Morgunblaðið - 06.07.1971, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLl 1971
3
■1
KARNABÆR
SI\KSIM\\K
Viðskilnaður
viðreisnar-
stjórnar
f smuiudagrspistli Tímans s.l.
sunnudagr er fjallað um þær að-
stæður í þjóðarbúinu, sem
væntanleg vinstri stjóm Ólafs
Jóhannessonar kemur að, ef
og þegar stjómarskiptin hafa
farið fram. Um þetta sagði svo
í Tímanum á sunnudaginn:
„Margt veldur því, að stjórnar-
myndunin hefur dregizt mcira
en búast mátti við, ef dæmt er
eingöngu eftir svipuðum mál-
flutningi stjómarandstæðinga
fyrir kosningar. Mikilvægust er
þó að sjálfsögðu sú ástæðan, að
viðskilnaður „viðreisnarinnar"
verður með slikum hætti, að það
tekur nokkum tima að átta sig
á honum og gera sér grein fyrir
þeim aðgerðiun, sem leiðir af
honum. Slíkt verður þð ckkl
gert að sinni nema til bráða-
birgða, því að afleiðingar mis-
heppnaðrar stjóraarstefnu koma
ekki allar I Ijós í einu, helður
smám saman á lengri tima. f
stuttu máli má fuilyrða, að við-
skilnaðurinn hefur ekki verið
eins ömuriegur hjá neinni ís-
lenzkri stjórn og „viðreisnar-
stjóminni". Svo mörg eru þau
orð í Tímanum á sunnuðaginn
var. En hverjar eru staðreynð-
imar.
Blömlegt þjóðlíf
Óhætt er að fullyrða, að alðrel
hefur ný ríkisstjóra tekið við
þjóðarbúinu í jafngóðu og
traustu ástandi og sú ríkisstjóra
sem þeir Framsóknarmenn gera
sér vonir um að komist á lagg-
imar á næstu dögum eða vikum.
Og eru þær aðstæður alls ólíkar
því sem var, þegar viðreisnar-
stjórain tók við völdum 1959 og
ísland riðaði á barmi gjaldþrots
vegna viðskilnaðar vinstri stjóra-
ar Hermanns Jónassonar. í at-
vinnu- og efnahagslífi lands-
manna er nú mikill kraftur og
gróska. Velflestir atvinnuvegir
búa við traustan hag og nýjar
framkvæmdir og fjárfestingar
eru á döfinni, hvert sem litið er.
Það er því ekki við nein sérstök
vandamál að etja í atvinnulífinu.
Staða ríkissjóðs er mjög traust,
enda hefur fjármálastjóra Sjálf-
stæðismanna um 12 ára skeið
gjörbreytt allri fjármálastöðu rík
isins og vinnubrögðum í sam-
bandi ríð opinber fjármál. Staða
þjóðarbúsins út á við er mjög
sterk. Ný ríkisstjórn tekur við
miklum gjaldeyrisforða, en til
samanburðar má geta þess, að
þegar vinstri stjóm Hermanns
Jónassonar hrökklaðist frá völð-
um í desember 1958 mátti segja,
að gjaldeyrir til næstu daglegu
þarfa væri ekki fyrir hendi.
Margvíslegar stórframkvæmðir
hafa verið undirbúnar og má þar
nefna nýjar stórvirkjanir í Sig-
öldu- og Hrauneyjafossum og
verður fróðlegt að sjá, hvort
vinstri stjóra heldur áfram með
þær framkvæmdir, en þær byggj
ast að sjálfsögðu á því að orku-
frekur iðnaður verði jafnframt
byggður upp í landinu. Segja
má, að einu umtalsierðu vanda-
málin, sem að nýrri ríkisstjóm
steðja, verði í sambandi við lok
verðstöðvunartímabilsins hinn 1.
september nk., en það vandamál
er ekki stærra en ýmis þau við-
fangsefni, sem jafnan er við að
etja í efnahagslifi okkar.
Skrif Tímans benda til þess, að
væntanleg vinstri stjóm hafi I
byggju þungbærar efnahagsráð-
stafanir fyrir allan almenning i
Iandinu, og að ætlunin sé að
skella skuldinni á fráfaranði rík-
isstjóra af þeim sökum. Það
tekst ekki vegna þess, að öllum
er Ijóst, við hve blómlegu þjóðar
búi Ólafía tekur — ef hún þá
kemst á laggirnar.
Þátttakendur í hinni fjölniennu sumarferð Varðar sl. sunnudag. (Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson)
Fjölmenn sumarferð Varðar
— um Kaldadal og Borgarf jörð
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ
Vöróur efndi til 19. sumar-
ferðar sinnar á sunnudaginn
var. í bítið um morguninn
þyrptist fólk saman á Aust-
urvelli, en þaðan var haldið
í langri lest langferðabíla.
Það var ys og þys í miðbæn-
um áður en haldið var af stað,
enda voru ferðalangar hátt á
niunda hundrað. Að þessu
sinni var farið um Kaldadal
og Borgarfjörð undir leið-
sögn fræðaþularins Áma Óla.
Þama var saman kominn f jör-
legur hópur fólks á öllum aldri;
það var blíðskaparveður og eft-
irvæntingin leyndi sér ekki.
Fyrsti áningarstaðurinn var í
Bolabás, þar sem menn snæddu
árbít og Sveinn Björnsson, for-
maður Varðar, bauð þátttakend-
ur velkomna. Þaðan var ekið sem
leið liggur eftir Kaldadalsleið og
um Kaldadal; siðan var farið
um Hvítársíðu og staðnæmzt i
Norðtungu i Þverárhlíð.
Fyrir neðan túnið í Norðtungu
er skóglendi. Þangað var komið
laust eftir hádegi í glaðasólskini
og settust ferðalangar þar að
snæðingi. En fljótt skipast veð-
ur í iofti; eftir skamma stund
var komin úrhellis rigning og
blotnaði því mörg flíkin. Eftir
það skiptust á skin og skúrir, en
ekkert virtist þó skyggja á
óblandna ánægju og gott ferða-
skap þátttakenda.
Um kvöldmatarleytið var
stanzað skammt frá Ferstiklu og
snæddur náttverður. Árni Óla
flutti þar fróðlegt erindi og Bald-
ur Jónsson, formaður ferðanefnd
ar Varðar, flutti kveðjur frá Ás-
geiri Péturssyni, sýslumanni
Borgfirðinga.
KÆÐA JÓHANNS HAFSTEIN
Jóhann Hafstein, formaður
Sjálfstæðisflokksins, flutti ræðu,
þar sem hópurinn hafði viðdvöl
á Hvalfjarðarströnd. Jóhann
Hafstein sagði, að nú hefði verið
farið um tvö héruð, Borgarfjarð-
ar- og Mýirarsýslu, og komið við í
Árnessýslu og Kjósarsýslu og
þegar hefði margt verið um þau
talað. Farið hefði verið í fögru
veðri og sólskini um Kaldadal. 1
hans hlut hefði komið að ræða
nokkuð um Kaldadal stjómmál-
anna, en enginn skyldi halda, að
þar gæti ekki einnig verið heið-
rikja. Hann sagði, að sjálfstæðis-
menn stæðu nú á vissum tíma-
mótum. Þeir hefðu haldið velli í
kosningunum; hitt væri svo ann-
að mál, að samstarfsflokkur
þeirra í ríkisstjórn hefði goldið
mikið afhroð. En rétt væri að
hafa i huga, að sá flokkur, sem
tapað hefði næst mestu fylgi,
væri Framsóknarflokkurinn: Sá
flokkur, er nú hefði forystu um
myndun nýrrar rikisstjórnar.
Eftir tólf ára forystu í stjórnar-
andstöðu hefði Framsóknarflokk
urinn tapað furðu miklu fylgi.
Hann hefði tapað miklu fylgi á
Austfjörðum og. Vestfjörðum og
Jóhann Hafstein
í kjördæmi formannsins hefði
hann misst þingsæti. Tap Fram-
sóknarflokksins væri miklu
meira en tölur segðu til um. Það
væri vegna þess, að þeir hefðu
ætlað sér að vinna glæsilegan
sigur.
Oft væri nú að því spurt, hvers
vegna kommúnistar og Samtök
frjálslyndra og vinstri manna
hefðu unnið svo mikið fylgi i
kosningunum. Það væru fyrst og
fremst tvær ástæður, sem þessu
hefðu valdið. 1 fyrsta lagi hefði
kommúnistum tekizt að hylja
stefnu sina undir sauðargær-
unni. Það yrði nú verkefni sjálf-
stæðismanna að fletta ofan af
þéim. Kommúnisminn væri al-
varlegri • hlutur en svo, að unnt
væri að leiða þessa staðreynd hjá
sér. Það væri vitað, að kommún-
istar stjórnuðu Alþýðubandalag-
inu og þeim væri aftur stjómað
annars staðar frá. Þess vegna
væri það nú verkefni sjálfstæðis-
miainna að fletta ofan af komm-
únismanum.
1 öðru lagi hefðu kjósendur
ekki getað gert sér grein fyrir
þeim ósköpum, sem gengu yfir,
þegar vinstristjómin var við
völd. Þvi væri nú haldið fram,
að vinstristjómin hefði gefizt
upp vegna hatrammrar stjórnar-
andstöðu Sjálfstæðisflokksins.
En hvað sem því liði, væri ljóst,
að engin stjóm gæfist upp,
nema vegna þess, að hún væri
úrræðalaus. Rétt hefði verið að
leggja meiri áherzlu á glapræð-
in á stjómarferli vinstri-
stjórnarinnar i kosningabarátt-
unni.
Síðan þakkaði Jóhann Hafstein
sjálfstæðismönnum fyrir skel-
egga baráttu; Sjálfstæðisflokkur-
inn væri enn sem fyrr sterkasta
vígið, traust og hald almennings
i landinu. Það yrði að sýna þeim
mönnum, sem nú vinna að stjóm
armyndun, visst umburðarlyndi.
Þeir héldu þvi að visu fram, að
á milli þeirra væri enginn mál-
efnaágreiningur. Ef svo væri
Framhalð á bls. 19
TÖKUM UPP í DAG i
FYRIR SUMAR- i
FERÐIRNAR! '
l
□ GALLABUXUR FRA U.S.A. ,
□ STUTTJAKKAR DÖMU ,
OG HERRA
□ SPORTJAKKA 1
□ HAA SPORTSOKKA 1
□ RÚSKIIMNSSTUTTBUXUR I
JAKKA OG KAPUR |
□ STUTTERMA SKYRTUR ,
□ HERRA- OG DÖMUPEYSUR
SUMAR
OG
SÓL!
VIÐ LEGGJUM
AHERZLU Á:
□ GALLA-
BUXUR
□ BOLI
□ GALLA-
BUXUR
I--------------
'
1 "
| □ BOLI ,
I □ GALLA- 1
I BUXUR I
1 □ BOLI 1
I I
, □ GALLA- ,
BUXUR
NÚ ER
SUMAR
SUMAR