins og hún kallar þau.
—★—
Söngurinn barst á móti okk
ur, er við knúðum dyra í
Hamrahliðinni í fyrrakvöld.
„Hvað viljið þið heyra —
hafið þið einhver óskalög?“
spurði söngstjórinn, er hún
hafði boðið okkur velkom-
in, og ekki virtist hún óttast
að kórinn hennar gæti ekki
í hléi, sem gert var á æf-
ingunni, sögðu söngstjórinn,
Þorgerður Ingól'fsdóttir og
Guðmundur Arnlaugsson rekt
or, sem verður fararstjóri,
okkur svolítið frá mótinu í
Wales.
Mótið er kennt við Llangoll
en, lítið og friðsælt sveita-
þorp í Wales, en þar hafa
verið haldin slík mót árlega
frá 1947 og verður þetta hið
25. í röðinni. Hugmyndina
áttu nokkrir hugsjónamenn,
sem komu saman í Llangoll-
en í skugga heimsstyrj aldar-
innar, til þess að leiita ráða
til að eflla frið.og græða sár-
in eftir ógnir ófriðarins. Varð
að ráði að efnt yrði til al-
þjóðlegra söngmóta, þar sem
æskufólk frá öllum löndum
kæmi saman til að syngja og
keppa undir einkunnarorðun
um, sem á enskri tungu eru:
„Blessed ia a world that
sings, happy are its songs“.
Á liðnum aldarfjórðungi
hafa samtals yfir 4400 kórar
frá yfir 50 löndum tekið þátt
í sönghátíðinni og um 2180
gestir hafa að jafnaði verið
viðstaddir. Að þessu sinni
táka þátt í mótinu kórar frá
33 löndum. Einn íslenzkur
kór, PóJýflónkórtmn hefur áð-
ur sótt þetta mót og var það
fyrir 10 árum.
—★—
Framlag „hálftröllanna í
Hamrahlíðinni“ til mótsins í
Llangofllen verður í fernu
lagi: fyrst taka þau þátt í
þjóðlagakeppni þá keppni fyr
kór ungs fólks á aldrinum
16-—25 ára og síðan koma
þau fram á tvennum tónleik
um og syngja íslenzk þjóð-
lög á öðrum en íslenzkar tón
smíðar á hinum, m.a. eftir
Pál ísólfsson, Jórunni Viðar
og Þorkel Sigurbjörnsson.
—★—
Eins og gefur að sk*Lja
liggur geysileg vinna og mik
ill timi i öllum æfingunum,
en það hefur þurft meira til.
Svona ferð kostar drjúgan
ski'lding og þvi hefur kórinn
beitt ýmsum ráðum til að
afla fjár. Þau Þóroddur Þór
oddsson, sem var í 4. bekk
og lauk því stúdentsprófi nú
og Áslaug Helgadóttir, sem
var í 2. bekk stóðu fyrir fjár
öflúninni og sögðu okkur
nokkuð frá öðrum undirbún-
ingi.
— Það er rúmt ár síðan
þeirri hugmynd skaut upp að
gaman væri að geta farið á
þetta söngmót, en það var
þó ekki farið að ræða þetta
að ráði, fyrr en i febrúar-
marz i vetur. Það var nokk
uð erfitt að taka ákvörðun
í málinu, þar sem fólk vissi
ekki hvernig atvinnumál og
Því verður varla neitað að þær lifa sig inn í sönginn. —
aðrir ástæður yrðu á þessum
tíma. En þegar við svo sá-
um fram á að úr þessu gæti
líklega orðið fórum við á
stúfana og gáfum út auglýs-
ingablað. Við söfnuðum aug-
lýsingum sjálf og fengum yf
irleiltt mjög góðar undirtekt
Söngstjórinn, Þorgerður Ing-
ólfsdóttir, tekur oft undir
með „börnunum sínum“
Skólakór Menntaskólans við Hamrahlíð á æfingu.
(Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
ir hjá auglýsendum, þegar
þeir heyrðu hvað til stæði.
Siðan var lítið aðhafzt fyrr
en 17. júní er við höfðum
sölutjald í miðbænum. Ný-
stúdentarnir, sem eru um
helmingur af kórnum, stóðu
í fullum skrúða og seldu
blöðrur, sælgæti og öl og
sungu einnig fyrir viðskipta-
vini og vegfarendur. Virtist
þetta vekja mikinn fögnuð og
við þénuðum vel. Að öðru
leyti verður ferðin kostuð
með styrkjum, sem við höf-
um fengið úr skólasjóði, frá
ríki og frá Reykjavíkurborg,
og eitthvað smávegis þurfum
við líklega að greiða sjálf.
— Tóku æfingarnar ekki
mikinn tíma frá ykkur í próf
unum?
— Jú, þær hafa tekið mik
inn tíma bæði í vetur og í
prófunum, svo ekki sé taiað
um nú upp á síðkastið, sagði
Þóroddur. Vinnudagurinn var
oft orðinn langur, þegar mað
ur var búinn að vera í tim
um frá kl. 8 til hálf tvö og
síðan oft tvo tíma á söngæf
ingum. En hvað gerir maður
ekki fyrir ánægjuna? — f
prófunum í vor var æft af
kappi og það var gott að
geta sótt svolítinn sálar-
styrk til söngsins og kórfé-
laganna. Stundum kom fyrir
að menn biðu á söngæfingun
um eftir að þeir væru kallað
ir inn í munnleg próf, og
sungu á meðan af fuillum
krafti og gleymdu kvíðanum.
— Gekk öllum vel að fá
frí úr vinnu?
— Já, það hefur að ég
held ölum, sem farnir eru
að vinna tekizt að fá frí,
sagði Áslaug. Það gengur allt
með góðum vilja. Og þeir,
sem eiga heima úti á landi
og hafa ætlað sér þangað í
vinnu sitja fastir i Reykja-
vik.
—★—
Já, mikið skal til mikils
vinna. í dag er lokaæfing hjá
kórnum, og verður þangað
boðið vinum og vandamönn-
um, en síðan verður farið að
setja niður farangurinn því
á morgun verður lagt af stað.
í sínum farangri hefur hver
stúlka upphlut, sem hún mun
klæðast á mótinu, en piltam
ir verða í svörtum buxum,
hvítum skyrtum og með
svartar slaufur. Því fint
skal það vera! Þ. Á.